Morgunblaðið - 01.04.2003, Síða 31
framreiknaður byggingarkostnaður
segir til um miðað við byggingarvísi-
tölu. Með þessu hefur tekizt að halda
verði á þessum íbúðum í skefjum.
Að sögn Guðmundar er það algeng-
ast, að fólk eigi einhverja eign frá því
áður, sem er seld og andvirðið notað
til þess að kaupa íbúð hjá Samtökum
aldraðra. Ef á vantar hefur yfirleitt
tekizt að brúa bilið með lánum frá
Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum.
Mikil verkefni framundan
Guðmundur segir mikil verkefni
framundan hjá Samtökum aldraðra.
Samtökin hafi lagt fram tillögur
sínar við heilbrigðisráðherra um
framtíðarsýn í húsnæðismálum aldr-
aðra. Grundvallarhugsunin þar er sú,
að mál aldraðra verði leyst í samráði
við aldraða og þeir búi í eigin húsnæði
eins lengi og kostur er.
Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir eigin
íbúðum aldraðra, sem verði dreifðar
um viðkomandi sveitarfélag.
Í öðru lagi verði byggðar þjónustu-
íbúðir 60-100 ferm. að stærð í fjölbýli
eða einhvers konar sambýli. Þær
verði fjármagnaðar af eigendum með
eigin fé og lánsfé frá Íbúðalánasjóði.
Í þriðja lagi verði byggðar 40-60
ferm. smáíbúðir í fjölbýli. Þær verði
fjármagnaðar að hluta með framlagi
íbúa, að hluta með lánum og að hluta
af ríki eða sveitarfélagi.
Í fjórða lagi verði byggð dvalar-
heimili í sameignarformi, þar sem
hver íbúi hefur gott herbergi með
hreinlætisaðstöðu og síðan aðgengi
að sameiginlegu eldhúsi en matur
komi að meginhluta frá einu stóru
eldhúsi. Eignarhald verði þannig, að
ef fjárhagsstaða leyfir kaupi íbúi sem
samsvarar herbergisaðstöðunni en að
öðru leyti samkvæmt mati á fjárhags-
stöðu viðkomandi. Eignalausir fái að-
stöðu í rými, sem er í eigu ríkis eða
sveitarfélags.
Ennfremur verði byggt sjúkra-
heimili, sem verði alfarið í eigu rík-
isins.
Félagsaðstoð, heimilisaðstoð og
hjúkrunaraðstoð verði sameinuð und-
ir einn hatt, aukin frá því sem nú er og
reynt að veita hana sem mest heima,
þannig að fólk þurfi sem minnst að
leita út fyrir heimilið eftir þessari
þjónustu. Rými fyrir þessa þjónustu
mætti því minnka og spara þannig í
stofnkostnaði.
„Það er mat okkar, sem þegar höf-
um byggt 300 íbúðir fyrir aldraða á sl.
15 árum að mikið megi spara í þess-
um geira, ef tekið er tillit til þarfa
aldraðra og hugmynda þeirra um
þarfir sínar,“ segir Guðmundur. „Það
má leggja minna upp úr dýrum arki-
tektúr með mikilli aðstöðusköpun fyr-
ir sérfræðinga, sem ráða mestu um
allar útfærslur varðandi framkvæmd-
irnar.
Ennfremur er því ekki að leyna, að
við teljum, að það megi byggja ódýr-
ara en markaðurinn segir fyrir um í
dag. Það byggjum við á því, að við hjá
Samtökum aldraðra liggjum undir
ákúrum um að pressa niður íbúðar-
verð okkar miðað við það sem kallað
er „eðlilegt markaðsverð“ í dag.
Þörfin er mikil
„Staðreyndin er sú, að verð á okkar
íbúðum er kostnaðarverð þeirra mið-
að við að halda uppi góðum gæða-
stuðli og við gætum fyllsta aðhalds
varðandi framkvæmdirnar,“ heldur
Guðmundur áfram. „Eigendur íbúð-
anna eru ánægðir og fjöldi félaga bíð-
ur eftir því, að við byggjum meira. Til
marks um þörfina má geta þess, að
það komu 103 umsóknir um þær 27
íbúðir, sem nú eru í smíðum við Dal-
braut 14.
Sjálfir teljum við, að það þyrfti að
koma upp 120-150 íbúðum á næstu
þremur árum til þess að koma til móts
við þörfina, svo að vel sé. Það eykur
þörfina, að aldraðir í öðrum bæjar-
félögum, eins og Hafnarfirði, Sel-
tjarnarnesi og Selfossi, hyggjast nú
byggja íbúðir fyrir sína félagsmenn
og hafa þeir leitað til okkar um aðstoð
og upplýsingar.
Meðalaldur fólks í íbúðum okkar er
um 83 ár og hann kemur til vegna
þarfa aldraðra. Þetta fólk kemst ekki
inn á dvalarheimili en þarf að geta
verið í húsnæði, þar sem það getur
fengið mat og aðra þjónustu.
Nú höfum við sótt um lóð hjá
Reykjavíkurborg fyrir fjölbýlishús
við Sléttuveg í Fossvogi. Í því verða
væntanlega 50-70 íbúðir. Það hefur
gengið illa að fá afdráttarlaus svör frá
borginni varðandi þessa lóð, en von-
andi skýrist það á næstu vikum. Þörf-
in fyrir fleiri íbúðir fyrir aldraða er
brýn samkvæmt framansögðu og fá-
ist þessi lóð verður strax hafizt handa
um hönnun hússins.“
„Samtökin hafa skilað af sér góðu
verki og vonandi enn meiru með tím-
anum,“ segir Guðmundur Gunnars-
son, formaður Samtaka aldraðra, að
lokum. „Til þess að svo megi verða
þarf að efla samtökin fjárhagslega,
breikka aldursdreifingu félagsmanna
og fá fleira fólk til að ganga í sam-
tökin.
Þótt aldursmörkin séu 50 ár eru nú
flestir félagsmenn yfir 70 ára aldri.
Meðalaldur núverandi stjórnar er 75
ár og eldist hún hratt þó hress sé. Hér
er verk að vinna og það þyrfti að
virkja yngra fólk til starfs í Samtök-
um aldraðra.“
Ljósmynd/Sveinn G. Jónsson
Aflagrandi 40. Þetta fjölbýlishús var byggt á vegum Samtaka aldraðra árið
1990. Í því er 49 íbúðir.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 B 31HeimiliFasteignir
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Einkasöluþóknun – Fjörföld skráning
ÞEGAR ÞJÓNUSTA, TRAUST OG REYNSLA SKIPTIR MÁLI
Þegar þú ætlar að selja eða kaupa fasteign þá velur þú fasteignasölu þar sem traust, reynsla og vönduð
vinnubrögð eru í fyrirrúmi. Þú vilt meiri þjónustu, minni kostnað og góðan árangur. Fasteignasölurnar Ásbyrgi,
Bifröst, Fasteignamarkaðurinn og Fasteignamiðlun eru einu fasteignasölurnar á Íslandi sem eru tengdar saman í
miðlægum eignagrunni. Það eitt og sér veitir þér meiri þjónustu, minni kostnað og margfaldan árangur.
Hjá þessum fasteignasölum fer saman traust, reynsla og vönduð vinnubrögð.
Hafðu allt þetta í huga þegar þú velur fasteignasölu til að vinna fyrir þig.
Fjórföld skráning en samt í einkasölu
MINNI KOSTNAÐUR - MEIRI ÞJÓNUSTA - EIN SKRÁNING - MARGFALDUR ÁRANGUR
Vegmúla 2 - Sími 533 3344
Pálmi B. Almarsson, lögg. fastsali
bifrost@fasteignasala.is
www.fasteignasala.is
Óðinsgötu 4 - Sími 570 4500
Jón Guðmundsson, lögg. fast- og skipasali
fastmark@fastmark.is
www.fastmark.is
Síðumúla 11 - Sími 575 8500
Sverrir Kristjánsson, lögg. fastsali
brynjar@fasteignamiðlun.is
www.fasteignamidlun.is
Suðurlandsbraut 54 - Sími 568 2444
Ingileifur Einarsson, lögg. fastsali
asbyrgi@asbyrgi.is
www.asbyrgi.is
Austur-Húnavatnssýnsla -
Hjá Fasteignamiðstöðinni er nú
til sölu jörðin Eyjólfsstaðir í
Vatnsdal, Áshreppi, Austur-
Húnavatnssýslu. Jörðin er um
það bil fyrir miðjum dalnum
vestanverðum, um 12 km frá
þjóðvegi 1. Jörðin er til sölu án
bústofns, véla og framleiðslurétt-
ar og er ásett verð þannig 20
millj. kr.
Á jörðinni er íbúðarhús byggt
1915, en þetta er 225 ferm. stein-
hús á þremur hæðum auk
geymslulofts. „Þetta er virðulegt
hús með góðan stíl,“ sagði Magn-
ús Leópoldsson hjá Fasteigna-
miðstöðinni.
Á jörðinni er ennfremur fjós,
sem er steinhús með áburðar-
kjallara. Það er með 22 básum og
innréttað með brautarkerfi.
Geldneyta- og hesthús var
byggt 1949 en innréttað 1997.
Hlaða er steinhús klætt með
bárujárni. Fjárhúsið er 55 ferm.
og byggt úr steini. Ennfremur er
steinsteypt véla- og verkfæra-
geymsla, sem er 73 ferm.
Ræktað land er um það bil 26
hektarar og gott til heyskapar
auk rennisléttra engja, sem eru
um það bil 19 hektarar.
„Veiðitekjur af Vatnsdalsá eru
260.000–270.000 kr. á ári og
þarna er bæði rjúpna- og gæsa-
veiði,“ sagði Magnús Leópolds-
son að lokum. „Einnig er jörðin
heppileg til skógræktar og fyrir
sumarbústaði.“
Á jörðinni er 225 ferm. íbúðarhús á þremur hæðum auk geymslulofts.
Jörðin er til sölu án bústofns, véla og framleiðsluréttar og er ásett verð
þannig 20 millj. kr., en jörðin er til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni.
Eyjólfsstaðir
Alltaf á þriðjudögum