Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 45
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 45 komust að þeirri niðurstöðu að þessi aðferð við verðmerkingar væri ólögleg og lögðu stjórnsýslu- sekt á fyrirtækið. Heilsa ehf. höfð- aði síðan mál til ógildingar á úr- skurðinum. Ákvörðun áfrýjunarnefndar var staðfest af héraðsdómi og lögð 400 þúsund króna stjórnsýslusekt á fyrirtækið. „Niðurstöður þessa dóms koma á óvart og virðist af dómnum sem allar nýjungar varðandi verðmerk- ingar í verslunum og innleiddar eru neytendum til hægðarauka séu nær útilokaðar. Það er ekki síst rökstuðningur dómarans fyrir niðurstöðu sinni sem vekur furðu, þar sem af dómnum má ráða að nær allar merkingar á vörum í verslunum hér á landi séu ólöglegar og að nauðsynlegt sé að líma merkimiða á hverja einustu vöru í verslunum, en ekki sé hægt að hafa verðmerk- ingar í hillum eins og almennt tíðkast,“ segir í fréttatilkynningu frá samtökunum. SAMTÖK verslunarinnar lýsa furðu sinni á nýlegum dómi Hér- aðsdóms Reykjavíkur um verð- merkingar í verslunum. Samtökin telja mjög mikilvægt að málinu verði skotið til Hæstaréttar í þeirri von að þar verði þeirri óvissu eytt sem dómur héraðs- dóms hefur í för með sér. Dómur héraðsdóms er í máli sem Heilsa ehf. höfðaði gegn Sam- keppnisráði vegna þeirrar ákvörð- unar ráðsins að sekta fyrirtækið vegna ófullnægjandi verðmerkinga í verslunum þess. Í nýrri verslun fyrirtækisins hafði verið tekin upp sú nýbreytni að í stað verðmerk- inga á hillur eða vöruna sjálfa voru settir upp strikamerkjaskannar og gátu viðskiptavinir verslunarinnar séð verð vörunnar með því að bera strikamerki á henni undir skann- ann. Samkeppnisstofnun taldi að hér væri um brot að ræða á sam- keppnislögum og reglum um verð- merkingar. Samkeppnisstofnun og Áfrýjunarnefnd samkeppnismála DILBERT mbl.is Við nám á Bifröst en ekki í Reykjavík Í frétt um framlag ungs fólks á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem birtist sl. laugardag, var ranglega sagt að Birgir Stefánsson stundaði nám við Háskólann í Reykjavík. Hið rétta er að hann stundar nám við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Stígamót gangast fyrir opnum fundi með frambjóðendum flokk- anna í Hlaðvarpanum í dag, föstu- daginn 4. apríl, kl.12. Á dagskrá verða málefni kynjanna með sér- stakri áherslu á kynferðisofbeldi. Gestir verða: Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, Jón- ína Bjartmarz og Árni Magnússon frá Framsóknarflokki, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Ágúst Ólafur frá Samfylkingunni, Kolbrún Hall- dórsdóttir frá VG og Sigurður Ingi Jónsson fyrir Frjálslynda. Boðið verður upp á súpu og brauð. Aðalfundur FENÚR, Fagráð um endurnýtingu og úrgang, verður haldinn í Hlégarði, Mosfellsbæ, í dag, föstudaginn 4. apríl, kl. 11. Hvatningarverðlaun FENÚR verða veitt í lok aðalfundar en það er um- hverfisráðherra, Sif Friðleifsdóttir, sem veitir þau. Í framhaldi af aðal- fundi eða kl. 13 verður haldin ráð- stefna þar sem fjallað verður um endurvinnslu- og úrgangsmál sem efst eru á baugi í dag. Dagskrá ráð- stefnunnar má finna á heimasíðu FENÚR www.fenur.is. Ráðstefnu- gjald er 3.500 kr. fyrir félagsmenn FENÚR en 5.000 kr. fyrir aðra. Í DAG T-listi Óháðra opnar kosn- ingaskrifstofu T-listi Óháðra í Suð- urkjördæmi opnar kosningaskrif- stofu sína í dag, föstudaginn 4. apríl, milli kl. 17 og 19 að Hafnargötu 35, Reykjanesbæ. Söngatriði og léttar veitingar. Allir velkomnir. Frambjóðendur B-listans í Norð- vesturkjördæmi opna kosn- ingaskrifstofu sína að Sunnubraut 21, Akranesi, á morgun, laugardag- inn 5. apríl, kl. 14. Einnig verður B– listinn ásamt ungum framsókn- armönnum með uppákomu í fram- sóknarhúsinu að Sunnubraut 21, Akranesi, kl. 20.30 sama dag. Rapp- arinn Iceberg frá Borgarnesi skemmtir. STJÓRNMÁL Íslensk ættleiðing heldur mál- þing í tilefni af 25 ára afmæli fé- lagsins laugardaginn 5. apríl kl. 13–17, í safnaðarsal Hallgríms- kirkju. Tilgangur málþingsins er að efla fræðslu og skapa umræðu um ættleiðingar, en félagið hefur haft milligöngu um ættleiðingu 400 barna erlendis frá. Málþingið hefst með ávarpi dómsmálaráðherra, Sólveigar Pétursdóttur. Erindi halda: Margrét Hauksdóttir, for- maður ættleiðingarnefndar, Gestur Pálsson barnalæknir og Baldur Kristjánsson, lektor í þróun- arsálfræði við Kennaraháskóla Ís- lands. Gestur á málþinginu er Monica Dalen prófessor við sér- kennsludeild Háskólans í Osló. Einnig koma fram á málþinginu sjónarmið foreldra og þeirra sem um árabil hafa starfað að ættleið- ingum á vettvangi Íslenskrar ætt- leiðingar. Málþing um tungumál og at- vinnulífið verður haldið á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadótt- ur í erlendum tungumálum við HÍ laugardaginn 5. apríl kl. 10–13, í Háskóla Íslands, Odda stofu 101. Fjallað verður um árangursríka ís- lenskukennslu á vinnustöðum. Frummælendur á málþinginu verða: Birna Arnbjörnsdóttir, lekt- or í enskum og íslenskum málvís- indum við HÍ, Ingibjörg Hafstað, forstjóri Fjölmenningar ehf., Skúli Thoroddsen, forstöðumaður mið- stöðvar símenntunar á Suð- urnesjum og Svavar Svavarsson, framleiðslustjóri Granda hf. Að loknu málþinginu verða umræður. Leikskólar í Grafarvogi með op- ið hús Eftirtaldir leikskólar í Grafarvogi verða með opið hús á morgun, laugardaginn 5. apríl, kl. 10–12: Brekkuborg, Engjaborg, Fífuborg, Foldaborg, Funaborg, Klettaborg, Lyngheimar og Sjón- arhóll. Þá gefst tækifæri til að skoða leikskólana og kynna sér starfsemi og menningu þeirra. Börn þurfa að mæta í fylgd með fullorðnum. Líknar- og vinafélagið Bergmál heldur árshátíð á morgun, laug- ardaginn 5. apríl, í safnaðarheimili Háteigskirkju. Húsið verður opnað kl. 18.30 og borðhald hefst kl. 19. Boðið verður upp á þríréttaða mál- tíð. Þátttaka tilkynnist til stjórnar. Leikskólarnir í Bakkahverfi í Breiðholti, Arnarborg, Bakkaborg og Fálkaborg hafa opið hús á morgun, laugardaginn 5. apríl. Starfsfólk og börn þessara leik- skóla taka á móti gestum kl. 10–14. Arnarborg v/ Maríubakka kl. 10– 12, Bakkaborg v/Blöndubakka kl. 1–13 og Fálkaborg v/Fálkabakka kl.12–14. Bindindissamtökin IOGT efna til opins kynningar- og skemmti- fundar í leikhússal Iðnó við Tjörn- ina laugardaginn 5. apríl kl. 13.30– 15.30. Þar verða flutt ávörp auk tónlistar og danssýningar o.fl. Fundurinn er öllum opinn. Á MORGUN Samtök verslunarinnar Lýsa furðu sinni á dómi um verðmerkingar                 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.