Morgunblaðið - 23.03.2003, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 29
NORRÆNI menningarsjóðurinn
hefur hleypt af stokkunum nýrri
styrktaráætlun undir heitinu Sýning
ársins og er tilgangurinn að veita
söfnum á Norðurlöndum öflugan
stuðning og auglýsa eftir umsóknum
um nýjan styrk að upphæð 3 millj-
ónir danskra króna, eða sem nemur
um 34 milljónum íslenskra króna.
Fjármununum verður varið til sam-
starfsverkefna safna sem vilja vekja
athygli á Norðurlöndum og norrænu
samstarfi með því að halda viða-
mikla sýningu sem höfðar til breiðs
hóps. Auglýst verður eftir umsókn-
um um styrkinn á morgun 23. mars
sem er Dagur Norðurlandanna.
„Það á ekki að fara að veita enn
ein norræn menningarverðlaun,
heldur er þetta sérstakur styrkur
sem öll söfn á Norðurlöndum geta
sótt um,“ segir Rannveig Guð-
mundsdóttir, þingmaður og stjórn-
armaður í Norræna menningar-
sjóðnum.
Á hverju ári úthlutar sjóðurinn
um 200 styrkjum og af þeim renna
um 10–20 til norrænna sýninga.
Styrkirnir eru að jafnaði á bilinu frá
um hálfri milljón og upp í sex millj-
ónir íslenskra króna.
Tvær grunnkröfur eru gerðar til
umsókna um þennan nýja styrk. Í
fyrsta lagi verður viðfangsefni sýn-
ingarinnar að vera norrænt, hvort
sem það er tengt fortíð, nútíma eða
framtíð, og í öðru lagi er það skilyrði
að sýningin verði sett upp í að
minnsta kosti tveimur norrænum
löndum. Ekkert er því til fyrirstöðu
að sýningin fjalli einnig um lönd ut-
an Norðurlanda, eða að farið verði
með sýninguna víðar.
„Það er reynsla sjóðsins að sýn-
ingar með norrænu viðfangsefni,
hvort sem það eru víkingar eða lista-
konur, fá alltaf góða aðsókn og mót-
tökur, en þær eru jafnframt mjög
dýrar. Þess vegna var borðleggjandi
fyrir sjóðinn að veita sérstakan
stuðning til safna á Norðurlöndum,“
segir Rannveig Guðmundsdóttir.
Nánari upplýsingar um styrkt-
aráætlunina er að finna á vefsetri
Norrænu ráðherranefndarinnar
(www.nordiskkulturfond.org). Um-
sóknarfrestur rennur út 1. septem-
ber næstkomandi. Styrkurinn verð-
ur framvegis veittur annað hvert ár
og næst verður hægt að sækja um
hann árið 2005.
Tilgangur Norræna menningar-
sjóðsins er að veita fjárhagslegan
stuðning til norræns menningar-
samstarfs í víðum skilningi. Til þess
teljast meðal annars ráðstefnur, tón-
leikar, sýningar, hátíðir og útgáfa af
ýmsu tagi. Í fyrra úthlutaði sjóður-
inn samtals um 300 milljónum ís-
lenskra króna til margvíslegra verk-
efna. Í stjórn sjóðsins sitja fulltrúar
skipaðir af Norðurlandaráði og nor-
rænu ráðherranefndinni.
Nýr 34 milljóna styrk-
ur til norrænna safna
BJARNI Ragnar Haraldsson mynd-
listarmaður opnar sýningu í Gall-
eríi Klassís, Skólavörðustíg 8, kl.
16. Verkin á sýningunni eru hluti
þeirra myndverka sem voru á sýn-
ingu er lauk í febrúar sl. í Seattle,
USA, og hafa ekki verið sýnd áður
hér á landi.
Að sögn Bjarna Ragnars hlaut
sýningin mikið lof og fékk jákvæða
umfjöllun í fjölmiðlum erlendis og
fékk m.a. „pick of the week“ í
Seattle.
Gallerí Klassís er opið kl. 12–18
virka daga og kl. 12–14 laugar-
daga, en af þessu tilefni verður opið
á sunnudaginn. Sýningunni lýkur 1.
maí. Verkin eru öll til sölu.
Bjarni Ragnar
sýnir ný verk
Bjarni Ragnar Haraldsson við eitt
verka sinna.
DRAUMASMIÐJUNNI hefur verið
boðið að sýna leikritið Trúða eftir
Margréti Pétursdóttur á alþjóðlegri
leiklistarhátíð leikhúss heyrnar-
lausra í Vínarborg dagana 4.–12. apr-
íl. Þetta er í ellefta sinn sem þessi há-
tíð er haldin og í annað sinn sem
Draumasmiðjunni er boðið að taka
þátt í henni, en á síðasta ári sýndi
leikhúsið Ég sé …, einnig eftir Mar-
gréti.
Alls eru áætlaðar tíu sýningar á
Trúðum í Vínarborg en jafnframt því
að sýna leikritið á sjálfri hátíðinni
verður farið með það í leikskóla og
grunnskóla á svæðinu.
Leikritið Trúðar var frumsýnt á
Menningarnótt á síðasta ári og hefur
verið sýnt á leikskólum í vetur. Leik-
ritið fjallar um tvo trúða sem eru að
fara að setja upp leikrit. Þeim gengur
brösulega að eiga samskipti sín á
milli þar sem annar trúðurinn talar
bara táknmál og skapar það vanda-
mál í samskiptum þeirra á milli.
Draumasmiðjan hefur undanfarin
tvö ár verið aðili að verkefni sem
styrkt er af Evrópuráðinu þar sem
verið er að koma á fót tengslaneti fyr-
ir leikhús heyrnarlausra í Evrópu.
Draumasmiðjan á förum
á leiklistarhátíð
Morgunblaðið/Jim Smart
Trúðarnir Kolbrún Anna og Elsa
Guðbjörg ásamt Margréti Péturs-
dóttur höfundi.
Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga
Verð með hádegisverði er 2.800 kr. fyrir félagsmenn og 3.800 kr. fyrir aðra.
Vinsamlega skráið þátttöku með tölvupósti fvh@fvh.is eða í síma 551 1317.
Pétur
Blöndal
Friðjón R.
Sigurðsson
Rósa
Jónasardóttir
Hjördís
Ásberg
Eru lífeyrissjóðir
að sólunda fjármunum þínum?
Hádegisverðarfundur Félags viðskipta- og hagfræðinga
verður haldinn þriðjudaginn 25. mars nk.
í Hvammi Grand Hótel Reykjavík kl. 12.00-13.30.
• Slök ávöxtun - hverju er um að kenna?
• Er fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna of áhættusöm?
• Fyrir hverja eru lífeyrissjóðirnir?
• Hverjir „eiga“ lífeyrissjóðina?
• Hvernig eru stjórnir lífeyrissjóðanna mannaðar?
• Langtíma- eða skammtíma ávinningur?
Fyrirlesarar:
Pétur Blöndal, alþingismaður.
Friðjón Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Lífiðn.
Rósa Jónasardóttir, deildarstjóri á Lífeyrissviði
Íslandsbanka.
Fundarstjóri:
Hjördís Ásberg, löggiltur endurskoðandi.
Bjóðum margar gerðir og verðflokka
af heyrnartækjum
Stafræn forritanleg heyrnartæki sem
gefa tæran hljóm án aukahljóða
Auðvelda talgreiningu við erfiðar
hlustunaraðstæður
Sniðin að þinni heyrn og þörfum
Stilla sjálfvirkt hljóðstyrk og deyfa
bakgrunnshávaða
Veita vörn gegn skyndilegum
háværum hljóðum
Við þjónum þér:
Innifalið í verði er 2 ára ábyrgð,
endurkomur og fínstillingar
Bjóðum einnig viðvörunar- og
hjálpartæki
Nánari upplýsingar:
www.heyrnartaekni.is
Viltu heyra?
Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu
Reykjavík: Lágmúla 5
Sími: 568 6880
Akureyri: Tryggvabraut 22
Sími: 893 5960