Morgunblaðið - 23.03.2003, Side 46
MINNINGAR
46 SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sviðið er Faxaskjól
og árið er 1983. Fjaran
er ósnortin. Þúfur og
njólar handan götunn-
ar og hátt grasið bærist
í vindi. Austurkot og skemman á sín-
um stað. Ung hjón hafa fest kaup á
húsi í götunni og nú á að láta drauma
rætast. Þau hafa hætt sér inn á yf-
irráðasvæði frumbyggja í hverfinu
sem með elju og dugnaði komu yfir
sig þaki þegar seinna stríð var að
renna sitt skeið. Þar hafa litlar eig-
endabreytingar orðið á húsunum og
er parinu ljóst að þeirra hús er það
fyrsta í götunni sem skiptir um eig-
endur síðan 1945. Þau eru því spennt
að vita hvernig þeim verður tekið.
Flestir nágrannarnir eru einni til
tveimur kynslóðum eldri en þau og
ljóst að þessi tímamót marka þátta-
skil í lífi frumbyggjanna. Endurnýj-
unin er hafin. Þessi óumflýjanlega
hringrás lífsins þar sem allt á sér
upphaf og endi.
Það er skemmst frá því að segja að
kvíðinn reyndist með öllu ástæðu-
laus.
Okkur þessu unga pari var tekið af
einstakri hlýju. Fóru þar fremst í
flokki Þorsteinn Davíðsson og Stella
ÞORSTEINN
DAVÍÐSSON
✝ Þorsteinn Dav-íðsson fæddist á
Þórshöfn á Langa-
nesi 12. febrúar
1918. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 12. mars
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Dómkirkjunni 20.
mars.
kona hans. Þau voru
okkar næstu nágrann-
ar og voru fljót að
bjóða okkur velkomin í
götuna. Ætíð síðan
voru þau vakin og sofin
yfir velferð ungu fjöl-
skyldunnar og fylgdust
grannt með uppvexti
og þroska barnanna.
Tóku þátt í gleði okkar
og sorgum. Þau voru
einstök, samhent og af-
skaplega ljúfar mann-
eskjur en umfram allt
góðir grannar.
Það var gaman að
sitja með þeim og hlusta á frásagnir
þeirra frá byggingartíma götunnar.
Þau voru hafsjór af fróðleik og nú er
skarð fyrir skildi að hafa ekki skráð
hjá sér frásagnir þeirra. Mikil var
útsjónasemi ungra húsbyggjenda
þegar ekkert var til af almennilegu
byggingarefni. Þá voru kröfurnar
ekki eins miklar og í dag þegar öllum
finnst sjálfsagt að eiga allt af öllu.
Flestir þeir sem hér byggðu leigðu
út frá sér og bjuggu jafnvel bara í
tveimur til þremur herbergjum sjálf-
ir. Það þurfti að fjármagna byggingu
hússins, drauma þeirra rétt eins og
unga parsins. Það var útsjónarsemin
sem dugði.
Stella lést árið 1992 eftir erfið
veikindi. Þorsteinn stóð sem klettur
við hlið hennar og var söknuðurinn
mikill þegar hún fór. Síðan hefur
hann búið einn í húsi sínu, en seinni
árin hefur Áslaug sonardóttur hans
búið niðri hjá honum ásamt lítilli
Stellu.
Þorsteinn var glæsilegur maður.
Hann var mikill smekkmaður og
ávallt einstaklega vel til fara hvort
sem haldið var í gönguferð um hverf-
ið, í brids eða í bíltúr. Það var eftir
honum tekið. Sannkallaður herra-
maður.
Hann rak heimilið einn af stakri
prýði. Eldaði sjálfur og bakaði sem
er einstakt af manni af hans kynslóð
enda var hann höfðingi heim að
sækja. Hann hugsaði um garðinn og
naut þess meðan hann gat, vildi hafa
allt snyrtilegt. Hann var sjálfstæður
og sjálfbjarga. Það var hans lífsstíll.
Hann var hnyttinn í tilsvörum og
skemmtilegur viðræðu. Við vorum
ekki ávallt sammála, sérílagi varð-
andi stjórnmál en þau urðu oftar en
ekki efni í glettnislegar umræður.
Bæði höfðu gaman af.
Hann fylgdist af alúð með fram-
kvæmdum okkar í og við húsið og lét
uppi álit sitt á ýmsu þar að lútandi.
Hann var eins áhugasamur og væri
hann sjálfur á kafi í framkvæmdum.
Það eru góðar minningar. Í sumar
var ætlunin að skála í kampavíni á
nýju stéttinni okkar þegar allt yrði
tilbúið. Nú er ljóst að svo verður
ekki.
Sviðið er enn Faxaskjól. Margt
hefur breyst sem sannarlega er
söknuður að. Fjörukamburinn
manngerður, þúfurnar og njólinn
hafa vikið fyrir sléttu grasinu. Aust-
urkot og skemman sömuleiðis.
Gömlu nágrannarnir horfnir af svið-
inu. Breytingar eru tákn framrásar
tímans. Nú er nýr kafli hafinn með
nýju fólki og hringrásin heldur
áfram.
Okkur er efst í huga þakklæti fyrir
að hafa átt í öll þessi ár samfylgd
með Þorsteini og Stellu. Ár sem
hefðu orðið um svo margt fátæklegri
ef þeirra hefði ekki notið við. Hafi
þau þökk fyrir allt og allt. Blessuð sé
minning þeirra sæmdarhjóna.
Margrét, Ólafur Jón og börn.
✝ Sigríður MaríaKonráðsdóttir
fæddist í Vestmanna-
eyjum 9. september
1916. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Ási í Hveragerði 16.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Konráð
Ingimundarsson, f.
26. júní 1886 í Vest-
mannaeyjum, d. 6.
júlí 1957 í Reykjavík,
og Guðrún Sigríður
Einarsdóttir, f. 12.
ágúst 1886 á Húsavík
í Borgarfirði eystra, d. 3. febr. 1967
í Reykjavík. María ólst upp hjá Jó-
hanni Guðmundssyni og Guðnýju
Stefánsdóttur í Vestmanneyjum.
Systkini Maríu eru: Jón Einar Kon-
ráðsson, f. 10. okt. 1909 í Vest-
mannaeyjum, d. 28. júlí 1985 í
Reykjavík; Nikólína Guðfinna Kon-
ráðsdóttir, f. 12. maí 1912 í Vest-
mannaeyjum, d. 9. jan. 1991 í
Reykjavík; Konkordía Konráðs-
dóttir Nielsson, f. 28. apríl 1915 í
Vestmannaeyjum; Pálína Konráðs-
dóttir, f. 1917, d. 1921; Símon Ingv-
ar Konráðsson, f. 17. júní 1919 í
Vestmannaeyjum; Sigurveig Stella
Konráðsdóttir, f. 28. febr. 1922 í
Reykjavík; Ágúst Ingimundur Kon-
ráðsson, f. 2. júlí 1923, d. 4. febr.
1982; og Elínberg Sveinbjörn Kon-
Óskar Elíasson, f. 8. ágúst 1947.
Börn þeirra eru Elías, f. 25. júní
1970, maki Gaenor Marie Evans, f.
24. jan. 1972. Börn þeirra eru: Kay-
leigh Erin og Óskar Ywan; María,
f. 3. júlí 1972, maki Kristófer Elías
Bjarnason, f. 28. febr. 1970. Börn
þeirra eru Selma Dröfn, Rakel Ósk
og Nökkvi Már; og Daði Óskarsson,
f. 17. nóv. 1981. 3) Sigurður Guð-
jónsson, f. 1. maí 1952, maki Ólöf
Geirmundsdóttir, f. 22. nóv. 1953.
Börn þeirra eru: Geirmundur, f. 28.
mars 1975, maki Margrét Guð-
mundsdóttir, f. 23. nóv. 1976. Barn
þeirra er Valgeir Hugberg; Helga,
f. 25. maí 1977; Fjóla Dögg, f. 22.
júní 1989. 4) Margrét Guðjónsdótt-
ir, f. 21. sept. 1955, maki Ómar
Halldórsson, f. 22. febr. 1954. Börn
þeirra: Kristín Ósk, f. 17. febr.
1981, Hjalti, f. 6. júlí 1984, og Guð-
geir Óskar, f. 16. nóv. 1992.
Þegar María hafði aldur til fór
hún í vist m.a. til Grindavíkur og í
Reykjavík. Um tvítugt fór hún
ásamt Díu systur sinni til Dan-
merkur til að vinna á Skodsborg og
vann þar um tíma, en kom heim áð-
ur en stríðið lokaði öllum heim-
komuleiðum. Vann hún við versl-
unarstörf í Reykjavík þar til hún
giftir sig og flytur að Reykjavöllum
í Biskupstungum 1947, þar sem þau
ráku garðyrkjustöð til ársins 1953,
voru um tvö ár í Víðigerði í Reyk-
holti í Biskupstungum, en 1955 fara
þau til Hveragerðis og bjó hún þar
til dánardags. Um tíma þegar börn-
in voru vaxin úr grasi, vann hún
verslunarstörf og seinna hjá Kjörís.
María var jarðsungin frá Hvera-
gerðiskirkju 22. mars.
ráðsson, f. 28. nóv.
1928.
Dóttir Maríu og
Kjartans Benjamíns-
sonar, f. 2. sept. 1920 í
Reykjavík, d. 31. mars
1996 í Reykjavík, er
Guðný Jóhanna, f. 13.
febr. 1945, maki Ólaf-
ur Hannes Kornelíus-
son, f. 5. sept. 1945.
Synir þeirra eru: Guð-
jón, f. 19. jan. 1966, og
Helgi, f. 22. febr. 1970,
maki Þórhildur Guð-
mundsdóttir, f. 11.
nóvember 1970, barn
þeirra er Elfur.
Hinn 8. febr. 1947 giftist María
Guðjóni Hugberg Björnssyni, f. 19.
des. 1919 í Reykjavík, d. 1. ágúst
1997 á Selfosssi. Foreldrar hans
eru Björn Jóhannsson, f. 27. nóv.
1866 á Selnesi á Skaga, d. 23. des.
1947 í Reykjavík og k.h. Margrét
Vigfúsdóttir, f. 24. nóv. 1881 í Mið-
húsum í Reykjavík, d. 19. júní 1942
í Reykjavík. Börn Maríu og Guð-
jóns eru: 1) Björn Guðjónsson, f. 10.
okt. 1947, maki Ásta Gunnlaugs-
dóttir, f. 9. febr. 1955. Börn þeirra:
eru Gunnlaugur, f. 8. nóv. 1977,
maki Þorbjörg Hlín Sigurðardótt-
ir, f. 24. júlí 1979, Guðjón Hugberg,
f. 1. maí 1982, og Hafþór Vilberg, f.
7. des. 1987. 2) Ingibjörg Sigrún
Guðjónsdóttir, f. 6. okt. 1950, maki
Hinn 16. mars síðastliðinn dó hún
amma mín. Eftir er mikill söknuður,
en ég veit að núna líður henni vel.
Hún er kominn á betri stað, eða eins
og níu ára dóttir mín sagði:
„Mamma mín, þetta er allt í lagi,
hann afi tók á móti henni ömmu.“
Þetta er svo einfalt og fallegt. Hún
amma átti góða ævi, eignaðist fimm
börn, fimmtán barnabörn og sjö
barnabarnabörn.
Ég sit hér heima við eldhúsborðið
á Heiðmörk 5 og hugsa til þín, ég fæ
stóran kökk í hálsinn og það þrýstir
fast á augnlokin. Ég er nefnilega í
eldhúsinu þínu, í húsinu sem þú og
hann afi minn keyptuð og bjugguð í
mestallan ykkar tíma í Hveragerði.
Ég læt hugann reika til þess tíma
þegar ég kom til þín í lummur eftir
skóla. Þá sátum við saman og spjöll-
uðum um allt milli himins og jarðar.
Ef ég var þreytt gat ég lagt mig á
dívaninn hans afa.
Það var alltaf hægt að leita til þín
ef eitthvað bjátaði á, bara til að
spjalla og jafnvel þiggja smáráð.
Það var alltaf svo mikill friður yfir
heimilinu hjá ykkur afa. Heimili
ykkar var mitt annað heimili á með-
an ég bjó í Hveragerði og seinna
þegar við hjónin fluttum aftur til
baka keyptum við húsið ykkar afa.
Ég tók ekki eftir því að aldurinn
var farinn að segja til sín því hug-
urinn var alltaf skýr þó svo að
kroppurinn væri farinn að gefa sig.
Maður ætlast líka til þess að ömmur
verði alltaf til. Ég á góðar minningar
og þær varðveiti ég í hjarta mér.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
María Óskarsdóttir.
MARÍA
KONRÁÐSDÓTTIR
✝ Sigrún JohnsenLangelyth fædd-
ist 8. júlí 1936 í Kaup-
mannahöfn. Hún lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
5. mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru John Mauritz
Langelyth sjúkra-
þjálfari, f. í Dan-
mörku 1905, d. 1976,
og Dagbjört Jóns-
dóttir Langelyth
sjúkraþjálfari, f. á Ís-
landi 1904, d. 1974.
Sigrún giftist 23.5.
1959 Vigni B. Árnasyni, hús-
gagnasmíðameistara og kennara,
f. 15.8. 1934. Börn þeirra eru: 1)
Helena, f. 21.9. 1959, maki Hjálm-
ar Hjálmarsson, f. 16.8. 1960, þau
skildu, börn þeirra eru Sigrún
Rut, f. 19.1. 1983, og Helgi Hreinn,
f. 6.1. 1986. 2) Hreinn, f. 5.9. 1961,
d. 15.2. 1962. 3) Arnar B., f. 24.9.
1965, sambýliskona Hallfríður
Hrund Jónsdóttir, f. 8.7. 1967,
börn þeirra eru Kristján Örn, f.
17.1. 1990, og Hall-
fríður Jónína, f.
22.12. 1998.
Sigrún fæddist í
Kaupmannahöfn og
ólst þar upp til rúm-
lega tvítugs. Hún hóf
hjúkrunarfræðinám
í Kaupmannahöfn,
en nam ¾ hluta þess
við H.S.Í. og lauk
þaðan námi í apríl
1959. Sigrún starfaði
síðan á Fæðingar-
deild Landspítalans,
St. Jósepsspítala í
Reykjavík og Land-
spítalanum v. Hringbraut til 1964.
Hún hóf störf hjá Krabbameins-
félagi Íslands 1967 og starfaði þar
í 12 ár. Þar næst á Vistheimilinu
að Vífilsstöðum og lungnadeild-
inni á Vífilsstöðum. Sigrún var síð-
an deildarstjóri á göngudeild syk-
ursjúkra frá 2. febrúar 1986 þar til
hún varð frá að hverfa vegna veik-
inda í lok árs 2001.
Útför Sigrúnar var gerð frá
Fossvogskirkju 13. mars.
Kveðja frá samstarfsfólki við
göngudeild sykursjúkra
Látin er Sigrún Johnsen Lang-
elyth, hjúkrunarfræðingur, eftir
langa og erfiða sjúkdómsbaráttu.
Sigrún var hjúkrunarfræðingur
„af gamla skólanum“ í bestu merk-
ingu þeirra orða.
Allt hennar starf einkenndist af
samviskusemi, nákvæmni og trú-
mennsku ásamt einlægum vilja til
þess að hjálpa og líkna.
Sigrún var deildarstjóri göngu-
deildar sykursjúkra á Landspítala
frá febrúar 1986 og gegndi því starfi
þar til í nóvember 2000, þegar ill-
vígur sjúkdómur tók yfirhöndina.
Einn af hornsteinunum í meðferð
sykursjúkra er að hjálpa þeim að
takast á við sjúkdóm sinn þannig að
þeir geti lifað sem eðlilegustu lífi og
helst verið jafn heilsuhraustir og
hver annar. Hér gegnir hjúkrunar-
fræðingurinn lykilhlutverki. Þetta
hlutverk tók Sigrún mjög alvarlega
og lagði metnað í að sem bestum ár-
angri væri náð. Hvort sem hún var
að þjálfa sykursjúka manneskju í
því að sprauta sig með insúlíni, í
blóðsykurmælingum eða að öðru
leyti kenna réttu tökin á sjúkdómn-
um og hvetja til dáða, var allt gert
með sömu alúðinni og vandvirkn-
inni.
Í starfi var Sigrún kröfuhörð, þó
kannske mest við sjálfa sig. Hún var
viðkvæm og skapmikil og það gat
gustað í kringum hana. Henni var
umhugað að allt væri í röð og reglu
og hún stóð ætíð dyggilega vörð um
göngudeildina og vildi veg hennar
sem mestan með hagsmuni hinna
sykursjúku að leiðarljósi.
Sigrún lagði mikla áherslu á að
viðhalda faglegri þekkingu sinni og
sótti ráðstefnur og námskeið um
sykursýki bæði heima og erlendis.
Við samstarfsfólk Sigrúnar við
Göngudeild sykursjúkra þökkum
henni samfylgdina og sendum ást-
vinum hennar hlýjar samúðarkveðj-
ur.
Ástráður B. Hreiðarsson.
SIGRÚN JOHNSEN
LANGELYTH
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn