Morgunblaðið - 04.04.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Spaghettitöng
kr. 1.240
Flöskustatív
kr. 2.990
Standur
kr. 1.760
Hitaplatti
kr. 3.190
Salatsett
kr. 2.410
Tesía
kr. 980
Kertastjaki
kr. 3.520
Klukka
kr. 6.990
Tímamælir
kr. 3.650
Stál frá
Hvað gerir maður ekki fyrir þig, foringi, „höggva mann og annan“ þó með harmi sé.
Fundur vegna árs fatlaðra
Að móta sam-
félag fyrir alla
ÁRIÐ 2003 hefurverið tileinkaðmálefnum fatlaðra
á vettvangi Evrópusam-
bandsins og á Evrópska
efnahagssvæðinu. Í tilefni
af því stendur félagsmála-
ráðuneytið fyrir morgun-
verðarfundi sem haldinn
verður í fyrramálið á
Grand hóteli Reykjavík.
Hefst fundurinn klukkan 9
og stendur til um það bil
hádegis. Berglind Ásgeirs-
dóttir, aðstoðarforstjóri
Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar, OECD, er
einn margra fyrirlesara á
fundinum og svaraði hún
nokkrum spurningum sem
fyrir hana voru lagðar.
Það er sem fyrr segir fé-
lagsmálaráðuneytið sem
fer með málefni fatlaðra á Íslandi
og tekur þátt í samstarfi Evrópu-
þjóða í tilefni ársins þar sem ein-
kunnarorðin eru „Samfélag fyrir
alla“. Hjá ráðuneytinu kemur
fram að áherslur Evrópuþjóða í
þágu markmiða ársins beinist að
því að vekja almenning til vitundar
um réttindi þeirra sem búa við
fötlun. Allir eru hvattir til að
leggja fram sinn skerf hvort sem
um er að ræða almenningur, ríki
og sveitarfélög eða aðilar á vinnu-
markaði. Markmiðið er að fatlað
fólk geti orðið virkir þátttakendur
í því samfélagi sem þeir lifa og
starfa í. Í þessu sambandi hefur
verið bent á mikilvægi góðrar
menntunar og öflugs stuðnings við
fatlaða á almennum vinnumarkaði
með það að markmiði að þeir njóti
sömu tækifæra og aðrir til náms
og starfa. Og að með fundinum
vilji ráðuneytið stíga fyrstu skref-
in í átt að því að ná markmiðum
ársins með því að taka málefni
fatlaðra til umfjöllunar, enda komi
á fundinn ýmsir sem vilja kynna
hugmyndir sínar og væntingar
sem fyrirhugað sé að verði leið-
arljós í aðgerðaráætlun sem gert
er ráð fyrir að unnin verði í lok
ársins.
– En Berglind, hvaða þýðingu
hefur svona ár fyrir fatlaða?
„Ég tel að ár fatlaðra hafi veru-
lega þýðingu, ekki aðeins fyrir þá
sem eru fatlaðir heldur einnig fyr-
ir þjóðfélagið. Það gefur okkur
tækifæri til að líta á stöðu fatlaðra
í samfélaginu og sjá hvar úrbóta
er þörf. Hagsmunasamtök fatl-
aðra, aðstandendur fatlaðra,
vinnuveitendur og samtök launa-
manna og hið opinbera þurfa að
líta til þess hvaða leiðir eru færar
til að auka þátttöku fatlaðra á hin-
um ýmsu sviðum. Nauðsynlegt er
að fara úr þeirri hugsun að stefnu-
mótun í málefnum fatlaðra séu að-
eins viðfangsefni tiltekinna ráðu-
neyta og ákveðinna hagsmuna-
samtaka. Fatlaðir eru
margbreytilegur hópur, sem
vegna fötlunar þurfa oft á tíðum
sérstakan stuðning til að gera
þeim kleift að vera virkir þjóð-
félagsþegnar. Menntun og stuðn-
ingur í skóla, sem og
endurhæfing og starfs-
þjálfun skiptir miklu
máli. Hver einstakling-
ur hefur mismunandi
þarfir.“
– Hvað geturðu sagt okkur um
erindið sem þú flytur?
„Í erindi mínu mun ég kynna
skýrslu OECD sem byggist á
könnun meðal fatlaðra og rann-
sóknum á stefnu 20 OECD landa í
lífeyris- og atvinnumálum fatl-
aðra. Niðurstaða skýrsluhöfunda
er sú að stefna þeirra byggist allt-
of mikið á framfærsluhugsun og er
lagt til að litið sé á leiðir til að
virkja fatlaða til atvinnuþátttöku
ef þess er nokkur kostur. Það
verði gert með aukinni þjálfun og
endurhæfingu og markvissum
stuðningi til atvinnuþátttöku.
Markmiðið er að auka lífsgæði
fatlaðra og stuðla að virkari þátt-
töku þeirra.“
– Hvernig kemur þú að þessu
öllu saman hér á landi?
„Ég kem að þessu sem fulltrúi
frá OECD í París. Aðkoma mín
byggist á því að ég kynnti um-
rædda skýrslu fyrir fáeinum vik-
um fyrir fræðimönnum, fulltrúum
hagsmunasamtaka og embættis-
mönnum. Það var á sameiginlegri
ráðstefnu OECD og Evrópumið-
stöðvar í rannsóknum félagsmála í
Vín. Skýrslan vakti verulega at-
hygli bæði á ráðstefnunni og eins
hjá fjölmiðlum. Félagsmálaráð-
herra Páli Péturssyni fannst því
full ástæða til að kynna niðurstöð-
ur hennar og tillögur til úrbóta í
tengslum við ár fatlaðra á Íslandi.“
Þess má geta að dagskrá þessa
fundar er viðamikil. Eftir að Páll
Pétursson hefur sett fundinn með
ávarpi, rekur hvert erindið annað.
M.a. taka til máls Jón Kristjáns-
son heilbrigðis- og tryggingaráð-
herra, Arnþór Helgason frá Ör-
yrkjabandalaginu, Sigurður
Thorlacius trygginga-
yfirlæknir, Eygló Eyj-
ólfsdóttir sérfræðingur
hjá menntamálaráð-
neytinu, og Halldór
Gunnarsson, formaður
Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Fundinum lýkur síðan með því að
Páll Pétursson opnar formlega
nýtt vefsvæði, tileinkað ári fatl-
aðra og er slóðinn inn á það
www.arfatladra.is. Á fundinum
verður einnig flutt tónlistarefni
viðstöddum til skemtunar. Fund-
urinn er og öllum opinn á meðan
húsrúm leyfir og þarf ekkert að
borga við innganginn.
Berglind Ásgeirsdóttir
Berglind Ásgeirsdóttir er
fædd 15. janúar 1955. Lauk lög-
fræðiprófi frá HÍ 1978 og MA
prófi í alþjóðasamskiptum frá
Boston-háskóla 1985. Starfaði
við utanríkisráðuneytið í tæp 10
ár, m.a. upplýsinga- og menning-
arfulltrúi 1979–81, við sendiráð-
ið í Bonn 1981–84, fulltrúi hjá
Evrópuráðinu í Strassborg 1983–
84, við sendiráðið í Stokkhólmi
1984–88, fulltrúi á öryggisráð-
stefnu Evrópu 1986–88, ráðu-
neytisstjóri í félagsmálaráðu-
neytinu 1988–96 og 1999–2002.
Framkvæmdastjóri Norður-
landaráðs í Kaupmannahöfn
1996–99, aðstoðarforstjóri
OECD í París frá 1. sept. 2002.
Maki var dr. Gísli Ág. Gunn-
laugsson sem lést 1996. Börnin
eru þrjú, 9 til 21 árs.
Vilja líta á
leiðir til að
virkja fatlaða