Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 47
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 47 NÚ um nokkurt skeið hafa Banda- ríkjamenn haldið uppi miklum áróðri þess efnis að Írakar réðu yfir einhverjum vopnum sem þeim væri ekki hollt að eiga. Eftirlitsmenn hafa ekkert fundið og Bandaríkjamenn hafa ekkert lagt fram annað en eigin heilaspuna. Nú hafa þeir í félagi við Breta ráð- ist inn í Írak og virðast komnir í einhvers konar fjölmiðlasirkus. Hverjir eru svo þessir Írakar? Írak- ar eru vel stæð menningarþjóð sem nýtur töluverðrar virðingar í araba- heiminum, svo mikillar virðingar að í Jemen t.d. hanga myndir af Sadd- am Hussein uppi í fyrirtækjum og á heimilum. Þegar þarlendir eru spurðir um þessar myndir er svarið það að Saddam sé manna líkleg- astur til að sameina araba og standa uppi í hárinu á vesturveldunum. Sá er þetta ritar var við störf í Jemen árið 1992, einn af vinnufélög- unum var íraskur rafmagnsverk- fræðingur og hafði hann árið áður verið viðhaldsstjóri á stóru sjúkra- húsi í Bagdad. Þessi maður hafði skrýtna sögu að segja. Í lok Flóa- bardaga sló rafmagnið á kælivél- unum í líkhúsinu út. Þegar ekki gekk að koma vélunum í gang fór hann inn í líkhúsið, en þar mætti honum skrýtin sjón. Lík af þús- undum Bandaríkjamanna í fullum herklæðum. Þarna í Jemen sögðu aðrir menn frá því að íraski herinn hefði umkringt hluta þess banda- ríska í sandbyl og þess vegna hefði það stríð verið blásið af klukkan þrjú að nóttu af forseta Bandaríkj- anna. GESTUR GUNNARSSON, tæknifræðingur, Flókagötu 8. Írak Frá Gesti Gunnarssyni: VEGNA greinaskrifa í Frétta- blaðinu dagana 25. og 26. mars sl. þar sem m.a. var vitnað til ummæla minna vil ég taka fram að grein sú er birtist í Fréttablaðinu þann 26. mars sl. var birt án vilja og vitundar minn- ar og gefur þar m.a. að líta ýmis til- vitnuð ummæli mín sem eru að mínu viti ýmist rangfærð eða tekin úr sínu rétta samhengi og verður að telja mjög miður. Tel ég rétt að árétta þetta sérstaklega sem og almennt mikilvægi þess að leitast við að við- hafa hlutlæga og vandaða umfjöllun um það vandmeðfarna málefni sem um ræðir. Ber réttlilega að geta þess að fyrri grein blaðamanns Frétta- blaðsins sem birtist þann 25. mars sl. var unnin í fullu samráði við mig og ummæli þar rétt eftir mér höfð. Hef ég ekki frekari athugasemdir við þetta en hafa ber jafnan það sem sannara reynist. PÉTUR LEIFSSON, lögfræðingur í Héraðsdómi Reykjavíkur og kennari í alþjóðalögum við HÍ. Athugasemd vegna greina- skrifa Fréttablaðsins Frá Pétri Leifssyni: Laugavegi 53, s. 552 3737 Tilboð á nærfötum og samfellum 20% afsláttur L a n g u r la u g a rd a g u r o p ið t il k l. 1 7 .0 0 Kaupþing banki hf., kt. 560882-0419, Ármúla 13, Reykjavík, f.h. Vörðubergs ehf., kt. 600303-3250, Austurstræti 17, Reykjavík (hér eftir einnig nefndur tilboðsgjafi), gerir hér með hluthöfum í Keri hf., kt. 500269-4549 (hér eftir einnig nefndir tilboðshafar), svohljóðandi tilboð: 1. gr. Tilboðið tekur til allra hluta í Keri hf., kt. 500269- 4549, Suðurlandsbraut 18, Reykjavik (hér eftir einnig nefnt félagið), sem ekki eru þegar í eigu tilboðsgjafa, en tilboðsgjafi hefur þegar tryggt sér 59,44% hlut í félaginu. 2. gr. Kaupþing banki hefur umsjón með tilboði þessu f.h. tilboðsgjafa, og er heimilt að setja fram yfirtökutilboð fyrir hans hönd. 3. gr. Verð samkvæmt tilboði þessu miðast við gengið 12,3 fyrir hvern hlut, sem er hærra en hæsta gengi sem tilboðsgjafi hefur greitt fyrir hlutabréf í félaginu síðustu sex mánuði, sem er krónur 12,0 fyrir hlut. Tilboðshafar (hluthafar) sem vilja samþykkja boð þetta skulu undirrita samþykki sitt á fram- salseyðublað sem sent verður á lögheimili þeirra og senda aftur til Kaupþings banka hf., Ármúla 13, 108 Reykjavík, ásamt vörslusamningi. Þegar Kaupþingi banka hefur borist frumrit framsals á eignarrétti að hlutum í Keri hf. og gerður hefur verið vörslusamningur, mun and- virði hlutabréfa í félaginu lagt inn á banka- reikning hluthafa sem fram kemur í vörslu- samningi, nema hluthafi óski sérstaklega eftir því að andvirði þeirra verði ráðstafað með öðrum hætti. Telst framseldur hlutur frá og með þeim degi eign tilboðsgjafa. 4. gr. Tilboð þetta rennur út kl. 16.00, föstudaginn 2. maí 2003. 5. gr. Gert er ráð fyrir að Ker hf. muni vinna eftir þeirri meginstefnu að einbeita sér að olíuvið- skiptum, fasteignarekstri og flutningastarfsemi, en auk þess á félagið eignarhlut í Búnaðar- banka Íslands hf. í gegnum eignarhaldsfélagið Eglu hf. Er ekki fyrirhugað að gera breytingar á tilgangi félagsins og ekki eru á þessu stigi áform um að draga úr kjarnastarfsemi félagsins eða nýta fjármunalegar eignir í öðrum tilgangi. Hér eftir sem hingað til verður leitað allra leiða til að reka félagið á sem hagkvæmastan máta. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á sam- þykktum félagsins meðan það er skráð í Kaup- höll Íslands, en tilboðsgjafi hyggst hlutast til um að félagið verði afskráð af Aðallista Kaup- hallar Íslands. Þá er vakin athygli á því að skv. 24. og 25. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög getur hluthafi sem á meira en 9/10 hluta hlutafjár í félagi krafist þess að aðrir hluthafar sæti inn- lausn á hlutum sínum í félaginu. 6. gr. Tilboð þetta er sett fram til samræmis við V. kafla laga nr. 34/1998 um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða, sbr. reglugerð nr. 432/1999 um yfirtökutilboð. Reykjavík, 4. apríl 2003. F.h. Vörðubergs ehf. Kaupþing banki hf. Yfirtökutilboð Opinbert tilboðsyfirlit Kaupþing banki hf. • Ármúla 13 • 108 Reykjavík sími 515 1500 • fax 515 1509 • www.kaupthing.is A B X
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.