Morgunblaðið - 04.04.2003, Síða 25
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 25
DAGNÝ Linda Krist-
jándsóttir skíðakona
kom heim til Ak-
ureyrar í vikunni
eftir að hafa verið
við æfingar og
keppni víða í Evrópu
undanfarna þrjá
mánuði. Dagnýju
Lindu var vel fagnað
við heimkomuna en
vinir, ættingjar og
ungir skíðakrakkar
tóku á móti henni á
Akureyrarflugvelli.
Þessi snjalla skíða-
kona er mætt til að
taka þátt í Skíðamóti
Íslands, sem að
þessu sinni fer fram
á heimavelli hennar – í Hlíðarfjalli
11.–13. apríl.
Dagný Linda varð þrefaldur Ís-
landsmeistari á landsmótinu sem
fram fór í Böggvisstaðafjalli á Dal-
vík fyrir um ári en þar sigraði hún í
svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni.
Hún hefur því titla að verja en sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið ætla
að gera sitt besta. „Ég hef ekkert
farið á skíði hér heima í vetur og að-
stæðurnar í Hlíðarfjalli eru aðeins
öðruvísi en maður á að venjast og
það getur því allt gerst. Ég ætla hins
vegar ekkert að gefa eftir og stefni
hátt.“ Dagný Linda hefur lagt mun
minni áherslu á svig en aðrar grein-
ar og hún sagði það því hafa verið
sérstaklega gaman að vinna svigið á
landsmótinu í fyrra. „Ég átti alls
ekki von á því að vinna svigið og það
verður spennandi að sjá hvernig
mér tekst til að þessu sinni.“
Dagný Linda hefur verið meira
og minna erlendis við æfingar og
keppni frá því í ágúst í fyrra en hún
var í 10 daga fríi hér heima um jólin.
Frá því að keppnistímabilið hófst í
nóvember hefur Dagný Linda keppt
á 50 mótum á 22 stöðum í 8 Evr-
ópulöndum, Austuríki, Sviss, Ítalíu,
Þýskalandi, Frakklandi, Slóveníu,
Svíþjóð og Noregi. Dagný Linda
lauk keppnisferðinni í Noregi sl.
mánudag, þar sem hún vann tvö
risasvigsmót sama daginn. Hún
sagðist mjög ánægð með árang-
urinn í vetur en hún hefur bætt sig
mikið í bruni og risasvigi. Punkta-
staðan í stórsvigi og svigi er hins
vegar svipuð og í fyrra.
Dagný Linda keppti á heims-
meistaramótinu í alpagreinum í St.
Moritz í Sviss í byrjun febrúar og
náði þar ágætum árangri. „Ég hafði
sett mér það markmið að verða í
hópi þeirra 30 efstu á mótinu. Ég
hafnaði í 27. sæti í risasvigi, 32. sæti
í bruni og í 19. sæti í samanlagðri
keppni í svigi og bruni og er bara
ánægð með árangurinn.“ Dagný
Linda hefur sett sér enn frekari
markmið fyrir komandi ár. Hún
stefnir að þátttöku í Evrópubik-
arnum á næsta ári og jafnvel Heims-
bikarnum. Auk þess stefnir hún að
því að keppa fyrir Íslands hönd á
HM 2005 og á Ólympíuleikunum
2006. „Ég er því ekkert að hætta al-
veg strax.“
Dagný Linda mætt til þátttöku
á Skíðamóti Íslands í Hlíðarfjalli
Dagný Lindu Kristjánsdóttur skíðakonu var vel
fagnað við komuna til Akureyrar.
Hefur keppt á um
50 mótum í 8 löndum
síðustu mánuði
Morgunblaðið/Kristján
Sjálfstæðisflokkurinn opnar kosn-
ingaskrifstofu sína í Kaupangi við
Mýrarveg í dag, föstudaginn 4. apríl,
og verður opið frá kl. 17 til 19. Boðið
verður upp á léttar veitingar.
Í DAG
Aðalfundur Félags skógarbænda
á Norðurlandi verður haldinn í
Ljósvetningabúð, Köldukinn, laug-
ardaginn 5. apríl kl. 13.30.
Auk hefðbundinna aðalfund-
arstarfa flytur Brynjar Skúlason
skógfræðingur erindi um arðsemi
skógræktar og Valgerður Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Norður-
landsskóga, kynnir starfsemi verk-
efnisins.
Pétur Pétursson heilsugæslu-
læknir er gestur á laugardagsfundi
hjá Vinstrihreyfingunni-grænu
framboði á Akureyri á morgun, 5.
apríl. Erindi Péturs á fundinum
ber titilinn „Heilsugæsla í
kreppu“.
Fundurinn hefst kl. 11 í kosninga-
miðstöðinni í Hafnarstræti 94.
Á MORGUN
UM 10% fleiri farþegar hafa ferðast
með Flugfélagi Íslands á flugleiðinni
Akureyri–Reykjavík á fyrstu þrem-
ur mánuðum þessa árs miðað við
sama tíma í fyrra.
Jón Karl Ólafsson framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands sagði að
farþegum félagsins hefði fækkað
nokkuð á síðustu tveimur árum, en í
lok síðasta árs hafi menn tekið eftir
jákvæðum breytingum og farþegum
tekið að fjölga á ný. Jón Karl sagði
að aukning hefði einnig orðið á leið-
inni til Ísafjarðar, um 10–12% á
fyrstu þremur mánuðum ársins mið-
að við sama tímabili á liðnu ári og hið
sama gilti um Egilsstaði. Raunar
hefði farþegum fjölgað um allt að
18% ef aðeins séu skoðaðar tölur fyr-
ir marsmánuð. „Það er greinilegt að
það er að lifna vel yfir mannlífinu
fyrir austan og við gerum ráð fyrir
að farþegum á þeirri leið muni fjölga
verulega á næstu mánuðum,“ sagði
Jón Karl. Af þessum sökum verðum
ferðatíðni í komandi sumaráætlun
meiri en verið hefur og gildir það um
alla áðurnefnda áfangastaði.
Þó svo að snjóleysi hafi sett strik í
reikninginn hjá skíðafólki sagði Jón
Karl að ferðafólk sem væri að skjót-
ast í helgarferðir norður hefði mikið
verið á ferðinni. Mikið hefði verið um
fundi og ráðstefnur að undanförnu
og þá kæmi fólk af höfuðborgar-
svæðinu í auknum mæli í árshátíð-
arferðir til Akureyrar. Jón Karl
sagði að umsvif kringum Háskólann
á Akureyri hefði einnig sitt að segja
og eins umsvif kringum viðskiptalíf-
ið, en hann áætlaði að um 25–30%
farþeganna ferðuðust á milli Reykja-
víkur og Akureyrar í tengslum við
viðskiptalífið eða háskólann.
Jón Karl sagði að með aukinni net-
notkun væri fólk farið að átta sig á að
flug væri hagkvæmur kostur, en
ávallt væru í boði netfargjöld sem
kostuðu á bilinu 4.500 til 6.000 krón-
ur, en áætla mætti að útlagður
kostnaður við akstur einkabíls milli
staðanna tveggja væri um 25 þúsund
krónur.
Um 150 þúsund farþegar ferðast
með félaginu á flugleiðinni milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur árlega.
„Við erum nokkuð brött, þetta er
allt á uppleið og mér sýnist sem sam-
dráttarskeiðinu sem staðið hefur síð-
ustu tvö ár sé lokið,“ sagði Jón Karl.
Farþegum Flugfélags Íslands fjölgar frá áramótum
Um 10–18% aukning farþega
www.islandia.is/~heilsuhorn
Garlic
Fyrir hjartað og æðakerfið
PÓSTSENDUM
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
Jólahúsið í Kópavogi
Smiðjuvegi 23a • sími 568 8181 • www.jolahusid.com
Rýmingarsala
40% afsláttur
á vörum frá Williray studio
Lóð - Vöruhús – Til sölu
Nú er til sölu atvinnuhúsnæði á góðum stað á Oddeyri
Húsið er staðsett við Laufásgötu á Akur-
eyri. Grunnflötur hússins er um 360 fm.
Lofthæð er góð, tvennar innkeyrsludyr
eru á austurstafni hússins. Geymsluloft
er yfir öllu húsinu, hluti þess er steyptur
en hluti úr timbri. Eigninni fylgir stór lóð
sem býður upp á mikla möguleika.
Tilboð óskast
Allar frekari upplýsingar eru veittar á
Fasteignasölunni Byggð (Björn),
s. 462 1744 og 462 1820,
s. 897 7832 (Björn),
fax 462 7746.
Ný sending
Kápur Jakkar
Hörfatnaður Bolir
Jakkapeysur Buxur
Samkvæmisfatnaður
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Verið velkomin.
Laugardagskaffi
í Valhöll
Fylgist með
næstu
fundum
á xd.is
Allir
velkomnir
Upplýsinga- og fræðslunefnd
Sjálfstæðisflokksins heldur
opna spjallfundi í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, á laugardags-
morgnum fram að kosningum.
Annar fundurinn verður
á morgun, laugardaginn
8. mars, kl. 11.00.
Gestur fundarins verður
Davíð Oddsson,
forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Sími 515 1700
Upplýsinga- og fræðslunefnd
Þriðji fundur verður á
morgun, laugardaginn 15.
mars, kl. 11 00.
Gestur fundarins verður
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
alþingismaður.
Ásta Möller, alþingismaður
Dagný Halldórsdóttir, formaður Félags
kvenna í atvinnurekstri,
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor
Háskólans í Reykjavík.
Gestir á morgun klukkan 11.00
verða
Ásta Guðfinna Dagný