Morgunblaðið - 23.03.2003, Síða 18

Morgunblaðið - 23.03.2003, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ kann að þykja undar-legt að engin íslensk konahafi áður hlotið doktors-nafnbót í lögfræði enOddný Mjöll segir að það sé kannski ekki svo, því hér á landi séu alls ekki margir doktorar í lög- fræði. „Þetta er séríslenskt fyrirbæri,“ segir hún. „Hér á árum áður luku nokkrir menn doktorsnámi í lögfræði en á löngu árabili bættust fáir eða engir við, eða fram yfir 1990. Það við- horf hefur loðað við stéttina að ís- lenska lagagráðan sé allt sem þarf. Aðeins einn doktor er meðal þeirra sem gegna fastri kennslustöðu við lagadeild Háskóla Íslands núna, en margir hafa áður starfað við lög- mennsku eða innan stjórnsýslunnar. Í öðrum íslenskum háskólum sem kenna lögfræði er þetta sambærilegt þótt við Háskólann í Reykjavík starfi fólk sem búast má við að ljúki dokt- orsprófi á næstu misserum. Að und- anförnu hefur áhugi á doktorsnámi nefnilega aukist mjög og á næstu ár- um munu útskrifast margir doktorar og þar af nokkrar konur. Enda hefur nú oft verið sagt að það sé leið sem konur velji sér til framdráttar að sækja sér aukna menntun þótt síðan geti verið undir hælinn lagt hvort það skili sér í raun.“ Þótti skrýtin að ætla í doktorsnám í lögfræði Oddný Mjöll segir að íslensk lög- fræði sé séríslensk og verði það. „Þegar þú hefur rannsóknir við er- lenda háskóla er heldur ólíklegt að þú einbeitir þér að íslenskum við- fangsefnum heldur beinir sjónum að alþjóðlegum efnum. Nú er líka komin meiri alþjóðleg tenging inn í íslensku lögfræðina, bæði á sviði mannrétt- indamála, Evrópuréttar og annarra alþjóðlegra samninga sem allt er far- ið að hafa mikil áhrif á íslenskt rétt- arkerfi.“ Hún segist hafa fundið fyrir því að hafa þótt svolítið skrýtin þegar hún ákvað að fara í doktorsnám. Viðhorf- ið hafi verið að það skili engu, heldur skili starfsreynsla meiru ef verið er að hugsa um frama í starfi. „Margir voru hissa á þessari ákvörðun minni. Enda kom hún nokk- uð óvænt. Ég var að hugsa um að fara í mastersnám erlendis í einhverju sérsviði lögfræðinnar. Ég var að velta fyrir mér möguleikum og skoða hvað ýmsir háskólar höfðu upp á að bjóða. En í leiðinni sá ég ýmsa möguleika á doktorsnámi og þá tók hjartað kipp. Það var því þessi tilfinning sem kom yfir mig sem réð því að ég hóf dokt- orsnámið við Edinborgarháskóla.“ Áður en hún fór út vann hún á lög- mannsstofu. Hún varð barnshafandi og eignaðist son og tók fæðingar- orlof. „Ég var ekki tilbúin að fara að vinna strax eftir fæðingarorlofið og hafði hugmyndir um að bæta við mig námi. Einnig taldi ég að doktorsnám- ið hentaði vel jafnhliða því að sinna litlu barni. Reyndar kom á daginn að doktorsnámið krafðist mun meira af mér en ég taldi í fyrstu. Þetta var ekki eitthvað sem maður sinnti með annarri hendinni,“ segir hún og hlær að hugmyndinni. Hér á landi ríkir ógagnrýninn pósitívismi Sonurinn, Gísli, var 11 mánaða þegar fjölskyldan flutti út. „Maður- inn minn, Gylfi Gíslason, var heima með hann fyrsta árið, en við vorum úti í tvö ár samtals. Ég var ekki lengi að ákveða hvaða svið lögfræðinnar ég ætlaði að taka fyrir. Það tók mig eina andvökunótt, enda vissi ég að mitt áhugasvið beindist ákveðið að jafnræðisreglum. Á þessum tíma var nýlega búið að lögfesta almenna jafnræðisreglu í stjórnarskrána. Ég lagði upp með að vinna með hana, en síðan fór ég að bera hana saman við jafnræðisregluna í Mannréttinda- sáttmála Evrópu og hún tók síðan yf- ir. Ritgerðin heitir Equality and Non-Discrimination in the Euorpean Convention on Human Rights; Tow- ards a Substantive Approach.“ Oddný segist hafa fundið fyrir því að sig hafi vantað fræðilegan grunn. Fyrsta árið segir hún að hafi farið í að byggja upp aðferðarfræðina. „Það kom mér á óvart hvað margt var öðruvísi en ég var vön. Hér á landi hefur ríkt svokallaður pósitívismi. Í eðli sínu er hann ógagnrýninn og við- horfið er að líta á gildandi rétt eins og hann er og að fást við hann út frá því. Ekki er spurt hvers vegna hann er svona og hvort hann ætti að vera þannig eða einhvern veginn öðruvísi. Þjónar hann hlutverki sínu eins og vera ber? Áherslan er svona hér á landi. Enda er það nú þannig að hug- myndir um það hvernig haga beri hlutunum gerjast á öðrum sviðum en á vettvangi lögfræðinnar, t.d. á sviði stjórnmála, félagsfræði, siðfræði eða annarra greina. Lögin koma því að málunum eftir á og byggjast á gerjun sem hefur orðið til á þessum sviðum og orðræðu um hvernig best er að haga t.d. refsingum og öðru slíku. Lögfræðin svarar því í rauninni þörf- inni á lögum og reglum en kemur ekki að mótun hugmyndanna sem liggja til grundvallar. Íslensk lögfræði hefur verið kennd þannig að maður tekur bara lögin eins og þau eru núna og fer síðan að fást við þau, nánast án gagnrýni. Maður kynnir sér þau meginsjónar- mið sem liggja að baki þeim svo hægt sé að túlka þau en hér er ekki hefð fyrir því að gagnrýna hvernig þau eru. Slíkt er aftur á móti hefð í rann- sóknum í lögfræði í engilsaxneskum rétti, bæði í Bretlandi og í Banda- ríkjunum. Þar er kafað dýpra í það hvernig þau virka og hvernig þau hefðu virkað hefðu þau verið öðru- vísi.“ Oddný Mjöll segir þetta vera svo- lítið tvípóla. „Lögfræðin er auðvitað praktísk grein að vissu leyti og eins og ég er núna að praktisera lögin þá beiti ég lögunum oft nánast tækni- lega um raunhæf álitaefni og aðstoða fólk við að ná rétti sínum á þeim grundvelli. En á bakvið er grunnur- inn mjög fræðilegur. Ég fann líka fyrir því í rannsóknum mínum að maður þarf að reyna að sameina þetta tvennt. Enda stóð aldrei til að doktorsritgerðin mín yrði eingöngu fræðileg og bakgrunnur minn hafði auðvitað mikið að segja. Í ritgerðinni reyndi ég því einmitt að sameina þetta tvennt og mætast á miðri leið. Og ég reyni það einnig núna í mínu starfi sem lögmaður.“ Vonbrigði að fá ekki prófessorsstöðuna Eftir að Oddný Mjöll og fjölskylda flutti heim árið 1998 hélt hún áfram að vinna við rannsóknirnar, en árið 1999 til 2000 tók hún sér alveg frí frá þeim og kenndi lögfræði við Við- skiptaháskólann á Bifröst. Hún seg- ist hafa séð þá að ef hún ætlaði að klára ritgerðina yrði hún að helga sig henni eingöngu. Hún tók því næsta ár til að einbeita sér að því. Eftir að hún lauk við ritgerðina sótti hún síð- an um prófessorsstöðu við lagadeild Háskóla Íslands og var metin hæf til að gegna henni. „Ég fékk ekki þessa stöðu, en önn- ur kona var ráðin. Hún hafði ekki eins mikla menntun og ég, en það var mat manna í Háskólanum að hún skyldi ráðin. Þetta voru viss von- brigði, enda losna ekki prófessors- stöður á mínu sviði við íslenska há- skóla á hverjum degi. En þarna komum við aftur að þessari íslensku hefð sem segir að doktorsgráða í lög- fræði fleyti manni ekki áfram í starfi hér á landi. Ég ákvað með sjálfri mér eftir þetta að snúa mér að öðru og vildi ekki velta mér upp úr þessum von- brigðum sem fylgdu því að hafa ekki fengið stöðuna. Ég er mjög sátt við þá ákvörðun mína því ég hef mjög gaman af því sem ég er að fást við núna, að praktisera lögfræði.“ Oddný starfar á Lögmannsstof- unni Skeifunni í Reykjavík ásamt þeim Kristínu Briem, Steinunni Guð- bjartsdóttur, Hjördísi E. Harðar- dóttur,Ragnheiði Bragadóttur og Eins og málin standa er doktorsnafnbót ekkert sérstaklega til framdráttar innan lögfræðinnar á Íslandi að mati Oddnýjar Mjallar Arnardóttur sem er fyrst íslenskra kvenna til að hljóta doktorsnafnbót í lögfræði. Hún sagðist í samtali við Ásdísi Haraldsdóttur hafa uppskorið mikið persónulega og fræðilega en ekki vera viss hvort hún gæti mælt með vinnunni við fólk ef það væri með starfsframa á Íslandi í huga. Hún vonar þó að viðhorfin fari að breytast og aukin menntun í greininni verði meira metin. Ákvörðunin um doktorsnám kom óvænt Morgunblaðið/Þorkell „Hér á landi hefur ríkt svokallaður pósitívismi. Í eðli sínu er hann ógagnrýninn og viðhorfið er að líta á gildandi rétt eins og hann er og að fást við hann út frá því,“ segir Oddný Mjöll Arnardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.