Morgunblaðið - 12.03.2003, Síða 2

Morgunblaðið - 12.03.2003, Síða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ HAFNA MÁNAÐAR FRESTI Bandarísk stjórnvöld höfnuðu í gær málamiðlunartillögu um að Írökum yrði gefinn a.m.k. mánaðar frestur í viðbót til að hlíta afvopn- unarskilmálum öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. Bandaríkjamenn höfðu lagt til að Írakar fengju frest til mánudagsins kemur en eru nú sagðir ljá máls á því að lengja hann um nokkra daga. Hátt hlutfall frumkvöðla Einn af hverjum tíu Íslendingum telst virkur í frumkvöðlastarfsemi eða 11,3%, sem er hæsta hlutfall í Evrópu. Þetta er niðurstaða alþjóð- legrar rannsóknar. Telja að skilaverð lækki Stjórnendur tveggja stærstu af- urðasölufyrirtækja landsins telja flest benda til þess að skilaverð til sauðfjárbænda lækki í haust vegna mikils offramboðs á kjötmarkaði. Þeir segja að sláturleyfishafar hafi þurft að taka á sig tap vegna fram- leiðslu síðasta hausts. Yfirstjórn Kaupþings breytt Gera má ráð fyrir að umtalsverðar breytingar verði gerðar á yfirstjórn Kaupþings banka hf. í kjölfar aðal- fundar hans í dag. Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis, mun láta af stjórnarformennsku en sitja áfram í stjórn Kaupþings, skv. heimildum Morgunblaðsins. Sig- urður Einarsson mun láta af starfi forstjóra og gert er ráð fyrir því að hann verði formaður nýrrar stjórn- ar. Mælar á Mýrdalsjökul Þrír jarðvísindamenn voru á Mýr- dalsjökli í gær að koma fyrir skjálftamælum á Austmannsbungu og Entukollum. Markmiðið er að vakta Kötlu og kanna betur dýpi skjálfta. Náðu ekki sátt um Kýpur Viðræður um endursameiningu Kýpur fyrir milligöngu Sameinuðu þjóðanna hafa farið út um þúfur. Að- eins gríski hluti eyjunnar fær því að- ild að Evrópusambandinu á næsta ári og þetta dregur úr líkum á aðild- arviðræðum við Tyrki.  NÝR TOYOTA AVENSIS  BRESKIR Á JÖKLI  DRAUMABÍLL LÆKNIS AMERÍSKIR OG STÓRIR  BÍLASÝNINGIN Í GENF  FORD VÖRUBÍLL ’47  OPEL MERIVA NÝSTÁRLEGAR LAUSNIR Handfrjáls búnaður í bíla fyrir flestar gerðir GSM síma. Ísetning á staðnum. FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is K IA ÍSLAND Bílar sem borga sig! Alhliða lausn í bílafjármögnun Suðurlandsbraut 22 540 1500 www.lysing. is Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Viðskipti 16/17 Minningar 34/37 Erlent 18/20 Staksteinar 38 Höfuðborgin 21 Bréf 40 Akureyri 22 Dagbók 42/43 Suðurnes 24 Íþróttir 44/47 Landið 24 Fólk 48/53 Listir 25/26 Bíó 50/53 Umræðan 27/33 Ljósvakamiðlar 54 Forystugrein 28 Veður 55 * * * ÍSLENSKA ríkið hefur verið sýkn- að af kröfu móður sem krafðist þess fyrir hönd ófjárráða dóttur sinnar að felld yrði úr gildi synjun landlækn- isembættisins við því að upplýsingar úr sjúkraskrám um látinn föður hennar yrðu fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Héraðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu, að dulkóðun heilsufarsupp- lýsinga, aðgangshindranir, öryggis- kröfur og eftirlit opinberra aðila með rekstri gagnagrunns á heilbrigðis- sviði, svo og þagnarskylda þeirra sem koma að gerð og starfrækslu hans gerði það að verkum að upplýs- ingar þær, sem fyrirhugað var að flytja í gagnagrunninn verði óper- sónugreinanlegar í lagalegum skiln- ingi, eftir að þær hafa verið fluttar í hann. Hið sama gilti um hugsanlega tímabundna tengingu gagnagrunns- ins við gagnagrunn með ættfræði- eða erfðafræðiupplýsingum, að upp- fylltum skilyrðum, sem Persónu- vernd setti. Dómurinn segir í niður- stöðum sínum að nútímaaðferðir til dulritunar séu það öruggar, aðal- mennt sé talið nánast útilokað að lesa dulritaðar upplýsingar, sé dul- ritunarlyklinum haldið leyndum. Mætti nefna að til væru dulritunar- aðferðir í almennri notkun, sem væru það traustar, að afkóðun tæki mun lengri tíma en sem næmi aldri alheimsins. Leit dómurinn því svo á, að slík dulritun sem hér um ræddi, gæti verið það traust, að uppfylltar væru tæknilegar kröfur um óper- sónugreinanleika dulritaðra gagna. Helgi I. Jónsson, Allan V. Magn- ússon og Snorri Agnarsson prófess- or í tölvunarfræði kváðu upp dóm- inn. Dulkóðun uppfyllir tæknileg skilyrði INGVAR E. Sigurðsson leikari tá- brotnaði á æfingu í Borgarleik- húsinu í fyrrakvöld þar sem verið var að æfa áhættuatriði í sirk- usstíl í Rómeó og Júlíu. Var hann settur í gifs, en ætlar engu að síður að leika tábrotinn á 28. sýningu næstkomandi laugardags- kvöld. Tildrög slyss- ins voru þau að ákveðið var að fara út í enn áhættusamari loft- fimleikaatriði í sýningunni en iðkuð höfðu verið og átti Ingvar að taka heljarstökk með skrúfu. Lendingin tókst hins vegar illa og braut hann stórutá er hann kom niður. Samkvæmt læknisráði má hann ekki leika um helgina en engu að síður ætlar hann að taka af sér gifsið á laugardag og leika eins og ekkert hafi í skorist, að sögn Gísla Arnar Garðarssonar, leikara í sýningunni. Ingvar vill meina að hann geti vel leikið þrátt fyrir meiðslin þótt það verði e.t.v. sársaukafyllra en venjulega. „Hann ætlar bara að bíta á jaxlinn,“ segir Gísli Örn. Ingvar leikur þrátt fyrir tábrot Ingvar E. Sigurðsson MALBIKIÐ virtist ekki ýkja mikil fyrirstaða þessari skóflugröfu í Bankastrætinu. Áhrifa framkvæmdanna gætir víða og ríkisstjórnin hefur væntanlega ekki farið varhluta af bramlinu þar sem hún sat og fundaði stein- snar í burtu í Stjórnarráðinu í gærmorgun. Grafan á eftir að klóra enn dýpra með stálarminum því skipta á um allan jarðveg og lagnir í Bankastræti og lýkur framkvæmdum ekki fyrr en í júní. Þá á ásýnd og yfirbragð strætisins að vera svipað og í end- urbættum hluta Skólavörðustígs. Morgunblaðið/Ómar Grafið gegnt ríkisstjórninni GÍSLI Baldur Garðarsson hæstaréttarlögmaður hefur tilkynnt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni að vegna hugsanlegra hagsmunaárekstra geti hann ekki flutt málsvörn áfram fyrir hans hönd í máli sem Dalsmynni ehf. höfðar á hendur Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má Baldvinssyni þar sem Dalsmynni krefur þá um 227 milljónir króna vegna sölu Dals- mynnis í Orca SA, og þar með Íslandsbanka, um áramót 2002. Ástæðan er samningur sem Jóhannes Jónsson, faðir Jóns Ásgeirs, skrifaði undir fyrir hönd Schill- ing Inc., dótturfélags Saxhóls, sem er eignarhalds- félag í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar, um kaup á hlut Jóns Ólafssonar í Orca í mars á síðasta ári. Í samningi þessum segir að Jóhannes taki persónu- lega ábyrgð á skuldbindingum samkvæmt samn- ingnum. Ástæða þess að Dalsmynni stefnir Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má og krefur þá um greiðslu er sú að félagið telur sig hafa rétt á að nýta svokallað leið- réttingarákvæði í samningnum sem gerður var þegar félagið var leyst út úr Orca-hópnum. Í samningnum, sem gerður var í janúar 2002, segir að seljendur bréfanna, Dalsmynni ehf., hafi rétt á að endurskoða hann ef aðrir eigendur verði leystir út með sama hætti fyrir ágúst 2002. Í mars í fyrra dró Jón Ólafsson sig út úr Orca- hópnum. Jón seldi hlut sinn í Orca, og þar með Ís- landsbanka, á genginu 5,0 krónur á hlut sem var um 4% yfir markaðsgengi bankans á þeim tíma. Nefndur samningur Dalsmynnis við Jón Ásgeir og Þorstein Má um að leysa Dalsmynni út úr Orca kvað hins vegar á um gengið 4,3 krónur á hlut. Deilan snýst því um það hvort Dalsmynni fær leiðréttingu á verðinu til samræmis við það gengi sem Jón Ólafsson fékk þegar hann seldi sinn hlut. Tilkynning send 11. mars Í tilkynningu Schilling Inc. til Kauphallar Ís- lands frá því 11. mars 2002 segir að Schilling Inc., dótturfélag Saxhóls ehf., hafi þann dag keypt alla hluti Jóns Ólafssonar í Orca SA. Jafnframt segir að gengið í umræddum við- skiptum hafi verið viðmiðunargengi bréfa í Ís- landsbanka eða 5,0. Þá segir í tilkynningunni að á næstu vikum eftir dagsetningu tilkynningarinnar muni eignarhlutur Schilling Inc. í Íslandsbanka verða færður úr Orca SA / FBA Holding SA yfir til Schilling Inc. Muni þá Schilling Inc. eiga með beinum hætti 3,89% eignarhlut í Íslandsbanka. Engin vitneskja hjá Þorsteini Gísli Baldur Garðarsson hrl. segir að vegna samningsins sem fram er kominn geti hann ekki flutt málsvörn fyrir Jón Ásgeir vegna þess að upp geti komið hagsmunaárekstur milli Jóns Ásgeirs og Þorsteins Más. „Eftir að samningurinn kom fram varð ljóst að það kynni að verða hagsmuna- árekstur milli umbjóðenda minna, Jóns Ásgeirs og Þorsteins Más, enda hafði Þorsteinn Már sagt mér að hann hefði enga vitneskju haft um þessi tengsl,“ sagði Gísli Baldur í samtali við Morgun- blaðið. Gísli Baldur mun áfram reka málið fyrir hönd Þorsteins Más. Haft var samband við Jón Ásgeir Jóhannesson, Jóhannes Jónsson og Þorstein Má Baldvinsson en þeir vildu ekki tjá sig um málið. Mál Dalsmynnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Þorsteini Má Baldvinssyni Hugsanlegur hagsmuna- árekstur vegna undirskriftar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.