Morgunblaðið - 23.03.2003, Page 10

Morgunblaðið - 23.03.2003, Page 10
10 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ FRAM til heimsstyrj- aldarinnar fyrri var Írak hluti af Tyrkja- veldi. Á styrjaldarár- unum 1914–1918, er Tyrkjaveldi var bandamaður Þýzka- lands, var það land- svæði sem síðar varð að ríkinu Írak her- numið af Bretum. Þar með hófust afskipti Breta af landinu, sem hafa haldizt alla tíð síðan. Í rústabænum Kut fyrir sunnan Bagdad er kirkjugarður, sem flætt hefur yfir að hálfu. Þessi kirkjugarður er eitt fárra áþreif- anlegra ummerkja um yfirráðatíma Breta á þessum slóðum. Um 40.000 brezkir hermenn féllu í fyrri heims- styrjöld í Írak. Saga brezkra yfirráða yfir hér- uðunum þremur, sem urðu að ríkinu Írak, er þyrnum stráð. Hún hófst árið 1915, er lítill brezkur her reyndi að ná Bagdad-borg úr hönd- um Tyrkja, en var hrakinn til baka og þvingaður til uppgjafar við Kut, eftir alllangt umsátur. Stórefldur brezkur her bar loks sigurorð af Tyrkjum og stjórn brezka heimsveldisins stóð frammi fyrir meira og minna sömu vanda- málum og hver sá sem hefur reynt að stjórna þessu svæði síðan. Eftir Arnold Wilson, fyrsta héraðsstjóra Breta í hinni hernumdu Bagdad, er haft að stofnun Íraksríkis væri ógönguflan. Hann varaði við því að hinn djúpstæði klofningur milli þriggja stærstu íbúa- hópanna – Kúrda í norðri, súnní-araba í Mið-Írak og shía- múslima í suðri – tryggði að útkoman gæti aldrei orðið önnur en „andstæða lýð- ræðislegra stjórn- arhátta“. Ástæðan fyrir þessu væri sú helzt, að shítar, sem eru fjölmennastir, myndu aldrei sætta sig við að lúta stjórn súnnía; þó væri í öllum áformum um ríkismyndun gert ráð fyrir ráðandi hlut- verki súnnía. Uppreisnir gegn brezkum yf- irráðum brutust út árið 1920, af ýmsum ástæðum, m.a. vildu arab- ískir þjóðernissinnar sjálfstæði og shía-klerkum var í nöp við nýju stjórnarherrana vegna þess að þeir voru kristnir. Árið 1920 var Írak meðal landa og svæða sem Þjóðabandalagið, fyr- irrennarasamtök Sameinuðu þjóð- anna, tók að sér að hafa þjóðarétt- arlega yfirumsjón með og var Bretum falið að fara með stjórn þar fyrst um sinn, í umboði bandalags- ins. Árið 1921 var Amir Faisal ibn Hussain, af Hashimi (Hashemíta)- höfðingjaættinni frá Mekka, gerður að konungi Íraks, en hann var alla tíð háður stuðningi frá Bretum. Honum og afkomendum hans tókst aldrei að skapa sér trúverðugan sess sem þjóðhöfðingjar í augum venjulegs fólks í landinu. Bretar völdu að koma Amir og bróður hans, Abdullah, í þjóðhöfð- ingjahlutverk í Írak og Jórdaníu í verðlaunaskyni fyrir að faðir þeirra, sem hafði árið 1916 lýst sig konung yfir hluta þess sem síðar varð Sádi- Arabía, var Bretum hjálplegur í baráttunni við Tyrki í styrjöldinni. Æfingasvæði „Bomber“-Harris Fyrsta áratuginn (1922–1932) ógnuðu Kúrdauppreisnir í norðri og landamæradeilur í suðri stöðugleika hins nýja konungdæmis. Bretar vildu á þessum tíma halda kostnaðinum við að fara með yfirráð í Írak sem lægstum, m.a. með því að nýta hina nýju tækni flugsins, en með yfirráðum í lofti var álitið hægt að fækka í dýrum landhersveitum. Landið var tilraunasvæði fyrir brezka flugherinn. Arthur „Bomb- er“ Harris, sem átti eftir að stýra sprengjuárásunum á Þýzkaland 20 árum síðar, dró enga dul á að hann léti sína menn miða á óbreytta borg- ara, eftir því sem greint er frá á fréttavef BBC. Harris sagði að árið 1924 hefði hann kennt Írökum „að á 45 mín- útum [sé] hægt svo gott sem að þurrka út heilt þorp og drepa eða særa þriðjung íbúa þess“. Fleiri brezkir ráðamenn þessa tíma voru álíka blóðþyrstir. Eftir uppreisnina í Írak árið 1920 skrifaði TE Lawrence – Arabíu-Lawrence – í bréfi til Lundúnablaðsins Observ- er: „Það er undarlegt að við skulum ekki beita eiturgasi í svona til- vikum.“ Winston Churchill kvað á þessum tíma líka hafa talað tæpitungulaust um notkun eiturefnavopna. „Ég er mjög fylgjandi því að eiturgasi sé beitt á ósiðmenntaða ættbálka,“ hefur fréttavefur BBC eftir Churchill, upp úr bókinni „Iraq: From Sumer to Sudan“ eftir Geoff Simons. Brezk-vinsamleg stjórn til 1958 Mesti áhrifamaður íraskra stjórnmála á konungdæmistím- anum var hershöfðinginn Nuri as- Said, sem varð forsætisráðherra ár- ið 1930 og gegndi embættinu sjö kjörtímabil, alls í 28 ár. Hann var dyggur stuðningsmaður náinna vin- áttutengsla við Bretland og Vest- urlönd almennt. Eftir langar samningaviðræður var árið 1930 undirritaður írask- brezkur bandalagssáttmáli. Brezk- um yfirráðum lauk formlega árið 1932, þegar umboðið frá Þjóða- bandalaginu rann út og Írak fékk fullt sjálfstæði. Stjórnvöld í landinu héldu brezk- vinsamlegri stefnu fram yfir heims- styrjöldina síðari. Síðustu tveimur herflugvöllunum í Írak, sem verið höfðu í höndum Breta, var skilað undir írösk yfirráð árið 1955, er Bagdad-sáttmálinn svokallaði var undirritaður; sáttmáli um öryggismál í þessum heims- hluta, sem gerður var að frumkvæði Breta. En þremur árum síðar urðu mikil umskipti, er vinstrisinnaðir þjóðernissinnar gerðu stjórnarbylt- ingu, undir forystu herforingjans Abd al-Karim Kassems. Faisal II, sonarsyni Faisal I, var steypt af konungsstóli, stjórnarskráin frá 1925 lýst ógild og Írakar sögðu sig frá Bagdad-sáttmálanum 1959. Í valdabaráttunni sem tók við í framhaldinu hóf Saddam Hussein að vinna sig upp metorðastigann, en á þeirri leið naut hann stuðnings Breta og annarra Vesturlanda, sem var mikið í mun að halda áhrifum á svæðinu, er kalda stríðið var í al- gleymingi. Heimildir: The Europa World Yearbook, BBC o.fl. Brezk afskipti í níu áratugi Írak nútímans var stofnað úr héruðum sem tilheyrðu Tyrkjaveldi fram til heimsstyrjald- arinnar fyrri og gegndu Bretar afgerandi hlutverki við að búa hið nýja ríki til. Brezk afskipti af landinu hafa haldizt alla tíð síðan. Faisal I, konungur Íraks 1921–1933.                                                          !     " # $" % !"     !                             ! "# $ %   &  '% (& (% )    *    (+          ,   ! !%   - * .( *  -       '#/  %     -    (     !0# 1  ! "%  *   2 %    #  " Reynt að ein- angra Saddam The Washington Post. BANDARÍKJAMENN leitast nú við að einangra Saddam Hussein, forseta Íraks, í þeirri von að þannig megi kalla fram klofning á meðal æðstu ráðamanna þjóðarinnar. Þetta er liður í því umfangsmikla sálfræði- og áróðursstríði sem fram fer sam- hliða hernaðinum gegn stjórn forset- ans. Háttsettir bandarískir embættis- menn segja að áhersla sé lögð á að freista þess að skapa klofning í innsta valdakjarna Íraksstjórnar. Þá hafi bandarískir leyniþjónustumenn haft samskipti við háttsetta íraska herforingja. Hafi þeir m.a. heitið því að beita ekki efnavopnum gegn liðs- afla bandamanna sem nú sækir fram í átt til höfuðborgarinnar, Bagdad. Þá miði þessi leynilegu samskipti að því að fá háttsetta embættismenn og herforingja til að gerast liðhlaupar. „Fjöldi fólks vinnur að því að gefa íröskum herforingjum tækifæri til að binda enda á mótspyrnuna,“ sagði ónefndur bandarískur embættis- maður. Heimildarmenn greindu frá því að enn væri gengið út frá því að Saddam forseti væri á lífi. Á föstudag hermdu fréttir að hann hefði særst í fyrstu árás bandamanna á Bagdad aðfara- nótt fimmtudagsins. Þær höfðu ekki verið staðfestar í gær en Bandaríkja- menn höfðu aðfaranótt fimmtudags upplýsingar um að forsetinn og tveir synir hans kynnu að halda til í bygg- ingu einni í Bagdad. Var aðgerðum því flýtt og loftárás gerð á bygg- inguna (sjá skýringarmynd). Írakar hafa staðfest að árás hafi verið gerð á eitt af heimilum forsetans en fullyrða að allir þeir sem í byggingunni voru hafi sloppið ósárir. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði á föstu- dag að teikn væru á lofti um að ring- ulreið ríkti á meðal leiðtoga Íraks. Embættismenn sögðu að Saddam Hussein og helstu undirsátar hans gætu sýnilega ekki samtímis haft stjórn á herafla landsins, leitað svik- ara, sem kynnu að hafa veitt Banda- ríkjamönnum upplýsingar um veru- stað forsetans, og varið ríkisstjórn landsins. UM 8.000 íraskir hermenn og for- ingjar þeirra hafa gefist upp eða flúið í suðurhluta Íraks. Frá þessu var skýrt í gær er þúsundir her- manna bandamanna sóttu fram til tveggja stærstu borga landsins.                            ! "  #$     %  &'(# *  %   )   #         ) +   , %   - ./ -+ 0 - 1     +  2341  5  %   -  -    !  ! 6  $ #     7 8  9    :  ;# ( ! 4  #7 8 :6 +      ;;      Þúsundir hermanna gefast upp eða flýja „Afdankaður harðstjóri með takmörkuð völd“ LEIÐARI DAGBLAÐS Í ÍSRAEL STRÍÐ Í ÍRAK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.