Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ V ið lítum gamla fólkið hornauga í sam- félaginu og gleym- um að við stöndum í þakkarskuld við það. Feður okkar og mæður, afar og ömmur, langömmur og langafar, hafa stutt okkur dyggilega og komið okkur á legg. Allan lær- dóm höfum við frá þeim. Þetta fólk hefur byggt upp atvinnulífið og unnið hörðum höndum allt sitt líf. Við gleymum því líka, að ein- hvern tímann verðum við sjálf gömul. Einhvern tímann flytjum við ef til vill á Hrafnistu, eða í þjónustuíbúð í Efstaleitinu. Vilj- um við þá vera afskrifuð í æsku- dýrkunarþjóðfélaginu? Fjölmiðl- arnir eru full- ir af fréttum af ungu fólki. Ungu og reynslulitlu fólki, sem er að stíga sín fyrstu spor í lífinu. Britney Spears hefur ekki öðlast þann þroska sem fylgir því að eldast og læra kúnstina að lifa. Með fullri virðingu fyrir henni hefur hún litla speki fram að færa. Aðallega vegna ungs ald- urs. Auðvitað viljum við flest halda í æskuna. Æskunni fylgir slétt húð og ljómi. Æskan er hálfgert ævintýri, því ungur maður er sí- fellt að prófa sig áfram og reyna eitthvað nýtt. Það er gaman að læra. Það er gaman að eiga allt lífið framundan. Handan hvers horns er ný lífsreynsla, nýir staðir og nýjar tilfinningar. Æskan er þó meira spennandi í minningunni, en þegar við upp- lifum hana. Fæstir hafa vit á að njóta æskunnar á meðan hún er, drekka í sig upplifunina og fagna lífinu. Þegar við eldumst hugsum við hins vegar til liðinna tíma með söknuði og vildum svo gjarnan vera orðin tvítug á ný. Við eigum ekki að hugsa svona. Við eigum að fagna reynslunni og þroskanum, sem fylgja árunum. Lífið er rétt að hefjast um fimmtugt. Ævilíkur þjóðarinnar aukast með hverju árinu sem líður og gæði lífsins um leið. Við eigum að halda út í óvissuna, óhrædd við breytingar og byltingar. Við eigum að vera opin fyrir nýjum hugmyndum. Kannski ekki síst þeirri hug- mynd, að við gætum skipt um skoðun. Við megum ekki hafna þeim möguleika, að heimsmynd okkar geti verið skökk. Kannski er hún ekki byggð á skynsemi og hlutlægri hugsun. Hver veit? Við eigum að skoða hug okkar og vera gagnrýnin á sjálf okkur. Eldra fólk getur líka orðið ástfangið. Sú ást er ekki síðri, jafnvel oft og tíðum þroskaðri en ást unglinganna, sem stundum byggist meira á útliti og inni- haldslausu sjálfstrausti en hin- um sanna kjarna mannsins; per- sónuleika og lífssýn. Þroskinn felur í sér djúpstæðar og heitar tilfinningar, sem byggjast ekki á sandi, heldur því sem raunveru- lega skiptir máli í lífinu. Það lærum við með árunum. Ekki má þó gleyma því, að eldra fólk hefur holdlegar fýsnir, ekki síður en andlegar. Ef marka má umfjöllun mætti hins vegar halda, að um fimmtugt hætti fólk að lifa kynlífi. Auðvit- að er sú ekki raunin. Þetta verð- ur að segja umbúðalaust: Aldr- aðir lifa kynlífi. Almennt viðhorf í þjóðfélaginu viðurkennir það ekki. Þar ríkir æskudýrkunin sem aldrei fyrr. Í fjölmiðlum eru sýndir lögulegir og stinnir kroppar fólks á þrí- tugsaldrinum. Þeim dettur ekki í hug að birta mynd af áttræðum karlmanni á nærklæðunum ein- um fata. Það kemur bara ekki til greina. Unga fólkið lítur einfaldlega ekki á eldri borgara sem kyn- verur. Ætli það hafi til að mynda nokkru sinni gerst, að hópur einhleypra vinkvenna á þrítugsaldri hafi farið á elliheim- ili á föstudagskvöldi í leit að mökum? Aldraðir eru ógjarnan afklæddir með augunum vegna fordóma samfélagsins og æsku- dýrkunar. Hvað er óeðlilegt við að átt- ræð kona taki saman við þrítug- an karlmann? Bæði eru fullveðja einstaklingar. Þetta er falleg til- hugsun, þótt einhverjum kunni að þykja hún óeðlileg, vegna þeirrar gegndarlausu forritunar og æskuáróðurs sem dunið hefur á þjóðinni áratugum saman. Við þurfum að breyta hugs- unarhætti okkar. Brjóta niður þessi ósýnilegu en torfæru landamæri kynslóðanna. Þessi landamæri eru órökrétt. Þau byggjast á órökstuddum tilfinn- ingum. Fegurð líkamans er í raun af- ar ómerkilegt hugtak við hliðina á fegurð sálarinnar. Fegurð sál- arinnar eykst veldisvexti með árunum og það er einmitt mæli- stika á þroska einstaklingsins, hversu vel hann getur horft framhjá hrörnun líkamans og dæmt aðra af því sem máli skiptir í veröldinni; innsæi, skynsemi og þroska. Með því að einblína á þennan andlega þátt tilverunnar öðlast hann innri sálarfrið. Í kaupbæti fær hann hina fullkomnu, skilyrðislausu ást hins aldraða einstaklings. Hvað skal þá gera? Hvernig skal leiðrétta þennan misskiln- ing samfélagsins? Kallar þetta á aðgerðir hins opinbera? Er nema von að spurt sé. Nú nálgast kjördagur. Hver og einn stjórnmálamaður verður að fylgja sannfæringu sinni. Hann verður að líta í eigin barm og skynja þær tilfinningar, sem bærast í brjósti hans. Er hann fylgismaður andlegs þroska og samfélagsjöfnunar? Vill hann brjóta niður þennan félagslega Berlínarmúr, sem aðeins hinir hugrökkustu hafa þorað að stökkva yfir, oft með geigvæn- legum afleiðingum fyrir stöðu þeirra í samfélaginu? Nú ríður á að samviskan stjórni för. Við erum öll fólk. Við eldumst. Við erum fólk sem á eftir að verða gamalt. Þetta verða þeir, sem sækjast eftir umboði þjóðar sinnar til stjórn- arstarfa, að hafa í huga. Þá farn- ast þeim vel. Við eldumst Æskan er þó meira spennandi í minningunni, en þegar við upplifum hana. Fæstir hafa vit á að njóta æsk- unnar á meðan hún er, drekka í sig upplifunina og fagna lífinu. VIÐHORF eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is ÞAÐ má með sanni segja að á undanförnum árum hafi innlend ferðaþjónusta tekið miklum fram- förum, bæði hvað gæði þjónustunn- ar varðar og breiddina sem í boði er í ferðamöguleikum og afþreyingu. Náttúra, menning og saga Íslands hafa upp á svo margt að bjóða og valkostir skipta hundruðum. Vandamálið sem innlend ferða- þjónusta glímir við er að lands- menn hafa enn ekki uppgötvað það sem í boði er um land allt. Erlendir ferðamenn hafa aftur á móti betur gert sér grein fyrir valkostunum í ferðaþjónustunni. Alltof algengt er að landinn kaupi sér far til útlanda í þeim tilgangi að skemmta sér í frí- um og yfir langar fríhelgar en gleymi að kanna afþreyingarmögu- leikana og ferðirnar um Ísland sem eru oft mun ódýrari. Þeir sem hafa lifibrauð af inn- lendri ferðaþjónustu hafa því miður ekki ótakmarkað fjármagn til að eyða í kynningar- og markaðsmál. Í fyrra tóku Ferðamálasamtök Ís- lands og Ferðamálaráð Íslands saman höndum og héldu sýninguna Ferðatorg 2002 með stuðningi sam- gönguráðuneytisins. Ferðatorgið er eins konar markaðstorg innlendra ferðamála þar sem fólk getur aflað sér upplýsinga um afþreyingar- möguleika um allt land. Öll lands- hlutasamtök ferðaþjónustunnar tóku þátt í Ferðatorginu, ásamt fleiri fyrirtækjum, og alls komu rúmlega tuttugu þúsund manns til að fræðast um það sem í boði er á ævintýralandinu Íslandi. Móttökur almennings sýndu að grundvöllur er fyrir að slíkt markaðstorg verði að árvissum markaðsviðburði. Með Ferðatorginu er kominn mikilvægur vettvangur sem ferða- þjónustan getur nýtt sér til að stuðla að auknum ferðalögum landsmanna innanlands. Í ár ætlum við að halda Ferðatorg 2003 í Vetr- argarði Smáralindar fyrstu helgina í maí til þess að kynna ferðaflóruna og benda fólki á að aka ekki um sveitir landsins án þess að nýta sér það sem í boði er á hverjum stað. Árlega bætist ýmislegt forvitnilegt við eins og kletta- og ísklifur, fjalla- skokk, hellaskoðun, útsýnissigling- ar og fleira mætti nefna. Ekki má gleyma söfnum eins og drauga- safni, hvalasafni, Njálusafni, síld- arminjasafni, byggða- og sögusöfn- um. Landinn ekur oft landshorna á milli í einum hvelli án þess að gefa sér tíma til að stoppa smástund á áhugaverðum stöðum og njóta þeirrar margbreytilegu afþreying- ar sem í boði er. Auk þess leita Ís- lendingar of oft langt yfir skammt. Það er löngu tímabært að lands- menn hægi aðeins ferðina og skoði landið sitt með aðstoð þeirra sem sérhæfa sig í þjónustu við ferða- menn. Stórstígar framfarir í ferðaþjónustu Eftir Eyju Þóru Einarsdóttur „Með Ferða- torginu er kominn mik- ilvægur vett- vangur sem ferðaþjónustan getur nýtt sér.“ Höfundur situr í framkvæmdastjórn Ferðamálasamtaka Íslands og er hótelstjóri. KAUPMÁTTUR hefur aukist á undanförnum árum segja þeir sem ekki vilja ræða skattahækkanir nú- verandi ríkisstjórnar. Nú er það þannig að kaupmáttur er ævinlega kaupmáttur einhverra og meðaltals- kaupmátturinn segir harla lítið um kaupmátt minn eða þinn. Það er svo skrítið með meðaltalskaupmátt eins og meðalskóstærðina að hún þarf ekki að passa neinum og enginn gæti gengið í án þess að fá tá- eða hælsæri. Því er ekki undarlegt þó spurt sé, kaupmáttur hverra hefur aukist? Er átt við lífeyrisþega, bændur, opinbera starfsmenn eða forstjóra ónefndra stórfyrirtækja, banka- og fjármálafyrirtækja? Er átt við kaupmátt þeirra launamanna sem hafa fengið að finna fyrir vax- andi skattbyrði stjórnvalda eða alla forstjórana sem hafa haft 10 til 15 faldar tekjur á við hina? Allir þessir einstaklingar eru jú inni í meðaltali fjármálaráðherra svo meðaltalsraus segir ekkert um raunverulega út- komu með tilliti til hvers og eins. Hafa forstjórar tapað kaup- mætti miðað við lífeyrisþega? Skoðum ögn nánar þetta meðal- tal. Segjum sem svo að kaupmáttur allra hafi aukist samkvæmt meðal- talsniðurstöðu sem segir ekkert um aukningu kaupmáttar forstjóra Kaupþings eða ellilífeyrisþeganna foreldra minna, svo dæmi séu tekin. Fjármálaráðherra viðurkenndi í fréttaþætti sjónvarps miðvikudag- inn 12. mars sl. að skattar hefðu aukist samkvæmt meðaltalsútreikn- ingi. Hann bætti því við að það skipti þó í raun ekki máli heldur væri það kaupmáttaraukningin sem væri aðalatriðið. Þá spyr ég hvor hópanna, lífeyrisþegarnir eða for- stjórarnir, hefur komið betur út úr kaupmáttardæminu að teknu tilliti til skattanna? Hefur forstjóraliðið tapað kaupmætti samanborið við líf- eyrisþegana eða öfugt? Kaupmáttur hverra, að teknu tilliti til skattanna, hefur í raun aukist mest miðað við aðra tekjuhópa í þjóðfélaginu? Er fjármálaráðherrann tilbúinn að leggja fram sundurliðaðan útreikn- ing á þessu fyrir þjóðina svo hún geti sjálf metið hvers virði meðal- talsútreikningurinn er? Það er ekki að ófyrirsynju að almenningur tekur upplýsingum ríkisstjórnarinnar og forsvarsmanna hennar með var- kárni þessa dagana. Engar eða villandi upplýsingar eru versti óvinur lýðræðisins Kaupmáttur og skattar eru ekki að öllu leyti gagnsæ né samhverf hugtök. Kaupmáttur getur aukist án þess að skattar eða skattbyrði breytist, t.d. vegna verðlækkana og aukinnar vinnu einstaklinga. Og kaupmáttur getur minnkað vegna verðhækkana og minni vinnu ein- staklinga. Skattbyrðin aftur á móti ákvarðast alfarið af ákvörðunum stjórnvalda. Hún getur breyst án þess að valda almennum kaupmátt- arbreytingum, t.d. skattar á vörur og þjónustu sem einungis tilteknir hópar neyta, t.d. lífeyrisþegar eða hátekjufólk. Skattbyrði getur enn- fremur aukist almennt án þess að valda almennri kaupmáttarskerð- ingu sem ræðst af samspili skatta og kaupmáttar. Kaupmáttur þorra neytenda eða einungis tiltekinna hópa getur m.ö.o. breyst með skatt- breytingum stjórnvalda eða af öðr- um ástæðum. Niðurstaðan ræðst þó fyrst og fremst af eðli skattalegu breytinganna, tekjuskiptingunni í þjóðfélaginu og neyslumunstrinu. Skattalegar breytingar og tekju- skiptingin byggjast á eða eru að stórum hluta afleiðing pólitískra ákvarðana stjórnvalda. Neyslu- munstrið aftur á móti ræðst af öðr- um og persónulegri forsendum. Neyslan er samt sem áður afleidd stærð m.t.t. teknanna og kaupmátt- arins og vissulega gagnast t.d. lækkaðir skattar á jeppum og rauð- víni ákveðnum tekjuhópum umfram aðra, svo dæmi séu tekin. Þegar skatta- og kaupmáttarmál eru rædd og ráðstafanir stjórnvalda m.t.t. þessara mála skiptir því öllu máli hvort átt er við kaupmátt til- tekinna einstaklinga og tekjuhópa eða kaupmátt allra yfirleitt. Almenn kaupmáttaraukning kann m.ö.o. ein- ungis að gagnast fáum. Þegar rætt er um skattbyrði og kaupmáttar- aukningu er nauðsynlegt að ræða einnig skiptingu skattbyrðinnar og kaupmáttarins með tilliti til ólíkra tekjuhópa, annars er einungis hálf sagan sögð. Gagnast slík málfærsla einhverjum? Samspil skatta og kaupmáttar er oft flókið og almenningur á heimt- ingu á ítarlegum og sönnum upplýs- ingum um raunveruleg áhrif skatta- legra breytinga, þótt ekki væri nema vegna upplýsingaskyldu stjórnvalda í lýðræðisþjóðfélagi. Versti óvinur lýðræðisins er engar eða villandi upplýsingar stjórnvalda í eigin þágu eða þeirra flokka sem sitja í ríkisstjórn. Grundvallarregla jafnaðar- og félagshyggju Það er ekkert nema sjálfsagt og eðlilegt að kaupmáttur allra aukist þegar framleiðni eykst í atvinnulíf- inu. Það er aftur á móti alls ekki eðlilegt né ásættanlegt að kaup- máttur þeirra sem betur mega sín aukist á kostnað þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Það er ekki heldur ásættanlegt að aukin skatt- byrði flytjist af breiðum bökum eignamanna yfir á bök launamanna, lífeyrisþega og annarra sem af ein- hverjum ástæðum standa höllum fæti miðað við aðra hópa. Þetta er grundvallarregla og leiðarljós jafn- aðar- og félagshyggju, sem ekki verður frá hvikað hvorki í aðdrag- anda kosninga né að þeim loknum. Kaupmáttur hverra hefur aukist? Eftir Hermann Óskarsson „Versti óvin- ur lýðræð- isins er eng- ar eða villandi upp- lýsingar stjórnvalda í eigin þágu eða þeirra flokka sem sitja í rík- isstjórn.“ Höfundur er formaður kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.