Morgunblaðið - 12.03.2003, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.03.2003, Qupperneq 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 17 www.lyfja.is Einstök ný förðunartækni Nýtt. So Ingenious Multi-Dimension Powder Makeup Ný Quadra-Color tækni* er leyndarmálið að baki þessum púðurfarða sem hefur til að bera frábæra aðlögunarhæfni. Ljósnemar fínstilla hann þannig að áferðin er jafn eðlileg í dagsbirtu og í lampaskini. Tvær hliðar púðans gefa færi á tvennskonar áferð án þess að vatnsdropi komi til: silkisléttri og gegnsærri eða mjúkri áferð og þekjandi. Þetta er munúðarlegur farði, sem hylur ójöfnur, lagar sig að húð þinni og er afar þægilegur. Fæst sem Powder Makeup (púðurfarði), Liquid Foundation SPF (fljótandi farði) og laust púður. * Sótt hefur verið um einkaleyfi í Bandaríkjunum og á heimsvísu. Ráðgjafi frá Estée Lauder verður í Lyfju Smáratorgi í dag kl. 13-18, Lyfju Lágmúla á morgun fimmtudag kl. 13-18 og Lyfju Setbergi föstudag kl. 13-18. www.esteelauder.com                                !  "      ##   $$$ #                                                                                        ! "          #   $    !         %      !  &!       '  (   &!  )                !      '  *+ $ #   " ,- . /-, 0       !     /1 --   /2  "     !         ./        3   4     !  5#"                     ! " # $%"&  # '  # ('  # ))) % $ * " +   +  + $  , " ALÞJÓÐLEGA sjávarútvegssýn- ingin í Boston er hafin. Fjöldi ís- lenskra fyrirtækja tekur sem fyrr þátt í sýningunni. Útflutningsráð Íslands skipuleg- ur þátttöku íslensku fyrirtækjanna á sýningunni, sem haldin er árlega. Sýningin er alþjóðleg sjávarútvegs- sýning, ein hin stærsta sinnar teg- undar í heiminum. Alls taka nærri ríflega 750 fyrirtæki þátt í sýning- unni og áætlað er að hana sæki um 15 þúsund gestir. Á sýningunni er megináherslan lögð á sjávarafurðir en auk þess eru þar sýndar vélar, tæki og ýmis búnaður fyrir sjávar- útveg. Í tengslum við sýninguna er einnig haldinn fjöldi fyrirlestra og funda. Á sýningarbás Útflutningsráðs sýna 14 íslensk fyrirtæki vörur sín- ar og framleiðslu. Þau eru Marel, Carnitech, 3X Stál, Norfisk, Skag- inn, Icelandair Cargo, Maritech, WiseFish Group, NorthIce USA, North Atlantic Solutions, SÍF Group, Iceland Seafood, Tros, Eim- skip og Póls. Auk þess er Íslenska umboðssalan hf. með eigin bás á sýningunni. Bostonsýningin hafin Morgunblaðið/Helgi Mar Sýningarbás Útflutningsráðs á sjávarútvegssýningunni í Boston. TÆPLEGA helmingur íslensku þjóð- arinnar telur sig hafa hæfileikana, kunnáttuna og reynsluna til þess að stofna fyrirtæki samkvæmt nýrri skýrslu um frumkvöðlastarfsemi á Ís- landi sem Háskólinn í Reykjavík framkvæmdi með stuðningi Samtaka atvinnulífsins, Nýsköpunarsjóðs at- vinnulífsins, forsætisráðuneytisins og Seðlabanka Íslands. Þá segir í skýrsl- unni að einn af hverjum tíu Íslend- ingum teljist virkur í frumkvöðla- starfsemi, eða 11,3%, sem er hæsta hlutfall Evrópuþjóða og setur Ísland í 10. sætið af öllum þeim löndum sem tóku þátt í því alþjóðlega rannsókn- arsamstarfi sem skýrslan er hluti af, Global Entrepreneurship Monitor, GEM. Rögnvaldur J. Sæmundsson, lekt- or í frumkvöðlafræðum við HR, kynnti niðurstöður skýrslunnar og sagði að hér á landi væri auðvelt að stofna fyrirtæki en erfitt væri með að fá inn áhættufjármagn. Jafnframt sagði hann að ókostur hér á landi væri skortur á frumkvöðlamenntun á öll- um skólastigum og að auka þyrfti áherslu á frumkvæði í skólum. Rögnvaldur sagði að í framhaldi af skýrslunni sæju menn fyrir sér að næsta verkefni gæti verið úttekt á fjármálaumhverfi fyrir frumkvöðla en hér á landi kemur 10 sinnum meira af fjármagni til nýrra fyrirtækja frá vinum og vandamönnum en í öðrum löndum. „Bankakerfið hefur ekki litið á sig sem þátttakanda í fjármögnun sprotafyrirtækja hér á landi,“ sagði Rögnvaldur og Agnar Hansson, deildarforseti Viðskiptadeildar HR, bætti því við að svo virtist sem sprota- fyrirtæki hérlendis væru að miklu leyti fjármögnuð á yfirdrætti einstak- linga og fyrirtækja. Í skýrslunni kemur fram að upp- hæðir sem hvert fyrirtæki fær úr áhættufjárfestingarsjóðum eru hvergi lægri í öllum GEM-löndunum en á Íslandi. Fram kemur að niðurstöður skýrslunnar séu mótsagnakenndar hvað varðar stöðu frumkvöðlastarf- semi á Íslandi. „Miðað við önnur GEM-lönd eru óvenju margir Íslend- ingar þátttakendur í frumkvöðla- starfsemi og svo virðist sem óvenju- hátt hlutfall íslenskra frumkvöðla ætli sér stóra hluti í rekstri sinna fyr- irtækja. Á sama tíma virðist sem skortur á fjármagni og menntun standi í vegi fyrir því að hægt sé að nýta þessi tækifæri á árangursríkan hátt. Á meðan frumkvöðlaandinn virðist vera til staðar er líklegt að hann sé vannýttur. Það er að miklu leyti í hendi stjórnvalda hvort okkur beri gæfa til þess að nýta þennan frumkvöðlaanda sem er ríkjandi í landinu. Til þess að svo megi vera er nauðsynlegt að skapa forsendur fyrir aukinni sprotafjármögnun og al- mennri frumkvöðlamenntun. Í því felst að skapa fjármálamarkað þar sem nægt fjármagn er fyrir hendi til þess að styrkja góðar viðskiptahug- myndir og að efla almenna þekkingu á frumkvöðlaferlinu í alþjóðlegu sam- hengi. Hvorugt gerist af sjálfu sér og þess vegna er þörf á markvissum að- gerðum stjórnvalda sem ná til sam- félagsins í heild, ekki einungis til ein- stakra byggðarlaga eða atvinnugreina,“ segir í niðurstöðum skýrslunnar. Frostnótt eftir hlýindi Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Há- skólans í Reykjavík, sagði á fundinum að skýrslan sýndi að frumkvöðlaandi svifi yfir vötnum hér á landi. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði við sama tilefni að stöðugt efna- hagslíf væri forsenda nýsköpunar. „Verðbólga og óstöðugleiki eru eins og frostnótt á nýgræðinga eftir hlý- indakafla,“ sagði Davíð. Davíð sagði jafnframt að það væri gæfa fyrir Íslendinga hve margir væru tilbúnir að taka áhættu og láta skeika að sköpuðu. Hann fagnaði skýrslunni og sagði að hún kæmi án efa til með að hafa áhrif á ákvarðanir stjórnvalda í þessum málaflokki. Framkvæmdastjóri Nýsköpunar- sjóðs, Gunnar Örn Gunnarsson, kvaddi sér hljóðs á fundinum og sagði m.a. að Nýsköpunarsjóður væri það tæki sem óskað væri eftir í skýrslunni en hann ætti lítið fé en mikið af eign- um. Gunnar sagði að sjóðurinn hefði fjárfest í 100 fyrirtækjum á fimm ár- um og alltaf taki tíma fyrir viðkom- andi fyrirtæki að koma undir sig fót- unum og skila fé til baka til eigenda sinna. Gunnar sagði einnig að nýsköp- unarundiralda væri í þjóðfélaginu. Morgunblaðið/Jim Smart Davíð Oddsson forsætisráðherra hélt ávarp á fundinum og Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, fylgdi skýrslunni úr hlaði. Helmingur lands- manna telur sig geta stofnað fyrirtæki Frumkvöðlaand- inn vannýttur. Þörf á markviss- um aðgerðum stjórnvalda ACO Tæknival hf. (ATV) hefur gengið frá yfirlýsingu um kaup á rúmlega 90% hlutafjár í Svari hf. Að mati greiningardeildar Íslands- banka er Svar metið í viðskiptunum á 40 milljónir króna. Í fréttatilkynningu frá ATV segir að áformað sé að yfirtaka rekstur Svars frá næstu mánaðamótum og sameina félögin. Kaupverðið verður greitt með 10% hlutafjár í ATV og hefur félagið þegar tryggt sér það hlutafé. Heildarhlutafé í ATV er 438.509.000 krónur og lætur ATV eina krónu í hlutafé á móti hverri einni krónu í hlutafé Svars hf. Í Morgunkorni greiningardeilar Íslandsbanka segir að miðað við nýjasta markaðsgengi ATV sé markaðsvirði félagsins um 350 m.kr. og að því gefnu er Svar í viðskipt- unum metið á tæplega 40 milljónir króna. Í tilkynningu ATV segir að með kaupum á Svari styrki ATV sig enn frekar sem leiðandi fyrirtæki í sölu á tækni- og fjarskiptabúnaði. Jafnframt segir að Rúnar Sig- urðsson framkvæmdastjóri Svars muni koma til starfa hjá ATV, en Rúnar stofnaði Tæknival 1983. ATV kaupir Svar Metið á 40 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.