Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 20
STRÍÐ Í ÍRAK
20 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur
Hampiðjunnar hf.
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður
haldinn í fundarsal félagsins, Bíldshöfða 9,
Reykjavík, föstudaginn 11. apríl 2003 og
hefst kl. 16:00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa
eigin hluti samkvæmt 55.gr.hlutafélagalaga.
3. Önnur mál sem löglega eru upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á
aðalfundi skulu hafa borist í hendur stjórnar
með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum
fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur
félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda,
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
Bíldshöfða 9, Reykjavík, hluthöfum til sýnis,
sjö dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn en
hyggjast gefa umboð verða að gera það
skriflega.
Stjórn Hampiðjunnar hf.
CHANCE frá CHANEL er kominn....
Clara Kringlunni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Snyrtivöruverslun Hygea Kringlunni,
Snyrtivöruverslun Hygea Laugavegi, Snyrtivöruverslun Hygea Smáralind,
Demenhams Smáralind, Andorra snyrtivöruverslun Hafnarfirði.
KAVEH Golestan, lausráðinn
myndatökumaður hjá BBC, breska
ríkisútvarpinu, lét lífið í fyrradag
þegar hann steig á jarðsprengju er
hann fór út úr bíl sínum við bæinn
Kifri í Írak.
Golestan var rúmlega fimmtugur
að aldri, íranskur að þjóðerni, og var
ásamt þremur mönnum öðrum við
myndatöku í Kifri. Samstarfsmaður
hans og framleiðandi, Stuart Hug-
hes, slasaðist einnig í sprengingunni
en hinir mennirnir tveir sluppu
ómeiddir.
Richard Sambrook, yfirmaður
fréttadeildar BBC, sagði, að Golest-
an hefði verið frábær fréttaljós-
myndari, sem hefði meðal annars
barist fyrir auknu tjáningarfrelsi í
landi sínu, Íran, og verið kunnur fyr-
ir störf sín hjá vestrænum fréttastof-
um. Hafði hann unnið fyrir BBC í
mörg ár og vottaði Sambrook fjöl-
skyldu hans samúð en Golestan, sem
fékk á sínum tíma Pulitzer-verðlaun-
in fyrir fréttamennsku, lætur eftir
sig eiginkonu og 19 ára gamlan son.
Golestan er þriðji starfsmaður
breskra fréttastofnana, sem lætur
lífið í Írak frá 20. mars. Gaby Rado
lést af slysförum í bænum Sulyam-
aniya í Kúrdahéruðunum og talið er,
að Terry Lloyd hafi fallið í skothríð
bandamanna við borgina Basra.
Báðir unnu þeir hjá ITN-sjónvarps-
stöðinni. Þá er tveggja samstarfs-
manna Lloyds saknað, Fred Neracs,
fransks myndatökumanns hans, og
líbansks túlks, Husseins Osmans.
Ástralska ríkisútvarpið hefur misst
einn mann, Paul Moran, en hann
týndi lífi í bílsprengingu í bænum
Khurmal 22. mars en hún varð alls
fimm mönnum að bana.
Golestan varð meðal annars kunn-
ur fyrir myndir sínar frá kúrdíska
bænum Halabja 1988 eftir að Írakar
höfðu drepið þar 5.000 með eitur-
gasi.
„Þetta var eins og kyrralífsmynd,
lífi, sem hafði stöðvast. Dauðinn birt-
ist mér þarna í nýrri mynd. Ég fór
inn í hús, inn í eldhúsið, og sá þar
látna konu með hníf í hendi. Hún
hafði verið að skera gulrætur,“ sagði
Golestan en hann fylgdist einnig með
falli og flótta Íranskeisara frá land-
inu og þegar íranskir byltingarverð-
ir lögðu undir sig bandaríska sendi-
ráðið í Teheran.
APKaveh Golestan er hann var að störfum í Írak í febrúar síðastliðnum.
BBC-maður fórst
í sprengingu
Að minnsta kosti fjórir fréttamenn
hafa týnt lífi í Íraksstríðinu
London. AFP.
FJÖLMIÐLAHERFERÐIN
sem bresk stjórnvöld hafa stað-
ið fyrir í tengslum við herför
bandamanna í Írak hefur beðið
mikinn hnekki og grafið undan
forræði ríkisstjórnar Tonys
Blairs forsætisráðherra, að
mati Tims Crooks, sérfræðings
í beitingu áróðurs.
„Áróðursaðgerðir Breta hafa
gengið afleitlega,“ sagði Crook,
sem er lektor í fjölmiðlafræði
við Háskólann í London. Þegar
herförin hafði staðið í viku
höfðu bresk yfirvöld glatað trú-
verðugleika. „Það er að segja,
það ber á ósamræmi, rang-
færslur þeirra og ýkjur eru of
augljósar.“
Hagræðingin hefst með
orðalaginu, eins og til dæmis
orðinu „bandamenn“, segir
Crook.
„Við nánari athugun kemur í
ljós að fyrst og fremst er um að
ræða hernaðarbandalag Bret-
lands og Bandaríkjanna. Hug-
myndin virðist vera sú, að þeir
vilji láta í veðri vaka að þeir
njóti stuðnings alls heimsins.“
Yfirlýsingar byggðar
á óljósum uppruna
Crook segir Breta m.a. beita
þeirri áróðursaðferð að gefa af-
dráttarlausar yfirlýsingar sem
eiga sér óljósan uppruna, t.d.
ónafngreinda heimildamenn í
leyniþjónustunni. Þegar mis-
ræmi komi í ljós geti yfirvöld
borið fyrir sig að hafa aldrei
fullyrt neitt sjálf.
Áróður
Breta
gagn-
rýndur
London. AFP.
ARABÍSKA sjónvarpsstöðin Al-Ja-
zeera tilkynnti í gær, að írösk yfir-
völd hefðu rekið einn fréttamanna
hennar frá Bagdad og bannað öðrum
fréttaflutning. Var engin ástæða gef-
in fyrir aðgerðunum, sem stöðin kall-
aði „fyrirvara- og ástæðulausar“.
Stöðin rauf útsendingu sína til að
skýra frá því, að íraska upplýsing-
aráðuneytið hefði tilkynnt, að Diar
al-Omari, einn fréttamanna stöðvar-
innar, mætti ekki flytja fréttir frá
Bagdad og annar, Tayseer Allouni,
yrði að fara úr landi.
„Al-Jazeera hefur ákveðið að
hætta fréttaflutningi frá Bagdad,
Basra og Mosul en senda samt áfram
myndir frá borgunum,“ sagði í yf-
irlýsingu stöðvarinnar en að hennar
sögn eru átta fréttamenn á hennar
vegum í Írak. Verða þeir flestir
áfram í landinu þar til írösk yfirvöld
hafa gert grein fyrir aðgerðum sín-
um.
Írakar hafa áður gripið til sams
konar aðgerða gegn vestrænum
fréttastofum, þar á meðal CNN, en
afstaða þeirra til Al-Jazeera kemur á
óvart vegna þess, að hún hefur bein-
línis verið sökuð um að draga taum
Íraka í fréttaflutningi sínum. Það
hafa til dæmis stjórnvöld í Banda-
ríkjunum og Bretlandi gert og gagn-
rýnt hana fyrir að sýna myndir af lík-
um bandarískra og breskra
hermanna.
Yfirheyrðir sem njósnarar
Íraksstjórn hefur verið að þrengja
að erlendum fréttamönnum í Bagd-
ad en síðastliðinn þriðjudag rak hún
burt tvo fréttamenn, ástralskan og
suður-afrískan og handtók tvo
fréttamenn hjá ástralska blaðinu
The Australian.
Haft er eftir fjórum fréttamönn-
um, breskum, spánskum, bandarísk-
um og dönskum, að þeir hafi verið í
haldi í alræmdasta fangelsinu í
Bagdad í viku og óttast þar um líf
sitt. Voru þeir yfirheyrðir daglega
sem njósnarar en sleppt að lokum og
eru nú komnir heilu og höldnu til
Amman í Jórdaníu.
Írakar amast
við Al-Jazeera
Einn fréttamaður rekinn og öðrum
bannaður fréttaflutningur
Doha. AP, AFP.
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060