Morgunblaðið - 12.03.2003, Side 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Leiður siður
MIKIÐ ættu nú Íslending-
ar, margir hverjir, að venja
sig af þessu handapati sem
þeir viðhafa í viðtalsþáttum
og telja sig vera að leggja
áherslu á orð sín eða
spurningar, sveiflandi
höndunum út í loftið eins
og vængbrotnir fuglar eða
bréfarusl sem fýkur til í
roki. Þetta pat er svo auð-
sýnilega lært, en fáum gef-
ið.
Við erum ekki Ítalir eða
Frakkar sem tjá sig í tali
með þessum leiða sið, sem
er fáum gefið.
Áhorfandi.
Hætta af álverum
og virkjunum
STUNDUM velti ég fyrir
mér hvort við Íslendingar
erum ekki að bjóða hætt-
unni heim með því að reisa
fjöldann allan af álverk-
smiðjum hér á landi.
1. Er það ekki rétt, að
það er mikið notað af áli í
vopn? Þessar verksmiðjur
hljóta því að vera ýmsum
hryðjuverkasamtökum
gott skotmark, því að sé
þeim eytt, telja þeir
kannski, að þeim sé minni
hætta búin.
2. Kárahnjúkavirkjun á
að sjá einni svona verk-
smiðju fyrir rafmagni. Er
hún þá ekki líka feiknagott
skotmark? Það þarf áreið-
anlega ekki margar bomb-
ur þar.
3. Af hverju er ekki
byggður fjöldinn allur af
álverksmiðjum og virkjun-
um í Bandaríkjunum? Eru
bandarískir athafnamenn
hræddir um eigið skinn?
Hildur.
Einkamál.is
AF hverju er ekki hægt að
ná í forsvarsmenn einka-
mál.is í síma ef eitthvað
kemur uppá? Ég er búin að
reyna og reyna en ekkert
gengur. Vinkona mín var
að skrá sig á einkamál.is,
hún fékk notendanafn og
lykilorð sem var samþykkt
en ekkert gengur.
Það mætti hafa meiri
upplýsingar um hvar hægt
sé að ná í forsvarsmenn í
síma, því þeir símar sem
eru gefnir upp eru annað-
hvort lokaðir eða ekki
hægt að ná í starfsfólk í
númerunum.
Kona.
Góð þjónusta
ÉG var svo óheppin fyrir
rúmri viku að fá þursabit.
Eftir sex daga var ég ekki
orðin neitt betri í bakinu og
var þá bent á kínversku
nuddstofuna í Hamraborg
20a Kópavogi.
Eftir fyrsta skiptið mitt
þar í nálastungum og nuddi
var ég orðin ótrúlega mikið
betri og í dag þegar ég er
búin að fara tvisvar er ég
næstum verkjalaus. Ég á
eftir tvö skipti og er alveg
viss um að það dugi til að
ég komist í gott lag með
bakið.
Kínverska nuddstofan í
Hamraborg fær sem sagt
mín bestu meðmæli.
María Richter.
Tapað/fundið
Derhúfa týndist
HVÍT derhúfa með svörtu
skyggni og svartri snúru
(skipstjórahúfa) með
svörtu og gulu merki týnd-
ist við Engjaskóla í Graf-
arvogi. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 616 1687.
Gleraugu týndust
GLERAUGU í álumgjörð
og með hálskeðju töpuðust
2. mars. Finnandi vinsam-
lega hringi í 699 7292.
Dýrahald
Páfagaukur týndist
PÁFAGAUKUR, ljós-
grænn, lítill, týndist frá
Blómabúðinni í Spönginni í
Grafarvogi sl. sunnudag.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband í síma
586 1045 og 823 8661.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
ÞAÐ vakti undrun mína
– og þó – þegar ég
hringdi í Háskóla Íslands
í símanúmer Guðmundar
Ólafssonar lektors að þá
var svarað á ensku.
Þetta sýnir að Háskóli Ís-
lands tekur enska tungu
í vaxandi mæli sér til
trausts og halds en snýr
baki við þjóðtungunni.
Allar áskoranir svo-
kallaðra Hollvina-
samtaka Háskólans,
ávörp Vigdísar Finn-
bogadóttur, fyrrum for-
seta, með tilvitnun í
Snorra Hjartarson skáld:
„Land, þjóð og tunga,
þrenning sönn og ein“ er
ekki lengur í heiðri höfð.
Ég benti á það í fyrra
að Happdrætti Háskóla
Íslands léti syngja á
ensku í sjónvarpsauglýs-
ingu. Háskólinn tók ekk-
ert tillit til þeirrar
ábendingar en hélt at-
hæfi sínu áfram.
Það vekur furðu að ís-
lensk stjórnvöld skuli
krefjast þess af útlend-
ingum sem setjast hér að
að þeir læri íslensku á
sama tíma og íslensk
stjórnvöld og æðsta
menntastofnun Íslend-
inga nota ensku í sívax-
andi mæli.
Lesendur Morgun-
blaðsins geta sjálfir
gengið úr skugga um að
þessi athugasemd um
Háskólann sé rétt með
því að hringja í síma-
númerið 525 4588.
Pétur Pétursson,
þulur.
Það vakti undrun mína
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Hvidbjörnen kemur í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Richmond Park kom
og fór í gær, Emer-
alda fór í gær. Svilas
kemur í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Skrif-
stofa s. 551 4349, opin
miðvikud. kl. 14–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og opin handa-
vinnustofa, kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8–12.30 bað, kl. 9–12
glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
10.30 Búnaðarbankinn,
kl. 13–16.30 bridge/
vist, kl. 13–16 glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað,
kl. 10 leikfimi, kl. 14.30
bankaþjónusta, kl.
14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9 silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13.30
bankaþjónusta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
postulínsmálun, kl. 13–
16.30 módelteikning,
kl. 9–14 hárgreiðsla,
kl. 9–16.30 fótaaðgerð.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 13.30 enska, byrj-
endur.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9.30
stólaleikfimi, kl. 10.15
og 11.10 leikfimi, kl. 13
handavinnuhornið, kl.
13.30 trésmíði nýtt og
notað.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Myndlist kl.10–16,
línudans kl. 11, gler-
skurður kl. 13, pílu-
kast kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Forsetinn
kemur í heimsókn kl.
14, uppl. í síma 588-
2111. Söngfélag FEB
kóræfing kl. 17.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum Selið,
Vallarbraut 4, Njarð-
vík. Í dag kl. 14 fé-
lagsvist.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 10.30
gamlir leikir og dans-
ar, leiðsögn í vinnu-
stofum fellur niður eft-
ir hád., spilasalur
opinn.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 boccia og
glerlist, kl. 13 glerlist
og félagsvist, kl. 16
hringdansar, kl. 17.
bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinnustofan op-
in.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, búta-
saumur, útskurður,
hárgreiðsla og fótaað-
gerð, kl. 11 banki, kl.
13 bridge.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 15 teiknun og
málun. Fótaaðgerðir
og hárgreiðsla.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
10–11 samverustund,
kl. 9–16 fótaaðgerð, kl.
13–13.30 banki, kl. 14
félagsvist.
Vesturgata 7. Kl.
8.25–10.30 sund, kl.
9.15–16 myndmennt,
kl. 12.15–14.30 versl-
unarferð, kl. 13–14
spurt og spjallað, kl.
13–16 tréskurður. Get-
um bætt við nem-
endum í mósaik á
fimmtud. kl.13–16.
Helgistund verður
fimmtud. 13. mars
kl.10.30. Kór Fé-
lagsstarfs aldraðra
syngur. Allir velkomn-
ir.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 10 fótaað-
gerð, bókband og
bútasaumur, kl. 13
handmennt og kóræf-
ing, kl. 13–16 föndur,
kl. 13.30 bókband, kl.
12.30 verslunarferð.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félags-
heimilið Hátúni 12. Kl.
19.30 félagsvist.
Barðstrendinga-
félagið. Félagsvist í
Konnakoti, Hverf-
isgötu 105, kl. 20. 30 í
kvöld. Allir velkomnir.
ITC-deildin Melkorka
heldur fund að Borg-
artúni 22, 3 hæð. kl. 20
í kvöld. Fundurinn er
öllum opinn. Uppl. í s.
587 1712. Hulda Gísla-
dóttir.
Kvennadeild Flug-
björgunarsveitarinnar
í Reykjavík, fundur kl.
20 í kvöld. Spilað
bingó.
Í dag er miðvikudagur 12. mars,
71. dagur ársins 2003. Gregor-
íusmessa. Orð dagsins: Gjörið
ekkert af eigingirni eða hégóma-
girnd. Verið lítillátir og metið
aðra meira en sjálfa yður.
(Fil. 2, 3.)
Tillögur um að skyldastjórnmálaflokka til
að opna bókhald sitt, eins
og víða tíðkast, hafa ekki
sízt komið frá Samfylk-
ingunni, en Jóhanna Sig-
urðardóttir hefur t.d.
margflutt frumvarp þess
efnis ásamt fleiri þing-
mönnum. Í pistli á Deigl-
unni eftir Davíð Guð-
jónsson heyrist nú sami
tónn, en úr annarri póli-
tískri átt.
Auðvitað ber okkurskylda til að setja lög
um fjármál stjórn-
málaflokka. Þetta er
spurning um leikreglur
til framtíðar,“ skrifar
Davíð. „Til þess að fá
heildarmynd af starfsemi
og stefnu stjórn-
málaflokks er nauðsyn-
legt að vita hvort hann sé
fjármagnaður á eðlileg-
um forsendum og sam-
kvæmt þeim leikreglum
sem samfélagið setur.
Það er í raun jafnfárán-
legt fyrir stjórn-
málaflokk að gefa ekki
upp upplýsingar um fjár-
mögnun sína eins og að
gefa ekki upp stefnu
flokksins í einstökum
málum. Hvað þætti okk-
ur til dæmis um það ef
Vinstri grænir neituðu
að gefa upp afstöðu sína í
mannréttindamálum eða
Frjálslyndir í jafnréttis-
málum? Þeim fyndist
kannski bara að almenn-
ingi kæmi afstaða þeirra
ekkert við en segðu jafn-
framt að við stefnu
þeirra í þessum málum
væri ekkert að athuga!
Hvað er til dæmis í vegi
fyrir því að erlendir að-
ilar geti haldið uppi ís-
lenskum stjórn-
málaflokki og beitt
þannig áhrifum sínum?“
Davíð segir að þetta séerfitt mál og hugs-
anlegt að allir stjórn-
málaflokkar myndu
skaðast lítillega við það
að opna fjármál sín.
„Samfylkingin virðist
reyndar trúa því að hún
hagnist á aðgerðinni. En
lög um fjármál stjórn-
málaflokka þyrftu auð-
vitað að vera þannig
gerð að þau kæmu í veg
fyrir öll framhjáhlaup og
óeðlilega afslætti. Því
miður virðist Samfylk-
ingin ekki hafa kjark til
þess að ríða á vaðið og
opinbera sitt bókhald.
Slíkt myndi nefnilega
setja þrýsting á alla hina
flokkana,“ skrifar Davíð.
Og Davíð klykkir út:„Sjálfstæðisflokk-
urinn þráast hins vegar
við og vísar meðal annars
til þess að Kohl og Kristi-
legi Demókrataflokk-
urinn hafi orðið uppvís
að spillingu þrátt fyrir
ströng lög þar í landi [í
Þýskalandi] um fjármál
stjórnmálaflokka. Þessi
rök halda auðvitað ekki
vatni og okkur sjálfstæð-
ismönnum væri nær að
þrýsta á um breytingar á
þessu innan flokksins.
Enda er pistlahöfundur
þess fullviss að aðgerðin
myndi hafa lítil áhrif ef
allir flokkar opnuðu bók-
hald sitt í einu eftir kosn-
ingar, það er líka margt
sem bendir til þess að nú
sé rétta tækifærið.“
STAKSTEINAR
Fjármál
stjórnmálaflokkanna
Víkverji skrifar...
JÓN Benediktsson, Auðnum í Lax-árdal, horfði á fréttirnar í síðustu
viku rétt áður en hann fór á Bún-
aðarþingið. Hann orti beint upp úr
fréttunum:
Ísraelsmenn eru enn að skjóta
Araba og þeirra hús að brjóta
en norðaustan til í Nígeríu
voru nýlega drepnir fjörutíu.
x x x
ÍSLENSK sveit verður aldrei blóm-legri heldur en í orðum Guðna
Ágústssonar landbúnaðarráðherra
eins og sannaðist í ávarpi hans á
Búnaðarþinginu. Það á ekki aðeins
við um íslenska hestinn, en hann hef-
ur beitt sér fyrir því að Ísland sé við-
urkennt sem upprunaland íslenska
hestsins, heldur einnig íslenskar
sveitakonur í samtökunum „Lifandi
landbúnaður – Gullið heima“, sem
landbúnaðarráðherra hefur unnið
með. Hann sagði um framtakið:
„Konurnar hafa verið að minna á sig
og notað til þess skemmtilegar að-
ferðir sem duga. Íslenskar sveitakon-
ur hafa staðið fyrir lífsgleðihátíðum
og baráttu fyrir íslenskar sveitir.
Þær eiga auðvelt með að nálgast
neytendur, þær eru baráttusveit sem
er að hefja stórsókn.“ Nú er spurning
hvort landbúnaðarráðherra beiti sér
ekki líka fyrir því að Ísland verði við-
urkennt sem upprunaland íslenskra
sveitakvenna.
x x x
GUÐNI fór mikinn þegar hann tal-aði um íslensku mjólkina, sem
væri manninum lífsnauðsynleg til að
byggja upp hraustan og sterkan lík-
ama. Þess vegna voru skilaboð hans
til æsku þessa lands: „Meiri mjólk,
minna gos.“
Í tilefni af þessum ummælum
Guðna kvaddi Halldór Blöndal, for-
seti Alþingis og fyrrverandi landbún-
aðarráðherra, sér hljóðs undir liðn-
um andsvör í móttöku eftir setningu
Búnaðarþingsins:
Morgunblaðið/Jim Smart
Guðni Ágústsson á Búnaðarþingi.
Þar sem Ísland á
þessi ungu börn
undir himni há
brosir heiðartjörn
þar með búandsbrag
meður breiðum hljóm
þennan dýrðardag
mælir djúpum róm:
„Þar sem himnesk hross
magna hófagný
eða kýrnar koss
fá með kurt og pí
þetta fríska fólk
hefur fjörleg bros
drekkur meiri mjólk
sýpur minna gos.“
x x x
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-maður Vinstri grænna og fyrr-
verandi landbúnaðarráðherra, lætur
sjaldan eiga inni hjá sér. Þegar Guðni
fléttaði gagnrýni á Vinstri græna inn
í lýsingu á því hvað sveitirnar væru
grænar bað Steingrímur um orðið:
Guðni hefur mikið malað
mann og annan þreytt,
en það er gáfa að geta talað
svona glæsilega um ekki neitt.
LÁRÉTT
1 heimula, 4 kunn, 7
lufsa, 8 rangindi, 9 lík, 11
skrá, 13 espa, 14 bjart,
15 þrótt, 17 alda, 20 rak-
lendi, 22 dý, 23 eimyrjan,
24 loftsýn, 25 dregur
fram lífið.
LÓÐRÉTT
1 brúkar, 2 ágreiningur,
3 svelgurinn, 4 naut, 5 lé-
legt, 6 sjúga, 10 afbragð,
12 nóa, 13 borða, 15 vit-
anlegt, 16 styrkti, 18 spil,
19 hefur undan, 20 hafði
upp á, 21 ferming.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 nöturlegt, 8 undar, 9 sægur, 10 ann, 11 ilmur,
13 apann, 15 gusts, 18 hafur, 21 áar, 22 tímir, 23 unaðs,
24 sunnudags.
Lóðrétt: 2 öldum, 3 urrar, 4 lasna, 5 gagna, 6 funi, 7
hrun, 12 urt, 14 púa, 15 gutl, 16 sömdu, 17 sárin, 18
hrund, 19 flagg, 20 ræsa.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16