Morgunblaðið - 12.03.2003, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 12.03.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR 44 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÓSKAR Bjarni Óskarsson þjálfari ungmennalandsliðsins í handknatt- leik, skipuðu leikmönnum undir 21 árs aldri, hefur valið 20 manna æf- ingahóp til undirbúnings fyrir und- ankeppni HM sem liðið tekur leikur á í Búlgaríu 18.-20 apríl. Hópurinn sem Óskar valdi er þannig skip- aður: Markverðir: Björgvin Gústavsson, HK Pálmar Pétursson, Valur Sigurjón Þórðarson, Fram Aðrir leikmenn: Baldvin Þorsteinsson, KA Logi Geirsson, FH Sigurður Eggertsson, Valur Elías Már Halldórsson, HK Jón B. Pétursson, Fram Friðrik B. Þorvaldsson, Valur Hörður Fannar Sigþórsson, Þór Arnór Atlason, KA Guðlaugur Hauksson, ÍR Vilhjálmur Halldórsson, Stjarnan Andri Berg Haraldsson, FH Lárus Jónsson, Fram Ingólfur Axelsson, KA Ólafur Víðir Ólafsson, HK Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukar Einar Logi Friðjónsson, KA Einar Hólmgeirsson, ÍR  32 landslið leika í undankeppninni í átta riðlum. Ísland leikur í riðli með Úkraínu, Moldavíu og Búlgaríu en úrslitakeppni HM fer fram í Brasilíu 24.ágúst til 6. september. Óskar Bjarni velur 21 árs hópinn Logi Geirsson DANSKA handknattleikssambandið hagn- aðist um a.m.k. 40 milljónir króna á því að halda Evrópumeistaramótið í hand- knattleik kvenna undir lok síðasta árs en verið er að ljúka uppgjöri vegna mótsins um þessar mundir. Í ljósi þessa hafa Dan- ir ákveðið að sækja um að halda Evr- ópukeppnina bæði í karla- og kvenna- flokki karla árið 2006. Danir gera sér hins vegar ljós að það verði við ramman reip að draga varðandi karlakeppnina ef Þjóðverjar sækja um að halda keppnina árið 2006, eins og þeir hafa látið í veðri vaka eftir að heimsmeistarakeppnin árið 2005 gekk þeim úr greipum á þingi Al- þjóða handknattleikssambandsins í lok síðasta árs. Sæki Þjóðverjar hins vegar ekki um keppnina gera Danir sér góðar vonir að fá a.m.k. að halda karlakeppnina. Danir græddu á EM kvenna Hlynur Morthens úr leik?  MICK McCarthy, fyrrverandi landsliðsþjálfari Írlands, er nú sterklega orðaður við Sunderland, sem lét Howard Wilkinson knatt- spyrnustjóra fara á mánudags- kvöldið og einnig aðstoðarmann hans, Steve Cotterill. Hann hætti sem knattspyrnustjóri hjá Stoke til að gerast aðstoðarmaður Wilkin- son. Þeir tóku við stjórninni hjá Sunderland af Peter Reid í októ- ber og undir stjórn þeirra vann Sunderland aðeins tvo leiki af tutt- ugu. Í dag verður fundur með fréttamönnum og McCarthy kynnt- ur til sögunnar.  STOKE City hefur fengið Mark Williams varnarmann frá Wimble- don að láni til loka leiktíðarinnar. Williams, sem er 33 ára gamall, á að baki 19 landsleiki fyrir N-Íra en hann hefur verið í röðum Wimble- don frá árinu 2000 og hefur leikið 25 leiki með liðinu á yfirstandandi leiktíð.  ALEX Ferguson, stjóri Man- chester United, og kollegi hans hjá Liverpool, Gerard Houllier, virð- ast ætla í kapphlaup um að krækja í franska framherjann Djibil Cisse sem leikur með Auxerre. Houllier hefur lengi haft augastað á Cisse en frést hefur að Ferguson ætli að blanda sér í málið og reyna að lokka Frakkann til Old Trafford. Fleiri félög hafa sýnt Cisse áhuga, þar á meðal Barcelona og AC Mil- an.  MARTIN Boquist, landsliðsmað- ur Svía í handknattleik, hefur gert þriggja ára samning við Kiel í Þýskalandi, en Boquist leikur nú með Redbergslid í heimalandi sínu. Um tíma leit út fyrir að Boquist færi til HSV Hamborg, en honum snerist hugur. Þá hefur línumað- urinn Markus Ahlm hjá Ystad einnig gert samning við Kiel og leikur með félaginu á næstu leiktíð.  TOBBEN Evjen, 38 ára gamall Norðmaður, hefur verið ráðinn þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Team Tvis Holstebro sem Aron Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, gerði samning við í byrjun árs. Evjen tekur við þjálf- uninni í sumar en Ole Andersen, núverandi þjálfari, sagði upp starfi sínu á dögunum og tekur við þjálf- un Otterup frá Fjóni á næstu leik- tíð, en Otterup er svo gott sem fallið úr úrvalsdeildinni. Evjen hef- ur síðustu ár þjálfað Bodø.  PAVLA Hamackova, heims- meistari í stangarstökki kvenna frá Tékklandi, verður ekki á meðal keppenda á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum sem fram fer í Birmingham í Englandi um helgina. Hamackova meiddist á ökkla á tékkneska meistaramótinu fyrir skömmu og hefur ekki náð sér að fullu ennþá, því getur hún ekki varið titil sinn. FÓLK Úrvalsdeild karla hefst annaðkvöld með tveimur leikjum, Grindavík–Hamar og KR–Njarðvík. Á föstudaginn leika Haukar–Tinda- stóll og Keflavík–ÍR og síðan eru leik- ir númer tvö hjá þessum liðum á laug- ardaginn og sunnudaginn og komi til þriðja leiks verður hann á mánudag- inn og/eða þriðjudaginn. Forsvarsmenn félaganna voru allir bjartsýnir á gengi sinna liða í gær, flestir leikmenn væru tilbúnir í slag- inn en þó eru einhver meiðsli hjá Grindvíkingum þar sem Darrel Lewis hefur verið meiddur, „hann er þó allur að koma til, en ég veit ekki enn hvort hann verður tilbúinn í næsta leik,“ sagði Páll Axel Vilbergsson leikmað- ur Grindvíkinga í gær. Sömu sögu er að segja af Helga Jónasi Guðfinns- syni, ekki er vitað hvort hann nær að leika með í rimmunni við Hamar. Eugene Christopher, erlendur leikmaður ÍR, hefur verið meiddur en „hann er allur að skríða saman,“ sagði Eggert Garðarsson, þjálfari ÍR, en hann stýrir ungu liði í úrslitakeppn- inni, liði þar sem aðeins tveir leik- menn hafa áður tekið þátt í úrslita- keppninni. Hjá öðrum eru menn sem hafa ver- ið meiddir að ná sér á strik á ný og má þar nefna Njarðvíkinginn Pál Krist- insson. „Hann er orðinn góður og nýi útlendingurinn hefur haft góð áhrif á liðið, menn eru svei mér þá farnir að hafa gaman af körfuknattleik á ný og ég held bara áhorfendur líka,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarð- víkinga. Hann sagðist hlakka til að mæta KR enda alvanalegt í úrslitakeppn- inni. „KR-húsið er okkar annar heimavöllur,“ sagði Friðrik. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, tók í sama streng og sagði að í skoð- anakönnun meðal leikmanna sinna hefði komið í ljós að þeim líkaði best að leika í Njarðvík. Keflvíkingar segjast ekki enn hafa náð að sýna sitt besta í vetur og von- ast til að allt smelli saman í úrslita- keppninni. Bjartsýnir á gott gengi ÚRSLITAKEPPNIN í körfuknattleiknum hefst annað kvöld með tveimur leikjum. Stúlkurnar hefja hins vegar ekki leik fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku en úrslitin í 1. deild karla verða á föstu- daginn. Ekki verður annað sagt en aðÓlafur hafi gert sitt ýtrasta til að koma sínum mönnum í undan- úrslit Meistara- deildarinnar en Ólafur skoraði hvorki fleiri né færri en 16 mörk í 34:34 jafnteflinu á móti Portland og enn og aftur sýndi Ólafur að hann er einn fremsti handknattleiksmaður heims. „Jú mér gekk svo sem ágætlega og ég fann mig vel í leiknum,“ sagði Ólafur, hógvær sem endranær, en aðeins þrjú marka hans komu af vítalínunni og hann minnist þess ekki að hafa skorað fleiri mörk í ein- um og sama leiknum. „Það var verst að þetta skyldi ekki duga. Við vorum með undirtök- in í fyrri hálfleik og fyrstu tíu mín- úturnar í síðari hálfleik og áttum bara mjög góða möguleika á að komast áfram. Við misstum damp- inn um miðjan hálfleikinn og hleypt- um Spánverjunum inn í leikinn en með örlítið betri markvörslu og betri nýtingu úr hornunum hefðum við getað slegið þá út. Það kom hins vegar í ljós að ósigurinn á heimavelli reyndist okkur ansi dýrkeyptur,“ sagði Ólafur en Magdeburg tapaði heimaleiknum gegn Portland, 26:22. Kveður Magdeburg í vor Ólafur kveður félaga sína í Magdeburg í vor eftir sex ára dvöl hjá félaginu en hann hefur sem kunnugt er gert samning við spænska félagið Ciudad Real. Ólaf- ur hefur á þessum árum unnið glæsta sigra með Magdeburg. Há- punkturinn er sigurinn í Meistara- deildinni á síðustu leiktíð þegar Magdeburg lagði Fotex Vezsprém í úrslitaleik og árið áður urðu Ólafur og félagar hans þýskir meistarar. Þá hefur Ólafur í tvígang fagnað sigri í EHF-keppninni og tvisvar sinnum tekið á móti viðurkenningu sem besti leikmaður deildarinnar. „Þó svo að enginn titill vinnist þetta árið get ég vel við unað og kveð mjög sáttur í vor. Nú er öll pressa farin af manni og ég ætla að njóta þess að spila þá leiki sem við eigum eftir í deildinni og slappa af í fyrsta skipti í langan tíma. Dagskrá- in er óvenju róleg á næstunni eða fjórir eða fimm leikir á einum mán- uði í stað átta eða níu. Ég mun þó ekki slá slöku við. Ég ætla að lyfta og styrkja mig og mæti svo hungr- aður til Spánar í sumar. Stefnan hjá okkur núna er halda þriðja sætinu í deildinni og það gæti tryggt liðinu sæti í Meistaradeildinni en Þýska- land og Spánn sækja fast til EHF að þriðja sætið í þessum sterkustu deildarkeppnum í Evrópu gefi Meistaradeildarsæti.“ Ólafur segist hlakka til að mæta Þjóðverjum en Íslendingar sækja Þjóðverja heim og spila við þá í Berlín þann 22. þessa mánaðar. „Ég var á blaðamannafundi í síð- ustu viku þar sem leikurinn var kynntur. Það er mikill áhugi fyrir leiknum og höllin í Berlín verður kjaftfull. Það verður gott fyrir okk- ur strákana að koma saman og hitt- ast og setja okkur markmið fyrir komandi verkefni,“ sagði Ólafur. Ólafur Stefánsson fór á kostum í Pamplona og skoraði 16 mörk í Evrópuleik „MAÐUR verður víst að taka því að vinna engan titil þetta árið,“ sagði Ólafur Stefánsson við Morgunblaðið en lið hans, Magdeburg, var slegið út af Portland San Antonio í Meistaradeild Evrópu í hand- knattleik í Pamplona á Spáni um helgina. Þar með fuku síðustu von- ir lærisveina Alfreðs Gíslasonar út í loftið að vinna titil á tímabilinu en Magdeburg, sem hampaði Evrópumeistaratitilinum á síðustu leiktíð, er úr leik í baráttunni við Lemgo og Flensburg um sigur í deildinni og er sömuleiðis úr leik í bikarkeppninni. Eftir Guðmund Hilmarsson „Verst að þetta skyldi ekki duga“ BREIÐABLIK og Stoke hafa gert samstarfssamning um að veita ungum og efnilegum leikmönnum félaganna tæki- færi til að kynnast knatt- spyrnu hjá hvoru félagi um sig. Stjórn Stoke mun veita drengjum úr Breiðabliki færi á að æfa með yngri liðum félags- ins á Englandi auk þess sem Stoke getur fengið efnilega Blika til að æfa og keppa með unglinga- og varaliði meist- araflokks og Blikar geta feng- ið efnilega leikmenn frá Stoke til að leika með meistaraflokki Kópavogsliðsins. Blikar og Stoke semja HLYNUR Morthens mark- vörður Gróttu/KR meiddist á úlnlið í leiknum við Säve- hof á sunnudagskvöldið og er óttast að hann sé brotinn. Heimasíða Grótta/KR grein- ir frá því að Hlynur hafi far- ið í myndatöku en ekki hafi verið hægt að greina hvort bátsbein hægri handar hafi brotnað og ekki fæst úr því skorið fyrr en eftir rúma viku. Hlynur var settur í gifsumbúðir sem hann þarf að vera með næstu vikuna. Hann stendur því ekki á milli stanganna hjá Seltjarn- arnesliðinu í kvöld sem mæt- ir Stjörnunni og heldur ekki í leiknum við HK á sunnu- daginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.