Morgunblaðið - 12.03.2003, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
VERULEGUR árangur hefur náðst í að
fjölga ferðamönnum til Íslands að undan-
förnu og stefna Flugleiðir að því að ferða-
mönnum hingað fjölgi um 7% á ári, að sögn
Harðar Sigurgestssonar, stjórnarformanns
Flugleiða, á aðalfundi félagsins í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá Flugleiðum
komu um 300 þúsund ferðamenn hingað í
fyrra og hefur ferðamönnum því fjölgað um
21 þúsund á ári. Hörður segir að Ísland
keppi við fjölda annarra áhugaverðra ferða-
mannastaða og væntanlega þurfi að verða
framsækin þróun í greininni til að hún verði
áfram samkeppnisfær.
Aðalfundur Flugleiða
Stefnt að
7% fjölgun
ferðamanna
Miklar/16
Morgunblaðið/Kristinn
Hörður Sigurgestsson á fundinum í gær.
STJÓRNENDUR tveggja stærstu
afurðasölufyrirtækja landsins telja
flest benda til þess að skilaverð til
sauðfjárbænda muni lækka í haust.
Þetta sé afleiðing mikils offram-
boðs á kjötmarkaði. Sláturleyfis-
hafar hafi þurft að taka á sig tap
vegna framleiðslu síðasta hausts
og því hafi sauðfjárbændur ekki
enn þá fundið fyrir því af fullum
þunga.
„Það hefur orðið mikil verðlækk-
un á kindakjöti á markaði. Slátur-
leyfishafar hafa hins vegar verið
búnir að skuldbinda sig og í mörg-
um tilvikum eru þeir búnir að
greiða fullt verð til bænda þannig
að þeir eru núna að tapa á sölunni.
Það voru nokkrir sláturleyfishafar
sem voru settir á stofn með lítið
eigið fé eftir fall Goða. Það má
reikna með að næsta haust verði
verðlækkun hjá bændum í ljósi
þessarar stöðu og mjög líklega
munu einhverjir sláturleyfishafar
komast í þrot,“ sagði Steinþór
Skúlason, forstjóri Sláturfélags
Suðurlands.
Jón Helgi Björnsson, fram-
kvæmdastjóri slátursviðs Norð-
lenska, hefur sömu sögu að segja:
„Norðlenska er í sterkari stöðu en
margir aðrir því við erum búnir að
selja meginhluta af okkar birgðum.
Almennt má segja að sláturleyfis-
hafar séu að selja lambakjöt á
lægra verði en þarf til að reka fyr-
irtækin. Það hlýtur að leiða til mik-
ils taps hjá afurðasölufyrirtækjun-
um.“
Jón Helgi sagði að þetta myndi
leiða til verðlækkunar hjá bændum
næsta haust. Hann sagðist hins
vegar vonast eftir að markaðurinn
næði jafnvægi, en staðreyndin
væri hins vegar sú að menn hefðu
verið tilbúnir til að keyra áfram
þrátt fyrir að ekkert vit væri í því
verði sem væri á markaðnum.
Allgóð sala hefur verið á lamba-
kjöti síðustu mánuðina. Salan í
nóvember, desember og janúar var
t.d. 13,8% meiri en í sömu mánuð-
um árið á undan. Birgðir eru samt
talsvert miklar, en landbúnaðar-
ráðuneytið ákvað í fyrra að fara
ekki að tillögu Bændasamtakanna
um útflutning á erlenda markaði
og ákvað minni útflutning en sam-
tökin lögðu til. Ráðuneytið vildi
með því leggja áherslu á aukna
sölu á innlendan markað.
Spáð verðlækkun til
sauðfjárbænda í haust
Afleiðingar verðstríðs á markaði
eru ekki allar komnar fram
Flýtir/12
ÞRÍR jarðvísindamenn voru í gær á Mýrdals-
jökli að koma fyrir skjálftamælum á Aust-
mannsbungu og Entukollum.
Skjálftavirkni í Kötlu hefur aukist umtals-
vert á undanförnum misserum og samþykkti
ríkisstjórnin nýlega að veita 13 milljónir
króna á fjáraukalögum til að halda áfram
viðbótarvöktun á Mýrdalsjökli og við eld-
stöðina Kötlu vegna eldgosahættu á svæðinu.
Gögn sótt í mælana eftir sex vikur
Halldór Ólafsson hjá Norrænu eld-
fjallastöðinni var einn af jarðvísindamönn-
unum á jöklinum í gær. Hann segir að þeir
hafi tekið niður GPS-tæki sem sett voru upp
á jöklinum á fimmtudag í síðustu viku og
sett í staðinn niður skjálftamæla. „Það er
gert ráð fyrir að reka þessa skjálftamæla í
sex vikur og verða þá sótt gögn í mælana.
Það er verið að vakta Kötlu og fékkst nýlega
viðbótarfjármagn til þess. Var því um að
gera að hefjast handa við að nýta það til
góðra verka hér á jöklunum,“ sagði hann.
Um er að ræða samvinnuverkefni Veð-
urstofunnar, Norrænu eldfjallastöðvarinnar
og Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Með Halldóri á jöklinum voru Erik Sturkell
frá Veðurstofu Íslands og Haukur Brynjólfs-
son frá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands.
Björgunarsveitin Víkverji aðstoðaði jarðvís-
indamennina á beltabíl í gær en slæmt færi
var á jöklinum.
Mæla dýpi skjálftanna
„Það er markmiðið að kanna betur dýpi
skjálftanna. Með því að koma skjálftamælum
nær upptökunum eru meiri möguleikar á að
meta dýpi þeirra. GPS-mælingarnar eru
gerðar til að kanna breytingar á skorpunni
en mælingar með GPS-tækjum eru að jafnaði
gerðar einu sinni eða tvisvar á ári,“ segir
Halldór.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þeir sem unnu að uppsetningu mælanna voru Halldór Ólafsson frá Norrænu eldfjallastöðinni (l.t.v.), Haukur Brynjólfsson frá Raunvísindastofnun
Háskólans og Grétar Einarsson úr Björgunarsveitinni Víkverja í Vík (l.t.h.). Aftan við þá er Erik Sturkell frá Veðurstofu Íslands.
Skjálftamælar settir niður á Mýrdalsjökli
„ÞAÐ virðist vera skilningur hjá yfirvöld-
um á nauðsyn þess að bæta verulega þjón-
ustu við börn og unglinga með geðraskanir
og þessar fyrstu aðgerðir lofa góðu um
framhaldið,“ segir Ólafur Ó. Guðmundsson,
yfirlæknir Barna- og unglingageðdeildar
(BUGL) Landspítala – háskólasjúkrahúss,
um samþykkt ríkisstjórnarinnar á tillögum
Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra
um aukna þjónustu við börn og unglinga
með geðraskanir.
„Þarna er komið fjármagn til að setja á
fót neyðarþjónustuteymi og þá áformar
ráðherra að stækka unglingadeildina á Dal-
braut og gera stjórnsýsluathugun á starf-
seminni, sem ég tel vera til bóta ef í því felst
athugun á stjórnunarlegri stöðu deildarinn-
ar. Ennfremur eru boðaðar frekari fram-
kvæmdir þegar fleiri tillögur koma. Ég held
því að Jón Kristjánsson sé að bregðast vel
við vandanum og að hann hafi lagt línurnar
með framhaldið. Þetta eru skref í rétta átt.“
Ólafur segir að það fjármagn sem um
ræðir á þessu stigi, þ.e. 20 milljónir kr.
vegna neyðarþjónustuteymisins, dugi til
tímabundins reksturs þess og og 5 milljónir
vegna barnageðlæknisþjónustu utan stofn-
ana nægi til að halda þeirri þjónustu í horf-
inu á þessu ári. „Síðan koma aðrar úrlausn-
ir væntanlega í kjölfarið með stækkun
unglingadeildarinnar og flutningi göngu-
deildar. Það eru töluvert fjárfrekar en
nauðsynlegar framkvæmdir. Það væri auð-
vitað endasleppt ef punkturinn væri settur
aftan við aðgerðirnar nú, enda hefur Jón
Kristjánsson sagt að svo sé ekki.“
Yfirlæknir BUGL um til-
lögur í geðheilbrigðismálum
Aðgerðir
ráðherra
lofa góðu um
framhaldið
Þjónusta efld/4
♦ ♦ ♦