Morgunblaðið - 23.03.2003, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur
23.mars 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8.799 Innlit 16.828 Flettingar 70.638 Heimild: Samræmd vefmæling
LOKSINS Á ÍSLANDI
Viltu verða hluti af öflugu MAC teymi
sem fer ótroðnar slóðir við sölu á snyrti-
vörum? MAC óskar eftir að ráða starfs-
mann í verslun sína í Debenhams,
Smáralind, sem verður opnuð í maí.
Í boði er spennandi starf fyrir metnaðar-
fullan og hugmyndaríkan einstakling.
Menntun og reynsla á sviði förðunar er
skilyrði.
Viðkomandi þarf að búa yfir miklum sölu-
hæfileikum, frumkvæði, eiga auðvelt
með mannleg samskipti og hafa líflega
framkomu. Enskukunnátta er æskileg.
Umsóknarfrestur er til 26. mars.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að
senda umsókn sína með mynd ásamt
ferilskrá í pósthólf 293, 121 Reykjavík.
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN
Sumarafleysingar
í lögreglu árið 2003
Eins og verið hefur undanfarin ár þarf í
sumar að ráða í nokkrar stöður lögreglu-
manna vegna sumarafleysinga. Afleys-
ingamenn verða ráðnir hjá flestum
embættum á landinu, þó ekki í Reykjavík,
þar sem nemar Lögregluskóla ríkisins
munu leysa afleysingaþörfina þar.
Nánari upplýsingar um þörf á afleysinga-
mönnum hjá einstaka embættum fást hjá
viðkomandi embættum.
Umsækjendur, sem ekki hafa próf frá Lögreglu-
skóla ríkisins, skulu fullnægja skilyrðum 2.
mgr. 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og þurfa
að standast inntökupróf, hafi þeir ekki ekki
starfað við afleysingar innan árs frá því að þeir
hefja störf að nýju. Áður en afleysingamenn,
sem ekki hafa lokið prófi frá Lögregluskóla rík-
isins, hefja störf, þurfa þeir að sitja undirbún-
ingsnámskeið, hafi þeir ekki starfað áður í lög-
reglu. Inntökupróf fyrir þá sem uppfylla almenn
skilyrði verða haldin hjá Lögregluskóla ríkisins,
Krókhálsi 5a, 110, Reykjavík, mánudaginn
5. maí 2003. (Inntökuprófin gilda jafnframt sem
inntökupróf í Lögregluskóla ríkisins í eitt ár frá
prófdegi, sæki viðkomandi um inngöngu í skól-
ann á því tímabili, en valnefnd Lögregluskólans
velur nema með hliðsjón af niðurstöðum prófa
og viðtölum við umsækjendur).
Námskeið fyrir sumarafleysingamenn og
héraðslögreglumenn verða haldin í Lög-
regluskólanum síðari hlutann í maí, nánari
tímasetning verður ákveðin síðar.
Umsóknum skal skilað til viðkomandi embættis
fyrir 1. apríl 2003 á sérstökum eyðublöðum
sem fást hjá öllum lögreglustjórum, annars
vegar fyrir þá, sem lokið hafa prófi frá Lög-
regluskólanum, og hins vegar fyrir þá, sem
ekki hafa próf frá Lögregluskólanum.
Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin á lög-
regluvefnum, www.logreglan.is, undir liðnum
„Eyðublöð”.
Nánari upplýsingar um inntökupróf er hægt
að nálsgast á lögregluvefnum undir Lögreglu-
skóli ríkisins/Inntaka nýnema.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að
sækja um.
Reykjavík, 17. mars 2003.
Ríkislögreglustjórinn.
Kennarar
Íþróttakennari
— æskulýðs- og tómstundafulltrúi
Vilt þú njóta þeirrar sérstöðu sem landsbyggð-
in hefur uppá að bjóða og kenna í einsetnum
grunnskóla í Vík í Mýrdal (85 nemendur í
1.—10. bekk)?
Hæfilegur fjöldi nemenda í námshópi.
Nýtt tölvuver, góða verkmenntaaðstaða.
Góður starfsandi og vinnuaðastaða.
Öflugt félagslíf.
Launauppbætur og húsnæðisfríðindi.
Gott úrval íbúða.
Fluttningsstyrkur.
Nýtt og glæsilegt íþróttahús.
Góður knattspyrnuvöllur.
Golfvöllur.
Annað sem gott er að vita:
Góður leikskóli, tónlistarskóli og örugg heilsu-
gæsla.
Stutt í höfuðstaðinn (2 klst. akstur).
Frábært náttúrufar og fegurð.
Fjölbreyttir möguleikar fyrir fólk með ferskar
hugmyndir.
Góðar samgöngur og öflug ferðaþjónusta.
Fjölbreytt úrval annarrar atvinnu.
Við leitum að áhugasömum kennara í kennslu
á yngsta og miðstigi, íþróttir, ensku, listgreinar
og sérkennslu. Ýmislegt annað kemur einnig
til greina.
Nánari upplýsingar gefa: Skólastjóri, Kolbrún
Hjörleifsdóttir, í síma 487 1242, netfang: kol-
brun@ismennt.is og sveitarstjóri, Sveinn Páls-
son, í síma 487 1210.
Umsóknarfrestur til 15.apríl. Yfirlit yfir nám
og störf auk meðmæla skulu fylgja umsókn.
Norræni
heilbrigðisháskólinn
í Gautaborg, Svíþjóð, óskar eftir
Skrifstofustjóra
Ráðning sem fyrst. Nánari upplýsingar á:
www.nhv.se
Umsóknarfrestur er til 4. apríl 2003.
Sölumaður fasteigna
Öflug og kraftmikil fasteignasala á höfuðborg-
arsvæðinu óskar að ráða duglegan og samn-
ingslipran sölumann til starfa sem fyrst.
Viðkomandi þarf að hafa óflekkað mannorð
og reynslu af sölu fasteigna.
Samviskusemi og hæfni í mannlegum sam-
skiptum eru skilyrði.
Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Áhugasamir leggi inn umsókn með helstu upp-
lýsingum á auglýsingadeild Mbl., merkta:
„Ó — 13476“.
ferðalögHörgslandsælkeriNew York-stemmningbörnSólkerfiðbíóÓskarsverðlaunin
Gísli Hjartarson
Hlíðarvegspúkinn á Hornströndum
Skemmtisögurnar
við varðeldinn
þola ekki allar
nánari skoðun
sagnfræðinga.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Golli
Menn velta því fyrir sér hvort það
að blogga eigi eftir að verða jafn-
sjálfsagt og að spjalla við fólk úti á
götu og hvort bloggið eigi eftir að
verða bjargvættur lýðræðisins þar
sem einstaklingurinn ræður sínum
eigin miðli og segir umbúðalaust
skoðanir sínar. Upplýsingaveita nýrra
hugmynda eða bara vettvangur
fyrir bull og vitleysu? Hildur
Einarsdóttir skráði sig inn í
bloggheiminn og skoðaði sig um. Sunnudagur
23.mars 2003
Yf ir l i t
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið „RE/MAX í 30
ár“. Blaðinu er dreift um allt land.
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 49
Af listum 26 Myndasögur 50
Birna Anna 26 Bréf 50
Listir 27/31 Dagbók 52/53
Forystugrein 32 Leikhús 55
Reykjavíkurbréf 32 Fólk 55/61
Skoðun 34/35 Bíó 58/61
Þjónusta 42 Sjónvarp 54/62
Minningar 44/48 Veður 63
* * *
LÍFEYRISSJÓÐUR starfsmanna
ríkisins fékk endurgreidda tæpa
fjóra milljarða króna á síðasta ári frá
launagreiðendum vegna lífeyris-
greiðslna til lífeyrisþega sjóðsins á
árinu 2002. Það eru tæp 45% af líf-
eyrisgreiðslum ársins. Þessar end-
urgreiðslur hafa hækkað um 700
milljónir króna á ári síðustu tvö ár,
en á árinu 2000 námu þessar endur-
greiðslur um 2,5 milljörðum króna,
sem voru um 41% af lífeyris-
greiðslum ársins.
Lífeyrisgreiðslur til lífeyrisþega
b-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins námu samtals 8,8 milljörðum
króna á síðasta ári, en þá voru lífeyr-
isþegarnir tæplega níu þúsund tals-
ins. Af þessum 8,8 milljörðum króna
fékk sjóðurinn endurgreidda 3,9
milljarða króna frá launagreiðend-
um sem aðild eiga að sjóðnum, en
samkvæmt lögum sem gilda um LSR
ber launagreiðendum að greiða allar
hækkanir sem verða á lífeyri lífeyr-
isþega í sjóðnum eftir að hann hefur
verið úrskurðaður.
Á árinu 2001 námu lífeyris-
greiðslur frá LSR 7,4 milljörðum
króna til 8.553 lífeyrisþega og þar af
námu endurgreiðslur launagreið-
enda til sjóðsins 3,2 milljörðum
króna. Árið 2000 námu lífeyris-
greiðslurnar 6,1 milljarði króna og
þar af námu endurgreiðslur launa-
greiðenda 2,5 milljörðum króna.
Lífeyrisgreiðslur úr b-deild LSR
eru hlutfall af dagvinnulaunum og
geta þær annaðhvort tekið mið af
breytingum á launum eftirmanns
eða hækkunum á dagvinnulaunum
ríkisstarfsmanna að meðaltali. Ef
þannig sjóðfélagi í LSR hefur fengið
úrskurðaðan lífeyri að upphæð 100
þúsund krónur og dagvinnulaun hafa
hækkað um 50% ber viðkomandi
launagreiðanda að standa skil á
þeirri hækkun til sjóðsins á hverju
ári.
200 launagreiðendur
með aðild að LSR
Eins og fram hefur komið hafa
dagvinnulaun ríkisstarfsmanna
hækkað verulega á undanförnum ár-
um eða um rúm 90% á sex ára tíma-
bili, sem þýtt hefur samsvarandi
hækkun lífeyrisgreiðslna úr Lífeyr-
issjóði starfsmanna ríkisins og end-
urgreiðslna af hálfu launagreiðenda.
Lífeyrisskuldbindingar sjóðsins hafa
einnig aukist stórlega á undanförn-
um árum af þessum sökum. Þannig
námu skuldbindingarnar 260 millj-
örðum króna í árslok 2001 og höfðu
hækkað um 125 milljarða kr. á fimm
árum þar á undan.
Alls eiga um 200 launagreiðendur
aðild að Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins. A-hluti ríkissjóðs á þar
stærstan hlut, en að auki eiga aðild
að sjóðnum ýmsar ríkisstofnanir á b-
og c-hluta fjárlaga, starfsmenn
margra sveitarfélaga, sjálfseignar-
stofnana, félagasamtaka og stjórn-
málaflokka, svo dæmi séu tekin.
Lífeyrisgreiðslur til lífeyrisþega LSR námu 8,8 milljörðum króna á árinu 2002
Launagreiðendur endur-
greiddu tæpa fjóra milljarða
Eldur í fjórbýlishúsi í Keflavík
Vöknuðu við spreng-
ingu í sjónvarpi
ELDUR kom upp í fjórbýlishúsi við
Faxabraut í Keflavík um kl. 4.30 í
fyrrinótt. Hjón vöknuðu við spreng-
ingu sem síðar kom í ljós að kom frá
sjónvarpi. Þau náðu að forða sér út.
Lögregla og slökkvilið komu fljótt
og staðinn og náðu strax tökum á
eldi sem logaði í stofu íbúðarinnar.
Karlmaðurinn var lagður inn á spít-
ala með snert af reykeitrun en konan
slapp ómeidd. Aðrir íbúar hússins
voru óhultir og skemmdust íbúðir
þeirra ekkert að sögn lögreglunnar.
Hins vegar voru talsverðar skemmd-
ir vegna elds og reyks þar sem eld-
urinn kom upp í íbúð hjónanna.
JEPPABIFREIÐ lenti út í Ósá í Bol-
ungarvík um kl. átta í gærmorgun.
Stúlka, sem er nýorðin sautján ára,
var ein á leið frá Ísafirði til Bolung-
arvíkur þegar hún missti stjórn á
bílnum og lenti út í á. Lögreglan á
Bolungarvík segir að aðstæður á
veginum hafi verið slæmar, ekki
var búið að ryðja veginn og ískrapi
gerði ökumönnum erfitt fyrir.
Bíllinn lenti á hliðinni töluvert
langt úti í ánni og aðstoðaði vegfar-
andi, sem átti leið hjá, stúlkuna við
að vaða í land. Lögreglan segir
hana hafa sloppið ótrúlega vel mið-
að við aðstæður. Hún slasaðist ekk-
ert þó bíllinn sé ónýtur. Þarna hafi
bílbelti skipt miklu máli.
Greiðlega gekk að ná bílnum upp
úr ánni með aðstoð kranabíls.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Lenti
út í Ósá
STRAUMUR flóttamanna hafði í
gærmorgun enn ekki aukist til mikilla
muna í flóttamannabúðum Rauða
krossins og Rauða hálfmánans í Jórd-
aníu, sem eru um 50 kílómetra frá
landamærum Íraks, þrátt fyrir harð-
ar árásir bandamanna á Bagdad í
fyrrinótt. Þorkell Þorkelsson, ljós-
myndari og sendifulltrúi Rauða
krossins, segir að þetta geti breyst
með skömmum fyrirvara.
„Það líður sólarhringur frá því fólk
leggur af stað þangað til það kemur
til okkar í þessar búðir. Það tekur það
langan tíma að fara frá Bagdad og
keyra alla leið hingað,“ segir Þorkell
sem starfar í búðunum í Jórdaníu.
„Án þess að við vitum það ná-
kvæmlega þá virðast margir halda
kyrru fyrir þar sem þeir eru. Okkur
er ekki ljóst hve margir eru á ferða-
lagi innan Íraks en erum viðbúin því
að flóttamannastraumurinn aukist á
hverri stundu. Búist er við mestum
straumi Íraka til Íran vegna þess að
þangað er miklu styttra að fara og
þar er búið að útbúa tíu flóttamanna-
búðir á vegum Rauða krossins og
Rauða hálfmánans,“ segir Þorkell.
Búðirnar sem hann starfar í taka á
móti erlendum ríkisborgurum sem
flýja Írak og segir hann að hundruð
þúsunda útlendinga hafi verið þar að
störfum þegar árásirnar hófust. Það
er aðallega fólk frá Súdan og Egypta-
landi.
„Þeir sem koma í þessar búðir hafa
yfirleitt verið í góðu ástandi. Það hafa
komið upp tilfelli þar sem fólk hefur
verið slasað eða er lasið og þá hefur
verið hlúð að því. Fólk hefur verið
lengi á leiðinni, kannski matarlaust;
það er þreytt og hvekkt,“ segir Þor-
kell.
Morgunblaðið/Þorkell
Starfsmenn Rauða krossins bera súdanskan flóttamann frá Írak inn í tjald
þar sem læknir hlúði að honum og gaf honum verkjastillandi lyf. Maðurinn
hafði ferðast um langan veg slasaður í fylgd með ferðafélögum sínum.
Erlendir ríkisborgarar flýja Írak
Fólk þreytt og hvekkt
BARIST UM BASRA
Hersveitir bandamanna eru
komnar að borginni Basra í suður-
hluta Íraks en þúsundir íraskra her-
manna hafa gefist upp í suðurhluta
landsins. Um miðjan dag í gær var
barátta hafin um Basra. Varnar-
málaráðherra Breta sagði að
óbreyttir íraskir hermenn hefðu yf-
irgefið borgina og lagt niður vopn en
meðlimir í Lýðveldisverði Íraks
veittu þar harkalega mótspyrnu.
Breytt pólitískt umhverfi
Við blasir gerbreytt pólitískt um-
hverfi í arabaheiminum og talið er
að það kunni að verða erfitt fyrir
Bandaríkjamenn að öðlast trúverð-
ugleika í þessum heimshluta að
loknu stríðinu í Írak.
Einangra Saddam Hussein
Bandaríkjamenn reyna að ein-
angra Saddam Hussein í þeirri von
að kalla megi fram klofning á meðal
æðstu ráðamanna Íraka. Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, segir að teikn séu á
lofti um að ringulreið ríki á meðal
leiðtoga Íraka.
Aukið eftirlit
Lögreglan í Reykjavík hefur auk-
ið viðbúnað við opinberar byggingar
og gæta einkennisklæddir lög-
reglumenn t.d. stjórnarráðsins og
bandaríska sendiráðsins og óein-
kenndir bílar og menn fara um borg-
ina og hafa eftirlit með öðrum bygg-
ingum og heimilum ráðherra.
Stefnt að djúpborun
Stefnt er að því að hefja á næsta
ári borun á rannsóknarborholum á
háhitasvæðum landsins. Markmiðið
er að finna yfirkrítískan jarðhita-
vökva djúpt í rótum háhitasvæða og
kanna nýtingarmöguleika hans.