Morgunblaðið - 01.03.2003, Síða 66
66 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær svört kómedía með stórleikurunum Jack
Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefningar til
Óskarsverðlauanna í ár fyrir leik sinn í myndinni.
2 Tilnefningar til Óskarsverðlauna:Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.
RADIO X
SV MBL
SG DV
Kvikmyndir.com
SV. MBL
Kvikmyndir.comHK DV
Tilnefningar til Óskarsverð-
launa þ. á. m. besta mynd13
Sýnd kl. 8, 10 og Kraftsýning kl. 12. B.i. 16
Sýnd kl. 4.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 3.30.
Frumsýning á fyrstu stórmynd ársins
Vinsælasta
myndin í
Bandaríkjunum.
2 vikur á
toppnum.
Stútfull af topp
tónlist og
brjálæðri
spennu.
Missið ekki af
þessari
mögnuðu
mynd.
Sýnd kl. 10.10.
Sýnd kl. 2 og 6.
Sýnd kl. 2, 5.50 og 8. B.i. 12.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og Powersýning kl. 10.20. B.i. 16.
Sýnd kl. 1.40, 3.45 og 5.50.
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
Njósnarinn Alex Scott er að
fara sitt hættulegasta verkefni
til þessa.. .með ennþá
hættulegri félaga!
kl. 2 og 5.30.
Sýnd kl. 2. Bi. 12. Síðustu sýningar
kl. 9.
Frábær mynd sem frá leikstjóranum Martins
Scorsese með stórleikurunum Leonardo DiCaprio,
Daniel Day-Lewis og Cameron Diaz.
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna, þ.á.m. besta
mynd og besti leikstjóri10
HJ MBL
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4.30, 8 og
10.10. B.i. 16.
Frumsýning á fyrstu
stórmynd ársins
Vinsælasta
myndin í
Bandaríkjunum.
2 vikur á
toppnum.
Stútfull af topp
tónlist og
brjálæðri
spennu.
Missið ekki af
þessari
mögnuðu
mynd.
SV MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2
HK DV
FÓLK erlendis er unn-vörpum að falla fyrir töfr-um OrgelkvartettsinsApparats, stærsta org-
elkvartetts heims en hann hefur á að
skipa fimm meðlimum. Vélrænir en
hlýir straumar sveitarinnar laða og
lokka en síðasta haust kom út fyrsta
breiðskífa kvartettsins, Apparat
Organ Quartet. Á færeysku popp-
síðunni www.pop.fo má lesa að
„Apparat er ein góður bólkur, eitt
gott hugskot!“ og The Wire, biblía
tilraunatónlistar, lýsir hljómsveit-
inni sem samblandi af sveimguðföð-
urnum Terry Reilly og tilrauna-
poppsveitinni Stereolab.
„Fílað“ í botn
Apparat-limir eru nú að undirbúa
tveggja mánaða tónleikaför, jafn-
framt sem unnið er að útgáfu stóru
plötunnar á alþjóðamarkaði en við-
ræður við útgáfur standa nú yfir.
Þá er útgáfa áðurnefndrar Stereo-
lab, Duophonic, að fara að gefa út
smáskífu með kvartettnum, en hann
hitaði einmitt upp fyrir sveitina er
hún heimsótti landið í október síð-
astliðnum. Þeir tónleikar eru nú
orðnir sögulegir, þar sem þetta voru
þeir síðustu sem Mary heitin Han-
sen lék á, áður en hún lést sviplega í
slysi í Lundúnum.
„Þetta ferðalag okkar er m.a.
vegna nýju smáskífunnar sem Duo-
phonic gefur út“ segir Jóhann Jó-
hannsson, einn fjögurra orgelleikara
sveitarinnar. Með honum er Úlfur
Eldjárn, sömuleiðis orgelleikari en
aðrir meðlimir eru þeir Arnar Geir
Ómarsson (trommur), Hörður
Bragason (orgel) og Sighvatur Ómar
Kristinsson (orgel). „Þarna verður
lagið „Romantika“ ásamt einu nýju
lagi og einnig forhljóðblöndun af
„Romantika“ ef svo mætti segja,“
bætir Jóhann við.
Í lok apríl spilar sveitin svo í
Lundúnum en þar á undan verður
stuttur túr um Skandinavíu, eða það
sem Úlfur kallar kerksnislega
„miniature“. M.a. hefur þeim verið
boðið að spila á Spot-hátíðinni í Dan-
mörku. Í byrjun apríl mun sveitin
enn fremur taka þátt í tónlistarhá-
tíðinni Domino sem fram fer í Belg-
íu. Þar verða nokkrir af athygl-
isverðustu neðanjarðarlistamönnum
samtímans t.a.m. Interpol, Stephen
Malkmus, Mars Volta, Four Tet, Ed
Harcourt, Erlend Øye, Songs: Ohia,
Jackie-O Motherfucker og Friends
of Dean Martinez. Þannig að það er
nóg að gerast hjá Apparatinu á
næstu vikum.
„Útlendingar eru mjög hrifnir af
þessari plötu,“ segir Úlfur. „Samt
eru mjög fáir búnir að heyra hana,
það hafa bara nokkur eintök lekið
út.“
Jóhann tekur í sama streng. „Það
kom mér á óvart hversu víða skír-
skotun platan virðist hafa. Ég hélt
að hlustendahópurinn yrði til muna
þrengri. En ung dóttir mín er t.d. að
„fíla“ þetta í botn.“
Þeir félagar segja að síðasta
Airwaves hátíð hafi hjálpað talsvert
upp á þessa eftirspurn en einnig var
fjallað ítarlega um sveitina í þætt-
inum Frontline: The World sem
sýndur er á besta tíma á bandarísku
sjónvarpsstöðinni PBS. Fréttin var
unnin af hinum þekkta útvarps-
manni Marco Werman sem fjallaði
þar um íslenska tónlist og menn-
ingu. Í kjölfarið hefur fyrirspurnum
um sveitina frá Ameríku rignt inn í
pósthólf meðlima.
„Það er örugglega auðveldara fyr-
ir íslenskan orgelkvartett að vekja
athygli á sér ytra en íslenska Britn-
ey eða eitthvað nýþungarokk,“ segir
Jóhann.
Auk alls þessa var umfjöllun um
sveitina í listatímaritinu Art Forum
á dögunum, grein sem fjallaði um
tengsl myndlistar og tónlistar á Ís-
landi. Fjallað var um starfsemi Til-
raunaeldhússins, Rassa Prump (úr
Kanada, Trabant, Funerals o.fl.) og
Apparat út frá umslagi plötu þeirra
og hönnun hennar, sem byggist á
myndverki eftir Markús Þór Andr-
ésson.
Blátt áfram
„Við erum að semja á fullu núna,
aðallega eru þetta þó lagatitlar sem
vð erum komnir með,“ útskýrir Úlf-
ur. „Við erum vinnutitil á einu lagi,
„Camouflage“. Sagan á bakvið það
er æði sérstök. Þannig var að Hörð
dreymdi lagið, og í draumnum var
þetta besta lag sem við höfum gert.
Þegar hann vaknaði hljóp hann í pí-
anóið heima hjá sér til að gleyma
þessu ekki en þá mundi hann ekkert
– nema titillinn. Síðan þá höfum við
verið að reyna að semja þetta lag.
Við vitum að þetta er besta lag í
heimi, við bara vitum ekki nákvæm-
lega hvernig það er.“
Meðlimir sveitarinnar eru allir á
kafi í öðrum verkefnum og spurning
hvort að Apparatið sé byrjað að
svína fyrir aðra vinnu?
„Þetta tekur vissulega mjög mik-
inn tíma,“ segir Jóhann. „En við
skiptum með okkur verkum. Ég og
Úlfur erum í tengslum við erlenda
aðila og erum svona embættismenn
út á við. Músíkvatur sér um net-
málin og praktíska hluti eins og
flutning á hljóðfærum og hvað er
fyrir hendi í þeim málum erlendis.
Arnar er aðallega bara í pönkinu.“
Úlfur telur að það hafi jákvæð
áhrif á neytendur, hversu blátt
áfram þeir allir séu í vinnu sinni við
kvartettinn.
„Það er okkur mjög eðlilegt að
vera í kvartettnum, þetta er mjög
áreynslulaust. Þegar við byrjuðum
þá hugsuðum við „Já, auðvitað, þetta
er hljómsveitin sem við eigum að
vera í“. Þá eru litlar tekjur að hafa
upp úr Apparatinu, það verður að
viðurkennast, við lítum því á þetta
sem fjárfestingu. Þetta á eftir að
margborga sig í framtíðinni.“
Ljósmynd/Lena Viderö
Orgelkvartettinn Apparat. Útlöndin kalla … og kalla.
Leitað að besta
lagi í heimi
Orgelkvartettinn Apparat gaf út sína fyrstu
breiðskífu síðasta haust og mun breiða út
fagnaðarerindið á næstu mánuðum. Arnar
Eggert Thoroddsen tók hús á orgel-
snáðunum Úlfi og Jóhanni.
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.pbs.org/frontlineworld