Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 26
SUÐURNES
26 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMARGAR hugmyndir eru
settar fram í niðurstöðum áhuga-
hóps um atvinnu- og búsetuupp-
byggingu á Suðurnesjum sem kynnt-
ar voru í gær. Rætt er um leiðir til að
bæta ímynd svæðisins, auka mennt-
un, mikilvægi stoðkerfis og nýsköp-
unar og bent á sérstök tækifæri sem
hægt væri að nýta strax.
Starf þessa áhugahóps hófst eftir
fund um atvinnumál sem Sandgerð-
islistinn efndi til á dögunum. Fram
kom á kynningarfundinum í gær að
Hjálmar Árnason alþingismaður
sem raunar titlar sig sem fyrrver-
andi skólameistara í þessu samhengi
til að leggja áherslu á að hópurinn sé
ótengdur stjórnmálaflokkum, kallaði
saman hóp fólks til að fylgja eftir
umræðum á fundinum í Sandgerði. Í
hópnum voru um tuttugu Suður-
nesjamenn, ýmist brottfluttir eða
búsettir á svæðinu.
Bæta þarf ímynd Suðurnesja
Í skýrslu um niðurstöður hópsins
er lögð áhersla á mikilvægi þess að
efla ímynd Suðurnesja í heild sinni.
Með því myndi færast aukinn kraft-
ur í íbúana og fýsilegra yrði fyrir
nýja að flytjast á staðinn. Nefnd eru
nokkur atriði í þessu sambandi, með-
al annars að farið verði í sérstakt ný-
sköpunarátak undir vinnuheitinu
„Auður í krafti Suðurnesja“.
Lögð er áhersla á að bæta þurfi
menntun fólks á svæðinu svo það
standi jafnfætis öðrum. Í því sam-
bandi er meðal annars lagt til að
stofnaðar verði 70 nýjar starfs-
menntabrautir í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og hafið átak um eflingu
háskólanáms á Suðurnesjum.
Vakin er athygli á því að frum-
kvöðlar og lítil fyrirtæki þarfnist oft
ráðgjafar, handleiðslu og aðstoðar
við að þróa nýjar hugmyndir, sækja
um styrki og lán og gera viðskipta-
áætlanir. Meðal annars er lögð
áhersla á að efla stoðkerfi á þessu
sviði, kortleggja tækifærin og stofna
áhættufjármagnssjóð til að hrinda
góðum hugmyndum í framkvæmd.
Loks er farið yfir ýmis tækifæri
sem séu á Reykjanesi og sem hægt
sé að nýta strax. Keflavíkurflugvöll-
ur og orkan eru sérstaklega nefnd
svo og tækifæri í ferðamennsku.
Lagt er til að komið verði á fót stofn-
anasetri fyrir deildir opinberra
stofnana sem tengjast sérkennum
svæðisins, svo sem Flugmálastjórn,
Orkustofnun, Landhelgisgæslu,
Orkuskóla Sameinuðu þjóðanna og
rannsóknastofnunum.
Öllum tillögunum er vísað til til-
tekinna aðila, svo sem Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum, fyrir-
tækja eða stofnana. Hjálmar Árna-
son lagði á það áherslu í ávarpi á
kynningarfundinum að þetta væru
ekki patentlausnir heldur framlag
hópsins til umræðunnar og tilraun til
að hefja aðgerðir vegna þess vanda
sem nú steðjar að í atvinnumálum.
Þeir sem skráðir væru sem ábyrgð-
araðilar fyrir einstökum verkum
þyrftu nú að taka við og koma hug-
myndunum í framkvæmd.
ÞEGAR vorfuglarnir byrja að
kvaka fer Karlakór Keflavíkur
á kreik. Kórinn mun kveða við
raust um helgina á tónleikum í
Grindavík og Reykjanesbæ og
fleiri tónleikar fylgja í kjölfarið.
Fyrstu tónleikarnir verða í
kvöld, föstudag, í Grindavíkur-
kirkju og hefjast þeir klukkan
20.30. Á morgun syngur kórinn
í Ytri-Njarðvíkurkirkju klukk-
an 17.
Fimmtudaginn 10. apríl kl.
20.30 verða tónleikar í Bústaða-
kirkju í Reykjavík og síðustu
skipulögðu tónleikarnir þetta
vor verða föstudaginn 11. apríl í
Ytri-Njarðvíkurkirkju kl.
20.30.
Að vanda er efnisskrá kórs-
ins fjölbreytt, hún samanstend-
ur af íslenskum og erlendum al-
þýðulögum.
Stjórnandi er Vilberg
Viggósson. Undirleikari á pí-
anó er Ester Ólafsdóttir og þar
að auki annast undirleik Ásgeir
Gunnarsson á harmonikku,
Þórólfur Þórsson og Rebekka
B. Björnsdóttir á bassa.
Einsöngvarar á tónleikunum
eru Steinn Erlingsson barítón
og Haukur Ingimarsson tenór.
Karkakór Keflavíkur verður
fimmtugur á þessu ári en hann
var stofnaður 1. desember
1953. Í fréttatilkynningu sem
send var út vegna tónleikanna
kemur fram að hann sé þó enn
ungur í anda og þess látið getið
að aldur kórsins sé nú í fyrsta
skipti sá sami og meðalaldur
kórfélaga.
Í kórnum eru 45 söngvarar
um þessar mundir. Formaður
Karlakórs Keflavíkur er Steinn
Erlingsson.
Karlakór-
inn með
tvenna
tónleika
Grindavík/Reykjanesbær
NEMENDUR í Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja þróuðu í vetur viðskipta-
hugmynd og stofnuðu um hana fyr-
irtæki. Fyrirtækið varð Local –
markaðsfyrirtækið þitt, og gaf það
út Local afsláttarkort sem gilda í
sextán verslunum og þjónustufyr-
irtækjum á Suðurnesjum.
Local varð til í námsáfanga sem
byggist á námsefni frá Junior
Achievement. Nemendurnir fara í
gegnum fjölbreytt ferli við þróun á
hugmynd að þjónustu eða vöru. Þeir
þurfa að afla fjármagns, meðal ann-
ars með sölu hlutabréfa, og ráða í
störf innan fyrirtækisins.
Guðmundur Árnason, forstjóri
Local, kynnti árangurinn á fundi
áhugahóps um atvinnumál í gær.
Þar kom fram að afsláttarkortið,
sem einkum er ætlað nemendum
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, hefði
slegið í gegn. Fyrirtækin veita hand-
höfum kortsins afslátt sem kynntur
er í bæklingi sem gefinn hefur verið
út. Fram kom hjá Guðmundi að kort-
ið væri mikið notað, nemendur sæju
sér hag í að nýta afslætti og fyr-
irtækin að ná sér í aukin viðskipti
hjá þessum góða viðskipta-
mannahópi.
Áfanganum er að ljúka og kom
fram hjá Guðmundi að hagnaður
hefði orðið um 180 þúsund krónur
sem er tvöfalt meira en áætlað var.
Lét hann þess getið að þessi góða
byrjun hvetti þá félagana sem
stjórnuðu fyrirtækinu til að halda
áfram að þróa þessa hugmynd á eig-
in vegum. Þeir hefðu nú ákveðna
reynslu sem þeir vildi reyna að nýta.
Nemendur
stofna mark-
aðsfyrirtæki
VINNA greiningu á hag-
kvæmni þess að sameina sveit-
arfélögin á Suðurnesjum.
Minnka þarf aðskiln-
aðarstefnu sveitarfélaganna
og byrja strax að greina hag-
kvæmni þess að sameina sveit-
arfélögin á svæðinu og gera
það ljóst að Suðurnesin eru
eitt atvinnusvæði ásamt höf-
uðborgarsvæðinu.
Tillögunni er vísað til Sam-
bands sveitarfélaga á Suð-
urnesjum.
Sveitarfélögin
sameinuð
FJÁRMÁLASTOFNANIR og
sveitarfélög kaupa hlut rík-
isins í ÍAV [Íslenskum að-
alverktökum hf.].
Ráðandi hlutur verður seld-
ur á næstu dögum. Kanna
þyrfti hvort þessum eign-
arhluta væri betur varið í eigu
aðila á Suðurnesjum.
Tillögunni er vísað til fjár-
málastofnana.
Vilja kaupa ÍAV
Hópur áhugafólks um atvinnu- og búsetuuppbyggingu kynnir hugmyndir sínar
Mörg tækifæri
sem hægt er
að nýta strax
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Guðmundur Árnason segir frá Local og þrír úr hópnum fylgjast með,
Helga Sigrún Harðardóttir, Hjálmar Árnason og Guðmundur Pétursson.
Reykjanes