Morgunblaðið - 12.03.2003, Síða 46

Morgunblaðið - 12.03.2003, Síða 46
ÍÞRÓTTIR 46 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hlíðarsmára, sími 585 4100 - ludvik@uu.is Man.Utd - Fulham 20.-23. mars Úrval Útsýn í Smáranum og Man. Utd klúbburinn á Íslandi bjóða upp á ferð á leik Man. Utd og Fulham Örfá sæti laus. Beint leiguflug til Manchester. Gist í miðborg Manchester. Verð: 52.000 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútur til og frá flugvelli, miði á leikinn og íslensk fararstjórn. Liverpool v Leeds og Liverpool v Celtic 20.-23. mars Úrval Útsýn í Smáranum og Liverpool klúbburinn á Íslandi bjóða upp á ferð á Liverpool - Leeds og Liverpool - Celtic Eigum nokkur sæti laus í þessa frábæru ferð í beinu leiguflugi til Manchester. Gist í miðborg Liverpool Nú er um að gera að nota sjaldgæft tækifæri og sjá tvo heimaleiki með Liverpool í sömu ferð. Verð: 60.000 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútur til og frá flugvelli, miðar á báða leikina og íslensk fararstjórn. KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Inter Mílanó - Newcastle ........................ 2:2 Christian Vieri 46., Ivan Cordoba 60. - Alan Shearer 42., 49. - 53.459. Barcelona - Leverkusen.......................... 2:0 Javier Saviola 16., Thomas Kleine 49. (sjálfsm.) - 62.228. Staðan: Barcelona 5 4 1 0 10:2 13 Inter 5 2 2 1 9:8 8 Newcastle 5 2 1 2 10:11 7 Leverkusen 5 0 0 5 5:13 0 Lokaumferðin 19. mars: Leverkusen - Inter Newcastle - Barcelona. B-RIÐILL: Ajax - Valencia......................................... 1:1 Petri Pasanen 56. - Kily Gonzalez 28. (víti) - 48.633. Arsenal - Roma ........................................ 1:1 Patrick Vieira 12. - Antonio Cassano 45. Rautt spjald: Francesco Totti (Roma) 22. - 35.472. Staðan: Ajax 5 1 4 0 5:4 7 Arsenal 5 1 4 0 5:3 7 Valencia 5 1 3 1 3:5 6 Roma 5 1 1 3 6:7 4 Lokaumferðin 19. mars: Roma - Ajax Valencia - Arsenal England 1. deild: Gillingham - Wimbledon.......................... 3:3 Crystal Palace - Ipswich.......................... 1:1 Staða efstu og neðstu liða: Portsmouth 35 21 10 4 73:34 73 Leicester 36 20 11 5 58:32 71 Reading 35 19 4 12 45:33 61 Nottingham F. 35 16 11 8 62:36 59 Sheff. Utd. 33 17 7 9 51:36 58 Wolves 35 15 11 9 61:37 56 Ipswich 36 13 12 11 55:46 51 Norwich 34 13 10 11 44:34 49 Gillingham 35 13 10 12 48:49 49 Rotherham 36 13 9 14 52:50 48 Burnley 33 13 9 11 48:56 48 ------------------------------------------ Walsall 36 11 7 18 47:54 40 Brighton 36 8 8 20 36:55 32 Stoke City 36 7 11 18 36:63 32 Sheff. Wed. 36 6 12 18 37:59 30 Grimsby 36 7 9 20 41:72 30 2. deild: Brentford - Colchester............................. 1:1 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Miami - Utah..........................................73:83 Atlanta - LA Clippers ...........................95:86 Dallas - Minnesota ................................83:92 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Essodeild: Ásgarður: Stjarnan – Grótta/KR..............20 1. deild kvenna, Essodeild: Fylkishöll: Fylkir/ÍR – FH .......................20 Í KVÖLD ÚRSLIT EVA Stefánsdóttir, leikmaður Njarðvíkur í körfuknattleik, leikur ekki með í úrslita- keppni, en hún fór úr axlarlið fyrir nokkru og missti fyrir vikið alveg af síðustu tveimur leikj- um liðsins. Úrslitakeppnin hefst hjá stúlkunum á þriðju- daginn í næstu viku og á fundi í gær kom fram að öll félögin eru tilbúin í slaginn og hlakka til. KR-ingar sögðu góðan stíganda hafa verið í vetur hjá liðinu, Grindvíkingar telja sig einnig hafa tekið framförum í vetur og hafa stefnt upp á við síðustu mánuðina. Keflvíkingar höfðu mikla yfirburði framan af vetri en önnur lið hafa bætt við sig þannig að yfirburðir Kefl- víkinga eru ekki eins miklir og fyrr í vetur. Hjá Njarðvík hefur talsvert verið um meiðsli og víst að róðurinn gegn Keflvíkingum verður erfiður. Eva ekki meira með í vetur HILMAR Þórlindsson, sem er á mála hjá Cangas í efstu deildinni í handknattleik á Spáni, verður vænt- anlega lánaður til Arrate, félags í næstu deild fyrir neðan það sem eftir er tímabilsins. Hilmar segir á heimasíðu sinni í gær að honum líki vel hjá nýja félaginu, svona við fyrstu sýn og að sjúkraþjálfari þess sé mun betri en hjá Cangas. Hilm- ar hefur verið meiddur og gengið erfiðlega að fá sig góðan en nú á að láta á það reyna hvort hann getur spilað og nýja félagið er í mikilli baráttu um að kom- ast upp í efstu deildina, er í öðru sæti og átta leikir eftir. Hilmar kom til Eibar, bæjarins þar sem Arrate er, í gær og fór strax á skotæfingu og líkaði vel, bæði við leikmenn og stjórnarmenn félagsins og vonast hann til að geta leikið á laugardaginn sinn fyrsta leik í langan tíma. Hilmar lánaður í 2. deildina Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hilmar Þórlindsson. VERÐANDI Íslandsmeistarar í handknattleik karla fá tæki- færi til að komast í hina nýju meistaradeild Evrópu sem hleypt verður af stokkunum næsta vetur. Í deildinni verða 32 lið og þar af fara 24 beint í deildina. Um hin átta sætin verður spilað næsta haust. Auk verðandi Evrópumeist- ara munu Þýskaland og Spánn fá þrjú sæti hvor þjóð í deildinni, Danmörk, Ung- verjaland, Slóvenía og Króat- ía fá tvö hver þjóð og síðan fá Frakkland, Portúgal, Svíþjóð, Júgóslavía, Noregur, Tékk- land, Rússland, Ítalía og Makedónía að senda meist- aralið sín beint í deildina. Meistaralið annarra Evr- ópuþjóða, þar á meðal Íslands, leika um þau átta sæti sem þá standa eftir. Svo framarlega sem verðandi Íslandsmeist- arar ákveða að taka þátt í keppninni. Íslenskt lið getur kom- ist í meist- aradeildina Heimamenn í Arsenal fengu óska-byrjun þegar fyrirliðinn Pat- rick Vieira skoraði á 12. mínútu með skalla eftir hornspyrnu og var þetta aðeins þriðja markið sem hann gerir fyrir Arsenal á þessari leiktíð. Tíu mínútum síðar var Francesco Totti, fyrirliði Rómverja, rekinn af velli eft- ir að hafa gefið Martin Keown oln- bogaskot þegar þeir stukku saman upp til að skalla boltann. Þetta var mjög strangur dómur en skömmu áður hafði dómarinn rætt við þá Totti og Keown þar sem þeir höfðu eitthvað verið að kljást. Keown er frábær leikari og ensk knattspyrna setti niður með svona hegðun. Það er alltaf talað um að Ítalir hendi sér alltaf niður til að leika og fá dæmd brot á mótherjana, en það lék enginn betur en Keown,“ sagði Fabio Capello, þjálfari Roma, eftir leikinn. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagðist ekki hafa skoðað at- vikið á myndbandi. „Ég sá Keown detta og síðan rautt spjald og það kom mér á óvart,“ sagði Wenger. Þegar mínúta var eftir af þeim þremur sem dómarinn bætti við í fyrri hálfleik jafnaði Antonio Cass- ano eftir mikinn sofandahátt í vörn heimamanna. Ivan Pelizzoli varði vel í marki gestanna en þeir fengu þó besta færi leiksins sem nýttist ekki. Nú verður Arsenal í það minnsta að ná jafntefli í síðasta leiknum í Valenciu. „Auðvit- að getum við unnið í Valenciu, við er- um með frábært lið og ef við náum að sýna okkar bestu hliðar þá getum við unnið alla,“ sagði Vieira nokkuð von- svikinn eftir leikinn og bætti við að það hefði ekki vantað færin í leikinn, menn hefðu einfaldlega skotið allt of oft framhjá markinu. Staðan er flókin, Arsenal kemst áfram með því að fá stig í Valenciu, en tapi liðið þar kemst Valencia áfram ásamt Ajax ef liðið vinnur í Róm. Vinni Roma hins vegar kemst liðið áfram, ásamt Arsenal verði jafntefli í Valenciu, því Roma er með betri árangur en Valencia og Ajax. Allir sáttir í Amsterdam Í Amsterdam komust gestirnir yf- ir með marki Kily Gonzalez úr víta- spyrnu sem dæmd var við lítinn fögnuð áhorfenda og Ronalds Koem- ans, þjálfara Ajax. Fram að markinu, sem kom á 26. mínútu, hafði leikur- inn verið í jafnvægi, gestirnir leyfðu heimamönnum að vera með boltann en ógnuðu ávallt með skyndisóknum. Eftir hlé sóttu heimamenn meira og varnarmaðurinn Petri Pasanen skoraði með fallegum skalla á 57. mínútu eftir flotta sendingu Maxwell Scherrer. „Það var enginn að dekka mig þannig að ég þakkaði bara fyrir góða sendingu og skoraði,“ sagði varnarmaðurinn hamingjusamur með að hafa bjargað stigi fyrir Ajax. Valencia hélt áfram að sækja en ekk- ert gekk. „Við hefðum getað unnið en ég er þokkalega sáttur með eitt stig,“ sagði Rafael Benitez, þjálfari Valen- ciu, eftir leikinn. Koeman var ánægður. „Við erum búnir að leika fjóra leiki við Valencia og Arsenal án þess að tapa. Það er fínn árangur,“ sagði hann. Engin breyting ENGIN breyting varð á stöðunni í B-riðli Meistaradeildarinnar í gær- kvöldi þar sem báðum leikjunum lyktaði með 1:1 jafntefli. Arsenal gerði jafntefli á heimavelli við Roma þrátt fyrir að leika manni fleiri frá 22. mínútu. Í Amsterdam gerðu Ajax og Valencia einnig jafntefli. Það eina sem breyttist var að liðin bættu við sig stigi. Öll fjögur liðin geta enn komist áfram. Reuters Ivan Pelizzoli varði mark Roma vel, hér frá Freddie Ljungberg og Robert Pires sækir að honum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.