Morgunblaðið - 23.03.2003, Page 25
ir grun
kvennamelódrama og dans- og söngvamynd hefur
því höfðað jafnt til almennra bíógesta og kröfuhörð-
ustu gagnrýnenda. Árni Þórarinsson ræðir við leik-
stjórann og tvær yngstu leikkonurnar úr stjörnum
prýddum leikhópnum.
urtaka mig og tek nýja stefnu eftir
hverja mynd.“
Og næsta mynd Ozons, The
Swimming Pool eða Sundlaugin –
hvernig verður hún þá?
„Gjörólík 8 konum. Ég hef ný-
lokið tökum og í fyrsta skipti geri
ég mynd á ensku. Hún fjallar um
enska konu, rithöfund, sem Charl-
otte Rampling leikur. Hún þarf að
hefjast handa við ritun nýrrar
bókar – og meira segi ég ekki.“
Sköpun sem þerapía
Þegar Ozon er spurður hvernig
hugmyndirnar að myndunum
verða til segir hann það breytilegt
og oftast ómeðvitað. „Maður sér
eitthvað, les eða heyrir sem kveik-
ir hugrenningar og svo þróast þær
stundum áfram og stundum ekki.“
Hann byrjaði sem ungur dreng-
ur að taka myndir af fjölskyldu
sinni með Super 8 mm vél. Byggir
hann oft á æskureynslunni og fjöl-
skyldulífinu? „Já. Það er mik-
ilvægt að fjalla um það sem maður
hefur sjálfur reynt, fundið og lifað.
Maður þekkir ekkert fólk betur en
eigin fjölskyldu og sjálfan sig.
Stundum leiðist sköpunin því eins
og ósjálfrátt út í eins konar þer-
apíu. Einu sinni lét ég bróður
minn drepa foreldra okkar í mynd.
Þau sögðust vera til í að leika
hlutverkin ef tryggt væri að það
kæmi í veg fyrir að myndin yrði
raunveruleiki!“
Hvaða leikstjórum dáðist þú
mest að í æsku?
„Eric Rohmer. Hann var sinn
eigin framleiðandi og gerði merki-
legar myndir fyrir lítinn pening.
Fassbinder er annar sem hafði
mikil áhrif. Leikstjórar sem gera
tilraunir og standa ekki í stað eru
þeir sem heilla mig mest. David
Lynch til dæmis.“
Þú hefur verið stimplaður sem
„samkynhneigður leikstjóri“,
„vandræðabarn franskrar kvik-
myndagerðar“ og „umdeildur og
ögrandi“. Fara svona stimplar í
taugarnar á þér?
Hann hlær. „Nei nei. Ég hef á
tilfinningunni að fjölmiðlar telji sig
þurfa svona flokkanir eða dilka-
drátt til að stytta sér leið. Það er
eðlilegt. Maður gerir kvikmyndir
og aðrir horfa á þær og gera sér
hugmyndir um þær og um mann
sjálfan. Ekkert annað að gera en
taka því. Ég er samkynhneigður.
Mér finnst stundum nauðsynlegt
að ögra og sjokkera til að fá fólk
til að hugsa. En bæði ég og við-
fangsefni mín erum flóknari en
þessir stimplar gefa til kynna. Ég
held reyndar að með árunum hafi
ég öðlast meiri þroska og gert mér
grein fyrir því að ögrandi, óhefð-
bundið og umdeilt efni geti haft
meiri áhrif ef það er sett fram á
hefðbundinn hátt.“
Er það að gera kvikmyndir það
mikilvægasta í lífinu fyrir þig?
„Nei. Lífið er það mikilvægasta
í lífinu. Ég gæti alveg hugsað mér
að gera eitthvað annað en búa til
kvikmyndir, – einhvern tíma
seinna. En það er mikilvægt fyrir
mig að skapa, segja sögur og flýja
veruleikann.“
naráð
8 konur: „Þær eru ekki skrímsli nema í
þeim skilningi að við erum öll skrímsli á
vissan hátt. Manneskjur eru flóknar …“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 25
Aðalfundur Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis
verður haldinn á Grand Hótel, Gullteig,
kl. 17:00, miðvikudaginn 26. mars 2003.
Aðgöngumiðar og
atkvæðaseðlar verða afhentir á
fundarstað í fundarbyrjun.
Sparisjóðsstjórnin
Aðalfundur
Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins á árinu 2002.
2. Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur
sparisjóðsins fyrir árið 2002, ásamt tillögu um ráðstöfun
tekjuafgangs fyrir liðið starfsár.
3. Tillögur til breytinga á samþykktum sparisjóðsins. Tillögurnar lúta í
fyrsta lagi að því að færa samþykktirnar til samræmis við ákvæði
nýrra laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Í öðru lagi að því að
taka upp almennt ákvæði um 3 daga framboðsfrest við stjórnarkjör
og í þriðja lagi að því að kjósa 5 varamenn til stjórnar og í því
sambandi bráðabirgðaákvæði um hvernig staðið skuli að því kjöri á
aðalfundinum 26. mars 2003.
Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu sparisjóðsstjóra og verður
þeim dreift á fundrstað.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning endurskoðanda.
6. Tillaga um ársarð af stofnfé.
7. Tillaga um að auka stofnfé með ráðstöfun hluta hagnaðar.
8. Tillaga um þóknun stjórnar.
9. Önnur mál.
A
B
X
90
30
23
1
HÚN er dökkhærð og veit af fegurð
sinni þar sem hún situr og svarar
spurningum af yfirvegaðri fágun. En
maður fær á tilfinninguna að henni
leiðist og langi helst til að vera ann-
ars staðar. Ég skil hana vel. Seinna í
viðtalinu segist hún vera þreytt og
sloj og ekki í stuði. Gott og vel.
Virginie Ledoyen leikur eldri og lífs-
reyndu dótturina í 8 konur og hún er
þrátt fyrir aðeins 26 ára aldur orðin
býsna lífsreynd í frönskum kvik-
myndaheimi og í seinni tíð einnig
þeim alþjóðlega. Ledoyen er í hópi
eftirsóttustu leikkvenna Frakka af
yngri kynslóð, byrjaði sem barn í aug-
lýsingum fyrir tilviljun, lagði stund á
leiklistar- og dansnám 9 ára og hóf
kvikmyndaleik aðeins 11 ára gömul.
Hún segir foreldra sína hafa stutt sig
en þetta hafi einfaldlega verið það
sem hana langaði til að reyna. Ferill-
inn fór hins vegar fyrir alvöru í gang á
10. áratugnum þegar hún fékk aðal-
hlutverk í myndum Oliviers Assayas
og Benoits Jacquots. Sá síðarnefndi
réð hana síðan í aðra mynd, La fille
seule (1995), þar sem hún var sem
næst allan sýningartímann í mið-
punkti tjaldsins í hlutverki ungrar
starfskonu á hóteli sem verður
barnshafandi og býður kærastanum
og umhverfinu birginn. Leikur hennar
vakti svo mikla athygli að leikstjórar
á borð við Woody Allen fóru að hafa
samband; hún lék eitt aðalhlutverk-
anna í mynd Dannys Boyles The
Beach (1999) með Leonardo DiCapr-
io, og í A Soldier’s Daughter Never
Cries (1999) eftir James Ivory. Hún
hefur unnið með gamla franska
meistaranum Claude Chabrol og
þeim taívanska Edward Yang.
Og nú kveðst hún stolt af því að
hafa verið valin til að leika með helstu
leikkonum Frakka í 8 konum. „Ég var
himinlifandi þegar François Ozon
bauð mér hlutverkið því ég hef ekki
haft mörg tækifæri til að leika með
öðrum leikkonum, hvað þá leikhópi af
þessari stærðargráðu.“
Hvernig var svo að hitta og vinna
með öllum þessum fyrirmyndum?
„Alveg stórkostleg upplifun. Ég
hafði að vísu unnið áður með Isabelle
Huppert og við þekktumst vel. Hún
er mín eftirlætisleikkona. Æsku-
draumur minn rættist þegar ég
kynntist þeim öllum. Ég var í upphafi
frekar feimin við þær; þetta voru
stjörnurnar mínar, en í viðkynningu
eru þær svo venjulegt fólk eins og við
öll, jarðbundnar og alls ekki þær
prímadonnur sem búast mætti við.“
Er þá meint samkeppni milli svona
frægra leikkvenna bara tilbúningur
fjölmiðla?
„Ég hafði velt þessu fyrir mér líka
og bjóst alveg við því að sumar þess-
ara leikkvenna teldu sig hærra skrif-
aðar en aðrar. En þannig var ekki
reyndin. Þetta eru greindar leikkonur
og nutu þess að leika í myndinni
saman. Satt að segja gerðum við grín
að þeirri væntingu að um grimma
samkeppni yrði að ræða milli okkar.“
Hafa hugmyndir þínar um kvik-
myndaleik breyst mikið frá því þú
hófst leiklistarnám ung að árum
gegnum þátttöku í um tveimur tug-
um mynda?
„Helsta breytingin er sú að maður
lærir starfið og hvernig á að standast
kröfur þess. En hugmyndin um leik-
inn sjálfan, þá ummyndun sem hann
krefst og gleðina sem hún veitir, er í
grundvallaratriðum óbreytt.“
Virginie Ledoyen hefur samhliða
leiknum tekið að sér auglýsingastörf
og segist gera það einvörðungu fyrir
peninga, til að öðlast nægilegt fjár-
hagslegt sjálfstæði og frelsi til að
geta valið og hafnað hlutverkum eftir
eigin höfði. „Fyrirsætustarfið er
grynnri útgáfa af leikkonustarfinu.“
Þegar hún er beðin um að lýsa
muninum á að vinna með hinum um-
deilda François Ozon og öðrum leik-
stjórum sem hún hefur leikið hjá og
eru nefndir hér að ofan segir hún að í
fyrsta lagi sé hann sá yngsti sem
hún hefur leikið hjá. „Hann er mjög
sérstakur og það er einmitt það sem
gerir hann jafn umdeildan og hann er.
Verk hans bera vitni um mikla kímni-
gáfu en hann notar hana til að fjalla
um grimmileg og ögrandi viðfangs-
efni. Í myndunum er því þessi tog-
streita á milli gamansemi og vægð-
arleysis. Sumum finnst hann líkur
Pedro Almodóvar að þessu leyti en
ég er ekki sammála því.“
Virginie Ledoyen hefur nýlokið við
að leika í Bon Voyage fyrir Jean Paul
Rappeneau ásamt Isabelle Adjani og
Gerard Depardieu. Hún segir að sér
hafi borist fjöldi tilboða frá Hollywood
eftir The Beach en þau hafi flest ver-
ið lítt áhugaverð; yfirleitt séu bita-
stæðari tækifæri annars staðar. Mikil
gróska og fjölbreytni sé nú í franskri
kvikmyndagerð; franskar bíómyndir
leggi rækt við sálarlíf persónanna og
séu yfirleitt dýpri en obbinn af amer-
ískum myndum.
Hún býr með ársgamalli dóttur
sinni og föður hennar í París en dvel-
ur í fríum í húsi sínu á strönd Suður-
Frakklands.
Togstreita milli gaman-
semi og vægðarleysis
Virginie Ledoyen: Var í upphafi feimin
við fyrirmyndirnar …
Eldri dóttirin: Virginie Ledoyen
Alltaf á þriðjudögum