Morgunblaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 21
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
KEILUHÖLLIN!
Að gefnu tilefni, vegna fréttar af Keiluhöllinni
í DV síðastliðinn fimmtudag, skal tekið fram að
eignarhald og rekstur Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð
er undirrituðum algerlega óviðkomandi.
JÓN HJALTASON,
GUÐNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR,
BJARNI VILHJÁLMSSON.
VERIÐ er að glerja tengibyggingu milli Geysishús-
anna í miðbæ Reykjavíkur. Í glerhýsinu verður ým-
islegt að finna, s.s. sýningarsal fyrir Höfuðborg-
arstofu sem flyst inn í Geysishúsið við Aðalstræti á
næstu vikum.
Geysishúsin eiga sér merka sögu og eru í eigu
Minjaverndar. Við endurgerð húsanna var litið til
fortíðar og gamalt tréverk innanhúss endurnýjað í
upprunalegri mynd. Þar verður í framtíðinni að
finna veitingahús og netkaffihús en auk þess mun
Rammgerðin flytja starfsemi sína þangað. Búist er
við að framkvæmdum við húsin ljúki í sumar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glerjað milli Geysishúsa
Miðborg
UMFERÐ um Arnarnesveginn hef-
ur margfaldast frá því sem áður var
áætlað síðan verslunarmiðstöðin
Smáralind kom til sögunnar. Þetta
segir Laufey Jóhannsdóttir, formað-
ur skipulagsnefndar Garðabæjar, en
bæjarstjórn hefur samþykkt að leita
viðræðna við Vegagerðina og Kópa-
vogsbæ um úrbætur vegna hinnar
auknu umferðar.
Laufey lagði tillögu þess efnis fyr-
ir á bæjarstjórnarfundi í síðustu viku
og í greinargerð með henni segir að
vegna umferðaraukningarinnar sé
nú svo komið að ökumenn leiti í
auknum mæli inn í íbúðahverfin við
Bæjargil og Búðir, sem engan veg-
inn séu ætluð til slíks gegnumakst-
urs.
Af þessum sökum mun bæjar-
stjórn fara fram á viðræður við
Vegagerðina og Kópavogsbæ um
endurbætur á Arnarnesvegi, frá
Hafnarfjarðarvegi að Reykjanes-
braut og eru nokkrar hugmyndir á
borðinu hvað það varðar.
Beygjuljós
og hringtorg
Meðal annars vilja bæjaryfirvöld
að umferðarljósum á gatnamótum
Arnarnesvegar og Bæjarbrautar
verði breytt auk þess sem gerð verði
beygjuakrein framhjá ljósum frá
Bæjarbraut í austurátt inn á Arn-
arnesveg. Þá verði möguleikar á
Morgunblaðið/Ómar
Laufey segir hálfgert umferðaröngþveiti myndast við gatnamót Arnarnesvegar og Bæjarbrautar á stundum
vegna þess hve margir aka niður Fífuhvammsveginn til að komast í Smáralind. Aðeins 20 metrar eru á milli
þessara gatnamóta eins og sést á þessari mynd þar sem gatnamótin við Fífuhvammsveg eru fjær.
Umferð í Smáralind til
vandræða á Arnarnesvegi
Garðabær hringtorgi við gatnamótin kannaðir
auk þess sem athugað verði hvort
unnt sé að tengja inn á sama hring-
torg umferð frá Fífuhvammsvegi inn
á Arnarnesveg.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Laufey að málið sé orðið mjög brýnt.
Umferðin í Smáralindina sé til vand-
ræða og oft á tíðum komist menn
hreinlega ekki inn í bæjarfélagið
vegna hennar. „Það er ótækt að hafa
þetta eins og það er í dag þar sem
maður fer fyrst inn á Arnarnesveg,
ekur um 20 metra og beygir síðan
niður Fífuhvammsveg ætli maður í
Kópavog. Þess vegna höfum við lagt
til að koma þarna upp hringtorgi þar
sem þessar tengingar yrðu heild-
stæðar,“ segir hún.
BÆJARYFIRVÖLD í Mosfellsbæ
leggjast eindregið gegn sameiningu
Heilsugæslu Mosfellsumdæmis við
heilsugæsluna í Reykjavík, Kópavogi
og Seltjarnarnesi. Ályktun þessa efn-
is var samþykkt á fundi bæjarráðs í
síðustu viku að tillögu bæjarstjóra.
Yfirvöld í Reykjavík lýstu sig á
hinn bóginn í nóvember síðastliðnum
fylgjandi sameiningunni eftir að heil-
brigðisráðuneytið óskaði eftir afstöðu
þeirra til málsins. Kemur fram í um-
sögn borgarlögmanns af því tilefni að
höfuðborgarsvæðið sé þegar eitt
þjónustu- og atvinnusvæði þannig að
heilsugæsluþjónusta er í dag veitt
óháð sveitarfélagamörkum.
Þá verði að gera ráð fyrir að við
slíka sameiningu taki heilbrigðisráðu-
neytið yfir 15% kostnaðarhlutdeild
sveitarfélaganna í byggingu og bún-
aði stöðvanna. Er þetta staðfest í um-
sögn Ragnheiðar Ríkharðsdóttur,
bæjarstjóra í Mosfellsbæ, um málið.
Óvenju stórt umdæmi
Ragnheiður segir að heilsugæslan í
Mosfellsbæ hafi ákveðna sérstöðu þar
sem hún þjóni mjög stóru umdæmi að
flatarmáli. „Við erum með Þingvalla-
hreppinn, Kjósina og Kjalarnesið fyr-
ir utan sjálfan Mosfellsbæinn þannig
að Mosfellsbær er ört stækkandi bæj-
arfélag. Við teljum að með því að hafa
heilsugæsluna heima í héraði og án
sameiningar við höfuðborgarsvæðið
munum við geta veitt betri þjónustu
en ella. Við teljum að þetta sé ótví-
ræður kostur.“
Hún segir að fyrir nokkrum árum
hafi stjórn heilsugæslunnar í Mos-
fellsbæ verið flutt til Reykjavíkur en
hins vegar hafi engin sameining átt
sér stað. Fyrirhugað sé að Garðabær
verði utan við sameininguna nú og
Mosfellsbær vilji vera það líka.
Hvað varðar niðurfellingu 15%
kostnaðarhlutdeildar sveitarfélag-
anna vegna búnaðar og byggingar
heilsugæslustöðva segir Ragnheiður
það ekki háð sameiningunni.
Hún bendir á að í dag sé hluta íbúa
Grafarholts beint að heilsugæslunni í
Mosfellsbæ þar sem heilsugæslan í
Árbæ anni ekki því hverfi. „Það segir
mér að það sé tilhneiging höfuðborg-
arinnar að seilast hingað til okkar
frekar en öfugt. Við höfum haft af-
burða þjónustu í gegnum tíðina og ég
held að fólki ói við einhverjum breyt-
ingum þar á. Við viljum einfaldlega
halda því sem við höfum haft.“
Bæjaryfirvöld andvíg sameiningu við
heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu
„Viljum halda
því sem við
höfum haft“
Mosfellsbær
BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hef-
ur samþykkt að undirbúa aðgerðir,
sem miða eiga að því að tryggja ungu
fólki atvinnu næstkomandi sumar.
Er stefnt að því að tillögur þess efnis
verði lagðar fyrir bæjarráð.
Það var Erling Ásgeirsson, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem
lagði fram tillögu þessa efnis á bæj-
arstjórnarfundi í síðustu viku. Segir í
greinargerð hans að þegar verði
starfsmenn Garðabæjar varir við
umtalsverða eftirspurn ungs fólks
eftir sumarvinnu. „Unnt er að hraða
ýmsum verkefnum í garðyrkju og
annars staðar í bænum til að draga
úr hugsanlegu atvinnuleysi ungs
fólk,“ segir í greinargerðinni.
Þá bendir Erling á að þegar hafi
verið ákveðið að flýta framkvæmd-
um við Flataskóla um eitt ár þannig
að hann verði tilbúinn á þessu ári í
stað ársins 2004. Einnig hafi verið
samþykkt að auka fjárveitingar til
gangstígagerðar og til opinna leik-
valla. Kemur fram í greinargerð Er-
lings að þessum framkvæmdum sé
hraðað vegna þess svigrúms sem nú
er á vinnumarkaði og væntanlegrar
þenslu á vinnumarkaði næstu árin.
Mikil
eftirspurn
eftir sum-
arvinnu
Garðabær