Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.03.2003, Blaðsíða 2
Táknmál fermingar- innar Borgaraleg ferming Fermingarbörn í Hafnarkirkju Hártíska telpna og drengja Fermingarbarn í Kópavogskirkju Ferns konar fermingarhlað- borð og upp- skriftir E in ákveð in á Nes inu Kennsluefni um ferminguna Fermingarfötin2003 Fermingarbörn í Neskirkju Í þjóðbúningnum á fermingardaginn Fermist hjá Kvennakirkjunni Ferming árið 1929 Blómaskreytingar Förðunartískan Fermdist ein í Hjaltastaðarkirkju Golfmót daginn fyrir fermingu Bakar fermingartertur á Héraði Í blaðinu FERMING í nútímasamfélagi er vissulega að- eins endurómur af gildi hennar fyrr á öldum. Hún var samofin menntun barna, en þau urðu að læra að lesa og skrifa til að geta staðfest skírnina. Þau þurftu jafnvel að berjast fyrir því að fá þennan lærdóm. Hólmfríður Margrét Björnsdóttir Hjaltadóttir fæddist árið 1870. Hún var látin í fóstur fárra daga gömul og þvældist síðan á milli bæja. Hún hafði áhuga á menntun og lærði að lesa en kunni ekki enn að skrifa þegar kom að fermingunni. Hún var svo lánsöm að kennari einn bauðst til að kenna henni skrift og reikning fyrir ekkert. Hún varð svo glöð að hún hljóp heim til að segja föður sínum frá þessu, en hún hafði ný- lega flutt til hans og 14 annarra barna hans og konu. Hann tók ekki vel í þetta og svaraði: „Þú verður víst aldrei svo hátt sett í veröld- inni, að skrift sé þér nauðsynleg.“ Draumurinn var úti og Hólmfríður grét sárt í einrúmi. Faðir hennar sýndi henni ekki mikla virðingu og hafði engan áhuga á fermingunni. Hæfileikinn að geta sett sig í spor annarra og að geta a.m.k. ímyndað sér hvernig þeim líður, er hátt skrifaður nú á tímum. Svo hátt að ef það tekst að þjálfa hann, telst að bæði upp- eldi og skólastarf hafi heppnast vel. Sennilega býr tvennt á bak við þennan hæfileika; virðing og samkennd. Fjórtánda árið er óvenjulegt í lífi flestra ís- lenskra barna. Eitthvað gerist sem erfitt er að festa í orð. „Allt breytist þetta ár,“ sagði maður sem rifjaði árið upp, „hugsunin, ábyrgðin og lík- aminn; ég varð annar.“ Á þessu ári stíga börnin formlega inn í heim fullorðinna og oftast með einhverri athöfn eins og fermingu eða veislu. Börnin eru klædd eins og fullorðin, þau gangast undir einskonar próf, trúarlegt eða borgaralegt, og þau halda veislu fyrir stórfjölskylduna. Þau þiggja gjafir sem styrkja sjálfsmynd þeirra og öryggi. Svona hef- ur þessu verið háttað um aldir. Fermingarbörnin taka þennan dag mjög al- varlega, þau búa sig vandlega undir hann og vilja alls ekki að neitt fari úrskeiðis. Þetta er þeirra dagur og það er þeirra að taka þýðing- armestu ákvarðanirnar. Mikilvægt er af þessum sökum að fullorðnir sýni þessum degi virðingu og tali ekki um hann eins og hér sé um hégóma barna að ræða og hræsni samfélagsins. Dagurinn er eitthvað mikilu meira og hann á sér djúpar rætur í sög- unni og menningunni. Hann er félagsleg athöfn og eitthvað sem hefur skapast ósjálfrátt í flest- um samfélögum, einhver áfangi á þeirri leið að verða fullgildur meðlimur í samfélaginu. Hólmfríður M. B.Hjaltadóttir fermdist með hjálp nágranna sinna. Húsfreyja á næsta bæ lánaði henni brúðarkjólinn sinn fyrir athöfnina, og reyndar allan fatnað. Hún leið með Hólm- fríði, sem sagði í endurminningum sínum (Tvennir tímar. 1949. Elínborg Lárusdóttir) að óvíst sé að hún hafi nokkru sinni á ævinni verið þakklátari. Björg lét söðla reiðhestinn sinn og lánaði Hólmfríði hann til kirkjunnar. Björg bar virðingu fyrir Hólmfríði. Morgunblaðið/Kristinn Ferming og virðing Fermingar 2003 Umsjón efnis: Gunnar Hersveinn Helga Kristín Einarsdóttir Umbrot: Harpa Grímsdóttir Sigurbjörg Arnarsdóttir Ljósmyndir: Kristinn Ingvarsson, nema annað sé tekið fram. Forsíða: Fermingarbörnin Birkir og Anna Björk Kristjánsbörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.