Morgunblaðið - 01.04.2003, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2003 B 51HeimiliFasteignir
2ja herb.
DVERGABAKKI LAUS STRAX. Falleg 2ja
herbergja íbúð í Bökkunum. Parket á gangi og stofu.
Rúmgott svefnherbergi með nýlegu teppi og miklu
skápaplássi, útgengt á stórar og góðar svalir. Snyrti-
legt og fallegt eldhús með nýlegri innréttingu, gas-
eldavél og ofn, flísar á gólfi. Baðherbergið er flísa-
lagt á gólfi og upp á miðja veggi, góð sturta og fal-
leg innrétting. Sameiginlegt þvotta- og þurrkher-
bergi. Góð geymsla með hillum og rafmagni. Íbúðin
er nýmáluð. Snyrtileg íbúð á góðum stað. V. 9,5 m.
NJÁLSGATA - LAUS
Vorum að fá ca 52 fm ósamþykkt 2ja herbergja íbúð
í kjallara. Sérinngangur. Rúmgóð stofa. Gott svefn-
herbergi. Eldhús með eldri innréttingu. Flísalagt
baðherbergi. Laus strax. V. 4,9 m.
FOSSVEGUR - SELFOSS Vorum
að fá í einkasölu nýja 77 fm 2ja herbergja íbúð í
nýju glæsilegu fjölbýlishúsi sem er að rísa við bakka
Ölfusár í Fosslandi á Selfossi. Góðar suðursvalir.
Húsið er í byggingu og verður íbúðin laus til afhend-
ingar á haustmánuðum 2003. Húsið er klætt að ut-
an með áli og er mikið lagt upp úr gæðum og
vandvirkni í byggingu þessari. V. 9,4 m. (571)
GRANDAVEGUR Nýstandsett 2-3ja her-
bergja íbúð. Rúmgóð parketlögð stofa. Hjónaherb.
með parketi á gólfi. Stórt eldhús með nýrri innrétt-
ingu. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Aukaher-
bergi í forstofu. V. 7,5 m. (83)
SÚLUHÓLAR Glæsileg 74,4 fm 3ja herb.
rúmgott hjónaherbergi. Gott barnaherbergi. Gott
skápapláss. Linoleum-dúkur er á öllum gólfum. Gott
baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu. Suð-
ursvalir. Þetta er eign sem vert er að skoða. Áhv. 6
m. V. 9,2 m.
ÁLFHÓLSVEGUR
Vorum að fá góða 90 fm 3ja herbergja íbúð auk út-
leiguherbergis. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Svalir út-
af hjónahergi. Stór stofa, suður- svalir. Eldhús með
ljósri innréttingu. Flísalagt baðherbergi. Þvottahús
innan íbúðar. Sérherbergi á jarðhæð. Áhv. 7,4 millj.
V. 12,3 millj. (524)
LEIRUBAKKI Mjög góð 3ja herbergja 97,1
fm íbúð með sérinngangi á jarðhæð og hita í stétt.
2 góð herbergi. Park. og flísar á gólfum, góð suð-
urverönd. Áhv. 4,3 m. V. 12,8 m. (0036)
4ra herb.
JÖRFABAKKI LAUS STRAX. Vel skipulögð
og rúmgóð 4ra herb. á 2. hæð á besta stað í Bökk-
unum. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, stórar suðursval-
ir, þvottahús og geymsla innan íbúðar. Parket og
dúkur á gólfum, flísar á forstofu. Íbúðarherbergi í
kjallara sem hægt er að leigja út. Falleg gróin lóð
með leiktækjum. V. 12,2 m. (535)
KÓRSALIR
Glæsileg 4ra herbergja 128 fm íbúð á 2. hæð í góðu
lyftuhúsi ásamt stæði í bílskýli. Björt íbúð með park-
eti á öllum gólfum, rúmgóð stofa með svalir til suð-
urs. 3 rúmgóð svefnherbergi. Sjónvarpshol. Eldhús
með vandaðri viðarinnréttingu og borðkrók. Örstutt
í alla þjónustu og náttúruna. V. 17,3 m. Áhv. 8,9 m.
FROSTAFOLD Vorum að fá í sölu glæsi-
lega 117 fm íb. á 2 hæðum ásamt 25 fm bílsk. með
fallegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið. V. 13,5 m.,
áhv. 8 m. (0346)
GRÝTUBAKKI Góð 101,5 fm íbúð í
Reykjavík. Eignin telur góða stofu, borðstofu með út
gengi út á svalir, fínt sjónvarpsherbergi sem áður
var svefnherbergi og auðvelt er að breyta aftur,
2 svefnherbergi með skápum, baðherbergi og góða
geymslu. Það eru góð kaup í þessari. V. 11,4 m.
(0530)
LÆKJASMÁRI Vorum að fá í einkasölu
glæsilegar 4ra herbergja 95 fm íbúðir á jarðhæð í
Permaform fjórbýli í Kópavogi. Eigninni fylgir stæði í
bílageymslu, stutt í alla þjónustu. Verð 14,2 m.
(162)
BREIÐAVÍK Vorum að fá mjög glæsilega
102 fm 4ra herb. íbúð með sérinngangi á 2. hæð í
litlu fjölbýli. 2 rúmgóð parketlögð barnaherb. Park-
etlagt hjónaherb. Rúmgóð parketl. stofa suðursv.
Rúmgott eldhús kirsuberjainnrétting. Útskotsgluggi í
eldhúsi. Flísalagt baðherbergi með sturtu og baði.
Tengi f. þvottavél. Góð eign. Áhv. 6,8 m. V. 14,5 m.
EFSTIHJALLI
4ra herb. 103 fm endaíbúð á jarðhæð með sérinn-
gangi. Þrjú svefnherbergi með skápum, sjónvarpshol
og rúmgóð stofa. Parket á gólfum. Eldhús með
dökkri viðarinnréttingu. Baðherbergi m. flísum tengi
fyrir þvottavél. Húsið nýviðgert að utan. Stutt í alla
þjónustu. V. 11,9 m. (0507)
Hæðir
MJÓAHLÍÐ - LAUS Skemmtileg 103,5
fm efri hæð í góðu þríbýlishúsi. Endurnýjað eldhús
og baðherb. sem er flísalagt. Tvær stórar og bjartar
stofur, tvö góð svefnherbergi. Flísar og parket á
gólfum. Laus Strax. VERÐTILBOÐ. (0388)
Raðh. & Parh.
ENGJASEL Stórglæsilegt raðhús á þremur
hæðum í Seljahverfi. Forstofa og gestasalerni á jarð-
hæð/þrjú svefnherb. og gott hol í kjallara, útgengt í
suðurgarð, geymsla undir stiga. Eldhús, borðstofa
og stofa á 1. hæð, suðursvalir. Sjónvarpshol, þvotta-
hús og geymsla á milli 1. og 2. hæðar. Svefnher-
bergi, gestaherb. m. suðursvölum og baðherbergi á
2. hæð. Ásett verð er 21,9 m.(542)
GARÐHÚS Í einkasölu fallegt 146 fm end-
araðhús á tveimur hæðum ásamt 26 fm bílskúr á
góðum stað í Grafarvogi. Forstofa m. þvottahús inn-
af, gott eldhús með borðkrók, stór stofa og borð-
stofa. Útgengt í garð, gott útsýni í norður. Fjögur
svefnherbergi, þrjú mjög rúmgóð og gott sjónvarps-
hol. Baðherbergi allt flísalagt, baðkar og sturta.
Mikil Lofthæð. Bílskúr m. góðu vinnuborði heitt og
kalt vatn og rafmagn. V. 19,9 m. (0540)
Einbýli
STARENGI - SELFOSS Stórglæsi-
legt einbýlishús á góðum stað á Selfossi. Fjölmörg
svefnherbergi sem mögulegt er að leigja út. Bíl-
skúrinn er stór með auka herb./sturta. Húsið mikið
endurnýjað, verðlaunagarður. Heitur pottur og stór
verönd. Áhv. 13 m. V. 17,5 m.
GRETTISGATA Lítið snoturt 80 fm ein-
býlishús á rómuðum stað í miðbænum. Kjallari, hæð
og ris. Flísalögð forstofa, eldhús m/harðplstsinnr.
og slípuðum gólfborðum. Uppgert baðherbergi.
Svefnherb í risi. í kjallara er herb. og þvottahús. Hús-
ið er mikið endurnýjað. V. 10,7 m. Áhv.6 m. (515)
Nýbygging
NÝBYGGINGAR JÓNSGEISLI 190 fm
parhús ásamnt 26 fm innb. bílskúr. V. 16,9 m.
MARÍUBAUGUR 120 fm raðhús ásamnt 28 fm bíl-
skúr. V. 13,9 m.
SÓLARSALIR 134 fm 4. herbergja íbúð fullbúinn án
gólfefna. V. 17,5 m.
BLÁSALIR 2 -4ra herbergja íbúðir fullbúnar án gólf-
efna. V. 13,7 - 18,9 m.
LJÓSAVÍK 180-200 fm raðhús með innbyggðum bíl-
skúr V. 23,0 m.
LÓMASALIR 3 - 4ra herbergja íbúðir án gólfefna.
V. 14,9 - 16,5 m.
BORGARHRAUN-HVERAGERÐI Einlyft 125 fm ein-
býlishús auk 46 fm bílskúr. V. 12,5 m.
KJARRHEIÐI-HVERAGERÐI 160 fm raðhús ásamt
innbyggðum 23 fm bílskúr. Rúmlega fokhelt. Rör í
rör kerfi. V. 12.3 m.
GRÆNLANDSLEIÐ 244 fm raðhús tilbúin til innrétt-
inga með innbyggðum bílskúr á tveimur hæðum.
Möguleiki á auka íbúð. V. 20.9 m.
GRÆNLANDSLEIÐ 295 fm okhelt einbýlishús með
innbyggðum bílskúr á tveimur hæðum. Möguleiki á
aukaíbúð. V. 24.0 m.
Sigurður Óskarsson lögg. fastsali,
Sveinn Óskar Sigurðsson lögg. fastsali,
Kristbjörn Sigurðsson framkv.stjóri
Atli Rúnar Þorsteinsson sölustjóri,
Haraldur Ársælsson sölumaður.
Hamraborg 5, 200 Kópavogi
husin@husin.is
ÁLFHÓLSVEGUR
GOTT ENDARAÐHÚS á tveimur hæðum alls 159,2
fm. Húsið sjálft er 119,6 fm og bílskúrinn 39,6 fm á
góðum stað í Kópavogi. Anddyri með flísum á gólfi
og fatahengi. Hol með gestasnyrtingu, stigi upp á
efri hæð. Eldhús með nýlegri innréttingu, flísar á
milli skápa, góður borðkrókur, flísar á gólfi. Björt
og góð stofa, borðstofa meðútgangi út á suður-
svalir. Hjónaherbergi með útgangi út á suðursvalir.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfum. Baðherbergi með flísum, sturtu, baðkari, tengi fyrir þvotta-
vél og þurrkara. Bílskúr með öllu. Tvær geymslur. V. 16,9 m. (0538)
HLÍÐARVEGUR
Glæsileg 3ja herb. 68,9 fm risíbúð í tvíbýlishúsi á
góðum útsýnisstað í suðurhlíðum Kópavogs. Íbúðin
skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi,
eldhús og stofu. Flísalögð forstofa. Gott hjónaher-
bergi með góðum skápum, rúmgott barnaherbergi.
Stofan er björt og falleg með útgangi á flísalagðar
suðursvalir með gríðarlegu útsýni í allar áttir,
bruce-parket á gólfum. Eldhúsið er mjög snyrtilegt
með uppgerðri innréttingu. Baðherbergi allt nýlega
flísalagt í hólf og gólf, baðkar og sturta. Geymslu-
loft er yfir öllu. Íbúðin er mikið endurnýjuð. Falleg
eign á toppstað í Kópavogi. Áhv. 6,4 m. V. 11,2 m.
LÆKJARSMÁRI
Falleg 2ja herbergja 67 fm íbúð á jarhæð með sér-
garði. LÝSING: Björt forstofa með náttúruflísum á
gólfi. Rúmgott svefnherbergi með góðum skápum.
Þvottaherbergi sem í dag er lítið leikherbergi. Snot-
ur eikareldhúsinnrétting með góðum tækjum. Stof-
an er björt með útgangi út í sérgarð sem snýr í
suður. Á gólfum er nýlegt fallegt eikarparket. Bað-
herbergi með baðkari og sturtu, hvítar steinflísar á gólfi, snyrtileg ljós viðarinnrétting og tengi fyrir
þvottavél. Með íbúðinni fylgir góð geymsla og sameiginleg hjólageymsla í kjallara. Sérstæði.
Áhv. 6,8 m. V. 10,5 m.
ORRAHÓLAR - LAUS STRAX
Snyrtileg 2ja á efstu hæð með glæsilegu útsýni.
Hol með fatahengi. Eldhús strax á hægri hönd, inn-
rétting úr furu. Baðherbergi með sturtu fallegri
hvítri innréttingu og tengi fyrir þvottavél, dúkur á
gólfi. Svefnherbergi með góðum fataskápum og
góðum glugga í austur. Stofan er mjög rúmgóð
með útgangi á stórar austursvalir. Á íbúðinni er
gott beykiparket. Þvottahús á hæð með góðum
snúrum. Einkastæði við húsið merkt 8F. Útsýnið er
glæsilegt, frá Esjunni og að Reykjanesfjallgarðin-
um. Áhv. 6,5 m. V. 8,7 m. LYKLAR Á SKRIFSTOFU.
BAKKASTAÐIR
Gullfalleg björt og vel skipulögð 106 fm endaíbúð
á neðri hæð í litlu fjölbýli (6 íb. í húsinu) á frábær-
um stað rétt við golfvöllinn á Korpúlfsstöðum.
Komið er inn í flísalagða forstofu. Rúmgott eldhús
með dúk á gólfi, 3 rúmgóð svefnherb., rúmgott
baðherb. flísalagðir veggir og dúkur á gólfi,
þvottahús í íbúð, björt og rúmgóð stofa, gengið úr
stofu í lítinn sérgarð, hellulögð verönd fyrir utan
stofu og eldhús, sérgarður fyrir utan eldhús m.
vandaðri girðingu. Mjög vandaðar innréttingar á baði og eldhúsi, fataskápar í öllum herbergjum allt
frá Brúnás - íslenskt já takk. Plastparket á gólfum. Dyrasímakerfi er tengt í símkerfi íbúðar. Íbúðin er
sérhönnuð með þarfir fatlaðra í huga t.d. 90 cm breiðar dyr í allri íbúðinni. V. 15,2 m.
HLÍÐARVEGUR
Stórfínt einbýli á góðum stað í Kópavogi, 145 fm
einbýli á einni hæð ásamt 40 fm bílskúr. Komið er
inn í hol m. fatahengi/gestasnyrtingu. Gott sjón-
varpshol, eikarparket á gólfi. Eldhúsið er með
dökkri eikarinnr., korkur á gólfi og borðkrókur,
þvottaherbergi/geymsla um 6 fm. Rúmgóð og björt
stofa með útgangi út á stóra verönd, borðstofan er
hugguleg með beykiparketi á gólfi. Gengið upp
nokkrar (ca 5) tröppur og komið á herbergjagang
sem er flísalagður, þrjú góð svefnherb. með dúk á gólfum. Gott hjónaherbergi með stórum skápum.
Baðherergi allt flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa og baðkari, upphengt klósett. Geymsluloft er
yfir öllu húsinu. Bílskúrinn er rúmgóður með klósetti og sturtu, bílskúrshurðaopnari. V. 21,2 m. (0513)
53 50 600 www.husin.is 53 50 600
53 50 600
Fax 53 50 601
Hafnarfjörður - Hjá fasteignasölunni Ás er nú til sölu
gott 184 ferm. einbýlishús við Arnarhraun 27. Húsið er
á tveimur hæðum auk geymslu í kjallara og með 35
ferm. bílskúr, alls 219 ferm.
„Húsið er nýlega tekið í gegn að utan,“ sagði Eiríkur
Svanur Sigfússon hjá Ási. „Komið er inn í anddyri á
neðri hæð, en síðan tekur við hol með parketi á gólfi og
fatahengi, lítið gestabað með mósaíkflísum á gólfi og
glugga.
Stofa og borðstofa eru með gegnheilu parketi, en
eldhúsið er með nýrri innréttingu með gashelluborði
og borðkrók. Þvottahús er inn af eldhúsi með innrétt-
ingu, flísum á gólfi og útgangi út í garð.
Teppalagður stigi er úr holi upp á efri hæð, en þar
tekur við stigapallur og gangur með parketi. Svefn-
herbergin eru fjögur með parketi og dúk á gólfum, en
skápar eru í tveimur þeirra. Útgengt er úr hjónaher-
bergi út á svalir. Baðherbergið er nýlega tekið í gegn
með flísum á gólfi. Þar er baðker og gluggi.
Í kjallara eru rúmgóðar geymslur og bílskúrinn er
fullbúinn með opnara og gryfju. Garðurinn er fallegur
með gróðri og trjám. Þar eru hellulagnir og timburver-
önd, þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Einnig er
til staðar útihús úr timbri. Ásett verð er 22,5 millj. kr.
Arnar-
hraun 27
Þetta er einbýlishús á tveimur hæðum, 184 ferm. og með 35 ferm. bílskúr, alls 219 ferm. Ásett verð er 22,5 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Ási.