Morgunblaðið - 04.04.2003, Side 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing frá
Eglu hf. og er hún birt hér í
heild:
„Að gefnu tilefni, vegna um-
fjöllunar í fjölmiðlum undanfarið
í tengslum við viðræður um sam-
einingu Kaupþings og Búnaðar-
banka Íslands og ummæla sjálf-
skipaðra sérfræðinga um málefni
fjárfestahópsins sem keypti kjöl-
festuhlut í Búnaðarbanka Ís-
lands hf., þá þykir Eglu hf. rétt
að eftirfarandi komi fram:
Það er rangt að samningar
hafi legið fyrir um sameiningu
Búnaðarbanka Íslands hf. og
Kaupþings áður en gengið var
frá kaupunum á kjölfestuhlut-
num í Búnaðarbanka Íslands hf.,
eins og ýjað hefur verið að. Eng-
ir slíkir samningar lágu fyrir.
Hins vegar lá fyrir frá upphafi að
kaupendur að kjölfestuhlutnum í
Búnaðarbanka Íslands hf.
stefndu að hagræðingu í rekstri
bankans og vildu skoða tækifæri
á samvinnu innlendra og er-
lendra aðila við að endurskipu-
leggja íslenskan fjármálamark-
að, til hagsbóta fyrir hluthafa,
starfsmenn bankans og neytend-
ur í landinu.
Það er einnig rangt að Kaup-
þing hafi annast fjármögnun
Eglu hf. á hlutnum í Búnaðar-
banka Íslands hf. Ker hf. á tæp-
lega helmingshlut (49,5%) í Eglu
hf. á móti þýska bankanum
Hauck & Aufhäuser Privatban-
kiers KGaA (50%). Sú lánafyr-
irgreiðsla sem Egla hf. fékk
vegna sinna kaupa er alfarið frá
Landsbanka Íslands hf., við-
skiptabanka Eglu hf. og Kers hf.
Eigið fé Kers hf. er nú metið um
10 milljarðar króna og að und-
anförnu hefur félagið selt eignir
að verðmæti um 5 milljarðar
króna, í samræmi við endurskoð-
aða fjárfestingastefnu félagsins.
Salan á hlut Kers hf. í Vátrygg-
ingafélagi Íslands hf. til Kaup-
þings fyrir 2,8 milljarða króna
var liður í þessari endurskipu-
lagningu fjárfestinga félagsins.
Það er einnig rangt að þýski
bankinn Hauck & Aufhäuser
Privatbankiers KGaA eigi ekki
fulltrúa í nýju bankaráði Búnað-
arbanka Íslands hf. né hafi
fulltrúar bankans ekki mætt á
aðalfund Búnaðarbanka Íslands
hf. laugardaginn 22. mars sl. Dr.
Michael Sautter, framkvæmda-
stjóri hjá Société Generale, var
tilnefndur sem fulltrúi Eglu hf.
og þar með þýska bankans í
bankaráð Búnaðarbanka Íslands
hf. Hefur hann verið beðinn af
þýska bankanum um að sitja
áfram í bankaráðinu sem fulltrúi
Eglu hf., þó svo hann sé innan
tíðar að láta af störfum hjá Soc-
iété Generale.
Þá skal ítrekað hér að hvorki
fleiri né færri en 4 fulltrúar
þýska bankans Hauck & Aufhäu-
ser Privatbankiers KGaA sátu
aðalfund Búnaðarbanka Íslands
hf. á dögunum, þar á meðal Gatti,
aðalframkvæmdastjóri hans.
Einnig er rétt að vekja athygli
á því hér að fjárhagslegur styrk-
leiki fjárfestahópsins var aldrei
dreginn í efa þegar hópurinn var
valinn af Einkavæðingarnefnd
ríkisins til að kaupa hlut hins op-
inbera í Búnaðarbanka Íslands
hf., né heldur er leitað var sam-
þykkis Fjármálaeftirlitsins fyrir
kaupunum. Vangaveltur síðustu
daga um fjármögnun á kaupun-
um í Búnaðarbanka Íslands hf.
eiga því ekki við rök að styðjast
og eru ófaglegar og í meginatrið-
um rangar,“ að því er segir í yf-
irlýsingu frá Eglu.
Yfirlýsing
frá Eglu hf.
FORSTJÓRI í fyrirtæki eins og Pharmaco verður
að gera það sem starfið býður og getur ekki trapp-
að sig niður í starfi, að sögn Sindra. Hann segist
hafa haft sérstaklega mikið að gera síðastliðin
fjögur ár. Frá því Pharmaco keypti lyfjafyrirtækið
Balkanpharma á árinu 1999 hafi hann verið allt að
280–300 daga á ári erlendis. Kominn sé tími til að
breyta til í þessum efnum þannig að hann geti farið
að ráða sínum tíma sjálfur og jafnvel notið lífsins.
„Ég er þó ekki að setjast í helgan stein,“ segir
Sindri. „Ég verð áfram í stjórnum ýmissa dótt-
urfélaga Pharmaco. Svo er ég á lista yfir tillögu
stjórnar Pharmaco að nýrri stjórn félagsins. Koma
mun í ljós á aðalfundi þess í dag hvort ég verð kjör-
inn í stjórn. Um önnur hugsanleg störf er ekki
ástæða til að segja til um á þessu stigi. Ég ætla að
taka mér frí þegar ég læt af störfum um mitt ár en
er alls ekki að hætta afskiptum af Pharmaco.“
Sindri segir að starfsemi Pharmaco hafi gengið
mjög vel þau ár sem hann hafi starfað hjá félaginu.
Hann hafi kynnst fjölmörgu góðu fólki í tengslum
við mörg verkefni og geti ekki annað en verið
ánægður með í hvaða stöðu fyrirtækið sé þegar
hann hafi ákveðið að láta af starfi forstjóra. Þá sé
tímasetningin nú til að taka ákvörðun um að hætta
ágæt.
Forstjóri frá árinu 1981
Sindri hóf störf hjá Apótekarafélaginu árið 1977
og hefur verið forstjóri Pharmaco frá árinu 1981.
Þá var Pharmaco innflutnings- og framleiðslufyr-
irtæki sem starfaði eingöngu á innanlandsmark-
aði. Fyrsta skrefið í útrás félagsins var stigið með
kaupum og síðar sameiningu við búlgarska lyfja-
fyrirtækið Balkanpharma, sem Sindri veitti for-
stöðu allt til ársloka 2002.
Um mitt árið 2002 sameinaðist Pharmaco lyfja-
framleiðslufyrirtækinu Delta og varð Sindri for-
stjóri sameinaðs félags ásamt Róbert Wessman,
sem verður einn forstjóri félagsins eftir að Sindri
lætur af störfum.
Umsvif Pharmaco hafa sjöfaldast á síðustu fjór-
um árum og varð methagnaður í rekstri félagsins á
síðasta ári. Félagið er nú metið á um 50 milljarða
íslenskra króna og er verðmætasta félagið sem
skráð er í Kauphöll Íslands.
Stórkostlegt tækifæri í Búlgaríu
Að sögn Sindra var heppilegt fyrir Pharmaco að
þeir Róbert voru báðir forstjórar fyrirtækisins til
að byrja með en slíkt fyrirkomulag sé þó ekki væn-
legt til langframa. Hann segir að samstarf þeirra
Róberts hafi gengið ákaflega vel.
Sindri segir að breytingarnar á Pharmaco hafi
verið gífurlegar. Mest muni þar um útrásina sem
hófst á árinu 1999. Fram að því hafi félagið þó ver-
ið tiltölulega stórtækt í fjárfestingum á ýmsum
sviðum, s.s. fiskeldi, gosdrykkjaframleiðslu, bjór-
framleiðslu, tryggingarekstri, tölvurekstri og
fleiru.
„Ég held að það sé æskilegast og líklegast til ár-
angurs fyrir félög að vera sem mest á sínum af-
mörkuðu sviðum. Það er hins vegar hamlandi hér á
landi hvað markaðurinn er lítill. Því er stórkost-
legt að hafa komist inn á markað í útlöndum sem
er nánast ótakmarkaður að stærð. Það tel ég að
eigi við um kaup Pharmaco á Balkanpharma. Á
grundvelli þeirra var hægt að einblína á það sem
félagið kunni og gat.
Því verður ekki á móti mælt að við hjá Pharma-
co vorum heppin. Við fengum tækifæri í Búlgaríu
sem við nýttum okkur. Þegar það kom til tókum
við ákvörðun um að snúa okkur svo til alfarið að
þeim rekstri sem við þekktum best og seldum það
sem félagið hafði fjárfest á öðrum sviðum. Í þeim
efnum vorum við einnig heppin.“
Mest umskipti að selja heildsöluna
Sindri segir að fyrir sig persónulega hafi mest
umskipti orðið á þeim rúmu tveimur áratugum
sem hann hefur starfað hjá Pharmaco er félagið
seldi í fyrra heildsöluna sem nú heitir Pharmanor.
„Það var minn gamli vinnustaður og þar starfaði
fólkið sem ég hafði unnið með frá því ég byrjaði hjá
Pharmaco. Það voru í raun mestu umskiptin fyrir
mig í starfi að sleppa hendinni af þessum hluta
rekstrarins. Af þeim 7.400 manns sem nú starfa
hjá Pharmaco er hins vegar enginn starfsmaður
sem ég hef starfað með óslitið frá árinu 1981. Engu
að síður eru í dag nokkrir starfsmenn hjá Pharma-
co sem ég starfaði með þegar ég byrjaði hjá félag-
inu, en fóru yfir með Delta þegar Pharmaco seldi
framleiðsluhluta sinn á árinu 1992.
Í þessu sambandi er gaman að segja frá því að í
fyrstu vikunni sem ég vann hjá Pharmaco sá ég
um kaupin á því húsi sem Delta var síðan byggt
upp í í Hafnarfirði. Þetta hús var þá kallað „happí“
húsið. Nokkuð gott nafn sem ég held að eigi vel
við,“ segir Sindri Sindrason.
Kominn tími til að breyta til
Sindri Sindrason hættir störfum
sem annar forstjóri Pharmaco á
miðju þessu ári. Hann segir að
kominn sé tími til að breyta til og
hægja örlítið á eftir mikinn eril
undanfarin þrjú til fjögur ár.
Sindri Sindrason hættir hjá Pharmaco á miðju
þessu ári eftir að hafa verið forstjóri í 22 ár.
Morgunblaðið/RAX
NORSK yfirvöld eru nú að rannsaka
brottkast frá frystitogara, sem tal-
inn er hafa kastað 264 tonnum af
ufsa og þorski í
sjóinn. Norska
strandgæzlan
stóð togarann
að verki, en
brottkastið
fólst í því að að-
eins hluti fisks-
ins var nýttur,
hitt fór í sjóinn.
Strandgæzlan fór um borð í togar-
ann fyrir utan Vesteraalen og við
rannsókn um borð kom í ljós að
þorskurinn var hausaður þannig að
stór hluti bolsins fylgdi með, en aft-
urhlutinn var síðan flakaður. Talið
var að það, sem þannig átti að kasta
af þorski, svaraði til 24 tonna og af
ufsa 240 tonna.
Skýringin á þessum aðferðum er
talin sú, að fiskurinn sé of stór fyrir
vinnsluvélar togarans, en þær séu
stilltar á fremur smáan fisk. Fyrir
vikið verður afli togarans verulega
umfram það sem reiknað er út frá
því sem kemur í land af flökum.
Um þetta er fjallað í norska
blaðinu Dagbladet nú í marz. Þar
kemur fram að þetta brottkast eitt
og sér svari til árskvóta 14 smábáta.
Refsing við brottkasti af þessu
tagi fyrir skipstjórann getur verið
fangelsi í allt að tvö ár auk sektar
fyrir útgerðina.
Í blaðinu segir ennfremur að
flakafrystitogarar Norðmanna séu
15 og hafi þeir samtals 13.000 tonna
kvóta af þorski og sama magn af ufsa
í Barentshafi.
Henda
hálfum
fiskinum