Morgunblaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 B 39HeimiliFasteignir ÍÞETTA skiptið var það úti ísveit, í Ticino héraðinu, viðrætur fjallsins, Monte SanGiorgio, á móts við Lugano stöðuvatnið. Þrátt fyrir að þarfirnar væru mjög svipaðar í báðum til- fellum – ódýrt húsnæði, með her- bergjum fyrir hjón með tvö börn – var hugsanaferlið mjög ólíkt fyrir nýja húsið. Nú var eins og byrjað væri að ígrunda húsið fyrst með þakinu. Landfræðilegar aðstæður Lóðin var staðsett norður af gamla fiskveiðiþorpinu, Riva San Vitale, við enda vegaslóða sem lið- aðist niður eftir fjallshlíðinni í átt að víðáttumiklu skóglendi. Þetta var fallegt land, sem Leontina Bianchi hafði erft. Stærð þess var 820 fer- metrar, þakið háum kastaníutrjám, og lá það í brattri hlíð sem náði allt niður að Lugano stöðuvatninu sem lá við rætur hins stórbrotna fjalls, Monte Generoso, sem var hluti hinna snævi þöktu Lombardi-alpa. Einkenni héraðsins voru annars stílhrein gömul hús, sögulegar menjar um mannleg ummerki. Auk 16. aldar hofs í Riva San Vitale sem var afar tilkomumikið, stóðu þar líka áður fjölmargir gamlir „Roccoli“. Þeir voru dæmigerðir turnar sem notaðir voru til fuglaveiða en seinna var mörgum þeirra breytt í helg- arbústaði. Einmitt þessi samsetning náttúru og einfaldra bygginga gaf staðnum einstakt yfirbragð. Þrátt fyrir þetta hafði landsvæðið við vegaslóðann, sem endaði við lóð Bianchi hjónanna, orðið fyrir fyr- irhyggjulausu skipulagi alla síðustu öld. Það var ástæðan fyrir því að Botta var umhugað, allt frá upphafi, að koma með tillögu að húsi sem skírskotaði í mörk hinnar hirðulausu þenslu þorpsins, og væri um leið að- ferð til þess að vernda og virða skóglendið. Að hluta til vegna þess hvernig Botta mótmælti harðlega fyrra skipulagi með sínum volduga arki- tektúr gerðist það stuttu eftir að húsið var tilbúið, að það var sam- þykkt nýtt skipulag fyrir svæðið, þar sem það var skilgreint sem grænt svæði með friðuðu skóglendi, þar af leiðandi voru ekki gefin leyfi fyrir fleiri húsbyggingar á svæðinu. Það er skýringin á því að í dag stendur húsið eitt í þessu verndaða umhverfi. Mario Botta játaði að þegar byggt væri umbreyttist náttúran, en ítrek- aði um leið ábyrgðartilfinninguna gagnvart því að hanna þægilegt mannlegt umhverfi. Afrakstur þess- arra umræðna eru veggspjöld ferða- skrifstofanna í Ticino héraðinu sem sýna myndir af svissnesku landslagi með byggingum Botta. Í húsinu við Riva San Vitale, end- urtúlkaði hann staðbundna gerð fuglaveiðiturnanna til að vernda landslagið, sem var um leið svörun við óskum vina hans um að geta not- ið útsýnisins yfir stöðuvatnið fyrir ofan trjátoppana og finna um leið fyrir sterku jarðsambandi. Að byggja landslagið Frá gamla veginum efst á lóðinni liggur mjó stálbrú að húsinu sem er fernhyrndur turn, 10 metrar í þver- mál og 13 metrar á hæð. Þessi 18 metra langa göngubrú undirstrikar aðgreiningu hússins við landið og opinberar það sem útsýnisturn yfir nærliggjandi landslag. Tilfinningin, þegar gengið er yfir brúna að húsinu, er eins og að ganga inn í landslagið, augun nema ekki staðar fyrr en við kirkjuna í Melano- þorpinu, hinum megin við stöðu- vatnið. Þar sem fyrirkomulag hússins snýst í kringum stiga sem liggur miðsvæðis, býður hringrásin upp á mismunandi útsýni. Talið frá inn- ganginum niður á við, er vinnu- herbergi efst ásamt svölum til aust- urs með útsýni yfir stöðuvatnið og fjöllin, þar fyrir neðan er hjóna- herbergið með rúmgóðum svölum til suðurs og útsýni út á engin, enn neðar er barnaherbergið ásamt leik- herbergi. Öll svefnherbergin opnast út á þriggja hæða loftrými, þannig að þau tengjast sjónrænt hvert öðru og rýmunum fyrir neðan, það er eld- húsinu og stofunni. Neðst er síðan kjallari og stór yfirbyggður inn- gangur sem opnast beint út í garð. Húsið er líkast höggmynd sem höggvið er inn í og allar hliðar þess bregðast skilmerkilega við nærliggj- andi umhverfi: stöðuvatninu, kirkj- unni í Melano, engjunum, skóglend- inu og aðkomunni við gamla veginn. Sérhver skurður í hliðarnar afmark- ar ákveðið útsýni og lýsir vel skoð- unum Mario Botta um að arkitektúr fjalli um hönnun staða. Af þessu má sjá að hliðar bygg- inga hans snúast ekki aðeins um að skreyta eða fegra ásýnd þeirra. Þær tjá einnig sambandið milli innan- hússrýmisins og nágrennisins, hringrás sólarinnar eða beina at- hyglinni að tilvist sögulegra bygg- inga. Húshliðarnar búa yfir rúm- fræði sem ná yfir og endurspegla nærliggjandi umhverfi. Antonio Martinelli Alo Zanetta Innra rými hússins er landslagið úti. Þegar byggt er umbreytist náttúran Húsið er rýmd sem höggvið er inn í og hliðar þess bregðast við nærliggjandi umhverfi. Af rúmlega 1.000 rúmmetrum hússins er aðeins búið í 220 fermetrum. „Roccolo“ voru algengir turnar í hér- aðinu, notaðir til fuglaveiða. Mario Botta (f. 1943). Ljósmynd/René Burri Svisslendingarnir Carlo og Leontina Bianchi voru góðkunn- ingjar arkitektúrnemans Mario Botta, þegar hann gerði breyt- ingar á íbúðinni þeirra í litla þorpinu Genestrerio. Nokkru síð- ar eða árið 1971, þegar hann hafði nýlokið námi sínu, bað sama fjölskyldan Botta um að hanna fyrir sig einbýlishús. Einbýlishús í Riva San Vitale í Sviss eftir Mario Botta Veggirnir eru gerðir úr tvöföldum steinsteyptum mótum án múrhúðunar, gólfin eru lögð leirflísum og brúin er rauðmáluð stálgrind. Öll eru efnin einföld og hefð- bundin en vandaður frágangur minnir á gamla prófessorinn hans Botta úr Fen- eyjaháskólanum, Carlo Scarpa. Halldóra Arnardóttir listfræðingur og Javier Sánchez Merina arkitekt. E-mail: jsm@coamu.es
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.