Morgunblaðið - 01.03.2003, Síða 63

Morgunblaðið - 01.03.2003, Síða 63
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 63 Guðmundur E. Stephensen, Íslandsmeistari í MFL karla 94, 95, 96, 97, 98, 99, 2000, 2001 og 2002. Kl. 11.40 úrslit 2. flokkur karla og kvenna. Kl. 12.00 úrslit 1. flokkur kvenna og karla. Kl. 12.30 úrslit tvíliðaleikur karla og kvenna. Kl. 13.40 úrslitaleikir í meistaraflokkum karla og kvenna. TBR-Íþróttahúsið Mótið hefst laugardaginn 1. mars kl. 10 með tvenndarkeppni. Sunnudaginn 2. mars hefjast undanúrslitaleikir kl. 11. Íslandsmótið í borðtennis 2003 Verðlaunaafhending sunnud. 2. mars kl. 14.00. Áhugamenn um borðtennis fjölmennið! ENSKA knattspyrnu- sambandið tilkynnti í gær að Pétur Hafliði Marteinsson, leik- maður Stoke City, þyrfti ekki að taka út eins leiks bann þrátt fyrir brottrekstur í leik liðsins við Nott- ingham Forest á dög- unum. Pétur var þá rekinn af velli fyrir að handleika knöttinn en dómari leiksins taldi að hann hefði varið skot frá sókn- armanni Forest af ásetningi. Stoke sendi aganefnd knattspyrnu- sambandsins myndbandsupptöku af atvikinu og eftir skoð- un á því var ákveðið að fella bannið niður. Pétur getur því spilað með Stoke gegn Ips- wich hinn 8. mars en hann átti að taka bannið út í þeim leik. „Við erum hæst- ánægðir með þessa niðurstöðu. Við áfrýj- uðum rauða spjaldinu vegna þess að við töld- um að Pétur hefði ekki átt það skilið, og það kom í ljós að við höfðum rétt fyrir okkur,“ sagði Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, á heimasíðu félagsins í gær. Pétur Hafliði sleppur við bann Pétur Hafliði KR-ingar voru ekki í miklumvandræðum með að leggja and- laust lið Breiðabliks að velli þegar lið- in áttust við í úrvals- deilidinni í körfu- knattleik í gærkvöldi. Við tapið minnkuðu möguleikar Blika á að eiga sæti í úrslitakeppninni til muna, þeir þurfa að sigra í þeim leikj- um sem eftir eru, gegn Keflavík og Njarðvík og treysta á að Snæfellingar tapi báðum sínum leikjum. KR er enn sem fyrr í þriðja sæti, en þeir eiga erf- iða leiki eftir, gegn Íslandsmeisturum Njarðvíkur á sunnudagskvöldið og gegn Haukum á útivelli, en þeir eru 2 stigum á eftir KR og því er spennandi toppbarátta framundan. Það var aðeins í fyrsta leikhluta sem leikurinn var jafn, Kenneth Tate byrjaði vel fyrir Blika og skoraði 15 stig í leikhlutanum. Eftir fyrsta leik- hluta tóku gestirnir leikinn í sínar hendur. Kenneth Tate skoraði 4 fyrstu stig Blika í leikhlutanum en sást svo varla það sem eftir lifði leiks. Það munar um minna og KR-ingar gátu nýtt sér það. Þeir juku muninn jafnt og þétt, voru komnir með 13 stiga forystu í hálfleik og munurinn var orðinn 20 stig í lok þriðja leik- hluta. Blikarnir voru í erfiðleikum með að koma knettinum ofan í körf- una, hittu lítið og varnarleikurinn var slakur. Það var ekki margt sem gladdi augað í seinni hálfleik eftir að Blikar höfðu játað sig sigraða. Það var helst að tvær glæsilegar troðslur Baldurs Ólafssonar hafi haldið áhorf- endum vakandi. Blikarnir hittu varla á körfuna á meðan KR gekk á lagið og jók forystuna enn frekar. Gestirnir náðu mest 36 stiga forystu undir lok leiksins. Þeir áttu ekki í nokkrum vandræðum með að finna glufur á slakri vörn Breiðabliks og gátu KR- ingar leyft sér að hvíla alla lykilmenn sína lungann úr síðari hálfleik. Allir leikmenn KR komust á blað í leiknum. Darrell Flake og Magni Hafsteinsson voru þeirra atkvæða- mestir í annars mjög jöfnu liði. Leikmenn Breiðabliks áttu ekki góðan dag. Hittni þeirra var herfileg, til að mynda hittu þeir aðeins úr 3 af 15 þriggja stiga skotum. Kenneth Tate byrjaði leikinn mjög vel en sást varla eftir fyrsta leikhluta, ekki frek- ar en aðrir leikmenn Breiðabliks. Slakir Blikar lítil fyrirstaða fyrir KR-inga Benedikt Rafn Rafnsson skrifar DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir hafnaði í 25. sæti af 72 keppendum í risasvigsmóti í Evrópubikarnum sem fram fór í Innerkrems í Aust- urríki í fyrradag. Þetta er besti ár- angur Dagnýjar en hún fékk 5 Evr- ópubikarstig sem eru hennar fyrstu á tímabilinu. Barbara Kleon frá Ítalíu sigraði á 1:14,97 mínútu en tími Dagnýjar var 1:16,75 mínúta. Dagný Linda keppti tvívegis í bruni í Innerkrems fyrr í vikunni. Hún varð í 64. sæti af 69 keppend- um á mánudag og í 53. sæti af 62 keppendum á miðvikudag. Besti árangur Dagnýjar Reyndar var fyrsta mínútan gest-anna en Njarðvíkingar fóru þá í gang. Páll Kristinsson fór á kostum með hverri körfunni á fætur annarri auk þess að taka fráköst og Ólafur A. Ingva- son átti líka góðan sprett. Engu að síður tókst þeim ekki að stinga Grindvíkinga af og 11 stig- um munaði eftir fyrsta leikhluta. Páll tók aftur við sér í öðrum leikhluta en Darrel Keith Lewis sá til þess að Grindavík hélt í við heimamenn. Þrumuræðan í búningsherbergi Grindavíkinga í leikhléi virtist skila sér á fram í miðjan síðari hálfleik og þá loks lét Gregory Harris, nýr leik- maður Njarðvíkinga, loks til sín taka með þrjár þriggja stiga körfur snemma í þriðja leikhluta. Grindvík- ingar voru hinsvegar komnir á bragðið og söxuðu örlítið á forskot heimamanna. Þeir sáu að möguleiki var á sigri auk þess að mikil barátta Njarðvíkinga hafði tekið sinn toll og þegar rúmar fjórar mínútur voru eft- ir var staðan 87:78. Heimamenn voru varkárir og reyndu að halda boltan- um en það getur skapað hættu á að missa boltann eins og einmitt gerðist. Átján sekúndum fyrir leikslok var staðan 97:94 og Njarðvík tókst að þrauka út leikinn og bæta reyndar við körfu í blálokin. „Sigurinn varð naumari en ég vildi hafa hann en ég er samt gríðarlega ánægður með baráttuna í liðinu,“ sagði Friðrik Stefánsson, fyrirliði Njarðvíkinga, eftir leikinn. „Okkur hefur vantað hana í allan vetur en núna var hún í lagi, nema í lokin. Við erum um miðja deild og verðum nú að gefa í og halda áfram því oft höfum við átt góðan leik en síðan slakan,“ bætti Friðrik við. Þjálfari liðsins, Friðrik Ragnarsson, var í leikbanni og nýr leikmaður, Harris, tekinn við af Gary Hunter. „Það þjappaði mönnum betur saman. Mér fannst Harris spila vel. Hann spilar vörn, leggur sig fram fyrir liðið og er hluti af því án þess að ég vilji gagnrýni út- lendinginn, sem var að fara,“ bætti Friðrik við. Páll tók 8 fráköst og átti sjö stoðsendingar, eins og Teitur Ör- lygsson sem skoraði úr báðum skot- um sínum inni í teig, tveimur af þremur vítaskotum og 5 af níu þriggja stiga skotum. Harris átti 10 stoðsendingar en varð fljótt þreyttur og fór því oft lítið fyrir honum. Friðrik Rúnarsson þjálfari Grind- víkingar var ómyrkur í máli eftir leikinn. „Hörmulegur fyrri hálfleikur varð okkar banabiti og það er ekki til afsökun í bókinni fyrir hvernig við vorum að leika í fyrri hálfleik. Þá er ég ekki að tala um skotin, heldur að við hlupum ekki í vörnina og spiluð- um hana síðan varla auk þess að vera seinir í öllum okkar aðgerðum. Hins- vegar hættu menn ekki og sýndu meiri styrk í síðari hálfleik. Við náð- um að minnka muninn en því miður tókum við of seint við okkur og það vantaði herslumuninn. Við höfum samt ennþá forskot í deildinni og það eru tveir leikir og við munum treysta á okkur sjálfa til að vinna deildina,“ sagði Friðrik. Guðmundur Bragason tók 14 fráköst auk þess að hvetja sína menn vel áfram og Darrel K. Lewis tók 9 fráköst en átti 7 stoðsendingar. Guðlaugur Eyjólfsson var drjúgur við þriggja stiga skotin. Hann tók ekkert skot inni í teig en hitti úr báð- um vítaskotum sínum og átta af tíu þriggja stiga skotum. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Bárðar Friðrik Stefánsson reynir skot en Páll Axel Vilbergsson og Guðmundur Bragason fylgjast með. Grindvíkingar voru slegnir út af laginu OFT hefur baráttuandann vantað í Njarðvíkinga í vetur en í gær- kvöldi, þegar Grindavík kom í heimsókn, var hann í lagi og það skil- aði sigri. Gestirnir voru að sama skapi mjög slakir framan af og það kom þeim í koll því eftir gott viðbragð undir lokin tókst þeim að koma spennu í leikinn með því að minnka muninn úr 23 stigum nið- ur í þrjú. En þar við sat og Njarðvík vann 99:94. Engu að síður eru Grindvíkingar ennþá með tveggja stiga forystu í deildinni þegar tvær umferðir eru eftir en Njarðvíkingar eru með sigrinum öruggir með sæti í úrslitakeppninni. Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.