Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 19
STRÍÐ Í ÍRAK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 19
MAGÎCils
MIKILL LITUR - SKOLAST
AUÐVELDLEGA AF - ÓTRÚLEGA ENDINGAR-
GÓÐUR MASKARI SEM LENGIR AUGNHÁRIN
Augnhárin eru löng og þakin töfrandi lit
sem endist allan daginn. Skemmtu
augnhárunum með Magîcils og skolaðu
þau síðan einfaldlega hrein!
TRÚÐU Á FEGURÐ
Töfrandi litir:
Maskari sem endist
allan daginn og skolast af
með vatni!
Kynning í dag og
á morgun, laugardag.
Ýmsar skemmtilegar nýjungar verða kynntar
s.s. nýr maskari og ný andlitskrem.
Frábær tilboð á öllum rakakremunum og
glæsilegir kaupaukar.
Kringlan, sími 533 4533
Smáralind, sími 554 3960
NÝTT
heimsæktu
www.lancome.com
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR HEIMIR GUÐMUNDSSON, byggingameistari,
í símum: 892 3742 og 483 3693 eða á www.tresmidjan.is
TRÉSMIÐJA HEIMIS GUÐMUNDSSONAR - ÞORLÁKSHÖFN
STARFSMANNAFÉLÖG,
EINSTKALINGAR OG AÐILAR
Í FERÐAÞJÓNUSTU:
ERUM AÐ FRAMLEIÐA
STÓRGLÆSILEG OG VÖNDUÐ
SUMARHÚS - ORLOFSHÚS
Í ÝMSUM STÆRÐUM.
HÖFUM TIL SÝNIS Á STAÐNUM HÚS Á ÝMSUM
BYGGINGARSTIGUM-HÖFUM EINNIG FULLBÚIN
SUMARHÚS TIL SÝNINGAR.
HEF TIL SÖLU SUMARHÚSASLÓÐIR, EF ÓSKAÐ
ER, Á FRÁBÆRUM STAÐ ÞAR SEM ER
HITAVEITA, RAFMAGN, STUTT Í ALLA
ÞJÓNUSTU, SUND OG GOLFVÖLL.
TÖKUM EINNIG AÐ OKKUR VIÐHALD OG
BREYTINGAR Á ELDRI HÚSUM, SETJUM NIÐUR
HEITA POTTA OG SMÍÐUM PALLA
OG SKJÓLVEGGI.
BANDARÍSKAR hersveitir eru
nú nálægt Bagdad en sérfræðing-
ar í hermálum telja að framrásin
geti verið merki um að liðsmenn
Lýðveldisvarðarins, úrvalssveita
Írakshers, hafi hörfað inn í höf-
uðborgina til að búa sig undir
lokaorrustuna og „móður alls
borgarhernaðar“, svo notuð séu
orð sem eru leiðtogum Íraks töm.
Fyrirskipað að fara aftur
inn í Bagdad
„Ég er ekki alveg viss um að
Bandaríkjamenn hafi slegið her-
fylkjum Lýðveldisvarðarins við,“
sagði Willam Hopkinson, hermála-
sérfræðingur við virta rannsókna-
stofnun í London, Royal Institute
of International Affairs. Hann
skírskotaði til yfirlýsinga banda-
rískra herforingja í fyrradag um
að tveimur herfylkjum Lýðveldis-
varðarins af sex hefði verið „eytt“
og sagði að væri það rétt mætti
búast við því að miklu meira sæist
af eyðilögðum skriðdrekum og
jafnvel líkum íraskra hermanna.
Hopkinson bætti við að „jafnvel
þótt aðeins helmingur Lýðveldis-
varðarins hefði hörfað óskaddaður
væri það ekki góðs viti“.
The New York Times hafði eftir
hátt settum embættismanni í
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
inu að yfirmenn Írakshers væru
að safna saman eins mörgum her-
mönnum og þeir gætu og „fyrir-
skipa þeim að fara aftur inn í
borgina til að undirbúa lokaupp-
gjör“.
Bandaríski undirhershöfðinginn
Stanley McChrystal sagði í fyrra-
dag að Medina- og Bagdad-her-
fylki Lýðveldisvarðarins væru
ekki lengur „trúverðugur herafli“
en þau hefðu fengið liðsauka frá
öðrum sveitum Írakshers. Cliff
Beal, ritstjóri virts tímarits um
hermál, Jane’s Defense Weekly,
sagði að svo virtist sem liðsflutn-
ingar væru hafnir í Bagdad, her-
menn væru að setja upp stór-
skotavopn og varnarviðbúnað-
urinn hefði verið aukinn. Hann
sagði þó of snemmt að fullyrða
nokkuð um hvað Íraksher hygðist
fyrir.
Þurfa að verjast
inni í borginni
Beal sagði að Írakar hefðu „spil-
að vel úr slæmum spilum“ því þeir
ættu við ofurefli að etja á ber-
svæðinu fyrir utan borgina. Þeir
vissu að þeir þyrftu að lokum að
verjast inni í borginni þar sem
tæknilegir yfirburðir bandarísku
og bresku hersveitanna nýttust
síður. Borgarhernaður gæti einnig
leitt til mikils mannfalls meðal
óbreyttra borgara og ráðamenn-
irnir í Bagdad vonuðu að það yrði
til þess að Bandaríkjamenn og
Bretar neyddust til þess að hætta
árásunum.
Bandamenn geta ekki
gengið hart fram
Beal sagði að orrustan um
Bagdad gæti orðið „umfangsmesti
borgarhernaður frá átökunum í
Grosní“ og skírskotaði til árása
rússneska hersins á höfuðborg
Tétsníu. Rússar lögðu megnið af
Grosní í rúst en Beal sagði að
bandamenn gætu ekki gengið hart
fram þar sem þeir hefðu lagt
áherslu á að allt yrði gert til að
þyrma lífi óbreyttra borgara.
„Saddam Hussein veit að hann
getur ekki sigrað beiti Banda-
ríkjamenn og Bretar öllum hern-
aðarmættinum þannig að hann
heldur áfram að reyna að vinna al-
menning á sitt band. Hann getur
gert það með því að lýsa hermönn-
unum sem innrásarliði sem drepi
saklaust fólk.“
Efast um að Lýðveldisvörðurinn hafi verið yfirbugaður
Taldir undirbúa
blóðugt lokauppgjör
London. AFP.
’ Gæti orðið umfangsmesti
borgarhernaður
frá átökunum í
Grosní. ‘