Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 9
KONUR í stjórnunarstöðum standa
sig almennt ívið betur en karlar. Þær
sækjast hins vegars síður eftir því að
komast í stjórnunarstöður. Konur eru
samviskusamari er karlar, ívið metn-
aðarfyllri og liprari í samskiptum.
Konur eiga erfiðara með að taka
gagnrýni, eru bundnari af fjölskyldu
og heimili og hafa minni tengsl utan
fyrirtækis. Þær eru lengur að taka
ákvarðanir er karlmenn en virðast
endast lengur í starfi. Þetta eru
helstu niðurstöður könnunar sem
Samtök atvinnulífsins gerði meðal að-
ildarfyrirtækja á ólíkum kostum og
göllum kvenna og karla sem stjórn-
enda. Niðurstöðurnar eru birtar í
fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins
sem kom út í gær.
Spurningarnar, sem lagðar voru
fyrir 1.330 fyrirtæki sem eru aðilar að
SA, voru samdar í samráði við jafn-
réttisráð. Alls svöruðu 600 fyrirtæki
en könnunin var gerð í mars á þessu
ári.
Fyrirtækin voru spurð hvort konur
sæktust síður, jafnmikið eða meira
eftir stjórnunarstöðum en karlar og
töldu alls 370 fyrirtæki, eða um 62%
fyrirtækjanna sem tóku þátt í könn-
uninni, þá spurningu eiga við sig. Af
þeim sögðu 209 fyrirtæki, eða 56%, að
konur sæktust síður eftir stjórnunar-
stöðum en karlar. Hjá 131 fyrirtæki,
eða 35% þeirra sem svöruðu spurn-
ingunni, sækjast konur jafnmikið eft-
ir stjórnunarstöðum og karlar en að-
eins hjá 30 fyrirtækjum, eða 8%
þeirra, sækjast konur meira en karlar
eftir stjórnunarstöðum.
Konur sækja síður í stjórn-
unarstöður í stórfyrirtækjum
Ef svörin eru skoðuð í samhengi við
stærð fyrirtækja fer hlutfall þeirra
sem segja konur síður sækjast eftir
stjórnunarstöðum hækkandi með
aukinni stærð fyrirtækjanna. Hæst er
hlutfallið meðal fyrirtækja með fleiri
en 200 starfsmenn, en 40 svör bárust
frá fyrirtækjum að þeirri stærð. Eitt
þeirra segir spurninguna ekki eiga
við, eða 2,5%, en 72,5% fyrirtækjanna
segja konur síður sækjast eftir
stjórnunarstörfum en karlar. Fjórð-
ungur segir þær sækjast jafnmikið
eftir stjórnunarstörfum og karlar en
athygli vekur að ekkert stærstu fyr-
irtækjanna 40 segir konur sækjast
meira en karlar eftir stjórnunarstöð-
um.
Spurð að því hvort þau hafi hug á
að fjölga konum í stjórnunarstöðum
segja ívið fleiri fyrirtæki já en nei.
Alls svöruðu 14% fyrirtækjanna
spurningunni játandi en 11% neituðu.
Langflest þeirra, eða 47%, svöruðu
því til að þau veldu hæfasta einstak-
linginn hverju sinni. Af þeim 600 fyr-
irtækjum sem svöruðu töldu um 27%
að spurningin ætti ekki við sitt fyr-
irtæki og eiga þessar tölur því alls við
um 440 fyrirtæki.
Betri reynsla af konum
sem stjórnendum
Þegar svör við spurningum um
ólíka kosti og galla kynjanna sem
stjórnenda eru skoðuð kemur í ljós að
ekki telja allir að munur sé þar á.
Svörin eru þó á þá leið að betri
reynsla sé af konum í stjórnunarstöð-
um en körlum. Þegar spurt er hvernig
konur hafi reynst sem stjórnendur
svöruðu flestir, eða 51%, að þær hefðu
reynst jafnvel og karlar, 11% sögðu
þær hafa reynst betur en karla en 5%
að þær reyndust verri stjórnendur en
karlar. Þess ber að geta að 31% svar-
enda, um 185 fyrirtæki, höfðu enga
reynslu af kvenstjórnanda.
Kostir kvenna sem stjórnenda eru
helst taldir vera samviskusemi, meiri
metnaður en hjá körlum og meiri lip-
urð í samskiptum. Þá leiðir könnunin í
ljós að konur endast lengur í sínum
stjórnunarstöðum en karlar. Karlar
eru taldir bera þá kosti sem stjórn-
endur að vera fljótari að taka ákvarð-
anir og eiga auðveldara með að taka
gagnrýni en konur. Þá eru þeir ekki
eins bundnir af heimili og fjölskyldu.
Könnun SA á viðhorfi til kvenna sem stjórnenda
Konur ívið betri
stjórnendur en karlar
!
""##"#
$
!%&'
()*
""%%
"
$
+
!%&' ()
"
$
+
!"#$
%$
&!$
'($
)!$
'#$
#$
*$
%)$
++$
!"#$
)$
($
#$
'!$
')$
,
-
. /
0
1
,
# -!%
#
.- !/0
%-1 -223%
Dökkblár gallafatnaður
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10—16.
Bankastræti 14, sími 552 1555
Bláar gallabuxur frá
Þrjár síddir - st. 36-48
Nýr hörfatnaður
Síðar skyrtur, buxur,
kjólar með jökkum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Glæsilegur vorfatnaður
Ný sending
Opið laugardag kl. 10—16
30 - 50 % afsláttur
af páskaeggjum
gildir 4. og 5. apríl
Listhúsinu, Engjateigi 17-19.
Síminn er 552 5540 • bokabud@simnet.is
Opið mán.-fös. frá kl. 11-18.30, lau. frá kl. 11-15.30.
LANG ÓDÝRASTA BÓKABÚÐIN
LANG ÓDÝRASTA BÓKABÚÐIN
Verslun fyrir konur, Mjódd, sími 557 5900
Svarta gallalínan
frá Jensen
er komin aftur
Pantanir óskast sóttar
Laugavegi 56, sími 552 2201
NÝ SENDING
FRÁ
Mikið úrval
af fallegum
sumarfötum