Morgunblaðið - 04.04.2003, Side 18
UTANRÍKISRÁÐHERRA Banda-
ríkjanna, Colin Powell, sagði í Bruss-
el í gær að Sameinuðu þjóðirnar
hlytu að hafa hlutverki að gegna í
uppbyggingu Íraks eftir stríðið og
falli Saddams Husseins en ekki væri
enn fyllilega ljóst hvert það yrði, að
sögn AFP-fréttastofunnar.
Dominique de Villepin, utanríkis-
ráðherra Frakklands, sagði hins
vegar að mjög breið samstaða væri
um það meðal ríkja Evrópusam-
bandsins, ESB, og Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, að SÞ léki að-
alhlutverkið í slíkri uppbyggingu.
Jack Straw, utanríkisráðherra Bret-
lands, tók í svipaðan streng.
George Papandreou, utanríkisráð-
herra Grikklands, sem fer fyrir ESB
þetta misserið, var bjartsýnn. „Við
sjáum að eining er að nást um þessi
málefni,“ sagði Papandreou eftir
óformlegan hádegisverðarfund utan-
ríkisráðherra ESB og NATO í
Brussel í gær.
Powell bað sjálfur um fundinn
með ESB og síðar í gær var haldinn
hefðbundinn samráðsfundur utan-
ríkisráðherra NATO. Á miðvikudag
hitti Powell tyrkneska ráðamenn að
máli í Ankara og lýstu jafnt hann
sem Tyrkir yfir mikilli ánægju með
þær viðræður. „Efasemdum um
tengsl Tyrklands og Bandaríkjanna
hefur verið eytt,“ sagði Abdullah
Gul, utanríkisráðherra Tyrklands.
Tyrknesk blöð hrósuðu Powell
ákaft og sögðu hann hafa jafnað
ágreining ríkjanna síðustu vikur
vegna Íraksstríðsins að verulegu
leyti þótt enn væri margt óunnið í
þeim efnum. Powell fékk Tyrki á
miðvikudag til að samþykkja að
flytja mætti mat, sjúkragögn og olíu
til fámennra hersveita sem Banda-
ríkjamenn hafa flutt loftleiðis til hér-
aða Kúrda í norðurhluta Íraks.
Samstarf um uppbyggingu?
Bandaríski utanríkisráðherrann
sagðist á blaðamannafundi hafa tjáð
starfsbræðrum sínum hjá NATO og
ESB að alþjóðasamfélagið yrði allt
að vinna í sameiningu að því að
byggja Írak upp á ný. „Sameinuðu
þjóðirnar munu án efa taka þátt í
því,“ sagði hann en bætti við: „Ná-
kvæmlega hvert hlutverk SÞ verður
mun koma í ljós.“
Gunnar Gunnarsson, fastafulltrúi
Íslands hjá NATO, sat samráðsfund-
inn fyrir hönd Halldórs Ásgrímsson-
ar utanríkisráðherra.
„Mjög gott andrúmsloft var á
fundinum,“ sagði Gunnar. „Menn
sögðu strax í upphafi: nú skulum við
leggja til hliðar þessi ágreiningsmál
sem hafa verið hér síðustu vikur og
mánuði en huga að framtíðinni.“
Umræðuefnið á hádegisverðarfund-
inum hefði aðallega verið hlutverk
SÞ í Írak að loknu stríðinu og nauð-
synlegt samstarf. Ljóst væri að
nokkur áherslumunur væri á við-
horfum til þeirra mála en menn teldu
allir að hlutverkið ætti að verða mik-
ilvægt.
Ekki hefði verið tekin nein
ákvörðun á NATO-fundinum um af-
stöðu bandalagsins til aðgerðanna í
Írak og framhaldið eftir að átökum
þar lýkur. Mikið hefði að þessu sinni
verið rætt um framtíðarskipulag
friðargæslunnar í Afganistan en
Þjóðverjar og Hollendingar munu
stjórna henni fram á haust. Sagði
Gunnar að rætt hefði verið um aukið
hlutverk NATO í gæslunni. Sam-
komulag væri um að koma þyrfti
meiri festu á starf gæsluliðsins þann-
ig að ekki þyrfti á sex mánaða fresti
að fá ný ríki til að annast yfirstjórn
liðsins.
Segir SÞ fá hlutverk
við endurreisnina
Gott andrúmsloft á fundi Colins Powells með fulltrúum
Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins í gær
Reuters
Powell ræðir við fréttamenn að loknum fundi með fulltrúum NATO.
STJÓRN Íraks neitaði því í gær að
innrásarlið bandamanna væri ná-
lægt Bagdad og aðalflugvelli borg-
arinnar og sagði að íraskir hermenn
veittu enn harða mótspyrnu í öðrum
borgum landsins. Í íraska ríkissjón-
varpinu var einnig lesin yfirlýsing,
sem sögð var frá Saddam Hussein,
þar sem íbúar bæja sunnan við höf-
uðborgina voru hvattir til að verja
hana og „berjast við óvininn með
hnúum og hnefum“.
Talsmaður stjórnar Saddams,
Mohammed Said al-Sahhaf
upplýsingaráðherra, sagði á blaða-
mannafundi að ekkert væri hæft í
staðhæfingum bandarískra embætt-
ismanna og herforingja um að
bandarískir hermenn væru tæpa 15
km frá höfuðborginni og nálægt al-
þjóðaflugvelli hennar. „Þeir eru ekki
einu sinni 160 kílómetra frá Bag-
dad,“ sagði ráðherrann. „Þeir eru á
ferð og flugi út um allt, þeir eru svín
á ferð um eyðimörkina,“ bætti hann
við og lýsti innrásarliðinu sem mála-
liðum. „Væru þeir hérna myndum
við bjóða þá velkomna með tónlist og
blómum,“ sagði hann hæðnislega.
Segjast hafa grandað flug-
vélum og skriðdrekum
Sahhaf sagði að íraskir hermenn
berðust enn gegn innrásarliðinu í
mörgum borgum og bæjum, meðal
annars Basra, Karbala, Najaf og
Nasiriya. „Það er ekki nóg að tala
um mikið mannfall,“ sagði hann. „Við
höfum eyðilagt skriðdreka og liðs-
flutningabíla, fellt hermenn og ætl-
um að halda því áfram.“
Ráðherrann bætti við að íraskir
hermenn sunnan við Karbala hefðu
grandað herþotu af gerðinni F-18,
Apache-árásarþyrlu og Chinook-
liðsflutningaþyrlu. Bandaríkjaher
viðurkenndi að F-18 þotu væri sakn-
að, og líklega hefðu Írakar skotið
hana niður. Hún kynni þó að hafa
orðið fyrir bandarískri Patriot-flaug,
og var rannsókn hafin í gær. Black-
hawk-þyrla hefði einnig hrapað ná-
lægt Karbala en ekki væri talið að
hún hefði verið skotin niður. Sex fór-
ust með henni.
Sahhaf sagði að liðsmenn Fed-
ayeen-sveita stuðningsmanna Sadd-
ams hefðu einnig grandað þremur
skriðdrekum, liðsflutningabílum
sunnan við Karbala og skriðdreka og
annarri Apache-þyrlu í Muthana-
héraði í Suður-Írak.
Þá hefðu íraskir hermenn hrundið
árás innrásarliðsins nálægt Basra,
stærstu borg Suður-Íraks, á mið-
vikudag. „Ástandið í Basra er gott og
hermenn okkar eru þar enn,“ sagði
Sahhaf og bætti við að Írakar veittu
jafnvel enn mótspyrnu í hafnarbæn-
um Umm Qasr sem hertekinn var
fyrir tveimur vikum.
Ráðherrann sagði að 27 óbreyttir
borgarar hefðu fallið og 193 særst í
loftárásum á Bagdad og nágrenni í
gær. Fjórtán þeirra hefðu fallið og
66 særst þegar klasasprengjum
hefði verið varpað á eitt hverfa höf-
uðborgarinnar í gærmorgun.
Sahhaf las síðar um daginn yfir-
lýsingu í sjónvarpi og sagði hana
vera frá Saddam Hussein. „Margar
þúsundir hermanna verja föðurland
okkar og leyfa innrásarliðinu ekki að
fara inn í Bagdad án þess að sigra
það og hrekja brott,“ sagði í yfirlýs-
ingunni. Sagt var að Írakar hefðu að-
eins beitt þriðjungnum af herafla
sínum í stríðinu til þessa.
Neita því að
innrásarliðið sé
nálægt Bagdad
Írakar hvattir til að berjast „með
hnúum og hnefum“ sunnan Bagdad
Bagdad. AFP.
„Þessi fjórða heimsstyrjöld mun standa lengur en fyrstu tvær“
JAMES WOOLSEY, FYRRVERANDI YFIRMAÐUR CIA
BRESKIR hermenn virða fyrir sér
rúmlega tvö hundruð sprengju-
vörpuhleðslur sem fundust í Abu Al
Khasib í Suður-Írak í gær. Hleðsl-
unum var síðan eytt með plast-
sprengjum.
Reuters
Mikið vopnabúr
STRÍÐ Í ÍRAK
18 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#$
%
#&
'()) !
*
+
! ,
+ -
!
.
&
/ 0-
1/ 20-3
45/30-0
63 7 8 0/0 0 9:*7&
& ; / 2 0 - 3
0 3
'< - =
>
45678/97:-/;:<
5==:>!5=:/,
? 0
!
0/
! @A B!0!