Morgunblaðið - 15.03.2003, Page 43
fermingarskartgripir
Laugavegi 61
Opið virka daga
frá kl. 10-18,
laugardag
frá kl. 10-18.
Sparidress fyrir
fermingarmömmur,
-ömmur og -frænkur
sími 555 2866
Nýr þykkur Argos listi
yfir 4000 nýir vöruflokkar.
Betra verð og frábær gæði.
Búsáhöld, mublur, verkfæri, ljós, gjafavara,
garðvörur, leikföng, baðherbergisvörur,
rúmfatnaður, skartgripir, íþróttavörur o.fl.
li ti
ÍT ferðir - fyrir þig
Sími 588 9900
itferdir@itferdir.is
www.itferdir.is
FERMINGARGJÖFIN
SEM HITTIR Í MARK !
Knattspyrnuskóli
Bobby Charlton í Englandi
sá eini sanni ! - varist eftirlíkingar !
Stelpur og strákar, einstaklingar og hópar, lið.
Viku og 10 daga ferðir um verslunarmannahelgina
31. júlí til 7. ágúst og 2.-12. ágúst.
Verð frá kr. 93.600 með sköttum !
Heimsókn á Old Trafford og Anfield
+ ýmis önnur afþreying s.s. "Tívolíið" í Blackpool
(15 mín. frá skólanum!), farið á stórleik o.fl.
Íslensk fararstjórn allan tímann !
* ATH. einnig gjafabréf ÍT ferða sem gilda í
allar okkar ferðir, fótboltaferð til Englands,
sólarferð til Spánar o.fl.
í Laugardal
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Sif Sveinsdóttir fléttar hárið á Maríönnu Valdísi.Þórunn Björk Guðlaugsdóttir lagar hárið á Ernu systur sinni.
Sif valdi ljóst rósableikt gloss á fermingarbarnið.
FÖRÐUNARTÍSKA meðal fermingarstúlkna er jafn misjöfn og þær eru margar. Sumar
stúlkur vilja náttúrulega förðun, þar sem æskublóminn fær að njóta sín, aðrar ganga
örlítið lengra. Enn aðrar velja hárlitun, gervineglur, förðun og plokkun, þótt það sé ef-
laust undantekning, fremur en hitt.
Förðunarfræðingar vilja farða stúlkur á þessum aldri eins lítið og mögulegt er og þá
aðallega fyrir myndatöku. Þórunn Björk Guðlaugsdóttir frá Förðunarskóla face og Sif
Sveinsdóttir förðunarfræðingur frá sama skóla, sýndu annars vegar létta ferming-
arförðun og vor- og sumartískuförðun hins vegar fyrir Fermingarblaðið. Fyrirsæturnar
eru Erna Guðlaugsdóttir og Maríanna Valdís Friðfinnsdóttir fermingarbarn.
Fjólublár og allir skærir litir verða áberandi í vor og sumar og valdi Þórunn mattan
fjólubláan augnskugga á Ernu systur sína. Auk þess notaði hún sanseraðan fjólublá-
an lit í augnkrókana og bláan augnblýant kringum augun. Á kinnarnar notaði hún bleik-
an kinnalit og gloss með bleiku í á varirnar.
Segja Þórunn og Sif liti vors og sumars mjög skæra og að mikið verði um gult,
grænt, blátt og bleikt, svo dæmi séu tekin.
Sif kaus létta fermingarförðun fyrir Maríellu sem ekki má vera of sterk að hennar
sögn. Augnskugginn er ferskjulitaður og með hvítum augnskugga til mótvægis. Á vör-
unum er ljóst rósableikt gloss og ferskjulitur einnig notaður á kinnarnar. Sif setti líka
stök gerviaugnahár á augnlokin út við gagnaugun, sem hún segir vinsælt um þessar
mundir. Stök gerviaugnahár eru minna áberandi en heil.
Létt fermingarförðun og
tískan í vor og sumar