Morgunblaðið - 23.03.2003, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 27
SEXTÍU ÁR verða liðin frá
fæðingu samíska skáldsins
og fjöllistamannsins Nils-
Aslaks Valkeapää á morg-
un, en hann lést um aldur
fram haustið 2001. Í minn-
ingu hans gengst Norræna
húsið í samstarfi við sam-
ísk-íslenska vináttufélagið
SAMÍS fyrir dagskrá í
kvöld kl. 20. Þar munu tveir
þjóðkunnir fulltrúar sam-
ískrar menningar og nánir
vinir Nils-Aslaks, Harald
Gaski kennari í samískum
fræðum við háskólann í
Tromsø og rithöfundurinn
John Gustavsen, flytja er-
indi um samísk menningar-
mál. Rithöfundurinn Einar
Bragi les ljóð eftir Valk-
eapää í eigin þýðingu og
sýndir verða valdir kvik-
myndaþættir úr samísku
þjóðlífi. Kynnir er Bergljót
Baldursdóttir dag-
skrárgerðarmaður.
Einar Bragi er einn af
stofnfélögum SAMÍS og
hefur hann þýtt sex samísk
skáldverk á íslensku. Nýj-
asta þýðing hans er Víð-
ernin í brjósti mér, sem
kemur út á morgun, eftir
Nils-Aslak Valkeapää.
„Hann tók sér listamanns-
nafnið Áillohas og er víðkunn-
astur samískra nútímaskálda, en
var jafnframt mjög fjölhæfur
listamaður,“ segir Einar Bragi um
skáldið, sem fæddist 23. mars árið
1943 og hefði því orðið sextugur í
dag, en hann lést í nóvember árið
2001. „Áillohas var kennari að
mennt en fékkst aldrei við
kennslu, heldur komst upp með að
lifa í listum eftir að hann náði
fullorðinsaldri. Sennilega mót-
mælti hann þessu listatali fengi
hann vörnum við komið – hann
segir á einum stað: ‚Þegar rætt er
um samíska list verður að hafa
hugfast að við eigum okkur sér-
stæðan menningararf en höfum
tekið frá grannþjóðum ýmis orð
og eins og stríð og helvíti … og
list og listamaður.‘ Hann verður
samt að una því lífs og liðinn að
ég lýsi honum svo, að honum
hafi verið allt til lista lagt.
Hann gat sér gott orð fyrir
myndlist, skreytti og hann-
aði bækur sínar sjálfur, var
snjall ljósmyndari, gat
brugðið fyrir sig leiklist og
tónsmíðum ef því var að
skipta og mátti heita mátt-
arstólpi og merkisberi sam-
ískrar menningar yfirleitt
seinustu áratugi. En þekkt-
astur var hann sem jojkari
og ljóðskáld.“
Valkeapää gaf út þó
nokkrar bækur á ferli sínum
og hlaut Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1991
fyrir bókina Beaivi, Áhcázan
(Faðir minn, sólin) sem hafði
komið út árið 1988. Að sögn
Einars er náttúran oft hug-
leikin Valkeapää í verkum
hans. „Hann var mikið nátt-
úrubarn og leit í bók-
staflegum skilningi á sig sem
einn hluta af náttúrunni,
eins og kemur oft fram í
stefjum hans, og þá kannski
ekki síst sem fugl. Ég þykist
muna að í fyrstu bókinni sem
hann gaf út og var skrifuð á
finnsku, tekur hann svo til
orða að í hjarta sínu sé blá-
þröstur sem klifi, en þar geti
líka stundum blásið kaldir
vindar.“
Einar Bragi fer að lokum með
stef úr bókinni Víðernin í brjósti
mér í þýðingu sinni, hljómar nán-
ast eins og það hafi verið ort um
atburðina sem eru að gerast heim-
inum í dag:
Allt er svo fagurt
að ég skelfist
að vakna aftur
til þessa grimmdarheims
Merkisberi samískrar
menningar heiðraður
Einar Bragi Harald Gaski
John Gustavsen Nils-Aslak Valkeapää
Heimsferðir opna þér leiðina til fegurstu borga Evrópu í
vor á ótrúlegu verði. Nú kemstu í beinu flugi til Budapest,
Prag, Barcelona eða Rómar og getur upplifað þessar
spennandi borgir með fararstjórum Heimsferða sem kynna
þér það besta af sögu, menningu og mannlífi. Vorið er
komið í Evrópu og þetta er fegursti tími ársins til að
ferðast.
Vorið
í fegurstu
borgum
Evrópu
frá kr. 19.950
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.950
Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1.
Verð kr. 39.950
Helgarferð til Prag, 3. apríl, 4 nætur.
Flug, hótel og skattar, 4 stjörnu hótel.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Prag
31. mars
3. apríl - helgarferð
Verð kr. 29.950
Flugsæti með sköttum til Barcelona, út
12. apríl, heim 16. apríl.
Verð kr. 39.950
Flug og gisting, Hotel Aragon, 4 nætur,
út 12. apríl, heim 16. apríl.
Barcelona
12. apríl - helgarferð
Verð kr. 19.550
Flugsæti til Budapest, út 27. mars, heim
31. mars. Flug og skattar á mann miðað
við að 2 ferðist saman, 2 fyrir 1.
Budapest
27. mars - helgarferð
Verð kr. 69.950
Flug, gisting, skattar og íslensk
fararstjórn, 5 nætur.
Róm
16. maí - 5 nætur
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
Leitið tilboða
í stærri verk
Stærð:
D: 50 cm
B: 30/40 cm
H: 180 cm
Stál-
skápar
fyrir
vinnustaði
kr. 7.300,-
Verð frá
Stálskápar
Stærð:
D: 100 cm
B: 290 cm
H: 250 cm
Tekur
9 bretti
Brettahillur
kr. 17.928,-
Næsta bil
kr. 13.894,-
Lagerhillur
Stærð:
D: 60 cm
B: 190 cm
H: 200 cm
3 hillur
kr. 17.800,-
Næsta bil
kr. 15.366,-
Stálhillur
í fyrirtæki
og heimili
Stálhillur
Stærð:
D: 40 cm
B: 100 cm
H: 200 cm
5 hillur
kr. 8.327,-
Næsta bil
kr. 5.819,-
en gott
Við bjóðum
ÓDÝRT
13
58
/
T
A
K
T
ÍK
-
3x
13
-
N
r.:
2
9
C
Víðernin í brjósti
mér hefur að
geyma ljóð sam-
íska listamanns-
ins Nils-Aslak
Valkeapä. Þetta
er sjötta samíska
skáldverkið sem
út kemur á ís-
lensku í þýðingu
Einars Braga.
Ljóðin eru sótt í bækurnar Bjartar
vornætur, Syng bláþröstur, Kliða,
Silfuræðar lindarinnar, Faðir minn,
sólin, Svo fjarri hið nána, og Móðir
vor, jörð. Þau eru þýdd eða endur-
ort úr norsku og sænsku. Fyrir bók-
ina Faðir minn, sólin hlaut Nils-
Aslak bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs 1991.
Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Nils-Aslak var fæddur árið 1943
og lést í nóvember 2001. Honum
var margt til lista lagt: hann mynd-
skreytti og hannaði bækur sínar
sjálfur, var snjall ljósmyndari, lék
stórt hlutverk í samísku kvikmynd-
inni Leiðsögumanninum og samdi
tónlistina, góður gítarleikari, einn
fremsti jojkari þjóðarinnar og lið-
tækt ljóðskáld, ræktunarmaður
samískrar tungu, mátti heita
fremsti málsvari og merkisberi
samískrar menningar í víðasta
skilningi seinni helming ævinnar.“
Nils-Aslak kom nokkrum sinnum
til Íslands, fyrst 1974 og síðast
1991.
Útgefandi er Ljóðbylgjan. Bókin
er 80 bls., prentuð í Steinholt.
Ljóð