Morgunblaðið - 12.03.2003, Side 22

Morgunblaðið - 12.03.2003, Side 22
AKUREYRI 22 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa er með sjö flotkvíar í sjó í Eyja- firði, í tengslum við fiskeldi félags- ins en aðeins er þó fiskur í þremur kvíum. Innan skamms hefst veiði á þorski og ýsu og verður fiskurinn settur í kvíar á firðinum, þorskur í þrjár kvíar og ýsa í eina. Þá verða klakin þorskseiði frá tilraunaeld- isstöð félagsins á Hauganesi sett í eina sjókví í maí í vor. Einnig er ÚA með fjórar minni sjókvíar fyrir tilraunaeldi og til söfnunar frá fiskibátum en verið er að vinna að endurbótum á þeim, gera þær sterkari og burðarmeiri, að sögn Óttars Más Ingvasonar, verkefn- isstjóra hjá ÚA. Morgunblaðið/Kristján Guðmundur Jónasson, Karl Haraldsson og Magnús Bjargarson vinna við endurbætur á tilraunaflotkvíum ÚA. Flotkvíarnar lagaðar UNNIÐ er að því að setja upp gegn- umlýsingatæki í flugstöðinni á Akur- eyrarflugvelli, í samræmi við hertar öryggisreglur í millilandaflugi sem tóku gildi um síðustu áramót. Að sögn Sigurðar Hermannssonar, um- dæmisstjóra Flugmálastjórnar, þarf flugstöðin á Akureyri að standa jafnt að vígi á við aðrar flugstöðvar, þar sem millilandaflug fer í gegn. Grænlandsflug mun hefja beint flug á milli Akureyrar og Kaup- mannahafnar 28. apríl nk. og fljúga tvisvar í viku á milli áfangastaðanna, árið um kring. „Það eru almennt hertar öryggisreglur í fluginu og við erum að bregðast við því. Nú er kom- in upp krafa um að leita bæði í hand- og lestarfarangri vegna millilanda- flugs. Við erum að koma upp búnaði vegna þess og hann mun þjóna öllu millilandaflugi sem um völlinn fer. Þetta er gert til að auðvelda mönnum að vinna það verk og flýta afgreiðslu,“ sagði Sigurður. Fríhöfnin á Akureyrarflugvelli er mjög lítil og aðeins í um 40 fermetr- um í flugstöðinni. Sigurður sagði að ef fyrirhugað millilandaflug, Græn- landsflug, verður til frambúðar, sem menn að sjálfsögðu voni, þrýsti það á breytingar á aðstöðu fríhafnarinnar. Mikill áhugi fyrir fluginu til Kaupmannahafnar Ferðaskrifstofa Akureyrar verður aðalsöluaðili Grænlandsflugs á Akur- eyri. Þá er þegar farið að skipuleggja ýmsar ferðir í tengslum við áætlunar- flugið m.a. helgarferð, fjórar nætur á þriggja stjörnu hóteli í miðbæ Kaup- mannahafnar á 49.900. Kynningar- átak verður í gangi í maí og er far- gjaldið þá 25.500 krónur með sköttum og bókunargjaldi. Hægt verður að bóka ferðir í gegnum Ama- deus og farmiðar verða fáanlegir hjá öllum IATA-ferðaskrifstofum en ekki verður hægt að ganga frá bókunum strax þar sem íslensk flugmálayfir- völd hafa ekki afgreitt umsókn fé- lagsins. Ragnheiður Jakobsdóttir, skrif- stofustjóri Ferðaskrifstofu Akureyr- ar, sagði að mikill áhugi væri fyrir flugi Grænlandsflugs til Kaupmanna- hafnar. „Við fáum tugi fyrirspurna á dag og þannig hefur það verið síðustu vikur eða frá því að fréttir af þessu flugi komu fram. En allt snýst þetta um verð. Við höfum ekkert getað bókað ennþá en erum að skrá fólk niður,“ sagði Ragnheiður. Hertar öryggisreglur í millilandaflugi Leitarbúnaður sett- ur upp í flugstöðinni VETRARÍÞRÓTTIR fatlaðra verða teknar fyrir á þremur námskeiðum í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar á næst- unni, sem ætluð eru bæði iðkendum og leiðbeinendum. Um er að ræða samstarfsverkefni Vetraríþrótta- miðstöðvar Íslands, Íþróttasam- bands fatlaðra og Hlíðarfjalls. Fyrsta námskeiðið, í alpagreinum fyrir fatlaða, verður haldið um næstu helgi, 14.-16 mars. Námskeiðið er fyrir fólk sem bundið er við hjólastól, þar sem not- ast er við sérstakan hjólastólabúnað, einnig fyrir þá sem hafa skert jafn- vægisskyn, þá sem treysta sér til að standa á skíðum eða skíði, sem og leiðbeinendur. Helgina 21.-23. mars verður nám- skeið fyrir þroskahefta, þar sem námsefnið er svig og gönguskíði, al- menn kennsla fyrir þá sem vilja stunda skíðaíþróttina og leiðbein- endur. Helgina 4.-6. apríl og er svo boðið upp á sams konar námskeið fyrir blinda og sjónskerta, þar sem undirstöðutækni skíðaiðkunar er kennd ásamt leiðsögumannatækni fyrir þá sem skíða með blindum. Verð á hvert námskeið er kr. 5000 fyrir hvern þátttakanda og einn að- stoðarmann. Innifalinn er skíðabún- aður sem nota þarf á hvert námskeið og lyftumiðar. Skráning fer fram í Hlíðarfjalli, sími 462-2280 eða með tölvupósti; hlidarfjall@hlidarfjall.is. Skíðanám- skeið fyrir fatlaða í Hlíðar- fjalli LEIKHÚSKÓRINN efnir til tónleika í Samkomuhúsinu á Akureyri á fimmtudagskvöld, 13. mars og hefjast þeir kl. 20. Á tónleikunum syngur kór- inn perlur úr óperum, óper- ettum og söngleikjum, m.a. úr La traviata, Lucia di Lamm- ermor, Il trovatore, Carmen, Kátu ekkjunni, Porgy og Bess, South Pacific, My fair Lady og Fiðlaranum á Þak- inu. Stjórnandi kórsins er Roar Kvam, Aladar Racz leikur á píanó, en einsöngvarar eru þau Ari Jóhann Sigurðsson, Elvý Hreinsdóttir, Hildur Tryggvadóttir, Michael Jón Clarke auk félaga í Leikhús- kórnum. Forsala aðgöngumiða er í miðasölu Samkomuhússins. Perlur úr óp- erum SAMVERUSTUND verður í Gler- árkirkju í kvöld, miðvikudagskvöldið 12. mars og hefst hún kl. 20.30. Leikin verður tónlist og flutt hug- leiðing. Yfirskrif samverustundar- innar er: „Sælir eru syrgjendur því þeir munu huggaðir verða“. Tónlist flytja Sigríður Aðalsteinsdóttir, mezzosópran og Daníel Þorsteins- son, píanóleikari, en þau flytja verk- in Fjórir alvarlegir söngvar eftir J. Brahms og Þrjú ljóð eftir R. Strauss. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir flytur hugleiðingu tileinkaða aðstandend- um og syrgjendum. Sælir eru syrgjendur OPIÐ hús verður hjá Svartfugli í Listagilinu á Akureyri á laugardagi 15. mars frá kl. 14 til 17. Þær breytingar hafa átt sér stað í rekstrinum að nú er þar vinnu- staður fjögurra listakvenna. Þær eru Sveinbjörg Hallgríms- dóttir sem hefur rekið Svartfugl frá 1996 en hún vinnur við grafík, Sig- ríður Ágústsdóttir vinnur í leir, Ragnheiður Þórsdóttir er myndvef- ari og loks Anna Gunnarsdóttir sem þæfir og vinnur úr leðri. Opið verður hjá Svartfugli frá kl. 10-15 alla föstudaga og laugardaga, að öðru leyti er opið þegar listakon- urnar eru að störfum. Allir eru vel- komnir í opna húsið og heitt verður á könnunni, segir í frétt frá Svart- fugli. Opið hús hjá Svartfugli ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.