Morgunblaðið - 23.03.2003, Síða 57
óþægilega opinskáar og
erfiðar á að hlusta því
angistin var allsráðandi.
Það var ekki fyrr en á
þriðju plötunni, Moon Pix,
að Marshall fór að róast,
ná áttum og fagna lífinu.
Hún segir að um það leyti
sem hún hljóðritaði plöt-
urnar þrjár hafi henni lið-
ið eins og hún væri ut-
angarðs, ófær um að
stjórna eigin lífi og í raun
óvelkomin. Á tónleikum í
New York 1997 sauð svo
uppúr; hún segist hafa
hugleitt það alla tón-
leikana hvernig hún ætti
að fyrirfara sér á sviðinu,
að djöfullinn væri á staðn-
um, en áheyrendur komu í
veg fyrir það. Hún dró sig
í hlé frá tónlistinni um hríð og fluttist
út fyrir borgina og hefur ekki búið í
New York síðan; segist ekki geta ein-
beitt sér að tónlist þar, meðal annars
vegna þess að hún þekki of marga
tónlistarmenn, enda vilji hún ekki
bara vera tónlistarmaður, það sé svo
margt sem hana langar til að gera
annað, það hafi aldrei vakað fyrir
henni að lifa af tónlist.
Reyndar hlustar hún að sögn ekki
mikið á tónlist þó hún kaupi sér oft
plötur þá hlusti hún sjaldnast á þær
og allra síst á sínar plötur. „Þegar ég
hlusta á þær man ég svo vel hvernig
mér leið og hvað ég var að gera á
þeim tíma og það er svo margt sem
mig langar einmitt ekki til að muna.“
Útlegðin frá músíkinni entist þó
ekki nema nokkra mánuði því þegar
fyrrverandi sambýlismaður hennar
og vinur, Bill Callahan, sem kallar sig
(Smog), bauð henni að koma með sér í
tónleikaferð til Ástralíu þáði hún boð-
ið, en Callahan söng einmitt um áfall
Marshall á plötu sinni Knock Knock,
sem frægt varð. Í Ástralíu kynntist
Marshall þeim Dirty Three félögum
Mick Turner og Jim White og þegar
kom að því að hana langaði til að taka
upp plötu aftur leitaði hún til þeirra
og hljóðritaði Moon Pix á tveimur
dögum 1998. Sú plata fékk frábæra
dóma, er enda framúrskarandi.
Auðveldara að leika lög eftir aðra
Þrátt fyrir góðar viðtökur og ágæt-
is sölu varð þó bið á plötu með nýju
efni, því næsta skífa var með lögum
eftir aðra; The Covers Record. Sú
plata var tekin upp á þremur dögum
og kom út fyrir rúmum tveimur ár-
um, var aftur á móti safn laga eftir
aðra, þar á meðal Bob Dylan, Rolling
Stones, Bill Callahan (Smog), Velvet
Underground, Moby Grape og Mich-
ael Hurley, en útgáfur hennar á lög-
unum voru flestar all frábrugðnar
fyrirmyndunum og sumar svo frá-
brugðnar að varla mátti þekkja upp-
runalegt lag, nefni sem dæmi Satis-
faction Rollinganna sem verður
hægfara blús, en hún tekur einnig lag
eftir sjálfa sig sem henni fannst aldrei
hljóma rétt og breytir umtalsvert.
Marshall segist hafa gefið út plötu
með lögum eftir aðra vegna þess að
hana langaði að leyfa fólki að heyra
hvaða lög stóðu hjarta
hennar næst, en einnig
taldi hún að með því móti
myndi hún losna við viðtöl
og álíka umstang, gæti
bara einbeitt sér að því að
spila á tónleikum til að
kynna plötuna og ætlaði
þá að leika ný lög eftir
sjálfa sig. Hún á það líka
til á tónleikum að leika að-
eins lög eftir aðra, finnst
það auðveldara en að
flytja eigin tónlist, auð-
veldara að vera hlutlægur
og hæfilega fjarlægur, og
svo finnst henni ómögu-
legt að fólk sé að klappa í
sífellu; best væri ef allir
sætu á sér þar til tónleik-
arnir eru búnir og gætu
þá klappað þegar hún
væri farin af sviðinu.
Síðan eru sem sé liðin þrjú ár og
fimm ár alls frá því Marshall sendi
síðast frá sér plötu með eigin frum-
sömdu efni og því óneitanlega tals-
verður fengur að You Are Free sem
kom út í liðinni viku. Á plötunni eru
tólf ný lög eftir hana en einnig lag eft-
ir Michael Hurley og annað eftir John
Lee Hooker, bæði svo breytt að þau
gætu eins verið eftir Chan Marshall.
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 57
mbl.isFRÉTTIR
Komin á DVD
og VHS í næstu
verslun
DVD útgáfan er troðfull
af töff aukaefni!
N† TEGUND TÖFFARA