Morgunblaðið - 12.03.2003, Page 1
KOMI til stríðs í Írak gæti tap banda-
rískra flugfélaga aukist um fjóra
milljarða dollara, andvirði 300 millj-
arða króna, að sögn samtaka banda-
rískra flugfélaga, ATA, í gær.
Samtökin telja að þetta mikla tap
geti orðið til þess að flugfélögin þurfi
að segja upp 70.000 starfsmönnum og
leggja niður 2.200 daglegar flugferðir.
Þau segja að efnahagslegar afleiðing-
ar stríðs í Írak geti orðið svo alvar-
legar að mikil hætta sé á „glundroða-
kenndri hrinu gjaldþrota í greininni“.
Flugfélög þjóðnýtt?
„Líkurnar á nauðungarþjóðnýtingu
atvinnugreinarinnar eru ekki óraun-
hæfar,“ segir í nýrri skýrslu samtak-
anna. Þar kemur einnig fram að erf-
iðleikar flugfélaganna myndu hafa
alvarleg áhrif á allt efnahagslíf
Bandaríkjanna og auka á atvinnuleys-
ið í öðrum greinum. Gert sé ráð fyrir
því að nær fjögur störf tapist í ferða-
þjónustu fyrir hvern starfsmann flug-
félaganna sem missi vinnuna.
Robert L. Crandall, fyrrverandi að-
alframkvæmdastjóri American Air-
lines, segir að stríð í Írak geti leitt til
„mestu kreppu í sögu flugsins“. „Grípi
stóru flugfélögin ekki til stórfelldra
sparnaðaraðgerða verða þau öll gjald-
þrota á endanum.“
Óttast hrun
flugfélaga
komi til
stríðs í Írak
Washington. AFP, The Washington Post.
Reuters
Frábær túlkun
á Carter
Pacifica-strengjakvartettinn fær
góða dóma vestanhafs | Listir 25
Árni Gautur Arason reiðubúinn
að breyta til | Íþróttir 45
Mynddiskur
með Bítlunum
Myndir af síðustu æfingu þriggja
Bítla meðal efnis | Fólk 50
STOFNAÐ 1913 69. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Hafnaði tilboði
Rosenborgar
DONALD Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær að stjórn George W. Bush for-
seta væri tilbúin að hefja stríð í
Írak án Breta ef þörf krefði.
Rumsfeld sagði á blaðamanna-
fundi í Washington að ákvæði
stjórn breska Verkamannaflokks-
ins að taka ekki þátt í hernaði í
Írak gæti Bandaríkjaher látið til
skarar skríða án þátttöku breska
hersins. Mikil andstaða er innan
Verkamannaflokksins við stríð í
Írak samþykki ekki öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna nýja ályktun
sem heimili hernað.
Embættismenn í breska forsæt-
isráðuneytinu voru undrandi á um-
mælum Rumsfelds og áréttuðu að
Bretar myndu taka þátt í hernað-
inum neituðu Írakar að afvopnast,
að sögn BBC í gærkvöldi.
Bandaríkjamenn höfnuðu í gær
málamiðlunartillögu um að Írökum
yrði gefinn að minnsta kosti mán-
aðar frestur frá mánudeginum
kemur til að hlíta afvopnunarskil-
málum öryggisráðsins. Þeir höfn-
uðu einnig tillögu um að atkvæða-
greiðslu í ráðinu um nýja ályktun
yrði frestað og sögðu að hún ætti
að fara fram í vikunni.
Sex aðildarríki öryggisráðsins –
Angóla, Chile, Gvæana, Kamerún,
Mexíkó og Pakistan – sem hafa
hvorki lýst yfir stuðningi né and-
stöðu við ályktunardrögin lögðu til
að Írakar fengju 30–45 daga frest í
viðbót til að afvopnast. Banda-
ríkjamenn, Bretar og Spánverjar
höfðu lagt til að Írökum yrði gefinn
lokafrestur til mánudagsins kemur
til að hlíta afvopnunarskilmálun-
um.
Ari Fleischer, talsmaður George
W. Bush Bandaríkjaforseta, sagði
að ekki kæmi til greina að sam-
þykkja tillögu ríkjanna sex en gaf
til kynna að fresturinn yrði ef til
vill lengdur um nokkra daga.
Jiang Zemin, forseti Kína, sagði
í gær að ekki væri þörf á nýrri
ályktun og stjórnvöld í Pakistan og
Chile sögðu að það „yrði mjög erf-
itt“ fyrir þau að styðja hernað í
Írak. Talsmaður stjórnarflokksins
í Pakistan sagði að landið myndi
sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.
Bandarískir embættismenn
sögðust hafa tryggt stuðning
þriggja Afríkuríkja í öryggisráðinu
– Angóla, Gvæana og Kamerún –
við ályktunardrögin. Frakkar
sögðust hins vegar hafa talið
stjórnvöld í Gvæana og Kamerún á
að sitja hjá og stjórnin í Angóla
hefði ekki enn gert upp hug sinn.
Flugher Bandaríkjanna
sprengdi í gær nýja og mjög öfluga
sprengju, MOAB, í tilraunaskyni í
Flórída og vonast til þess að geta
beitt henni gegn mikilvægum skot-
mörkum, meðal annars neðanjarð-
arbyrgjum, komi til stríðs í Írak.
Bandaríkjamenn vonast til þess að
MOAB valdi svo mikilli sprengingu
að íraskir hermenn verði skelfingu
lostnir, haldi að beitt hafi verið
kjarnorkusprengju og gefist upp.
Stjórn Bush tilbúin að
hefja stríð án Breta
Hafnar tillögu
um að gefa
Írökum mán-
aðar frest til
að afvopnast
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
Reuters
Íraskir hermenn ganga framhjá málverki af Saddam Hussein, forseta Íraks, við herstöð norður af Bagdad.
„Nyet, No, Non“/18
Á AÐALFUNDI Kaupþings banka hf., sem
haldinn verður síðdegis í dag, og í kjölfar hans
má gera ráð fyrir, að umtalsverðar breytingar
verði gerðar á yfirstjórn bankans. Guðmundur
Hauksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis, sem verið hefur stjórn-
arformaður Kaupþings, mun láta af stjórnarfor-
mennsku en sitja áfram í stjórn. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins mun Guðmundur
Hauksson fyrir alllöngu hafa komizt að þeirri
niðurstöðu, að stjórnarformennska hans í Kaup-
þingi samræmdist ekki starfi hans sem spari-
sjóðsstjóri SPRON. Jafnframt hafa sparisjóð-
irnir minnkað eignarhald sitt í Kaupþingi en
fyrirtækið vaxið mjög hratt og eðlilegt talið að
útrás þess á erlendum vettvangi yrði stjórnað af
stjórnarformanni í fullu starfi.
Sigurður Einarsson, sem verið hefur forstjóri
Kaupþings frá því að Bjarni Ármannsson lét af
því starfi fyrir nokkrum árum og tók við forystu
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og síðar Ís-
landsbanka, mun láta af starfi forstjóra og er
gert ráð fyrir að hann verði formaður nýrrar
stjórnar, sem kjörin verður á aðalfundinum í
dag.
Sigurður verður stjórnarformaður Kaupþings
banka í fullu starfi.
Hreiðar Már Sigurðsson, sem verið hefur að-
stoðarforstjóri Kaupþings, mun taka við starfi
forstjóra Kaupþings banka.
Aðalfundur Kaupþings banka hf. verður hald-
inn í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, í dag og
hefst kl. 17.00.
Breytingar fyrirhugaðar á yfirstjórn Kaupþings banka hf. á aðalfundi í dag
Sigurður stjórnarformað-
ur – Hreiðar Már forstjóri
Sigurður
Einarsson
Hreiðar Már
Sigurðsson
Guðmundur
Hauksson
EINN af hverjum tíu Íslend-
ingum telst virkur í frum-
kvöðlastarfsemi eða 11,3%, sem
er hæsta hlutfall í Evrópu sam-
kvæmt nýrri alþjóðlegri rann-
sókn sem Háskólinn í Reykjavík
framkvæmdi hér á landi með
stuðningi Samtaka atvinnulífs-
ins, Nýsköpunarsjóðs atvinnu-
lífsins, forsætisráðuneytisins og
Seðlabanka Íslands. Rögnvaldur
J. Sæmundsson lektor í frum-
kvöðlafræðum við HR kynnti
niðurstöðurnar í gær og sagði að
hér á landi væri auðvelt að
stofna fyrirtæki en erfitt væri að
fá inn áhættufjármagn.
11,3% virk í frum-
kvöðlastarfsemi
Ísland hæst
í Evrópu
Helmingur/17