Morgunblaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 37 Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 13–16.30. Handavinna, spilað, föndrað. Gestur Ásgerður Ingimarsdóttir, sem fer með gamanmál. Bílaþjónusta í símum 553 8500, 553 0448 og 864 1448. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. Krakkaklúbbar í safnaðarheimilinu: 9– 10 ára börn kl. 16–17 og 11–12 ára kl. 17.30–18.50. www.domkirkjan.is Grensáskirkja. Samvera aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall. Alfa-námskeið kl. 19.30–22. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Fræðsla: Grind- arbotnsæfingar og álfabikarinn. Jóna Margrét Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Pass- íusálma og bænagjörð. Allir velkomnir. Kl. 12.30 súpa og brauð (kr. 300) Kl. 13–16 opið hús fyrir eldri borgara. Fjöl- breytt dagskrá. Söngstund, tekið í spil, upplestur, föndur, spjall, kaffisopi o.fl. Þeir sem ekki komast af sjálfsdáðum eru sóttir. Hafið samband við kirkjuvörð í síma 520 1300. Laugarneskirkja: Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur) kl. 14:10. TTT-fundur (5.–7. bekkur) kl. 16:15. Fermingartími kl. 19:15. Unglingakvöld Laugarneskirkju og Þróttheima kl. 20:00. (8. bekkur). Umsjón hefur Sigurvin Jónsson guð- fræðinemi og Ingibjörg Dögg Kjartans- dóttir tómstundaráðgjafi hjá Þróttheim- um. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lár- usdóttir. 7 ára starf kl. 14:30. Fös- tuguðsþjónusta kl. 20:00. Kór Neskirkju syngur. Organisti Reynir Jónasson. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Að lok- inni guðsþjónustu verða kaffiveitingar og myndasýning frá ferðinni að Kára- hnjúkum sl. sumar Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur hádegisverður eftir stundina. Fríkirkjan í Reykjavík. Alfa-námskeið í safnaðarheimilinu kl. 20. Kyrrðar- og bænastund í kapellu safnaðarins í safn- aðarheimilinu, Laufásvegi 13, 2. hæð, kl. 12. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja. Kl. 12:00. Kyrrðarstund í hádegi. Orgeltónlist, altarisganga, fyr- irbænir og íhugun. Kl. 13:00–16:00. Op- ið hús. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbæn- ir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. „Kirkjuprakkarar“. Starf fyrir 7–9 ára börn kl.16.30. TTT. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðs- starf á vegum KFUM & K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM & KFUK kl. 20:00–21:45. (sjá nánar: www. digraneskirkja.is). Grafarvogskirkja. Helgistund í hádegi kl. 12:00. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari, orgelleik- ari Hörður Bragason. Allir velkomnir. Námskeiðið „Að búa einn“ kl. 20:00– 22:00. KFUM fyrir drengi 9–12 ára í Grafarvogskirkju kl.16:30–17:30. Kirkju- krakkar í Rimaskóla kl. 17:30–18:30 fyrir 7–9 ára. TTT (tíu til tólf ára) í Rima- skóla kl. 18:30–19:30. Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl. 20:00–22:00, fyrir 8.–9. bekk. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. Opið hús kl. 12. Léttur hádegisverður og skemmtileg samverustund. TTT-starf kl. 17. Tólf spora námskeið kl. 20. Kópavogskirkja. Starf með 8–9 ára börnum í dag kl. 16:45–17:45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf með 10–12 ára börnum TTT, á sama stað kl. 17:45– 18:45. Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 19. Alfa- námskeið í safnaðarheimili Lindasókn- ar, Uppsölum 3. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjart- anlega velkomnir. Tekið á móti fyrir- bænaefnum í kirkjunni í síma 567 0110. Æskulýðsfundur fyrir unglinga 14–15 ára kl. 20. Biblíulestraröð Selja- kirkju kl. 19:30 annan hvern miðviku- dag. Næsti lestur er miðv. 12. mars. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasóknar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Heitt á könn- unni. Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samverustundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður eða Erlendur sjá um akstur á undan og eftir. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safn- aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hitt- umst og spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir börnin. Allir foreldrar velkomnir með eða án barna. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyr- irbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Gott tæki- færi til að hittast, spjalla saman, spila og njóta góðra veitinga. Verið velkomin. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn- ar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16:20 TTT yngri, 9–10 ára krakkar í kirkjunni. Spiladagur. Sr. Þorvaldur Víð- isson og leiðtogarnir. Kl. 17:30 TTT eldri, 11–12 ára krakkar í kirkjunni. Vatnsfundur. Sr. Þorvaldur Víðisson og leiðtogarnir. Kl. 20:00 Opið hús í KFUM&K fyrir æskulýðsfélagið. Hulda Lí- ney Magnúsdóttir. Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safn- aðarheimili kirkjunnar í Þverholti 3, 3. hæð, frá kl. 10–12. Umsjón hefur Arn- dís L. Bernharðsdóttir og Þuríður D. Hjaltadóttir. AA-fundur kl. 20.30 í Lága- fellskirkju. Unnið í 12 sporunum. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12:00. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12:10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12:25 – súpa, salat og brauð á vægu verði – allir aldurshópar. Umsjón: Sigfús B. Ingvason Æfing Kórs Keflavíkurkirkju frá 19:30–22:30. Stjórnandi: Hákon Leifsson. Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík). For- eldramorgun í Safnaðarheimilinu í dag kl. 10.30 í umsjá Kötlu Ólafsdóttur og Petrínu Sigurðardóttur. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, lestur Orðsins, fróð- leikur og samvera. Allt ungt fólk velkom- ið. KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Kristni- boðsvika. kl. 20:00. „Allt á iði hjá spá- manninum“ Upphafsorð: Einar Helgi Ragnarsson. Söngur: Helga Magnúsdótt- ir. „Allt á iði í Pókot“ – myndröð frá Kenýa. Hugleiðing: Kristín Bjarnadóttir. Kaffi eftir samkomuna. Allir hjartanlega vel- komnir. Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10. Opið hús, kaffi og spjall fyrir börnin. ÆFAK, yngri deild, kl. 20. Fræðsla fyrir foreldra fermingarbarna í Safnaðarheim- ili kl. 20. Þorsteinn Haukur Þorsteins- son tollfulltrúi ræðir um skaðsemi fíkni- efna. Með í för er leitarhundurinn Bassi. Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12:00 til 12:00. Orgelleikur, fyrirbænir, sakra- menti. Léttur málsverður að helgistund lokinni í safnaðarsal. á vægu verði. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF Í KVÖLD, miðvikudaginn 12. mars, verður föstuguðsþjónusta kl. 20.00 í umsjá sr. Franks M. Halldórssonar. Kór Neskirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti verður Reynir Jón- asson. Að guðsþjónustu lokinni verða kaffiveitingar og mynda- sýning í safnaðarheimilinu. Jóna Hansen kennari sýnir myndir frá sumarferðinni í Herðubreiðarlindir og að Kára- hnjúkum síðastliðið sumar. Föstuguðsþjónusta í Villinga- holtskirkju Föstuguðsþjónusta verður fimmtudaginn 13. þ.m. kl. 21:00. Söngkór Hraungerðis- prestakalls syngur undir stjórn Inga Heiðmars Jónssonar og María Weiss leikur einleik á fiðlu. Píslarsagan lesin og hug- leidd. Vænst er þátttöku ferm- ingarbarna og aðstandenda þeirra. Kristinn Ág. Friðfinns- son. Aðalfundur Laug- arnessafnaðar VIÐ minnum á að aðalsafn- aðarfundur Laugarnessafnaðar verður á sunnudaginn kemur, þann 16. mars, að lokinni guðs- þjónustu kl. 11:00. Á fundinum munu fulltrúar hverrar greinar á safnaðartrénu segja á lifandi og skemmtilegan hátt stuttlega frá því sem þau hafa starfað og notið í Laugarneskirkju á liðnu ári. Starfsskýrsla sóknar- nefndar verður kynnt og reikn- ingar lagðir fram. Aðalfundir Laugarnessafnaðar eru jafnan jákvæð upplifun. Föstuguðs- þjónusta í Neskirkju ✝ Ragnheiður Jóns-dóttir fæddist 9. maí 1931. Hún lést 2. mars síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Halldóru Guðmundsdóttur og Jóns Þorvarðarsonar kaupmanns í Verð- anda. Systkini Ragn- heiðar eru Guðmund- ur, f. 1920, Þorvarður, f. 1921, d. 1948, Steinunn Ágústa, f. 1923, Jón Halldór, f. 1929, og Gunnar, f. 1932. Eftirlifandi eiginmaður Ragn- heiðar er Ólafur Pálsson húsa- smíðameistari í Hafnarfirði. Börn þeirra eru: Kristín, f. 1956, maki Jónas Gunnlaugsson, f. 1956, börn þeirra eru Birna, f. 1981, og Gunnlaugur, f. 1986; Páll, f. 1959, sam- býliskona Sonja Guðrún Óskarsdótt- ir, f. 1960, börn þeirra eru Ólafur Óskar, f. 1981, og Linda, f. 1991; og Jón Þorvarður, f. 1963, sambýliskona Bertha Guðrún Kvaran, f. 1964, börn þeirra eru tví- burar, stúlkubörn fædd 1988, sem dóu skömmu eftir fæð- ingu, Rakel, f. 1990, Karen, f. 1991, Aldís, f. 1994, og Óðinn, f. 1995. Útför Ragnheiðar var gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 10. mars, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Vetur og vor takast á þessa daga. Það er gróandi í laukum og brum- hnappar á runnum skrýðast frost- rósum. Birtan þokar myrkrinu hægt en örugglega að sjónarrönd. Móðursystir mín, Ragnheiður Jóns- dóttir, háði sína lokabaráttu á slík- um degi og féll með reisn eftir sól- arlag. Margs er að minnast og þakka. Frænka mín var glöð, skap- heit, stjórnsöm og skemmtileg, enn umfram allt góð manneskja. Hún var átta árum yngri en móðir mín og fékk það hlutverk að gæta okkar systra. Því eru mínar fyrstu minn- ingar tengdar henni. Hún var mér fyrirmynd um margt, útskýrði hvernig maður átti að klæðast, haga sér og ganga um götur bæj- arins án þess að hlaupa eða draga tærnar. Við áttum okkur dásamlegt leyndarmál, því hún tók mig einu sinni með sér á kaffihúsið Gilda- skálann í Reykjavík. Ég fékk rjómaköku og appelsín meðan hún spallaði við vini og vinkonur. Þegar systir mín, Inga, fæddist tók hún hana líka að sér og kvartaði fyrir hennar hönd yfir því hún varð að ganga í fötunum af mér. Slíkt þótti Röggu frænku ekki sæmandi. Ragga var heimasætan á þessum árum, enn í foreldrahúsum ásamt tveimur yngstu bræðrum sínum, Gunnari og Jóni. Stundum gistum við barnabörnin hjá ömmu og afa, Halldóru Guðmundsdóttur og Jóni Þorvarðarsyni, sem oft var kenndur við Verðanda. Þá var hátíð. Kvöld eitt frá þessum árum er mér í barnsminni. Ég hafði fengið að gista og svaf á bedda inni hjá Röggu frænku. Hún stóð á miðju gólfi klædd víðu pilsi og ljósri blússu, mittismjó með breitt belti um sig miðja og bar við sig fallegan kjól. Hún ljómaði af gleði og til- hlökkun, því hún var að pakka niður fyrir hjólaferð til Skotlands. Augun blikuðu af björtum draumi, því með í ferðinni var piltur, Ólafur Pálsson úr Hafnarfirði. Ekki dugði annað en tjalda öllu sem til var. Þetta vissi ég ekki þá, en mér er minnisstætt hvað mér fannst hún falleg. Seinna kynntist ég Óla. Hann var enginn venjulegur piltur, það skynjaði ég barnið. Draumurinn rættist. Þau Óli giftu sig og hófu búskap á heimili Páls og Jennýjar, tengdaforeldra Röggu við Brekkugötu í Hafnar- firði. Þar hreiðruðu þau um sig í ör- lítilli stofu og enn minna svefnher- bergi. Dag einn var okkur boðið í kaffi og viti menn, í svefnherberg- inu stóð vagga, og þar í hvíldi gull- fallegt sofandi kornabarn. Þetta var litla frænka mín, hún Kristín fædd 1956. 1955 varð faðir minn fyrir slysi sem síðar dró hann til dauða langt um aldur fram. Á meðan hann var sjúkur þurftu foreldrar okkar oft að dvelja langdvölum erlendis. Ragga, Óli og Kristín fluttu þá inn og munaði ekki um að sinna okkur systrum. Seinna, þegar mamma fór enn utan til að vera hjá pabba á sjúkrahúsi í Danmörku, átti ég skjól hjá ömmu Dóru og afa Jóni, en Ingu var ýmist komið fyrir hjá ættingjum eða vinum. Það er erfitt að vera fimm ára og fara á milli fólks vegna veikinda og fjarveru foreldra. Eitt sinn fékk hún að vera hjá þeim Röggu og Óla og fólkinu í Brekkugötu. Þar leið henni best og þar eignaðist hún nýjan afa í Páli, tengdaföður Röggu. Árin liðu, faðir okkar lést 1958 og móðir okkar þurfti að læra að standa ein með okkur börnin. Við fluttum og það að þurfti að laga dyr, setja upp ljós og fleira smálegt. Ragga frænka kom með Óla sinn og lagði á ráðin og oft- ar en ekki vann hann svo verkið. Lífið tók við, ungu hjónunum bættust tveir mannvænlegir synir, Páll 1959 og Jón Þorvarður 1963. Ragga og Óli byggðu sér fallegt hús við Lækjarkinn í Hafnarfirði. Við sáum alltof lítið hvert af öðru, börn- in á upvaxtarárunum. Samt voru þau og Ragga frænka og Óli alltaf hluti af lífi okkar. Líf þeirra saman var farsælt, börnin mannvænleg og vel að öllu hlúð. Þegar börnin höfðu hleypt heimdraganum komu barna- börnin hvert af öðru og áttu inn- hlaup hjá afa og ömmu. Börnin, tengdabörn og barnabörn guldu það ríkulega, ekki síst þessi síðustu erfiðu ár. Þegar elli kerling fór að gera vart við sig fundu þær systur saman á ný eftir skarkala og kvaðir mann- dómsáranna. Þær töluðust við nær daglega og hittust oftar en fyrr. Móðir mín hefur misst systur og sinn besta vin. Mikill er sá missir. Ragga unni lífinu og var ósátt við að yfirgefa það svo snemma. Við minnumst Röggu frænku með virð- ingu og þökk. Útför hennar fór fram í kyrrþey í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 10. mars síðastliðinn að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd móður minnar og fjölskyldu vottum við Óla, börnum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum hugheila samúð. Dóra S. Bjarnason. Elskuleg mágkona mín Ragn- heiður Jónsdóttir er látin eftir langa baráttu við illvígan sjúkdóm sem hún bar með miklu æðruleysi fram á síðasta dag. Við höfum átt langa leið saman og er ég hugsa til baka þá minnist ég þess fyrst þegar ég heyrði talað um Röggu var það að bróðir hennar sagði mér frá brúðkaupi hennar og Óla sem var haldið með pompi og prakt í Naustinu. Stuttu seinna hitti ég þau hjón í fyrsta sinn eins og alla hennar fjölskyldu , en þrjú systkinin voru þá gift og farin að heiman. Minn tilvonandi eiginmað- ur var þá einn eftir heima hjá for- eldrum sínum hjónunum Jóni kaup- manni í Verðanda og frú Halldóru. Þessi fjölskylda bjó alla tíð að Öldu- götu 26, það var glæsilegt heimili og þar ólst Ragga upp við mjög gott atlæti. Ég minnist þess hve gaman var að heimsækja Röggu og Óla á Brekkugötuna í Hafnarfirði þar sem þau hófu búskað hjá frú Jen- nýju móður Óla en hann stóð í stór- ræðum við að byggja þeim hjónum framtíðarhús. Þá minnist ég með mikilli gleði dagsins þegar hún kom með Kristínu sína nýfædda í heim- sókn á Öldugötuna, mér fannst hún svo fallegt barn, okkur Röggu þótti gott að rifja þetta upp, síðan komu drengirnir hennar hann Palli og Jónsi elskulegir drengir. Þegar við Gunnar bróðir hennar fluttumst í Hafnarfjörð hittumst við oftar og börnin okkar kynntust hvert öðru og var Ragga alltaf góð- ur vinur barnanna minna. Ragga var mjög skemmtileg manneskja sem sá alltaf eitthvað spaugilegt við hlutina sem ég sá ekki, og meira að segja þegar ég hitti hana síðast og þá var hún orðin mjög veik varð hún að segja mér eina skemmtilega, og hún sagði við mig, þú hlýtur að segja eitthvað skemmtilegt, ég reyndi. Ragga var ákveðin kona og í fyrrasumar sagði hún við mig að hún væri búin að ákveða að koma í kaffi fyrst allra til Nönnu í nýja sumarbústaðinn hennar á hverju sem gengi. Hún hringdi af og til í mig og fylgdist með hvernig gengi með að byggja, og henni fannst það ekki ganga alveg nógu hratt, hún hafði ekki nógan tíma. Síðan var það um verslunarmannahelgina í fyrra að Jóhann Ingi og Nanna fluttu inn í bústaðinn og við Gunnar fórum austur, fyrstu gestirnir í kaffi voru Ragga og Óli, hún stóð alltaf við það sem hún sagði. Síðan næsta dag áttum við Gunnar, Nanna og Indiana góðan dag í sum- arbústaðnum hjá Óla og Röggu ásamt Sonju, Palla og Lindu dóttur þeirra, það var ánæjuleg samveru- stund. Það er margs að minnast að lok- um, og ég er þakklát Röggu fyrir hvað hún var mér alltaf góð mág- kona. Gunnar og hún voru miklir vinir og þeim þótti afskaplega vænt hvoru um annað og fram á seinasta dag var hún að hafa áhyggjur af honum og senda honum kveðjur, en hann var á sjúkrahúsi þegar hún lést. Ég sendi Óla og fjölskyldunni allri mínar samúðarkveðjur. Ég þakka Guði fyrir líf Ragn- heiðar og starf og bið þess að það megi bera ávöxt í niðjum hennar – þjóð okkar til blessunar um ókomin ár. Ég fel hana góðum Guði með þeirri bæn að friður hans sem er æðri öllum skilningi megi umvefja hana á nýrri vegferð. Elísa. RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR Innilegar þakkir og Guðs blessun til allra þeirra, sem sýndu okkur ómetanlegan stuðning og hlý- hug við andlát og útför elskulegs unnusta míns, föður, sonar, bróður og barnabarns, VALDIMARS GUNNARSSONAR, Stekkjarbergi 4, Hafnarfirði. Þórdís Arna Benediktsdóttir, Axel Valdimarsson, Karen Sif Jónsdóttir, Sigríður Valdimarsdóttir, Gunnar Gíslason, Daði Gunnarsson, Þuríður Gunnarsdóttir, Lára Sæmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.