Morgunblaðið - 23.03.2003, Qupperneq 59
plötu. Okkur finnst hún hrárri og við
vorum ekki að „vinna“ hana eins mik-
ið og gert var með hinar plöturnar.“
Placebo eru nú á mála hjá Virgin
og segir Hewitt kostinn við það að
bakhjarlinn sé nú sterkur. Að-
spurður hvort erfitt sé að halda í
hugsjónirnar þegar menn eru komn-
ir inn í slíka „vél“ sem stór fyrirtæki
geta verið, segir hann að þeir hafi
lýst því hvernig þeir vildu hafa hlut-
ina áður en þeir skrifuðu undir.
„Allt hvað varðar ímynd og list-
ræna hönnun er t.d. í okkar hönd-
um.“
Dave frændi
Einn af þekktari Placeboaðdáend-
um heims er David nokkur Bowie.
Svo mikil er aðdáunin að sveitin tók
upp nýja útgáfu af titillagi plötunnar
Without You I’m Nothing (’98) og
gáfu út árið 1999.
„Bowie er mjög áhugasamur um
hvað er að gerast í tónlist í dag og
hann sjálfur hefur verið duglegur við
að leita nýrra leiða við sína tónlist-
arsköpun,“ lýsir Hewitt. „Mér finnst
það rosalegt að hann hafi sýnt okkur
svona mikinn áhuga. Við hljótum þá
að vera að gera eitthvað rétt (hlær).
Bowie er séntilmaður fram í fing-
urgóma og það liggur alltaf vel á hon-
um. Það myndi alltént liggja mjög vel
á mér ef ég væri David Bowie (hlær
hærra). Við köllum hann Dave
frænda núna.“
En hvernig ætli það sé að vera með
svona „stórum“ persónuleika eins og
Brian Molko í hljómsveit?
„Jaa ... ég er búinn að þekkja hann
í fjórtán ár þannig að ég er ónæmur
fyrir því hvernig látið er með hann.
Hann er vinur minn. Mér finnst hann
bara skemmtilegur og það er gaman
að vera með honum í hljómsveit. Vin-
skapur okkar þriggja hefur reyndar
vaxið í gegnum árin og við erum nán-
ari en nokkru sinni eftir þessa plötu.“
Sleeping with Ghosts kemur í búðir
á morgun.
arnart@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MARS 2003 59
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. besta mynd og aðalhlutverk
kvenna Nicole Kidman
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
SV MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com13
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m.
besta mynd
kvikmyndir.com
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna6 il ef i ar tils ars er la a
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i 16 .
9
Sýnd kl. 3 og 5.30. B.i. 12
Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20. B.i 12
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i 12
HJ MBLHK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20. B.i. 12.
„Ein besta mynd ársins“Fréttablaðið
Kvikmyndir.com
SG DV
HL MBL
Frábær spennutryllir sem hræðir
úr þér líftóruna.
Þegar röðin er komin að þér þá
flýrðu ekki dauðann!
www.laugarasbio.is
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 2, 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 16.
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. Tilboð 400 kr.
Þegar röðin er komin að þér
þá flýrðu ekki dauðann!
Frábær spennutryllir sem
hræðir úr þér líftóruna.
Skemmti-
legasta
rómantíska
gamanmyndin
síðan Pretty Woman!
Rómantík, grín og góð
tónlist í frábærri mynd!
BRESKI söngvarinn Robbie Will-
iams hefur lýst því yfir að hann
styðji hermenn bandamanna í Mið-
Austurlöndum og vilji lýðræði í
Írak. Söngvarinn knái gaf út þessa
yfirlýsingu til að útskýra tilvonandi
smáskífuna „Come Undone“. Hann
sagði að lagið á B-hliðinni, „Happy
Easter (War Is Over)“, sem kemur
út 14. apríl, sé ekki pólitísk yfirlýs-
ing gegn stríði.
„Lagið var samið löngu áður en
stríð braust út í Írak og sýnir því
ekki mín persónulegu viðbrögð.
Lagið er að engu leyti yfirlýsing af
minni hálfu gegn stríði í Írak. Ef ég
semdi lag gegn stríðrekstri þá færi
það ekkert milli mála í textanum,“
sagði Robbie en segist samt ekki
vera stuðningsmaður stríðs.
Madonna er öllu beinskeyttari í
yfirlýsingum sínum. Smáskífa
Robbie kemur út á sama tíma og
smáskífa poppdrottningarinnar,
„American Life“, en myndbandið
við lagið felur í sér harða gagnrýni
á stríðið.
Robbie Williams styður hermenn bandamanna
Ekki beint
gegn stríði
Reuters
Friður eða sigur? Robbie Williams
virðist ekki geta ákveðið sig hvort
hann sé með eða á móti stríði.