Morgunblaðið - 12.03.2003, Page 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 19
Borgartúni 35 - Pósthólf 1450 - 121 Reykjavík - Sími 591 0100 - Fax 591 0101 - mottaka@si.is - www.si.is
Minnum félagsmenn á
Árshóf Samtaka iðnaðarins
sem verður í Versölum að kvöldi Iðnþings.
Miðapantanir hjá Þóru Ólafsdóttur í síma
591 0100, netfang thora@si.is.
Stjórn Samtaka iðnaðarins
boðar til Iðnþings 2003
föstudaginn 14. mars n.k.
Þingið verður haldið
í Versölum, samkomusal
í Húsi iðnaðarins að
Hallveigarstíg 1.
DAGSKRÁ
Afhending fundargagna
10:10
10:00
Hefðbundin aðalfundarstörf
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
2. Ársreikningar Samtaka iðnaðarins
3. Tillaga stjórnar að fjárhagsáætlun næsta árs
4. Lýst kjöri formanns og meðstjórnenda
5. Kjör í fulltrúaráð Samtaka atvinnulífsins
6. Kosning löggilts endurskoðanda
7. Kosning kjörstjóra og aðstoðarmanna hans
8. Önnur mál:
- Almennar umræður um innri mál SI, störf og stefnu
Ályktun Iðnþings
Hádegisverður í boði Samtaka iðnaðarins
Ræða formanns,
Vilmundar Jósefssonar
Ræða iðnaðarráðherra,
Valgerðar Sverrisdóttur
12:00 Opin dagskrá
Iðnþingi slitið
Staldrað við árin 1993, 2003 og 2013
Útrásin, útflutningur
og fjárfestingar erlendis
Róbert Wessman,
forstjóri Pharmaco hf./Delta hf.
Samsetning atvinnulífsins og
líklegar breytingar næsta áratug
Páll Skúlason,
rektor Háskóla Íslands
Staða Íslands í samfélagi
þjóðanna. Hvar verðum
við árið 2013?
Þorvaldur Gylfason,
prófessor við Háskóla Íslands
Starfsskilyrðin. Hvernig fáum
við erlend fyrirtæki til landsins
og hvað er á því að græða?
Þórólfur Árnason,
borgarstjóri í Reykjavík
16:15
14:15 Umbreyting
íslensks atvinnulífs
IVAR Hansen, forseti danska
þjóðþingsins, er látinn, 64 ára
að aldri. Banamein hans var
ekki nefnt er
greint var frá
andláti hans í
Kaupmanna-
höfn í gær.
Hansen,
sem var
þingmaður
Venstre,
hafði gegnt
þingforseta-
embættinu frá því árið 1998.
Eitt af síðustu embættisverk-
um sínum vann hann í Reykja-
vík, þar sem hann sat samráðs-
fund norrænu þingforsetanna
fyrir hálfum mánuði. Varaþing-
forsetinn Svend Auken úr Jafn-
aðarmannaflokknum tekur við
embætti Hansens um sinn.
Álum fækkar
ÁLASTOFNINN við strendur
Evrópu fer hraðminnkandi, eft-
ir því sem þýzkur vísindamaður
greindi frá í gær. Roland
Lemcke við hafrannsókna-
stofnun norður-þýzka sam-
bandslandsins Mecklenburg-
Vorpommern, segir ástæður
samdráttarins óljósar. Getur
hann sér þess helzt til að
ástæðnanna sé að leita í breyt-
ingum á hafstraumum, sem
bera ála frá klakstöðvunum í
Sargasso-hafi undan SA-strönd
Bandaríkjanna til Evrópu.
Skv. upplýsingum eftirlits-
hópsins „Traffic“, sem starfar á
vegum World Wide Fund for
Nature, féll fjöldi ála sem bár-
ust að ströndum Evrópu um
43% á tímabilinu 1984 til 2000.
Splundraðist
síðar
SAMKVÆMT niðurstöðum ýt-
arlegrar greiningar bandarísku
geimferðastofnunarinnar
NASA á síðustu augnablikun-
um áður en geimferjan Col-
umbia fórst í aðflugi að jörðu
hinn 1. febrúar sl., virðist sem
hún hafi ekki splundrast fyrr
en 17 sekúndum síðar en áður
var talið, eftir að skemmdir á
neðra byrði vinstri vængjarins
höfðu gert hana stjórnlausa.
Á flot eftir
fögnuð
RÚSSNESK kona, sem fagn-
aði Alþjóðakvennadeginum
hressilega, endaði fögnuðinn á
floti á ís úti á fljótinu Nevu, sem
rennur í gegn um Pétursborg.
Greindu starfsmenn ráðuneytis
neyðaraðstoðarmála í Rúss-
landi frá þessu í gær. Konan,
sem kom í ljós að er 46 ára og
heitir Valentina, lagði upp fót-
gangandi yfir ísinn á ánni eftir
að hafa innbyrt dágott magn
áfengis í tilefni af Alþjóða-
kvennadeginum, sem var á
laugardaginn, en hann er opin-
ber hátíðisdagur í Rússlandi.
Fljótlega eftir að hún var lögð
af stað gerði hún sér grein fyrir
því að hún stóð á lausum ísfleka
sem barst með straumi árinnar.
Hún lét þetta ekki slá sig út af
laginu heldur ákvað að fá sér
blund og bíða björgunar. Lög-
reglumenn, sem loks björguðu
henni, óttuðust að þar lægi
freðið lík. En það var öðru nær;
Valentina náði sér furðu skjótt.
STUTT
Þing-
forseti
fellur frá
Ivar Hansen
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, jók í gær verulega völd rúss-
nesku leyniþjónustunnar, FSB, sem
er arftaki hinnar alræmdu stofn-
unar, KGB. Gerði Pútín umtals-
verðar breytingar á uppbyggingu
stofnunarinnar og skipaði nána
bandamenn sína í allar helstu stöð-
ur.
Pútín skrifaði undir nokkrar til-
skipanir í gær sem munu hafa veru-
leg áhrif. Skilaði hann m.a. til FSB
ýmsum verkefnum sem KGB hafði
á sinni könnu á sínum tíma. Þannig
mun FSB framvegis stýra eftirlits-
málum, þ.e. njósnum með viðkvæm-
um samskiptum, sem og vörslu og
eftirliti á landa-
mærum Rúss-
lands.
FSB mun
reyndar deila
ábyrgð með
varnarmála-
ráðuneytinu
rússneska á
samskiptaeftir-
liti.
Þá skipaði Pút-
ín Konstantin Totskí sem sendi-
herra Rússlands hjá Atlantshafs-
bandalaginu (NATO).
Eftirlit með landamæravörslu
þýðir í reynd að FSB fær í sínar
hendur yfirumsjón með starfi 174
þúsund landamæravarða en um er
að ræða mikilvæg verkefni því m.a.
fær FSB með þessu í sínar hendur
stjórn á landamærunum að
Georgíu, þar sem mikil spenna er.
Ekki venjan
„Venjulega eru landamæraverðir
aldrei hluti af leyniþjónustu lands,“
sagði Pavel Felgenhauer, sérfræð-
ingur í varnarmálum við AFP-
fréttastofuna. „Á tímum Sovétríkj-
anna var kerfið þó þannig en mark-
miðið með því fyrirkomulagi var að
loka landamærunum, einangra ríkið
frá umheiminum.“
Eykur völd leyniþjónustunnar
Moskvu. AFP.
Vladímír
Pútín
NÝ afbrigði af ofurbakteríu, sem
lengi hefur verið vandamál á sjúkra-
húsum, breiðist nú út meðal fólks ut-
an þeirra, að því er BBC greinir frá.
Bakterían, metisillínþolin gullin
klasahnettla, breiðist út við snert-
ingu manna í millum og hafa komið
upp tilvik í Bandaríkjunum og Evr-
ópu, þ. á m. í Skotlandi.
Sé smit ekki meðhöndlað á réttan
hátt getur myndast ígerð og kýli. Af-
brigðin standa af sér metisillín, sem
er kröftugt sýklalyf, en önnur algeng
lyf virka gegn því. Dr. Giles
Edwards tjáði BBC að þótt þessar
bakteríur séu ekki lífshættulegar
geti þær verið mjög óþægilegar.
Ofurbakter-
íur breiðast út