Morgunblaðið - 01.04.2003, Page 1
Þriðjudagur
1. apríl 2003
Prentsmiðja
Morgunblaðsinsblað B
– fyrir þína hönd
Kynntu þér víðtæka þjónustu okkar á sviði lífeyrismála hjá ráðgjöfum
okkar í Ármúla 13, í síma 515 1500 eða á Lífeyrisvef Kaupþings,
www.kaupthing.is/lifeyrir. Einnig getur þú fengið ráðgjafa heim
þegar þér hentar.
Við nýtum færin
í þína þágu við ávöxtun lífeyrissparnaðar
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Lóðirfjöl-
býlishúsa
Skipulagning og
kostnaðarskipting 12
Samtök
aldraðra
Austur-
stræti22
Nær 300 íbúðir
fyrir aldraða 30
Þekkt hús í
miðborginni 38
"# $ % &' # (& ) & #
(# && ) & # # " $ % '
" $ '& & # # % # (( )
* ! !
+
& !
+
,-.
/
,-.
/
0
!
"#$
"%$! "&&'
12+3+
$3
&
4
567
.38
94
-:!
$
;!+!<
& ;!+!<
)+2
;!+!<
& ;!+!<
!
(
. / ( +
&+= / >>>!!
? 3@ A B
!
!
!
!
! ! ! !"0
#$
)*
+" 3@ A B
#"-
"
-
".
"/
%
"
#0&
"$/..
#'1/
##
"2012
".1'
)7 B
3! 4
! $ "-$
'&$! "&&'
9 +
,
(
% ""
! !
!
!
! !
$ $
KAFFI Reykjavík, rekstur og fast-
eign eru nú til sölu hjá fasteignasöl-
unni Miðborg. Húsið er timburhús,
kjallari, tvær hæðir og ris, alls 1.314
ferm. „Það er í góðu ásigkomulagi
og hefur fengið gott viðhald,“ segir
Þorlákur Ómar Einarsson hjá Mið-
borg.
„Í húsinu er rekinn landsþekktur
veitingastaður, Kaffi Reykjavík,
sem fylgir með í kaupunum. Húsið
er á bezta stað í hjarta Reykjavíkur.
Það liggur vel við bæði gangandi
umferð og bílaumferð.“
Veitingarekstur er í kjallara, á
allri fyrstu hæð og hluta annarrar
hæðar. Einnig er á annarri hæð og í
risi gott skrifstofuhúsnæði, sem auð-
velt er að nýta sér með aðkomu í
gegnum stigahús, sem snýr að
Tryggvagötu. Möguleiki er á bygg-
ingarrétti á lóð Tryggvagötumegin.
Löng og litrík saga
Saga þessa húss er samofin sögu
Reykjavíkur og það er vafalaust eitt
merkasta hús borgarinnar. Það var
reist við norðurenda Aðalstrætis ár-
ið 1863 og var þá kallað Bryggju-
húsið, en það stóð við enda bryggj-
unnar og dró nafn sitt af henni.
Húsið í núverandi mynd er samt all-
mikið breytt.
Það var C. P. A. Koch sem lét
byggja húsið, en hann var atkvæða-
mikill útgerðarmaður og einn af eig-
endum Sameinaða gufuskipafélags-
ins, sem hafði skip í förum til
Íslands. Með skipum þess var póst-
ur fluttur frá og til landsins ásamt
öðrum varningi.
Það skilyrði fylgdi leyfi fyrir
byggingunni, að opinn gangur væri í
gegnum húsið að bryggjunni. Um
ganginn fóru fyrst og fremst þeir
sem erindi áttu þangað, en gang-
inum var lokað seint á þriðja tug
tuttugustu aldar.
Húsið var fyrst einlyft með port-
byggðu risi. Yfir ganginum var stór
kvistur, sem vísaði út að Aðalstræti.
Vegna staðsetningar sinnar varð
húsið samkomustaður sjómanna og
þeirra sem erindi áttu á bryggjuna.
Einnig má segja, að það hafi verið
borgarhlið, langflestir sem komu
langt að eins og utan af landsbyggð-
inni fóru sjóleiðina auk allra þeirra
sem komu frá útlöndum eða fóru til
útlanda.
Meðeigandi C. P. A. Koch varð
síðar P. L. Henderson á Vesturgötu
5. Árið 1870 seldu þeir Koch og
Henderson Sameinaða gufuskipa-
félaginu eignina. Fischerverzlun
eignaðist húsið 1880 og var þá
bryggjan nefnd Fischerbryggja. Ár-
ið 1904 tók Duusverzlun við eigninni
og bryggjunni, sem þá var farið að
kalla Duusbryggju.
Árið 1907 var gerð einlyft bygg-
ing austan við húsið en áföst því,
byggð úr timbri með lágu risi, teikn-
uð af Einari Erlendssyni. Það hús
var notað sem pakkhús. Ári seinna
var gerð breyting á þakinu og sett á
það hátt valmaþak með turni upp úr
og um leið voru bogadregnir kvistir
gerðir á þakið og einnig á þak
Bryggjuhússins.
Húsið hækkað
Árið 1927 keyptu Natan & Olsen
húsið af H. P. Duus og ári síðar var
það hækkað og gert tvílyft. Líklegt
er, að þá hafi ganginum í gegnum
húsið verið lokað. Pakkhúsið var
hækkað árið 1938 og þessi tvö hús
gerð að einu húsi.
Húsið skipti síðan þó nokkrum
sinnum um eigendur og var lengi
notað til ýmiss konar verzlunar-
reksturs. Þar var áfengisverzlun
ríkisins, heildsala, skrifstofur, vefn-
aðarvöruverzlun, verzlunin Álafoss
og blaðaútgáfa.
Húseign og rekstur Kaffi Reykja-
víkur við Vesturgötu 2 til sölu
Morgunblaðið/Jim Smart
Húsið er timburhús, kjallari, tvær hæðir og ris og alls 1.314 ferm. Það er í góðu
ástandi. Ásett verð er 205 millj. kr. Möguleiki er á að selja saman hús og rekst-
ur eða hvort í sínu lagi, en húsið er til sölu hjá Miðborg.