Morgunblaðið - 12.03.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 9
ÍSLAND hefur verið tilnefnd heið-
ursþjóð í alþjóðlegu maraþoni sem
fram fer árlega í Washington-borg.
Í ár fer hlaupið fram 23. mars nk.
Auðunn Atlason, sendiráðunautur
í Washington, segir mótið hafa al-
þjóðlegan blæ. Til leiks mæta hlaup-
arar víðs vegar að úr heiminum auk
fulltrúa allra ríkja Bandaríkjanna.
Hann segir að þarna liggi tæki-
færi til að koma Íslandi á framfæri.
Íslenski sendiherrann muni færa
sigurvegurum hlaupsins blómsveiga
auk þess að pistill eftir hann verði í
bæklingi sem dreift er meðal kepp-
enda. Þá verði Reykjavíkurmaraþon
kynnt rækilega sem vonandi skili
sér í enn meiri fjölda erlendra þátt-
takenda á Íslandi.
Á sjálfan hlaupadaginn 23. mars
verður hóf í boði Íslendinga við
marklínu hlaupsins. Meðal gesta
verða háttsettir stjórnmála- og emb-
ættismenn, borgarstjóri Wash-
ington auk fjölmiðla. Helgi Ágústs-
son, sendiherra Íslands, mun flytja
ræðu og fyrirtæki kynna starfsemi
sína.
„Við erum lítil þjóð og þetta er
ódýr leið fyrir okkur til að ná til
mjög margra,“ segir Auðunn. Talið
er að um hundrað þúsund manns
hafi fylgst með hlaupinu í fyrra auk
allra hlauparanna, sem Auðunn von-
ar að láti sjá sig í Reykjavík-
urmaraþoni í ár.
Árlegt Washington-maraþon
Ísland verður heið-
ursþjóð í hlaupinu
RÍKISSTJÓRNIN ræddi hugmynd-
ir að fyrirkomulagi um rekstrarstyrk
til meðferðarheimilisins Byrgisins í
gær. Byrgið hefur átt í miklum fjár-
hagserfiðleikum.
Að sögn Birkis J. Jónssonar, að-
stoðarmanns félagsmálaráðherra, er
stefnt að fundi með forsvarsmönnum
þar sem farið verður yfir stöðu mála.
„Á þessu stigi er ekki margt um málið
að segja en við munum hitta forsvars-
menn Byrgisins núna í þessari viku.
Það er hins vegar búið að vinna lengi
að málinu og því styttist vonandi í ein-
hverja lendingu í því,“ sagði Birkir.
Málefni Byrgisins
Styttist í
niðurstöðu
GÆSLUVARÐHALD yfir karl-
manni, sem var handtekinn fyrir ára-
mót í Hollandi og framseldur hingað
til lands, hefur verið framlengt til 16.
apríl. Fyrri gæsluvarðhaldsúrskurð-
ur rann út föstudaginn 7. mars.
Yfirréttur í Hollandi féllst á að
framselja manninn, sem hefur bæði
íslenskan og þýskan ríkisborgararétt,
til landsins en hann er grunaður um
aðild að smygli á fimm kílóum af am-
fetamíni og 150 grömmum af kókaíni
til landsins. Að sögn Ásgeirs Karls-
sonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík, eru engir aðrir
í gæsluvarðhaldi vegna málsins en
upphaflega voru þrír karlmenn og
kona handtekin á Íslandi í tengslum
við rannsókn málsins.
Gæslu-
varðhald
framlengt
HEIMSFERÐIR hafa ákveðið að
bæta við ferðum til Alicante á Spáni í
mánuðina júní-ágúst í sumar vegna
mikillar eftirspurnar.
Að því er fram kemur í frétt frá fé-
laginu er gripið til þessarar fjölgun-
ar vegna þess að nú þegar er uppselt
í mörg flug í sumar. Þar kemur einn-
ig fram að bókunarstaðan er mun
betri nú en hún var á sama tíma í
fyrra.
Heimsferðir
fjölga ferðum
KARLMAÐUR sem fannst meðvit-
undarlaus með höfuðáverka við veit-
ingahúsið Glaumbar aðfaranótt
sunnudags er á batavegi á Landspít-
alanum og kominn af gjörgæsludeild.
Tildrög atviksins voru mjög óljós til
að byrja með og voru sett í rannsókn
hjá lögreglunni í Reykjavík. Ekki var
vitað með hvaða hætti maðurinn hlaut
áverka sína og var lýst eftir vitnum á
sunnudag. Nokkur vitni höfðu sam-
band við lögregluna í kjölfarið og er
nú talið að maðurinn hafi slasast í
átökum. Enginn hefur verið handtek-
inn og hinn slasaði bíður skýrslutöku
lögreglu. Lögreglan vill þakka fyrir
veitta aðstoð vitna.
Grunur um
átök við
Glaumbar
Gott úrval
af buxnadrögtum með
stuttum og síðum jökkum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
LYF & HEILSA, KRINGLUNNI, MJÓDD OG SELFOSSI.
APÓTEKARINN NÓATÚNI OG HAFNARSTRÆTI, AKUREYRI.
*TILBOÐIÐ GILDIR FYRIR HYDRIANCE OG LOVING CARE
CLAIROL HÁRALITIR
Clairol háralitir eru að verða uppseldir á Íslandi vegna
breytinga erlends.Þeir sem vilja tryggja sér þessa frábæru
háraliti er bent á eftirfarandi verslanir:
ÞÚ KAUPIR 1 HÁRALIT OG FÆRÐ
ANNAN FRÍAN*
Laugavegi 87
Sími 511 2004
www.dunogfidur.is
Perlan við Dóná
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Buda-
pest þann 27. mars í beinu flugi til þessarar heillandi borgar sem
er að verða einn vinsælasti borgaráfangastaður Íslendinga. Þú
bókar tvö flugsæti, en greiðir aðeins fyrir eitt og getur kynnst
þessari fegurstu borg Evrópu á einstökum kjörum. Þú getur valið
um úrval góðra hótel í hjarta Budapest á frábærum kjörum og að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða í
Budapest allan tímann.
Helgarferð til
Budapest
27. mars
frá kr. 19.950
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 2.900
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi,
Mercure Duna, per nótt með morgunmat.
Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Verð kr. 19.950
Flugsæti til Budapest, út 27. mars, heim
31. mars. Flug og skattar á mann miðað
við að 2 ferðist saman, 2 fyrir 1.
Síðustu 28 sætin
Glæsileg hótel í hjarta Budapest
Mercure Metropol
Mercure Duna
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Spennandi kynnisferðir
Kynnisferð um Búdapest
Farþegar sóttir á hótel og ekið um
þessa mögnuðu borg. Hetjutorgið,
óperuhúsið, Stefánskirkja og þing-
húsið. Margrétarbrú, Buda hæðirnar,
Mattheusarkirkjan, Gellert hæð og
Citadellan. Hálfur dagur. Leiðsögn
með íslenskum fararstjórum Heims-
ferða. Verð kr. 1.900 á mann
Sigling á Dóná með kvöldverði
Innifalið í verði: Sigling, matur, hálf
flaska af víni, skemmtiatriði.
Verð kr. 4.900.
Szentendre
Undurfagur bær við Dóná um klukku-
stundarakstur frá Budapest. Í dag er
bærinn einna líkastur lifandi safni.
Fjöldi listamanna hefur sest þar að.
Húsin eru áberandi litrík og verslanir,
vinnustofur og söfn setja svip sinn á
bæinn. Haldið til baka síðdegis með
rútu. Um 6 klst. ferð. Verð kr. 2.400.
Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 11-15
Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
Tilboðsdagar
Vorjakkarnir komnir
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—16.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦