Morgunblaðið - 23.03.2003, Síða 38

Morgunblaðið - 23.03.2003, Síða 38
UMRÆÐAN 38 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ GRILLSTAÐUR - ÞEKKT NAFN Góður vel út- búinn staður. Opið frá kl. 11.30-20.30. SÖLUTURN Í ÍBÚÐAHVERFI Velta um 32 millj. Góðar innrétt., áberandi staðsetn. KAFFIHÚS Á LAUGAVEGI Fallegur nýlegur staður með mikla möguleika. GLÆSILEG - LJÓSASTOFA - 12 BEKKIR Góð og traust afkoma. Gott verð. MATSALA - OPIÐ 8-16 Vinsæll staður á uppbyggingarstað. Mjög góð afkoma. SPORTVERSLUN - EIN SÚ ÞEKKTASTA Skór, fatn., búnaður, eigin innfl. að hluta. HÁRSNYRTISTOFA Í ÍBÚÐAHVERFI Vegna veikinda er þessi góða stofa föl. BÍLASALA Á AUSTURLANDI Gott að búa á Austurlandi og reka þar öflugt fyrirtæki. ÞJÓNUSTUSÍÐA Á NETINU Nú er tíminn. Sölumenn! Hér er tækifærið. Verð 2,5 millj. SÍÐUMÚLA 15 • SÍMI 588 5160 FYRIRTÆKI TIL SÖLU LÍTIÐ SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ BÍLAVERKSTÆÐI Góð staðsetning, 3 lyftur, góður búnaður, húsaleiga 90 þús. SNYRTISTOFA Í MIÐBÆNUM Eigin innflutn- ingur á efni, glæsilegt húsnæði. RENNIVERKSTÆÐI/VÉLSMIÐJA Traustur vandaður búnaður. BLÓMA- OG GJAFAVÖRUVERSLUN 12 ár sami eigandi, traust vel rekið fyrirtæki. ÚTGÁFUÞJÓNUSTA ÞEKKT RIT Í 60 ÁR Nægt efni, fjölbr. möguleikar, áskriftarlisti. FRAMKÖLLUNAR- & LJÓSMYNDAST. Vel tækjum búið, þekkt og rótgróið fyrirtæki. SÓLSTOFA & NAGLASTOFA Rótgróin stað- setning, traustur rekstur, nýlegur búnaður. Mikill fjöldi fyrirtækja á skrá MIKIL SALA - MIKIL SALA Nú er mikil eftirspurn eftir gisti- og ferðaþjónustu ATVINNUHÚSNÆÐI Fjöldi húsnæðis á skrá Skoðaðu alla söluskrána á heimasíðunni www.fyrirtaekjasala.is FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS Gunnar Jón Yngvasonsölu- og framkvæmdastjóri GSM 896 8232 KJARRMÓAR 9 - GBÆ Ingvar og Arna taka vel á móti áhuga- sömum og sýna hús sitt í dag sem er fallegt 140 fm (auk 20 fm millilofts) endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Fjögur svefnherbergi. Gott hús á góð- um stað. Stutt í alla þjónustu. Verið velkomin. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17 Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 husavik@husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Gvendargeisli 70 - Grafarholt Fallegt og vel staðsett 193 fm einbýlishús á einni hæð með rúm- góðum innbyggðum bílskúr á góðum stað í Grafarholtinu. Húsið er staðsett í lokaðri götu og er á byggingastigi (fokhelt í dag). Húsið skiptist í stofu, borðstofu, sjón- varpshol, eldhús, þvottahús, forstofu, herbergisálmu með fjórum svefnherbergjum og baðherbergi. Bílskúr er 34 fm. Eignin skilast fullbúin að utan með grófjafnaðri lóð og fokheld að innan, möguleiki að fá lengra komið. Verð 16,9 millj. (47) Reynir sölumaður og byggingaraðili bjóða gesti velkomna í dag frá kl. 14 til 16. Teikningar á staðnum. Opið hús í dag frá kl. 14-16 Mosarimi 11 - Sérinngangur Mjög falleg 82 fm 3ja herbergja íbúð á efri hæð í fallegu litlu fjölbýli, byggt 1994. Sérinngang- ur, tvö góð svefnherbergi og rúm- góð stofa með útgang út á suður- svalir. Baðherbergi með baðkari og tengi fyrir þvottavél. Eldhús með góðri innréttingu og borðkrók. Verð 10,95 millj. (149) Sveinn og Dagný bjóða gesti vel- komna í dag frá kl. 14 til 16. www.husavik.net Um er að ræða gullfallega 3ja her- bergja 96 fm íbúð á 1. hæð í litlu 3ja hæða fjölbýli. Fallegar innréttingar. Parket. Glæsilegur suðurgarður með verönd og skjólveggjum. Toppeign á besta stað í Kópavogi. Gjörið svo vel að líta inn, Hjördís og Jörgen taka vel á móti ykkur. Sími 568 5556 GALTALIND 10 - Kópavogi Opið hús í dag, sunnudag, á milli kl. 14 og 16 NÚ fyrir kosningarnar hefur að vonum verið mikil umræða um skattamál. Meðal mikilvægra atriða sem um hefur verið fjallað er óeðlileg skattbyrði láglaunafólks. Ýmislegt kemur þó á óvart í þessari umræðu og mest kemur á óvart að alls ekki skuli vera rætt um sum þau grund- vallaratriði í skattamálum sem mestu skipta um réttláta skiptingu skattbyrðanna. Stjórnmálabaráttan að undan- förnu hefur ekki síst snúist um það hvort fjármagn sé að færast með óeðlilegum hætti á fáar hendur hér á landi. Þess vegna kemur það á óvart að enginn áhugi skuli vera á að bera saman þróun skattlagningar á launa- fólk annars vegar og fjármagnseig- endur hins vegar. Í skattaumræðu síðustu vikna hafa tvö hugtök verið mjög áberandi: „einstaklings- skattar“ og „fyrirtækjaskattar“. Umræðan hefur verið þess eðlis að maður gæti haldið að fyrirtækin væru á kjörskrá við hlið einstakling- anna! En „fyrirtækjaskattar“ eru að sjálfsögðu skattar á einstaklinga, þeir eru skattar á eigendur fyrir- tækjanna. Tekjuskattarnir eru því annaðhvort skattar á launatekjur eða fjármagnstekjur, skattar á launþega eða fjármagnseigendur. Eigendur hlutafélaga og einstak- lingshlutafélaga greiða skatta af fjár- magnstekjum sínum annars vegar í formi „fyrirtækjaskatts“ eins og áð- ur segir og hins vegar í formi skatts á útgreiddan arð eða hagnað af sölu hlutabréfa. Eftirfarandi tafla sýnir hvernig heildarhlutfall þessara tekjuskatta á hluthafa hefur þróast frá árinu 1988 í samanburði við tekjuskatta á laun. Tölurnar sýna skatthlutfallið á hluthafa í meginat- riðum en ekki er unnt að setja þær fram af fyllstu nákvæmni vegna flók- inna lagaákvæða einkum fyrr á ár- um. Sjá töflu. Á árinu 1997 varð mikil lækkun á heildarskatthlutfalli á hluthafa eins og taflan sýnir þar sem skattur á arð og söluhagnað lækkaði þá í 10% en áður voru þessar fjármagnstekjur skattaðar eins og launatekjur. Þessi lækkun var mjög umdeild á sínum tíma en í reynd var verið að vinda of- an af mikilli tvísköttun á hluthafa. Eftir þessa lagabreytingu var komið gott samræmi milli almenns skatt- hlutfalls á laun og heildarskatta á hluthafa. Hafa þarf í huga að þessi hlutföll verða aldrei fullkomlega sambærileg. Hátekjuskatturinn stóð hins vegar eftir sem sérstök refsing á þá launþega sem vinna langan vinnu- tíma eða skara fram úr að öðru leyti. Hluthafar fengu svo mikinn glaðn- ing með lagabreytingu í árslok 2001 þegar „fyrirtækjaskatturinn“ lækk- aði úr 30% í 18%. Að viðbættum 10% skatti á afganginn varð heildarskatt- hlutfallið af fjármagnstekjunum þá 26,2%. Skattalækkunin var studd með fullyrðingum um að íslenskir fjármagnseigendur þyrftu á þessari andlegu uppörvun að halda til að fara ekki með atvinnustarfsemi sína úr landi og að lágir skattar mundu laða skattsára erlenda fjármagnseigend- ur til landsins. Þessi rök voru í heild sinni umdeilanleg og þau eiga alls ekki við um verulegan hluta þeirrar starfsemi sem rekin er í félagsformi hér á landi. Það kemur því á óvart að eftirfar- andi atriði skuli ekki þykja verð um- ræðu nú í aðdraganda alþingiskosn- inga:  Samrýmist það nútímahugmynd- um um lýðræði og jafnrétti að gíf- urlegur munur sé á skattlagningu á launamenn og fjármagnseigend- ur?  Er ekki ljóst að með því að skatta laun um allt að 43,5% en fjár- magnstekjur hluthafa um 26,2% er unnið gegn því að fjármagn landsmanna dreifist á fleiri hend- ur en nú er?  Þúsundir tekjuhárra einstaklinga hér á landi starfa hjá fyrirtækjum sem þeir stjórna jafnframt sem ráðandi hluthafar. Þeir eru því báðum megin við borðið þegar samið er um eigin laun. Er það við- unandi að mikill mismunur skatt- hlutfalla og ómarkvissar skatta- reglur leiði til þess að þessir einstaklingar geti lækkað stórlega í sköttum með því að koma miklu af tekjum sínum úr flokki launa og yfir í fjármagnstekjur?  Er viðunandi að fjöldi einstaklinga með háar tekjur geti komið sér undan greiðslu hátekjuskatts með framangreindum hætti? Er stætt á því að halda áfram álagningu há- tekjuskatts við þessar aðstæður?  Má kannski eiga von á því að ýms- ir tekjuháir einstaklingar, sem hafa hingað til verið óumdeilan- lega í hópi launþega, taki sig sam- an og stofni einkahlutafélög og selji vinnu sína í nafni félaganna til að njóta lægra skatthlutfalls? Verða kannski stofnuð forstjóra- félög, framkvæmdastjórafélög o.s.frv. í þessu skyni? Götótt umræða um skattamál Eftir Svein Jónsson „Enginn áhugi virðist á að bera saman þró- un skatt- lagningar á launafólk og fjármagnseigendur.“ Höfundur er löggiltur endurskoðandi. ! "# # #  " $# " % % ! "#   >      A ( 4   8  !"" !! !!B !!" 0330 033 ()*( (+*, -.*) -)*, /(*/ /(*/ 9A  9A  -0*/ +1*- +1*- -.*, -2*0 -2*0 , 0*, 0*, )*, )*, 0*, -0*/ +(*- +(*- +(*, +0*0 +-*0 Alltaf á þriðjudögum Moggabúðin Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr. alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.