Morgunblaðið - 23.03.2003, Blaðsíða 23
búnar að þessu. Ég valdi efna-
tæknifræði en Sigríður valdi
byggingartæknifræði.“
Vildu ekki hætta
Þær Elín og Sigríður ætluðu að
halda áfram námi þegar tækni-
skólanum lauk. „Það reyndist svo
gaman að læra eftir að við vorum
komnar af stað að við vildum ekki
hætta,“ sagði Elín. „Ég ætlaði að
verða verkfræðingur en þá kom í
ljós að ekki var hægt að byggja
verkfræðinámið á prófinu úr
tækniskólanum. Reyndar var ekki
hægt að byggja neitt á því námi.
Það var ekkert framhald. Ég hefði
þurft að byrja á byrjuninni í verk-
fræðinni en til þess var tíminn of
stuttur því fjölskyldan var alltaf á
leiðinni heim. Þá ákváðum við Sig-
ríður að fara í stærðfræði í há-
skólanum einn vetur. Okkur
fannst svo gaman að náminu og
þar vorum við ánægðar.“
Þegar kom að heimferð árið
1976 spurðust þær fyrir um hvaða
réttindi tækniskólinn gæfi þeim á
Íslandi. Kom þá í ljós að skólinn
var viðurkenndur tækniskóli og
nám við hann veitti þeim réttindi
til að starfa sem tæknifræðingar.
„Það voru örfáir skólar í Svíþjóð
sem voru viðurkenndir hér heima
á þessum tíma og það hittist svo
einkennilega á að við álpuðumst á
einn,“ segir Elín.
Fjölbreytt starf
Sigríður hélt sig við stærðfræð-
ina eftir að hún flutti heim. Bætti
við sig kennslufræði við Háskóla
Íslands og er stærðfræðikennari
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti
en Elín fór strax að vinna hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
og vann þar til ársins 1989 þegar
hún flutti til Svíþjóðar á ný vegna
vinnu eiginmannsins þar. „Við
vorum tíu ár í Gautaborg og þann
tíma vann ég við samskonar stofn-
un þar,“ segir Elín. „Ég kom allt-
af heim í sumarfríum þessi ár og
þá vann ég hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins í allt að fimm mán-
uði í senn.“
Elín segir að starf efnatækni-
fræðings sé bæði fjölbreytt og
skemmtilegt. „Ég er til dæmis að
mæla þungmálma í sjávarafurð-
um,“ segir hún. „Og svo mæli ég
steinefni í öllu mögulegu. Ég mæli
kopar og salt í saltfiski, en hann
er stundum aðeins gulur og ekki
að vita hvers vegna, og joð í vatni.
Og svo er ég að mæla brennistein
í olíu fyrir olíufélag þannig að við
erum farin að mæla allt mögulegt.
Við að mælum líka ýmislegt fyrir
dýralækni og fáum einnig sýni frá
fráveitukerfi Reykjavíkurborgar
til rannsóknar.“
Elín segir að marktækur munur
sé á mælingum á þorski milli ára
er varðar kopar, sink og kvika-
silfur en það séu náttúrulegar
sveiflur en ekki mengun af
mannavöldum. Kadmín mælist
nokkru hærra við Ísland en á öðr-
um fiskimiðum á norrænum slóð-
un og er eldvirkni hér á landi lík-
leg skýring. Elín tekur fram að
engin hætta sé á ferðum. Ein-
staklingur sem er 60 kíló að
þyngd megi borða 500 kíló af
þorski á viku án þess að honum
verði meint af. „Það er allt af-
skaplega hreint hjá okkur og nið-
urstaðan yfirleitt autt blað,“ segir
hún.
krgu@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 23
Flug og bíll til Frankfurt
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
20
56
3
0
3/
20
03
Icelandair tekur við ferðaávísun MasterCard
og orlofs ávísunum VR í pakkaferðir.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Tilboð í apríl og maí.
Verð frá 31.865 kr.*
á mann m.v. 2 fullorðna og tvö börn í bíl í A-flokki í 7 daga.
Verð frá 41.055 kr.* á mann m.v. 2 í bíl í A-flokki í 7 daga.
Verð frá 35.525 kr.* á mann m.v. 2 í bíl í A-flokki í 3 daga.
* Innifalið: Flug, bíll í A-flokki, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða fjarsölu Icelandair í
síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 8-20, laugard. frá kl. 9-17
og á sunnudögum frá kl. 10-16).
Tilboðið gefur 3.600 Ferðapunkta.
„Hvar sem ég er,
hvert sem ég fer,
slær hjarta mitt hjá Rín...“
„Wo ich bin, wo ich geh', mein Herz ist am Rhein.“
ÞÝSKT SÖNGLAG
Nú er rétti árstíminn til að huga að atvinnutækjum fyrir sumarið.
Næsta tölublað sérblaðsins Bílar 26. mars verður helgað umfjöllun
um atvinnubíla, vinnuvélar og landbúnaðartæki.
Auglýsendur pantið fyrir kl. 16 mánudaginn 24. mars
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýsingadeild í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
bílar
Vinnuvélar og atvinnutæki