Morgunblaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2003 B 15 vinnuvélar ÞEIR sem vinna á þungum vinnu- vélum hafa allflestir lent í því að það springur á dekki. Það kostar talsverða vinnu og fyrirhöfn að skipta um og auk þess hefur þetta óhjákvæmilega í för með sér vinnu- tap. Bandaríska fyrirtækið Arnco hefur sérhæft sig í því að koma í veg fyrir að það geti sprungið á dekkjum. Þeirra aðferð er sú að sprauta úreþani inn í dekkin og gera þau massíf með efninu. Dekkin halda engu að síður fjöðrunareig- inleikum eins og þau væru með lofti. Íslenskir umboðsmenn þess- arar tækni hafa hafið störf á Smiðjuvegi 34 og hafa fengið þó nokkur verkefni, m.a. frá ÍSAL og Skipalyftunni í Vestmannaeyjum. Auk þess að koma í veg fyrir vinnu- tap sem hlýst af því þegar springur á dekki hefur þessi tækni í för með sér að fjöðrunareiginleikar batna og ending dekkja stóreykst. Úreþan- efnið er í vökvaformi og er sprautað með sérstakri dælu inn í dekkin. Þar tekur það sig og verður eins og gúmmí. Kevin Hauksson, umboðs- maður Arnco á Íslandi, segir að kostnaður við að fylla í dekk sé svipaður og kostnaður við nýtt dekk. Á hinn bóginn verði ending dekksins margfalt meiri og ekki þurfi að hafa áhyggjur af vinnutapi þótt springi. Hægt er að fylla öll venjuleg slöngudekk með efninu. Tækin þyngjast við þetta en eru sögð fá aukinn stöðugleika og veg- grip. Þeim vilja kynna sér þessa tækni er bent á umboðsmenn Arnco á Smiðjuvegi 34. Brynjur Fyrirtækið Hvellur hefur verið með á markaðnum svokallaðar brynjur sem hlífa dekkjum vinnu- véla og auka endingu þeirra. Brynj- urnar nota verktakar í stærri verk og þá fyrst og fremst til að hlífa dekkjum. Áætla má að vinnuvél sem vinnur í hvössu grjóti (sprengi- grjóti) eyðileggi dekk á u.þ.b. 2.000 tímum. Sagt er að nota megi dekk í 10.000 tíma með brynju. Slöngudekk gerð massíf eða brynjur Eins og sjá má skiptir ekki máli þótt oddhvassir hlutir stingist í dekkið þeg- ar það hefur verið fyllt með úreþani. MARGIR þurfa á lítilli gröfu, trakt- orsgröfu eða öðrum áhöldum að halda þegar gera á breytingar og endurbætur á garðinum. Það kostar sitt að fá tæki með manni en ódýrara er að leigja tækið og vinna verkið sjálfur. Hjá Kraftvélaleigunni er fjöldi tækja til leigu, allt frá hekkk- lippum og keðjusögum til traktors- grafa. Tækin eru leigð allt frá hálfum degi og upp í mánuð, allt eftir þörf- um hvers og eins. Sem dæmi má nefna að hekkklippur sem ganga fyr- ir bensíni eru leigðar á 2.210 kr. fyrir hálfan dag og 3.400 kr. fyrir heilan dag. Vikan kostar 17.000 kr. Mini- grafa af Komatsu-gerð kostar frá 8.368 kr. hálfur dagur og upp í 16.373 kr. Dagurinn kostar þá 16.736 kr. fyrir minni gröfuna og 32.746 kr. fyr- ir þá stærri. Traktorsgrafa kostar 15.217 kr. hálfur dagur og 30.433 kr. heill dagur. Að sögn Sigurðar Jónssonar hjá Kraftvélaleigunni er reyndar allur gangur á því hvort fólk kann á tækin. Lögin eru þannig að almenningur getur fengið leigða allt að 45 tonna gröfu án þess að hafa réttindi til að stjórna tækinu, svo fremi sem tækið er notað inni á lóð þess sem leigir hana. Mikið er um að menn leigi smágröfur og beltavagna þegar ver- ið er að moka fyrir sólpöllum eða gera dren í kringum hús. Smágröf- urnar eru einfaldar í notkun og flest- ir ráða við þær. Kraftvélaleigan flytur tækin til þeirra sem leigja en einnig leigir fyr- irtækið út kerrur til að flytja þau. Mikil eftirspurn myndast jafnan á vorin eftir tækjunum og stundum er bið. Þess má geta að Húsasmiðjan er einnig með útleigu á vinnuvélum. Minigröfur á leigu Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Nú geta garðeigendur leigt sér traktorsgröfu fyrir næstu framkvæmdir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.