Morgunblaðið - 23.03.2003, Side 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Grímur Thomsen
Dagskrá helguð
Grími Thomsen verður
sunnudaginn 23. mars kl. 14:00
í Þjóðmenningarhúsinu.
Kristján Jóhann Jónsson,
framhaldsskólakennari
kynnir Grím.
Hjalti Rögnvaldsson,
leikari les ljóð Gríms.
Ókeypis aðgangur
Sýningar eru opnar alla daga
frá kl. 11:00-17:00
BÓKAÚTGÁFAN Bjartur boðaði
fyrir nokkru „vorbókaflóð“ og stend-
ur fyrir öflugri bókaútgáfu þessar
vikurnar. Meðal
annars hleypir út-
gáfan af stokkun-
um nýrri ritröð
sem kallast
„Svarta línan“ og
innan hennar
verða gefnar út
bækur (í hand-
hægu kiljubroti)
sem þeir Bjarts-
menn lýsa sem
jaðarskrifum,
verkum sem eru á mörkum skáld-
skapar og fræða, þar sem höfundar
rýna í listir, menningu og eigin ævi,
ef því er að skipta, stunda greiningu
(analýsu) í bland við skáldskap.
Þetta form bókmennta/bókmennta-
fræða er vel þekkt víða erlendis, en
hefur ekki náð fótfestu hér á landi
fyrr og ber að fagna þessu framtaki
Bjarts. Fyrsta rit Svörtu línunnar er
eftir bókmenntafræðinginn Her-
mann Stefánsson og kallast Sjón-
hverfingar. Í fréttatilkynningu frá
Bjarti er bókin kynnt sem „inn-
gangsrit íslenskrar menningar-
fræði“ en sjálfur gefur höfundurinn
riti sínu undirtitilinn „Fjarvistar-
sannanir fyrir íslenskan veruleika“.
Sjónhverfingar hafa að geyma sjö
greinar sem skiptast niður á þrjá
hluta bókarinnar. Í fyrstu og síðustu
greinininni er vísað til franska tákn-
fræðingsins Rolands Barthes (1915–
1980) og fer vel á að ramma bókina
inn með tilvísun til hans því óhætt er
að segja að Hermann iðki menning-
argreiningu og táknlestur í anda
Barthes. Í fyrstu greininni, „Dauði
Barthes,“ fremur Hermann tákn-
lestur á því atviki (bílslysi) sem
leiddi til dauða Barthes um leið og
hann kynnir táknfræði hans fyrir
lesandanum. Hann er því jöfnum
höndum að kynna til sögunnar
ákveðna aðferð um leið og hann beit-
ir henni sjálfur. Aðferðin er táknlest-
ur, sem er án efa ein mikilvægasta
aðfurð bókmennta- og menningar-
fræða á tuttugustu öld. Roland
Barthes var einn helsti kenninga-
smiður táknfræðinnar og með verki
sínu Goðsögur (1957) sýndi hann
hvernig beita má gagnrýnum tákn-
lestri á hvaða menningarfyrirbæri
sem er. Hermann Stefánsson fetar í
Sjónhverfingum í hans fótspor og les
með aðferð táknfræðinnar t.d. aug-
lýsingar og ljósmyndir, en hvoru
tveggja gerði Barthes með góðum
árangri. Titillinn á grein Hermanns,
„Dauði Barthes,“ er að sjálfsögðu til-
vísun í fræga grein Barthes, „Dauði
höfundarins“, og Hermann leikur
sér skemmtilega með umræðuna um
„höfundargildið,“ það hvort persóna
og ævi höfundar skipi máli í túlkun
og merkingu bókmennta.
Greinin um Barthes myndar
fyrsta hluta bókarinnar ásamt grein-
inni „Veruleikinn og Baudrillard“
þar sem fjallað er um kenningar
Baudrillards og Willy/Keikó eða eins
og Hermann kallar hann: Hermilíkið
í kvínni. Hermann mátar hugtak
Baudrillards, „hermilíking“ (simul-
acra) á fyrirbærið Keikó, allt frá því
háhyrningurinn var veiddur við Ís-
landsstrendur, gerður að kvik-
myndastjörnu í myndunum um Willy
og þar til hann var fluttur með ærn-
um tilkostnaði til Íslands, plantað
þar í lokaða sjókví, hleypt út í frelsið
við og við, þaðan sem hann strauk til
Noregs, eins og menn muna. Grein-
ing Hermanns á hinum ótrúlega ferli
skepnunnar og því hvernig veruleik-
inn hefur farið á flot í þeirri ímynd
sem skapast hefur í kringum hana,
er bæði áhugaverð og skemmtileg og
staðfestir glöggt auga höfundar fyrir
því fáránlega – eins og raunar flestar
greinarnar í bókinni.
Annar hluti Sjónhverfinga saman-
stendur af mjög skemmtilegri grein
Hermanns um Halldór Laxness og
Torfhildi Hólm og hina „glötuðu“
æskuskáldsögu Laxness, Aftureld-
ingu; langri grein hans um ritdóma
dagblaðanna og fjórum stuttum „af-
lestrum“ (í anda Barthes) á menn-
ingarfyrirbærum: auglýsingum,
nektardans, skyndibitum. Fyrsta
greinin kallast á við grein Helgu
Kress um sama efni, sem birtist ný-
verið í tímaritinu Sögu, og er athygl-
isvert að sjá hvernig kennari og
nemandi hans vinna úr sama efniviði.
Lengsta grein hlutans (og jafnframt
lengsta grein bókarinnar) er „Úr
orðabók ríkjandi viðhorfa“ og fjallar
Hermann þar um helstu klisjur sem
ráða ferðinni í ritdómum sem skrif-
aðir eru fyrir dagblöð. Sjálfur var
Hermann ritdómari á Morgun-
blaðinu um skeið, en hætti þeim
starfa og má líta á greinina sem
nokkurs konar uppgjör hans við
starfið og um leið uppgjöf fyrir því.
Greinin er öll hin fróðlegasta. Hvað
varðar helstu klisjurnar sem Her-
mann ræðir vísa ég til niðurlagsorða
þessa ritdóms.
Í þriðja og síðasta hluta bókarinn-
ar eru tvær greinar: „Skáldskapur á
skökkum stað“ og „Ber einhver
kennsl á þetta fólk?“ Sú síðari er
greining á tveimur ljósmyndum sem
báðar tengjast ævi Hermanns og
fléttast í greiningu hans á myndum
saman táknlestur og sjálfsævisögu-
leg atriði og er útkoman vel lukkuð.
Fyrri greinin fjallar hins vegar um
efni sem hefur verið mikið til um-
ræðu hérlendis síðustu árin, mál-
verkafalsanir og/eða eftirgerðir.
Hermann tengir hér saman umræðu
sem farið hefur fram í bókmennta-
fræðum (um frumtexta, eftirgerðir,
eftirlíkingar og þýðingar) og um-
ræðuna um fölsun listaverka. En
hann gerir það ekki á neinn „venju-
legan“ og „fræðilegan“ hátt, heldur
falsar hann sjálfur að vild, diktar upp
listamenn og heimildir og blandar
hinni „fölsuðu“ umræðu saman við
„staðreyndir“. Útkoman er fyrst og
fremst bráðskemmtilegur lestur,
sem er í sjálfu sér ekkert minna virði
en strangfræðileg úttekt á mála-
flokknum. Grein Hermanns er
skáldskapur á skökkum stað, svo vís-
að sé í titil greinar hans, en sá skáld-
skapur varpar ágætu ljósi á vanda-
mál fræðanna.
Ritröðin Svarta línan nær góðu
flugi með bók Hermanns Stefáns-
sonar sem er í senn snjall lesari
tákna og góður stílisti: Bókin getur
vel staðið undir því að kallast inn-
gangsrit íslenskrar menningarfræði
og að lokum vil ég segja þetta: Sjón-
hverfingar er verk sem smýgur und-
an þröngum skilgreiningum, grein-
ingar höfundar eru margræðar en
veita engu að síður lykil að ríkjandi
viðhorfum í fræðunum; maðurinn á
bak við verkið hefur lagt fram grein-
ingar sem ættu að geta skapað um-
ræðu, ef svo má að orði komast.
Fræði, flug og falsanir
BÆKUR
Greinasafn
Eftir Hermann Stefánsson,
Bjartur 2003, 184 bls.
SJÓNHVERFINGAR
Soffía Auður Birgisdóttir
Hermann
Stefánsson
ÚT er kominn tvöfaldur hljómdisk-
ur með söng Einars Sturlusonar ten-
órs (f. 1917) við undirleik nokkurra
kunnustu hljóm-
borðsleikara þjóð-
arinnar á öldinni
sem leið. Geyma
diskarnir alls 53
lög. 29 eru íslenzk,
ýmist vel þekktar
gullaldarperlur
eins og Kirkju-
hvoll eftir Árna
Thorsteinsson,
Heimir og Vor-
vindur eftir Sigvalda Kaldalóns,
Draumalandið eftir Sigfús Einarsson,
Kveðja eftir Þórarin Guðmundsson,
Vor og haust (Í fögrum lundi) eftir
Bjarna Þorsteinsson og Þei þei og ró
ró eftir Björgvin Guðmundsson eða
minna þekkt lög sem heyrast sjaldnar
nú en áður var. Meðal erlendu laganna
24 mætti nefna Heims um ból Grubers,
sálmalögin fornu Hin fegursta rósin er
fundin og Sjá morgunstjarnan blikar
blíð og danskan jólasálm Rungs og
Laubs, Dýrð sé Guði í hæstu hæðum,
auk tveggja sænskra þjóðlaga og rúss-
neska keisarasöngsins, Heyr, faðir,
hjartans bæn, sem flestir þekkja úr
„1812“-forleik Tsjækovskíjs.
Tvennt kemur kannski mest á óvart
á þessum diskum. Annars vegar sex
lög eftir Atla Heimi Sveinsson og hins
vegar síðustu upptökur diskanna frá
1997. Ef að líkum lætur hafa lög Atla
Heimis – tekin upp 1954 þegar tón-
skáldið var á 16. aldursári, ef trúa má
bæklingi – ekki heyrzt í hálfa öld og
gætu verið meðal fyrstu tónsmíða
hans, a.m.k. í hljóðriti. Það gerir þau
ekki óforvitnilegri að höfundur skuli
sjálfur leika undir með Einari, og það
dálaglega. Þetta eru einföld en prýð-
isvel samin rómantísk smálög sem
óneitanlega lofa góðu um hæfileika hjá
pilti vart komnum af fermingaraldri.
Einna skemmtilegast þótti mér
Hjartarím við ljóð Stefáns frá Hvíta-
dal, sem þrátt fyrir þjóðlega „skozka
hnykki“ virðist líka undir ofurlitlum
áhrifum frá hljómaferli úr vestur-
heimskri alþýðumúsík.
Hitt er einnig undrunarefni hvað
Einari tókst vel upp í fyrrnefndum
upptökum frá 1997 þegar hann stóð á
áttræðu, þ.e. í Heimi Kaldalóns og
rússneska keisarasöngnum, báðum við
undirleik Jóns Stefánssonar. Söngur-
inn er furðuþróttmikill og inntónunin
m.a.s. hreinni þar en annars staðar
sem einkennist víða af lágri tónstöðu
eins og ekki var óalgengt hjá söngv-
urum fyrri kynslóða. Hins vegar er
röddin nær ávallt þýð og hljómmikil og
ljóst að hljóðfæri Einars hefur ekki að-
eins verið fágætt meðan stóð í fullum
blóma, heldur einnig enzt furðuvel,
þrátt fyrir ólæknandi meinsemd í hálsi
sem hrjáði söngvarann upp úr 1949 og
hlaut að verða ferli hans óþægur ljár í
þúfu.
Vel er staðið að þessum diski, og
tæknivinna útvarpsmanna virðist
fyrsta flokks. Aðeins leðurblökueyru
yngstu hlustenda ættu að truflast af
því litla lakkplötusnarki sem eftir
finnst á elztu upptökunum frá því fyrir
daga segulbandsins. Diskunum fylgir
fróðlegt bæklingságrip um söngvar-
ann eftir umsjónarmann útgáfunnar,
dr. Bjarka Sveinbjörnsson.
Sunnlenzki
tenórinn
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Einar Sturluson
Íslenzk sönglög eftir m.a. Sigvalda
Kaldalóns, Atla Heimi Sveinsson, Ólaf
Þorgrímsson, Áskel Snorrason, Björgvin
Guðmundsson, Bjarna Þorsteinsson og
Þórarin Guðmundsson ásamt erlendum
þjóð- og sálmalögum. Einar Sturluson
tenór við píanóleik Fritz Weisshappels,
Hallgríms Helgasonar, Atla Heimis
Sveinssonar og Jóns Stefánssonar auk
orgelleiks Páls Ísólfssonar, Karlakórsins
Þrasta og Íslenzku útvarpshljómsveit-
arinnar. 121:05 mín. Upptökur: 1948–
49, 1952–57, 1962–64 og 1997, allar á
vegum Ríkisútvarpsins. Tæknivinna:
Tæknideild RÚV/Magnús Hjálmarsson.
Umsjón og bæklingstexti: Bjarki Svein-
björnsson. Útgefandi: Einar Sturluson,
2002.
ÞÚ BLÁFJALLAGEIMUR
Einar Sturluson
Iceland and European Development
er eftir Einar Benediktsson fyrrver-
andi sendiherra. Í bókinni er fjallað
um þróun í samvinnu ríkja í Evrópu
sem hefst á dögum Marshall-
aðstoðarinnar. Rakin eru fyrstu skref-
in til viðskiptasamvinnu í Evrópu á
sjötta áratugnum og lýst aðdragand-
anum að aðild Íslands að EFTA og
þeim fríversl-
unarsamningi við
Efnahagsbandalag
Evrópu sem þeirri
aðild fylgdi. Ít-
arlega er fjallað um
gerð EES-
samningsins og
um samstarfið við
Evrópusambandið
á síðustu árum. Sömuleiðis er gerð
grein fyrir hagþróuninni á Íslandi og í
viðskipataumhverfi okkar sem og
samstarfinu í varnar- og öryggis-
málum.
Einar var sendiherra í Genf, París,
London, Brussel, Ósló og Washington
og tengdist náið því sem fjallað er um
í bókinni.
Útgefandi er Almenna bókafélagið.
Bókin er 256 bls., prentuð í Prisma.
Um hönnun kápu sá auglýsingastofan
Næst. Verð: 3.290 kr.
Evrópumál
NÁMSKEIÐ í notkun umbrotsfor-
ritsins Adobe InDesign hefst 31.
mars, en forritsins svipar til
QuarkXpress. Kostirnir eru að for-
ritið er sérstaklega hannað með til-
liti til hönnuða. Kennari er Höskuld-
ur Harri Gylfason myndlistarmaður
og grafískur hönnuður.
Myndlistarskóli Margrétar
Í Myndlistaskóla Margrétar eru
tvö ný sex vikna námskeið að hefj-
ast, annars vegar olíu- og akrílmálun
og hins vegar teikninámskeið. Nám-
skeiðin eru fyrir byrjendur og
lengra komna og fyrir fólk á öllum
aldri.
Námskeið
í LHÍ
Moggabúðin
Músarmotta, aðeins 450 kr.