Morgunblaðið - 23.03.2003, Side 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 43
Borgartúni 22,
105 Reykjavík,
sími 5-900-800.
KÓPAVOGSBRAUT 2 - EINBÝLI
Fallegt vel skipulagt 150 fm ein-
býlishús ásamt 40 fm bílskúr á
stórri lóð á einum besta stað í
Kópavogi. Stórar stofur. Arinn.
Fimm góð svefnherbergi. Gott
baðherbergi með góðri innréttingu.
Hellulagður suðursólpallur. Búið að endurnýja húsið að hluta m.a. þak og
flestar lagnir. Áhv. 8,8 millj. (bygg.sj. og húsbr.) Verð 22 millj.
Svanhvít tekur vel á móti þér og þínum í dag.
KAPLASKJÓLSVEGUR 27 - LAUS STRAX
Mjög góð og mikið endurnýjuð 3ja
herb. 85 fm íbúð með risherbergi
(íbúðin er stærri en skráðir fm).
ÍBÚÐIN ER ÖLL ENDURNÝJUÐ.
Ný gólfefni, innréttingar, tæki og
gler. Verið er að laga og mála
húsið að utan og greiðist það af
seljanda. Tvö baðherbergi eru í
íbúðinni, bæði flísalögð í hólf og
gólf. Góðar suðursvalir með miklu útsýni yfir vesturbæinn og KR-völlinn.
Íbúðin er mjög björt og góð með stórum gluggum. Áhv. 5,4 millj. húsbr.
Verð 12,9 millj.
Gunnar sölumaður Fasteign.is tekur vel á móti þér og þínum í dag.
HAUKSHÓLAR 2 - 2ja herb. -
LAUS BRÁÐLEGA
Mjög góð 2ja herbergja íbúð á
jarðhæð (ekki kjallari) í góðu
tvíbýlishúsi. Parket og flísar á
gólfum. Baðherbergið er flísalagt í
hólf og gólf. Eldhús með góðri
hvítri innréttingu. Stór stofa með
útg. á stóran sólpall. Allar innréttingar og gólfefni eru nýleg. Áhv. 5 millj.
húsbréf. Verð 8,9 millj. Leiknir tekur vel á móti þér og þínum í dag.
KRUMMAHÓLAR 6 - ÚTSÝNI - LAUS STRAX
Vel skipulögð og rúmgóð 3ja
herbergja íbúð á 6. hæð í lyftuhúsi
með miklu útsýni til suðurs, ásamt
stæði í bílageymslu. Parket og
flísar á flestum gólfum, nýleg
eldhúsinnrétting og stórar suður-
svalir. Húsið var allt lagað og
málað fyrir um tveimur árum. Áhv.
5,4 millj. húsbr. Verð 10,2 millj.
Jakob tekur vel á móti þér og þínum í dag. Bjalla 6b
Opið hús í dag, sunnudag,
frá kl. 14-16 á eftirtöldum stöðum
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali
Opið hús í dag
KÁRSNESBRAUT 85, NEÐRI HÆÐ
Skemmtileg mikið endurnýjuð 96 fm neðri hæð í góðu húsi í vesturbæ Kópavogs auk
30 fm bílskúrs, nýtt eldhús, nýtt bað, gólfefni o.fl. 3-4 herbergi og stofa, þetta er björt
og góð eign á rólegum stað. Verð 14,4 millj. Áhv. ca 4 millj.
Húseigendur taka á móti ykkur á milli kl. 14 og 16 í dag.
Opið virka daga kl. 9-18
laugard. kl. 12-14
Skúlagata 17
Sími 595 9000
Fax 595 9001
holl@holl.is
www.holl.is
Allar nánari upplýsingar gefur
Halldór í síma 897 3196.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
FURUGRUND 79, KÓPAVOGI
Í einkas. mjög falleg og mikið end-
urnýjuð 3ja herb. íbúð á fyrstu
hæð í fjölbýli. Parket og flísar á
gólfum, nýleg mjög falleg eldhús-
innrétting. Gott skipulag og góð og
snyrtileg sameign. Sjón er sögu
ríkari. Bjalla merkt 1a.
Verð kr. 11,5 millj.
Opið hús í dag frá kl. 14-16.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
VESTURBRAUT 24, HF.
Í einkasölu lítil en mjög hugguleg íbúð,
37 fm, á jarðhæð í þríbýli. Íbúðin er
laus. Gott eldhús og sérherbergi. Frá-
bær sem fyrstu kaup unga fólksins.
Lára og Atli taka vel á móti gestum.
Gott verð kr. 6,3 millj. Áhvílandi hús-
bréf.
Opin hús í dag frá kl. 14-16
Reynimelur 74
Mjög góð 77 fm íb. á 1. hæð í fallegu
fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað.
Stór stofa, 2 svefnherbergi. Rúmgott
eldhús með glugga. Stórar vestur-
svalir. Stutt í skóla og verslun, 10 mín.
gangur í miðbæinn. Parket. Íbúðin er
laus strax. Verð 10,8 millj. Verið vel-
komin í dag frá kl. 14-16.
Básbryggja 19
Glæsileg 105 fm íbúð á 1. hæð með
sérinngangi í þessum vinsæla stað.
Samliggjandi stofur. 2 rúmgóð svefn-
herbergi. Vandaðar innréttingar úr
kirsuberjaviði. Parket. Sérlóð. Myndir
á netinu. Íbúðin gæti hentað vel fyrir
barnafólk eða fólk í hjólastól. Áhv.
8,6 millj. húsbréf. Verð 15,0 millj.
Verið velkomin í dag frá kl. 14-16.
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Álftamýri 69
Sérstaklega skemmtilegt og mikið
endurnýjað 282 fm raðhús á þessum
frábæra stað. Stórar stofur með arni,
gengið út á timburpall úr stofu. 5
svefnherbergi. 2 baðherbergi og
gestasalerni. Nýleg sérsmíðuð eldhús-
innrétting. Parket og flísar á gólfum.
Möguleiki að gera séríbúð í kjallara. 30
fm innbyggður bílskúr. Eign í sérflokki.
Skipti möguleg á sérhæð í sama hverfi. Verið velkomin í dag milli kl. 14 og 16.
Guðrún Elín Guðlaugsdóttir Sími : 898-8716
gudrune@remax.is Sigurbjörn Skarphéðinsson lögg. fast.sali
OPIÐ HÚS Í DAG- Bergþórugata 13
Heimilisfang: Bergþórugata 13
Stærð : 51 fm
Brunabótamat: 5,9 milljónir
Byggingarefni: Steypt
Áhvílandi: 3 milljónir
Verð: 7,4 milljónir
Vel staðsett íbúð á jarðhæð með
sérinngangi, góðum garði og
sólpalli. Íbúðin er vel skipulögð
og björt með parketi og flísum á
gólfi. Verið er að endurbæta húsið
að utan. Góð íbúð á frábærum
stað.
Eignin mun verða til sýnis í dag
frá kl. 14-16.
Þingholt
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
sölustjóri – sverrir@eignamidlun.is
Óskar Rúnar Harðarson lögfræðingur
sölumaður – oskar@eignamidlun.is
EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS
– ATHUGIÐ –
Við höfum verið beðnir um að útvega til kaups fasteignir í
útleigu með traustum leigutökum á höfuðborgarsvæðinu.
Eignir án leigutaka koma til greina ef seljandi er tilbúinn til
að gera langtímaleigusamning um eignina. Um er að ræða
trausta aðila með öruggar greiðslur og koma eignir á verð-
bilinu frá 50.000.000-3.000.000.000 til skoðunar. Áhuga-
samir eru beðnir um að setja sig í samband við Óskar Rún-
ar Harðarson lögfræðing eða Sverri Kristinsson löggiltan
fasteignasala hjá Eignamiðlun. 187
Dótturfyrirtæki
Pharmaco í Danmörku
Lögbann
lagt á sölu
Citaham
UNDIRRÉTTUR í Hørsholm í Dan-
mörku hefur samþykkt kröfu Lund-
beck AS um lögbann sem kemur í veg
fyrir að dótturfyrirtæki Pharmaco,
United Nordic Pharma (UNP) AS, fái
að dreifa lyfinu Citaham (Citalopram)
þar í landi. Pharmaco hefur þegar
áfrýjað dómnum en þangað til verður
Citaham tekið af dönskum markaði.
Í tilkynningu frá Pharmaco segir
að dómurinn gangi þvert gegn nýlega
gengnum dómum. Hann byggist á
þeim forsendum að virka efnið í
Citaham, sem framleitt er af ind-
verska fyrirtækinu Matrix, geti verið
framleitt með aðferð sem mögulega
stangast á við framleiðsluferli sem
Lundbeck hefur einkarétt á.
„Þessi dómur í Danmörku er á önd-
verðum meiði við svipaða dóma sem
gengið hafa í Noregi og Finnlandi…
[–] Ólíkt því sem var í Danmörku not-
uðust finnskir og norskir dómstólar
við mat dómkvaddra matsmanna með
lyfjafræðilega og efnafræðilega sér-
þekkingu til þess að komast að nið-
urstöðu í þessu flókna máli. Lund-
beck hefur lengi barist gegn
fyrirtækjum með umdeildum aðferð-
um til að koma í veg fyrir samkeppni.
UNP hefur þegar áfrýjað niðurstöðu
undirréttar en þangað til æðra dóm-
stig hefur fellt sinn úrskurð verður
Citaham tekið af dönskum markaði.
Lögbannskrafan mun hafa óveruleg
áhrif á afkomu Pharmaco,“ segir í til-
kynningunni.
Samstarfs-
samningur við
Mælingastofn-
un Malaví
FORSTJÓRI Landhelgisgæslunnar
og framkvæmdastjóri Þróunarsam-
vinnustofnunar hafa undirritað sam-
starfssamning við Mælingastofnun
Malaví um aðstoð Landhelgisgæsl-
unnar við dýptarmælingar og korta-
gerð af Malavívatni. Samningurinn
gildir til ársloka 2004.
Samkvæmt upplýsingum frá Land-
helgisgæslunni hafa starfsmenn sjó-
mælingasviðs Landhelgisgæslunnar
unnið að verkefninu í tæp fjögur ár.
„Upphaflega gerðu Þróunarsam-
vinnustofnun og Landhelgisgæslan
samning um hluta verkefnisins árið
2000 eftir að gerð hafði verið forkönn-
un á umfangi þess. Samningurinn
sem gerður var í gær er um framhald
verkefnisins.“ Verkefnið er fjármagn-
að af Þróunarsamvinnustofnun.
Forstjóri Landhelgisgæslu og for-
stöðumaður sjómælingasviðs Þróun-
arsamvinnustofnunar notuðu tæki-
færið við undirskriftina og afhentu
yfirvöldum Malaví tvö kort af Malaví-
vatni sem eru afrakstur vinnu und-
anfarinna ára.
Úthlutað úr
Endurmennt-
unarsjóði
grunnskóla
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Endur-
menntunarsjóði grunnskóla í fimmta
sinn. Alls bárust umsóknir um styrki
til u.þ.b. 136 endurmenntunarverk-
efna og var samanlög upphæð þeirra
um 44 milljónir. Til úthlutunar voru
um 24 milljónir. Við mat á umsókn-
um var miðað við að verkefnin væru
til þess fallin að mæta þörfum grunn-
skólans, að með þeim væri fylgt eftir
skólastefnu og aðalnámskrá grunn-
skóla og að verkefnin fullnægðu
kröfum um fagmennsku og gæði.
Tillaga sjóðstjórnar er að veittur
verði styrkur til 100 verkefna sam-
kvæmt umsóknum fyrir samtals um
22 milljónir. Lagt var til að veittur
yrði tveggja milljón króna styrkur til
verkefnis Olweusar gegn einelti.
DILBERT mbl.is