Morgunblaðið - 23.03.2003, Side 1
Bardaginn um Basra er sá fyrsti
sem herir bandamanna lenda í við
íraskar hersveitir frá því herförin til
Íraks hófst. Bandamenn sögðu mót-
spyrnu hafa verið litla sem enga er
þeir hefðu í fyrradag tekið á sitt vald
bæinn Umm Qasr, við strönd Persa-
flóa, sem er olíuútflutningsmiðstöð
Íraka. Fregnir í gær hermdu þó, að
barist væri í borginni.
Í Bagdad var unnið að því í gær-
morgun að hreinsa rústir og slökkva
elda eftir loftárásir bandamanna á
borgina í fyrrinótt.
Upplýsingaráðherra Íraks sagði í
gærmorgun að 207 óbreyttir borg-
arar hefðu særst í árásunum um
nóttina. Hoon ítrekaði að árásunum
væri beint að stjórnkerfinu og benti
á að enn væri rafmagn í borginni.
Talið er að á bilinu 300 til 450 þús-
und manns hafi flúið heimili sín í
norðurhluta Íraks, að því er fulltrúi
Sameinuðu þjóðanna greindi frá.
Hundruð þúsunda á flótta
Reuters
Írösk fjölskylda leitar skjóls í loftvarnarbyrgi á heimili sínu er loftárásir Bandaríkjamanna og Breta á borgina stóðu yfir.
BANDARÍSKAR og breskar
hersveitir komu í gærmorgun
að borginni Basra í Suður-
Írak, en þúsundir íraskra her-
manna hafa gefist upp í suður-
hluta landsins. Um miðjan dag
í gær var barátta hafin um
Basra, og sagði sjónvarps-
stöðin Al-Jazeera að fimmtíu
hefðu fallið í bardögum þar.
Fregnir herma að hundruð
þúsunda manna séu á flótta í
norðurhluta Íraks.
Varnarmálaráðherra Breta, Geoff Hoon, sagði að óbreyttir
íraskir hermenn hefðu yfirgefið borgina og lagt niður vopn, en
meðlimir í Lýðveldisverði Íraks, sérsveitum hliðhollum Sadd-
am Hussein forseta, veittu þar harkalega mótspyrnu. Er her-
sveitir bandamanna nálguðust borgina gafst heil herdeild
Íraka upp, á bilinu átta til tíu þúsund manns með allt að 200
skriðdreka. Var þetta 51. herdeild íraska fótgönguliðsins er
gegndi lykilhlutverki í vörnum Basra. Þá náðu bandamenn í
gær bænum Nasiriyah á sitt vald. Búist er við því að nú í byrj-
un vikunnar verði bandaríski landherinn kominn að úthverfum
Bagdad, og að þar muni mæta honum mun harðari mótspyrna
Lýðveldisvarðarins.
Írakar gefast upp fyrir banda-
rískum landgönguliðum.
Reuters
Suður-Írak, London, Bagdad. AP, AFP.
Hart barist við Lýð-
veldisvörðinn í Basra
STOFNAÐ 1913 80. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stríð í Írak: Reynt að einangra Saddam
Hussein „Stjórnmál raunsæis og spennu“ 10/13
ÍRASKIR útlagar hafa haft milligöngu um
samningaviðræður milli sendimanna
bandarísku leyniþjónustunnar (CIA), full-
trúa bandaríska hersins og háttsettra
manna í Lýðveldisverði Íraks.
Hafa þessar viðræður átt sér stað í Írak
og miða að því að samkomulag náist um
friðsamlega uppgjöf Íraka. Greint er frá
þessu á fréttavef bandaríska sjónvarpsins
CNN. Meðal þessara útlaga eru leiðtogar
Kúrda og fyrrverandi yfirmenn í íraska
hernum sem hafa „beint samband við
íraska herinn“.
Ræða um
uppgjöf Íraka
Reuters
Íbúar í Bagdad grafa í rústum í borginni í
gærmorgun, eftir árásirnar í fyrrinótt.
FRANSKUR sendifulltrúi er að reyna að
koma á samningi um að Saddam Hussein
Íraksforseti fari í útlegð til Vestur-Afríku-
ríkisins Máritaníu, að því er bandaríska
sjónvarpsstöðin ABC greindi frá. Hafði
stöðin eftir frönskum embættismönnum að
sendifulltrúinn hefði farið oft til Bagdad
síðan í desember í því augnamiði að reyna
að telja Saddam á að fara. Máritanía er ísl-
amskt lýðveldi og fyrrverandi frönsk ný-
lenda.
Talsmaður utanríkisráðuneytis Frakk-
lands, Francois Rivasseau, tjáði AFP aftur
á móti að hann „vissi ekki til þess“ að slíkar
viðræður væru í gangi. Sagði ABC að leyni-
legar viðræður um möguleika á útlegð fyrir
Saddam héldu áfram, þrátt fyrir að stríð
væri hafið í Írak.
Frakkar hafa
milligöngu
Washington. AFP.
SJÖ hermenn, sex breskir og einn
bandarískur, fórust í gær þegar
tvær breskar þyrlur rákust saman á
flugi yfir Persaflóa.
Talsmaður breska herliðsins við
Persaflóa greindi frá þessu og kvað
slysið hafa orðið klukkan 1.30 að-
faranótt laugardags að íslenskum
tíma. Þyrlurnar voru af gerðinni
Sea King.
Talsmaðurinn sagði að þyrlurnar
hefðu ekki orðið fyrir árás af hálfu
Íraka. Verið væri að rannsaka or-
sakir slyssins.
Sjö farast í
þyrluslysi
Lundúnum. AP.