Morgunblaðið - 15.03.2003, Qupperneq 34
BIRKIR og Anna Björk Kristjánsbörn fermast saman 13.
apríl í Neskirkju eða á pálmasunnudag. Þau eru tvíbur-
ar, Birkir er fæddur átta mínútur í tólf á miðnætti 13.
október og Anna átta mínútur yfir miðnætti 14. október
1989. Þau eru núna í Hagaskóla, en voru áður í Mela-
skóla.
Síðastliðið haust voru þau á vikufermingarnámskeiði
og þar á meðal eina nótt á Úlfljótsvatni sem reyndar var
skipt eftir kynjum. „Strákarnir fóru saman í ferð á Úlf-
ljótsvatn og stelpurnar í aðra ferð,“ segir Birkir, „þar var
t.d. farið í leiki og í kapellu, en einnig var fræðsla.“
„Í vetur eigum við að fara samtals í tíu messur,“ segir
Anna, „auk þess vorum við í ljósamessu á aðventunni
og tókum þátt í miðnæturmessu á aðfangadagskvöld,
en þá bárum við kerti og kross.“
„Eftir hverja messu vinnum við verkefni sem tengist
predikun dagsins,“ segir Birkir og að þau eigi að læra
trúarjátninguna, Faðir vorið, boðorðin tíu og um alt-
arisgönguna.
„Fræðsla, leikir, upplifun, ferðalag og hjálparstarf“
eru einskonar einkunnarorð fermingarbarna í Neskirkju.
Einnig tóku þau þátt í söfnunarátaki fyrir Hjálparstarf
kirkjunnar og sóttu fundi í NEDÓ sem er sameiginlegt
unglingastarf fyrir sóknarbörn Neskirkju og Dómkirkju.
Hagvön í kirkjunni Anna og Birkir eru hagvön í
Neskirkju, því móðir þeirra Droplaug Guðnadóttir syngur
í kórnum, Bjarni Páll bróðir þeirra fermdist þar í fyrra og
auk þess sóttu þau þangað sunnudagskóla.
Þau segja ágæta stemmningu vera í fermingar-
hópnum, enda þekkjast krakkarnir ágætlega, eru flest-
öll í sama skóla.
Þau hafa lengst af búið í Vesturbænum eða frá 1994,
áður bjuggu þau í Fossvoginum og þar áður í París þar
sem Kristján Geirsson faðir þeirra var við nám í jarð-
fræði. Hann er ættaður úr Reykjavík en Droplaug er frá
Vopnafirði, þangað fara þau árlega á sumrin.
Tónlist og íþróttir Þau leggja bæði stund á tón-
listarnám og taka 4. stig á píanó í vor í tónskólanum Do
Re Mi.
Þau eru einnig í íþróttum. „Ég spila fótbolta,“ segir
Anna, en hún varð Íslandsmeistari í 4. flokki A liða
kvenna síðasta sumar. Birkir spilar handbolta með
Gróttu og fótbolta á sumrin. Þau fara í íþróttaferð til Sví-
þjóðar í sumar, og eftir það í sumarfrí á Vopnafjörð.
Þau eru bæði í blaðaútburði á morgnana. Birkir ber út
Morgunblaðið, og Anna ber út Fréttablaðið.
Morgunblaðið/Kristinn
Í upp-
hafi var
ferðalag
Tvíburasystkin Anna og
Birkir, á forsíðu þessa
blaðs, fermast saman í
Neskirkju í apríl.
MELKORKA Arnórsdóttir er í 8. P í Smáraskóla í Kópavogi, hún
fermist 17. apríl í Digraneskirkju. Digranessöfnuður var stofnaður í
ágúst 1971. Fyrsta skóflustungan að Digraneskirkju var tekin 27.
mars 1993 af dr. Sigurbirni Einarssyni biskupi og sr. Þorbergur
Kristjánsson flutti ritningarorð og bæn. Sr. Gunnar Sigurjónsson og
Magnús Björn Björnsson eru prestar kirkjunnar.
Melkorka hefur m.a. búið sig undir ferminguna með því að læra
bókina „Líf með Jesú“ og verkefnabókina „Litla messubókin“. Hún
segir að allur bekkurinn hennar fermist klukkan tíu 17. apríl.
Veislan hennar verður í sal í Faxafeni í Reykjavík, það verður
matur á boðstólum á hlaðborði. Liturinn sem hún hefur valið í
skreytingar í veislunni er vínrauður.
„Ég ætla að fermast í íslenska þjóðbúningnum og vera í honum
í veislunni líka,“ segir hún. „Ég ætla ekki að kosta miklu til hár-
greiðslu heldur hafa hana einfalda og láta greiða mér heima,“ seg-
ir hún.
Melkorka segir að krakkarnir í bekknum tali stundum um ferm-
inguna, t.d. hverju þau ætli að klæðast, hvað verði að snæða í
veislunni og hvernig ávarp þau ætli að flytja. Einnig eitthvað um
fermingargjafir. Hún hafi t.d. áhuga á að eignast myndavél og nýtt
rúm.
Melkorka er söngmanneskja og er í unglingakór Digraneskirkju.
Hún hefur áhuga á skíðamennsku og hefur komist þrisvar á skíði á
þessu ári. Í sumar ætlar hún að ferðast og passa börn.
Fermist í
íslenska
þjóðbún-
ingnum
Melkorka ætlar ekki að
kosta miklu til hár-
greiðslu, heldur hafa
hana einfalda og láta
greiða sér heima.
Morgunblaðið/Kristinn
Melkorka með pabba sínum, Arnóri Gísla Ólafssyni, sem hefur tekið þátt í undirbúningi fermingarinnar.