Morgunblaðið - 12.03.2003, Page 16
við að félagið hafi einnig haslað sér
völl á nýjum vettvangi í fraktflugi og
leiguflugi sem bæði lækki kostnað á
hverja framleidda einingu og gefi
færi á að flytja framleiðslugetu til
annarra svæða utan annatíma. „Nið-
urstaðan er að félagið gat dregið
hratt og mikið saman í flugi og með
skömmum fyrirvara. Við það lækk-
aði kostnaður umtalsvert. Tekjur
lækkuðu ekki í sama hlutfalli vegna
þess að félagið náði að binda sam-
dráttinn við lökustu markaðssvæðin.
Niðurstaðan varð stórbætt afkoma
byggð á uppbyggingu síðasta ára-
tugar og ákveðinni stefnumótun og
markmiðasetningu. Eins og fram
hefur komið naut félagið þess einnig
að ytri aðstæður, svo sem gengisþró-
un, vaxtaþróun og eldsneytisverð,
þróuðust með hagkvæmum hætti á
árinu,“ að sögn Sigurðar en hagn-
aður Flugleiða nam 2.611 milljónum
króna á síðasta ári.
Sigurður segir mikilvægt að fyr-
irtækið haldi áfram að búa sig til
framtíðar og vinni þrotlaust að
áframhaldandi hagræðingu í rekstr-
inum á sama tíma og bryddað er upp
á nýjungum sem styðja við arðbæran
vöxt. „Flugleiðir eru fyrirtæki í al-
þjóðlegum rekstri og afkoma þess er
jafnan að einhverju marki háð sveifl-
um í alþjóðlegu hagkerfi og því að
friður ríki á milli þjóða. Því er
ástæða til að hafa áhyggjur af fram-
vindu mála í Írak á næstu vikum og
áhrifum af hugsanlegu stríði, eink-
um á flutninga yfir Norður-Atlants-
haf,“ segir Sigurður Helgason.
UM þessar mundir eiga öll þýðing-
armikil flugfélög í Norður-Ameríku
utan eitt í mjög alvarlegum rekstr-
arörðugleikum. Í Evrópu er mikið
umrót eftir tiltölulega nýfengið frelsi
og mikil samkeppni hefur skapast
frá nýjum flugfélögum. Á síðustu
tveimur árum hafa 22 ný flugfélög
hafið rekstur í Evrópu, en á sama
tíma hafa samtals 40 flugfélög horfið
þar af sjónarsviðinu.
„Einstakur árangur náðist í
rekstri Flugleiða árið 2002. Eftir
margvíslega erfiðleika undanfarinna
ára og á tímum mikils vanda í al-
þjóðaflugi og ferðaþjónustu tókst að
ná rekstrarárangri sem verður að
teljast afar góður. Þetta er besti
ávinningur af starfi félagsins frá
stofnun þess árið 1973,“ að því er
fram kom í ræðu Harðar Sigurgests-
sonar, stjórnarformanns Flugleiða, á
aðalfundi félagsins í gær.
Hann segir að að hluta til megi
örugglega rekja fjárhags- og rekstr-
arerfiðleika, sem víða þjaka fyrir-
tæki í þessari grein, til ósveigjanlegs
rekstrar, of mikilla fjárfestinga, of-
framboðs og hás kostnaðar. „Sam-
keppni lággjaldafélaga er kapítuli út
af fyrir sig. Þau munu hafa áhrif á
rekstur hefðbundinna flugfélaga en
munu einnig mæta harðnandi sam-
keppni á næstu misserum og árum.
Raunsætt er að gera ráð fyrir að
miklar sviptingar verði á næstu
misserum í rekstri flugfélaga bæði
austan hafs og vestan,“ að sögn
Harðar.
Stjórnarformaður Flugleiða segir
Forstjóri og stjórnarformaður á aðalfundi Flugleiða
Miklar sviptingar í
vændum í flugrekstri
Morgunblaðið/Kristinn
Að sögn Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flugleiða, er enn unnið að hagræðingu í rekstri.
að alllangt sé síðan Flugleiðir hófu
að undirbúa reksturinn fyrir sam-
keppni frá lággjaldafélögum og geri
ráð fyrir henni. Tvö lággjaldafélög
séu nú veigamest í Evrópu. Annað
þeirra hafi þegar spreytt sig í tak-
mörkuðum mæli á íslenska mark-
aðnum og hætt. Sagt sé að hitt hafi
íhugað að sækja á þann markað.
Áhersla á að lækka kostnað
við aðkeypta þjónustu
Hörður nefndi í ræðu sinni að
markmið Flugleiða sé að lækka
kostnað á framleidda einingu í milli-
landaflugi svo félagið geti tekið á
móti samkeppni lággjaldafélaga. Því
hafi Flugleiðir þróað flugrekstur
sinn í átt til einnar flugvélagerðar,
byggt upp mikla þekkingu á Netinu,
þróað skipulag sitt svo þeir sem bera
ábyrgð á rekstri Icelandair hafi ekki
önnur verkefni og einbeiti sér að
þeim rekstri. „Meðal annars með
þetta í huga þarf félagið að ná góðu
samkomulagi við starfsfólk um há-
marksnýtingu vinnuaflsins. Meðal
annars með þetta í huga er mikil
áhersla lögð á að lækka kostnað við
alla aðkeypta þjónustu á flugvöllum.
Þetta eru allt þættir sem skipta
máli í rekstri lággjaldafélaga og
Flugleiðir og dótturfélög þeirra
verða einfaldlega að beita sömu að-
ferðum,“ að sögn Harðar.
Framleiðslugeta færð til
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, tók undir orð Harðar í
ræðu sinni á aðalfundinum og bætti
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
! ! "#$!%#&'(!%#
)
*
!
+, "#
+,
"#
-
.
!
FÖST laun forstjóra Flugleiða, Sig-
urðar Helgasonar, með bílahlunn-
indum eru nú um 18,7 milljónir
króna á ári og hafa ekki breyst í tvö
ár.
Að sögn stjórnarformanns Flug-
leiða, Harðar Sigurgestssonar, hef-
ur forstjóri um nokkurra ára skeið
haft kaupaukasamning, sem tengd-
ur er afkomu félagsins. Hann hefur
ekki gefið neitt af sér fyrr en á síð-
asta ári í ljósi afkomunnar. Ábati
hans skiptist í tvennt, 3,8 milljónir
króna verða greiddar út í mars á
þessu ári og 2,5 milljónir eftir tvö ár.
„Forstjóri hefur innleyst kaup-
réttarsamninga sem gerðir voru við
hann árið 2001 og 2002. Nafnverð
heildarkaupréttar sem hann hefur
innleyst er 13,3 milljónir króna á
genginu 1,8. Honum er ekki heimilt
að ráðstafa þessum hlutabréfum
fyrr en á miðju ári 2004,“ að sögn
Harðar.
Laun forstjóra 18,7 milljónir
VERULEGUR árangur hefur
náðst í að fjölga ferðamönnum til
Íslands að undanförnu og stefna
Flugleiðir að því að ferðamönn-
um hingað fjölgi um 7% á ári, að
sögn Harðar Sigurgestssonar.
Hann gerði framtíðaruppbygg-
ingu íslenskrar ferðaþjónustu að
umræðuefni í ræðu sinni á aðal-
fundi Flugleiða.
Hörður segir að Ísland keppi
við fjölda annarra áhugaverðra
ferðamannastaða og væntanlega
þurfi að verða framsækin þróun í
greininni til að hún verði áfram
samkeppnisfær. „Íslensk ferða-
þjónusta hefur á að skipa áhuga-
sömu fyrirtaksfólki, en það er
ástæða til að ætla að stór hluti ís-
lenskra ferðaþjónustufyrirtækja
sé fjárhagslega veikburða og
nauðsynlegt sé að byggja upp
meiri styrk í greininni. En slík
uppbygging verður að vera á
eðlilegum rekstrarlegum for-
sendum, en ekki óeðlilegum að-
gangi að fjármagni opinberra
sjóða eða stofnana. Slíkt verður
þá fjötur um fót öllum fyrirtækj-
um sem stunda þennan rekstur á
eðlilegum forsendum og gera
arðsemiskröfur til þess fjár-
magns sem er í spilinu.
Það er verkefni opinberra aðila
að skapa atvinnulífinu almennt
rekstrarumhverfi en það er hlut-
verk atvinnugreina að móta
stefnu og sækja fram á eðlilegum
forsendum þar sem raunveruleg
tækifæri eru fyrir hendi. Án
kröfu um arðsemi af rekstri mun
innlend ferðaþjónusta ekki ná því
að dafna og blómstra,“ að sögn
Harðar.
Erlend samkeppni
verði ekki niðurgreidd
Hann sagðist í ræðu sinni vilja
nefna annan þátt sem varðar
uppbyggingu ferðaþjónustu á
landsbyggðinni. „Um þessar
mundir á hljómgrunn víða hug-
mynd um að opinber stjórnvöld
styrki með niðurfellingu gjalda
flugrekstur erlendra flugfélaga,
sem vilja fljúga tímabundið inná
flugvelli á borð við Akureyri og
Egilsstaði. Ég skil mætavel vilja
Norðlendinga og Austlendinga til
að efla atvinnulíf og ferðaþjón-
ustu í heimabyggð. Ég hvet hins
vegar eindregið til þess að frem-
ur en að niðurgreiða hér erlenda
samkeppni verði skoðuð hug-
mynd sem varpað hefur verið
fram um að hið opinbera stuðli
frekar að uppbyggingu reglu-
bundins áætlunarflugs milli
Keflavíkurflugvallar og Akureyr-
ar og Egilsstaða. Það yrði í
tengslum við millilandaflug til
fjölmargra ákvörðunarstaða er-
lendis. Það myndi styrkja innan-
landssamgöngur og búsetu. Það
myndi einnig auðvelda þróun
ferðaþjónustu á landsbyggðinni
og markaðssetningu hennar í
gegnum víðfeðmt sölunet
Flugleiðafyrirtækjanna og ann-
arra og það myndi koma ferða-
þjónustu norðanlands og austan-
í góð tengsl við afar stórt mark-
aðssvæði,“ að sögn stjórnarfor-
manns Flugleiða.
Krefjast
þarf arðsemi
af rekstri
SJÁLFKJÖRIÐ var í stjórn Flug-
leiða á aðalfundi félagsins í gær. Í
stjórn Flugleiða voru kjörnir Hörð-
ur Sigurgestsson, Grétar Br. Krist-
jánsson, Benedikt Sveinsson, Garð-
ar Halldórsson, Ingimundur
Sigurpálsson, Jón Ingvarsson,
Pálmi Haraldsson, Einar Þór Sverr-
isson og Jón Ásgeir Jóhannesson.
Þeir Einar Þór og Jón Ásgeir koma
nýir inn í stjórn í stað Birgis Rafns
Jónssonar og Hauks Alfreðssonar.
Samþykkt var á fundinum að
stjórnarlaun vegna ársins 2002
verða 750 þúsund krónur og laun
stjórnarformanns séu 1.500 þúsund
krónur.
Jafnframt var samþykkt á fund-
inum að greiddur verði 17% arður
til hluthafa vegna ársins 2002.
Verður arðurinn greiddur eigi síð-
ar en 11. apríl nk.
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Ásgeir Jóhannesson kom nýr inn í stjórn Flugleiða í gær en við hlið hans
situr Jóhannes Jónsson, faðir hans, og Kristín Jóhannesdóttir, systir hans.
Sjálfkjörið í stjórn