Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 50
KNATTSPYRNA 50 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ má með sanni segja að sigur Litháa á Skotum hafi opnað ákveðnar dyr fyrir Íslendinga í bar- áttunni um að ná öðru af tveimur fyrstu sætunum í 5. riðli undan- keppni Evrópumóts landsliða í knattspyrnu. Það landslið, sem nær bestum árangri í riðlinum, fer beint á EM í Portúgal 2004 og liðið í öðru sæti leikur um farseðil þangað. Staðan er nú þannig í 5. riðli – leik- ir, sigrar, jafntefli, töp, markatala, stig og töpuð stig: Þýskaland 3 2 1 0 5:2 7 -2 Skotland 4 2 1 1 6:4 7 -5 Litháen 5 2 1 2 4:6 7 -8 ÍSLAND 3 1 0 2 4:4 3 -6 Færeyjar 3 0 1 2 3:6 1 -7 Leikir sem eftir eru: Ísland - Færeyjar .................... 7. júní Skotland - Þýskaland .............. 7. júní Færeyjar - Þýskaland ........... 11. júní Litháen - Ísland ..................... 11. júní Færeyjar - Ísland................ 20. ágúst Ísland - Þýskaland ................. 6. sept. Skotland - Færeyjar .............. 6. sept. Færeyjar - Litháen .............. 10. sept. Þýskaland - Skotland........... 10. sept. Þýskaland - Ísland ................. 11. okt. Skotland - Litháen ................. 11. okt. Úrslit leikja sem búnir eru: Færeyjar - Skotland ......................2:2 Litháen - Þýskaland.......................0:2 Ísland - Skotland ............................0:2 Litháen - Færeyjar ........................2:0 Ísland - Litháen..............................3:0 Þýskaland - Færeyjar....................2:1 Skotland - Ísland ............................2:1 Þýskaland - Litháen.......................1:1 Litháen - Skotland .........................1:0 Leikur íslenska landsliðsins gegnSkotum í Glasgow olli talsverð- um vonbrigðum. Sérstaklega hvernig það lék í fyrri hálfleiknum og virtist ekki geta svarað stífri pressu skosku leikmannanna sem sóttu af krafti og gáfu þeim íslensku engan frið til að vera með boltann og byggja upp sóknir. Ásgeir Sigurvinsson segir að þetta hefði ekki átt að koma neinum á óvart, Skotar hefðu leikið nákvæm- lega eins og við var búist, en íslensku leikmennirnir hefðu ekki brugðist við því eins og lagt hefði verið upp. „Skotar eru þekktir fyrir sinn leik- stíl þar sem þeir pressa mjög mikið, alveg upp að vítateig andstæðing- anna, og gefa mönnum aldrei tíma til að vera með boltann. Þetta er gamla breska aðferðin sem þeir beita stöð- ugt. Gegn þessari leikaðferð byggist allt á því að geta losað sig undan pressunni. Við áttum von á að þeir myndu keyra svona á okkur í 20 til 25 mínútur, og það gerðu þeir svo sann- arlega. En við áttum að geta leyst þetta vandamál því við teljum okkur eiga leikmenn sem geta tekið á móti bolta í þröngri stöðu og skilað honum á samherja.“ Undirbúningurinn miðaðist við svona pressu Hvað var það þá sem fór úrskeiðis í fyrri hálfleiknum? „Miðjan virkaði alls ekki. Það kom flatt upp á mann því undirbúningur liðsins miðast einmitt við það að mæta svona pressu. Þess vegna var stillt upp fimm manna vörn, tilgangurinn var að vera með okkar aukamenn aft- ast, þeir áttu að gefa okkur dýpt til að betra væri að halda boltanum. Þeir áttu síðan að skila honum áfram, en ekki senda háar sendingar beint á varnarmenn Skota, sem eru sterkir skallamenn og glíma við þannig fót- bolta í hverri viku. Það átti að senda boltann fram yfir miðju, en ekki það langt að vörnin þeirra kæmist í bolt- ann. En undir þessari pressu komu fram miklir veikleikar hjá okkar mönnum í að spila boltanum. Margir okkar varnarmanna komu boltanum ekki frá sér öðruvísi en að senda hann beint til baka, yfir miðjuna okkar og á Skotana. Með þá Eið Smára og Rúnar sem fremstu menn, gekk þetta engan veginn upp, þeir hefðu þurft að fá boltann sendan í þeirri hæð sem þeir gætu tekið við honum og spilað áfram, en það var ekki gert. Þá gerðu strákarnir of mörg mis- tök í atriðum sem við vissum að kæmu upp í leiknum og búið var að fara rækilega yfir. Fimm manna vörnin var líka sett upp til þess að loka á sendingar Skotanna út í horn- in, sem þeir beita svo mikið. Þau svæði áttu að vera lokuð og yfir þetta var farið mörgum sinnum. Það var því hræðilegt að fá á sig mark strax á ell- eftu mínútu þar sem einmitt þetta brást.“ Hefði viljað sjá meira frumkvæði Hvernig hefði verið hægt að fá meira út úr miðjumönnunum í fyrri hálfleik? „Ég hefði viljað sjá meira frum- kvæði frá Arnari Grétarssyni og Jó- hannesi Karli, þeir hefðu þurft að koma aftar á völlinn, losa sig frá mönnum og fá boltann frá varnar- mönnunum. Eini miðjumaðurinn sem var laus í fyrri hálfleiknum var Brynj- ar Björn, og það er alls ekki hans hlutverk að taka við boltanum og fara með hann upp völlinn. Fyrri hálfleik- urinn þróaðist þannig að miðjan komst aldrei í takt við leikinn, Arnar og Jóhannes fengu ekki boltann lang- tímum saman og voru meira og minna hlaupandi á milli manna til að reyna að vinna boltann. Atli fór yfir þessa hluti í hálfleik og sagði að það gengi ekki að spila svona áfram. Það væri ekkert í gangi, þeir yrðu að sýna að þeir væru betri en þetta. Miðjan yrði að vera virkari í að fá boltann og spila honum upp völlinn í stað þess að vera með endalausar langar sendingar. Þetta gekk eftir í seinni hálfleik, þá sást að við erum ekki með slakara lið en Skotar þó við ættum alls engan stórleik. Eftir á að hyggja hefði líklega verið betra að vera með Arnar Grétarsson aftastan á miðjunni frá byrjun, eins og hann hefur yfirleitt spilað með sín- um félagsliðum erlendis. Þegar hann fór í þá stöðu í seinni hálfleik breyttist miðjuspilið mikið. Þannig viljum við að þetta gangi fyrir sig, menn verða að hafa sjálfstraust til að spila undir álagi.“ Þarna kom líka við sögu gamal- kunnugt vandamál, að þurfa að nota leikmenn í stöður sem þeir spila ekki hjá sínum félagsliðum. „Já, Arnar Viðarsson lék sem vinstri bakvörður, alls ekki í fyrsta skipti, en hann hefur ekki leikið þar í langan tíma með Lokeren; þar spilar hann sem miðjumaður. Hermann Hreiðarsson var því miður ekki með en hann átti að fara í stöðu vinstri bakvarðar í þessum leik. En hann var ekki til taks, samt hefðum við átt að hafa leikmenn til að leysa þessi vandamál en það gekk ekki upp. Okkar höfuðverkur er samt skort- ur á breidd, og við höfum þess vegna þurft að hringla með menn í stöðum. Við vorum með sex leikmenn í hópn- um sem spila nánast sömu stöðu með sínum liðum erlendis, Arnar Viðars, Arnar Grétars, Rúnar, Brynjar Björn, Jóhannes Karl og Þórð, sem allir leika eða hafa mest leikið inni á miðjunni. Vandræði með að fullmanna allar stöður Okkur vantar bakverði og kant- tengiliði og þurfum að setja þangað leikmenn sem spila aðrar stöður. Við erum reyndar að fá mjög spennandi kosti vinstra megin því Indriði Sig- urðsson og Hjálmar Jónsson lofa góðu. Við þurfum að finna leikmenn í hverja stöðu sem spila þar reglulega, það er lykilatriði. Þó við eigum marga atvinnumenn sem eru að gera það gott, er ekki sjálfsagt að þeir standi sig í stöðum sem þeir eru ekki vanir að spila. Munurinn á okkur og þjóð eins og Skotum er sá að við eigum í vandræðum með að fullmanna allar stöður. Skotar eru hinsvegar minnst með þrjá til fjóra um hverja þar sem í raun engu máli skiptir hver spilar. Þeir geta teflt fram tveimur til þrem- ur liðum sem væru mjög svipuð að styrkleika. Það getum við ekki.“ En vantar okkur ekki fyrst og fremst afgerandi miðjumann, leik- stjórnanda sem virkilega lætur til sín taka á miðjunni og drífur liðið áfram? „Þessir gömlu góðu leikstjórnend- ur eru á undanhaldi og í rauninni er það vegna þess að fótboltinn hefur tekið breytingum á síðustu árum. Ég heyrði einmitt í mínum gömlu fé- lögum í Stuttgart fyrir skömmu en þeir eru að leita að manni sem getur tekið við af Krassimir Balakov sem leikstjórnandi. Þeir voru að fara yfir þær „tíur“ sem komu til greina og þar var fátt um fína drætti. Uppbygging leikmanna er önnur í dag en hún var áður, miðjumenn þurfa að sinna varn- arleiknum miklu meira en þeir þurftu að gera. Leikurinn breyttist þegar markvörðum var ekki lengur leyft að taka boltann með höndum þegar þeir fengu hann frá samherja. Við það jókst hraðinn og boltinn er miklu meira í leik.“ Frjálsi leikstjórnandinn ekki æskilegur lengur Þetta er sem sagt allt önnur knatt- spyrna en þú spilaðir sjálfur þegar þú stjórnaðir leik Stuttgart á sínum tíma. „Á árum áður þurfti maður sem leikstjórnandi ekki að vinna mikla varnarvinnu. Þetta gekk meira út á að losa sig við „yfirfrakkann“ sem gætti manns og vera síðan yfirvegaður þeg- ar maður fékk boltann. Hjá Stuttgart var mitt hlutverk að vera laus til að byggja upp sóknarleik þegar við náð- um boltanum. Aðrir voru í því að skila varnarhlutverkum og koma boltanum til mín, til þess að ég gæti gert eitt- hvað sjálfur, eða fundið miðjumann eða bakvörð sem hefði losað sig til að fá boltann. Núna þurfa allir miðjumenn að sinna vörninni meira en sóknarhlut- verkinu. Liðin verjast sem ein heild og það getur því enginn lengur tekið lífinu með ró á miðsvæðinu og beðið færis. Það er krafist varnarvinnu af öllum. Hjá mörgum liðum eru sókn- armennirnir líka á fleygiferð í varn- arhlutverki og vinna fram og til baka í 90 mínútur. Eiður Smári er hinsvegar dæmi um sóknarmann sem hættir að elta mótherja, og finnur sér í staðinn svæði þar sem hann getur verið laus þegar liðið nær boltanum og komið honum til hans. Þá gerist líka eitt- hvað. Sumir þjálfarar brjálast þegar þeirra sóknarmenn spila svona. Mitt mat er að það sé nánast búið að eyða út þessum frjálsa leikstjórnanda á miðjunni, þannig leikmenn virðast ekki æskilegir í lið lengur. Núna þurfa allir að gæta mótherja og miðjumaður sem fær boltann gerir lítið af því að reyna að leika á and- stæðing og opna þannig stöðuna fyrir aðra, en í staðinn sendir hann boltann strax á næsta mann. Einstaklings- framtakið í dag er mun minna en áð- Okkur vantar leiðtoga á miðjuna Morgunblaðið/Kristinn Arnar Þór Viðarsson, fyrirliði Lokeren, á hér í höggi við Skotann Graham Alexander. Ísland stendur höllum fæti í undankeppni Evrópumóts landsliða í knattspyrnu eftir annan ósigur sinn gegn Skotum og er með þrjú stig eftir fyrstu þrjá leikina. Líkurnar á að íslenska liðið veiti Þýskalandi, Skot- landi og Litháen keppni um tvö efstu sætin í riðlinum eru ekki miklar en markmiðið sem KSÍ setti upp í byrjun keppninnar var að ná öðru sætinu og komast í umspil. Víðir Sigurðsson ræddi við Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsnefndarmann og tæknilegan ráð- gjafa KSÍ, um leikinn í Skotlandi og stöðu mála hjá landsliðinu að honum loknum. Staðan og möguleikarnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.