Morgunblaðið - 12.03.2003, Page 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 47
HLYNUR Jóhannesson og fé-
lagar í Stord eru komnir í úrslita-
keppnina um norska meistaratitil-
inn í handknattleik eftir sigur á
Kragerö, 30:22. Stord er í fimmta
sæti úrvalsdeildar og er öruggt með
að verða í hópi sex efstu þegar
tvær umferðir eru eftir. Stavanger,
Sandefjord, Runar, Fet og Dramm-
en eru komin í úrslit en þangað
komast einnig tvö efstu lið 1. deild-
ar. Heimdal, Kristiansand, Fylling-
en og Haslum, undir stjórn Krist-
jáns Halldórssonar, berjast um
sætin tvö í lokaumferðinni þar.
HARALDUR Hinriksson, knatt-
spyrnumaður frá Akranesi, gekk í
gær til liðs við 1. deildarlið HK úr
Kópavogi. Haraldur, sem er 34 ára,
hefur leikið 90 leiki með Skaga-
mönnum í efstu deild og fjórum
sinnum orðið Íslandsmeistari með
þeim.
PÄR Zetterberg, fyrrum lands-
liðsmaður Svía í knattspyrnu, er á
leið til Anderlecht í Belgíu í þriðja
skipti á ferlinum eftir að þessu
tímabili lýkur. Zetterberg hefur
leikið í þrjú ár með Olympiakos í
Grikklandi en hann var áður valinn
besti leikmaðurinn, bæði í Belgíu
og Svíþjóð. Hann hefur ekki leikið
með sænska landsliðinu í þrjú ár
eftir að hann lenti upp á kant við
Tommy Söderberg landsliðsþjálf-
ara.
GERMAN Burgos, markvörður
Atletico Madrid og argentínska
landsliðsins, sagði í gær að reyk-
ingar hefðu nærri því kostað sig líf-
ið. Burgos, sem er 33 ára, gekkst
undir aðgerð fyrir skömmu þar sem
krabbameinsæxli var fjarlægt úr
líkama hans. Á blaðamannafundi
sem hann hélt í gær greindi hann
frá því að hann hefði reykt frá 17
ára aldri og það hefði verið rót
vandans.
MARTHA Burk, kvenréttinda-
kona í Bandaríkjunum, ætlar í mál
við borgaryfirvöld í Augusta í
Georgíu. Ástæðan er að yfirvöld
svara ekki beiðni hennar um að fá
að mótmæla við aðalinnganginn að
Augusta golfvellinum þegar Mast-
ers-golfmótið verður haldið þar í
sumar.
BURK vill mótmæla því að konur
fái ekki aðgang í golfklúbbinn og
hefur farið fram á að fá leyfi til að
vera með 24 mótmælendur við inn-
ganginn á þriðja degi mótsins, 12.
apríl, og aðra 200 við götuna upp að
vellinum.
LEYNIR og Golfklúbbur Reykja-
víkur hyggja á samstarf í sumar
þannig að félagsmenn geti leikið án
endurgjalds. Þetta myndi þýða
aukna umferð um Garðavöll á
Akranesi þar sem um 2.000 fé-
lagsmenn eru í GR. Í fyrra voru
leiknir 12.300 hringir á Garðavelli,
900 fleiri en árið áður en völlurinn
ber allt að 30.000 hringi á sumri.
FÓLK
SJÚKRAÞJÁLFARI enska knatt-
spyrnufélagsins Ipswich Town
segir að útilokað sé að Hermann
Hreiðarsson geti byrjað að spila
knattspyrnu á ný fyrr en eftir sex
vikur. Samkvæmt því eru engar
líkur á að Hermann verði með ís-
lenska landsliðinu gegn Skotum í
Glasgow 29. þessa mánaðar, eftir
aðeins 17 daga.
Sjúkraþjálfarinn, David Will-
iams, sagði á heimasíðu Ipswich í
gær að Hermann hefði þurft að
fara í aðgerð vegna skurðarins
sem hann fékk fyrir ofan hnéð
strax á laugardagskvöldið.
„Það þurfti að sauma vöðvann
saman. Liðbönd skemmdust ekk-
ert en vöðvinn þarf þrjár vikur til
að gróa, án áreynslu, þannig að
Hermann þarf að vera á hækjum
í þrjár vikur. Eftir það getur
hann byrjað að þjálfa vöðvann
upp að nýju. Það eru því senni-
lega minnst sex vikur þar til hann
getur spilað á ný,“ sagði Willi-
ams.
Hermann hefur sjálfur ekki
viljað afskrifa möguleikann á að
taka þátt í landsleiknum en í
þetta skiptið er nokkuð ljóst að
viljinn einn nægir ekki til. Það
verður því skarð fyrir skildi í ís-
lensku vörninni á Hampden Park.
Útilokað að Hermann
verði með í Glasgow
SJÖ félög í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu hafa boðið
fram velli sína undir úrslita-
leiki í UEFA keppninni vorið
2004 og 2005, eftir því sem
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, greinir frá. Ákveðið
verður síðar í þessum mánuði
hvar úrslitaleikir keppninnar
fyrrgreind tvö ár verða haldn-
ir. Félögin sem er um að ræða
eru Aston Villa, Southampton,
Manchester City, Sunderland,
Leeds, Liverpool og Newcastle.
Það er talið vinna gegn um-
sóknum ensku félaganna að úr-
slitaleikur meistaradeildar
Evrópu í vor fer fram á Old
Trafford, heimavelli Manchest-
er United. Talið er að UEFA
vilji dreifa úrslitaleikjunum
sem mest á milli Evrópuþjóð-
anna sem hafa fyrsta flokks
velli líkt og fyrrgreind ensk fé-
lög. Þar af leiðandi er talið að
Englendingar fái ekkert af úr-
slitaleikjum þessara tveggja
ára heim til sín og lengra verði
að líða milli þess sem úrslita-
leikir Evrópumótanna verði í
Englandi.
Leverkusen mætti með hálfvæng-brotið lið til Barcelona. Þýska
liðið hefur ekki fengið stig í keppn-
inni og er í bullandi fallhættu í þýsku
1. deildinni, þannig að lykilmenn
voru hvíldir, auk þess sem meiðsli
hafa herjað á leikmannahóp þess.
Javier Saviola kom Barcelona yfir
strax á 16. mínútu eftir góða fyrir-
gjöf frá Marc Overmars en hann var
þýsku vörninni stöðugur ógnvaldur.
Úrslitin voru ráðin í byrjun síðari
hálfleiks þegar Þjóðverjarnir skor-
uðu sjálfsmark, 2:0. Thomas Kleine
stýrði þá boltanum í eigið mark eftir
skalla frá Frank de Boer.
Barcelona hefur unnið 12 af 13
leikjum sínum í meistaradeildinni í
vetur á meðan gengið heima fyrir
hefur verið með allra slakasta móti.
Liðið er nú ósigrað eftir að Radomir
Antic tók við þjálfun þess í síðasta
mánuði. Þá var sigurinn í gærkvöld
sá 200. frá upphafi hjá spænska fé-
laginu í Evrópukeppni.
Antic sagði að sigur á borð við
þennan væri til þess fallinn að auka
virðinguna fyrir liði sínu á evrópsk-
um vettvangi.
„Sá sem ætlar að vinna meistara-
deildina verður að leika á sannfær-
andi hátt og öðlast virðingu, og ég tel
að við séum á réttri leið að því leyti.
Leikur liðsins í kvöld var mjög já-
kvæður og ég er afar ánægður með
hvernig mínir menn stjórnuðu leikn-
um. Ekki síst vegna þess að okkur
vantaði marga leikmenn vegna
meiðsla, en þeir sem fylltu í skörðin
stóðu sig mjög vel, bæði reyndir leik-
menn og ungir og óreyndir,“ sagði
serbneski þjálfarinn.
Thomas Hörster, þjálfari Lever-
kusen, sagði að þrátt fyrir tapið hefði
hann séð ýmis batamerki á leik sinna
manna. „Við spiluðum betur og vor-
um skipulagðari en oft áður og það
gefur mér auknar vonir fyrir loka-
sprettinn í þýsku deildinni,“ sagði
Hörster.
Alan Shearer skoraði
tvívegis í Mílanó
Leikurinn í Mílanó var opinn og
líflegur og Newcastle var betri að-
ilinn lengi vel. Það var mjög verð-
skuldað þegar Alan Shearer kom
enska liðinu yfir rétt fyrir leikhlé,
skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf
frá Craig Bellamy sem lék varnar-
menn Inter grátt við vítateigslínuna
hægra megin. Christian Vieri jafn-
aði, 1:1, með hörkuskalla í upphafi
síðari hálfleiks en aðeins tveimur
mínútum síðar skoraði Shearer sitt
annað mark þegar hann nýtti sér
slæm mistök hjá Francesco Toldo í
marki Inter, 2:1. Varnarmaðurinn
Ivan Cordoba jafnaði fljótlega fyrir
Inter, 2:2, og þar við sat.
Cuper ánægður með jafnteflið
en Robson vonsvikinn
Hector Cuper, þjálfari Inter, var
mjög ánægður með jafnteflið. „Stigið
er okkur ákaflega dýrmætt því nú
eigum við alla möguleika á að kom-
ast áfram. Við vissum að þetta yrði
erfitt, þar sem það voru forföll í okk-
ar liði, en við gerðum það sem til
þurfti og spiluðum sérstaklega vel í
síðari hálfleik. Seinna markið frá
Shearer var okkur mikið áfall en við
brugðumst einstaklega vel við því.
Það verður ekki auðvelt að spila í
Leverkusen, sérstaklega þar sem
Vieri verður í leikbanni, en ég hef trú
á mínu liði, sama hverjum ég tefli
fram,“ sagði Cuper.
Vieri fékk gult spjald í gærkvöld
fyrir að sparka boltanum burt í reiði
sinni og er þar með kominn í eins
leiks bann.
Bobby Robson, hinn sjötugi knatt-
spyrnustjóri Newcastle, kvaðst von-
svikinn með að hafa ekki náð að
knýja fram sigur. „Inter er með
pálmann í höndunum eftir þessi úr-
slit því ég á ekki von á að Leverkus-
en eigi eftir að hjálpa okkur. Allt get-
ur þó gerst og við munum gera allt
sem í okkar valdi stendur á meðan
nokkur möguleiki er á að komast
áfram en ég held að Leverkusen eigi
ekki möguleika gegn Inter,“ sagði
Robson.
Reuters
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, fagnar fyrra marki sínu gegn Inter í Mílanó í gærkvöld á hefð-
bundinn hátt. Hann hefur nú skorað fimm mörk í tveimur síðustu leikjum í meistaradeildinni.
Sigur númer 200 og
Barcelona áfram
BARCELONA tryggði sér í gærkvöld sigur í A-riðli meistaradeildar
Evrópu og sæti í átta liða úrslitum keppninnar með því að sigra
Bayer Leverkusen, 2:0, á heimavelli sínum, Nou Camp. Á meðan
skildu Inter og Newcastle jöfn, 2:2, í bráðfjörugum leik í Mílanó og
það ræðst því ekki fyrr en í lokaumferð riðlakeppninnar í næstu
viku hvort þeirra fylgir Barcelona áfram. Inter stendur betur að vígi,
er stigi á undan, og mætir Leverkusen á útivelli en Newcastle fær
Barcelona í heimsókn.
Sjö ensk félög
vilja UEFA-
úrslitaleiki